Tíminn - 13.08.1991, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 13. ágúst 1991
Tíminn 9
JlreHof*s <$> NORSKA LÍNAN # IsaJilJiJ
Skútuvoji l.’i, ]()4 Keykjavík, sími 9]-6890Í>0, Jón Ej'gertsson símar 985-2‘>8H5 92-12775
Grein í tímaritinu Húsbyggjandanum um skyldurfast-
eignasala veitir rangar upplýsingar:
Umfang þjónustunnar
hefur fjórfaldast
íbúðarkaupandi sem taldi sig ekki hafa fengið lðgboðna þjónustu
hjá fasteignasaia hafði samband við Tímann og benti máli sínu til
staðfestingar á nýlega grein í blaði sem heitir Húsbyggjandinn og
dreift var í hús á höfuðborgarsvæðinu.
í grein þessari er tíunduð sú þjón-
usta sem fasteignasalar eiga að veita
viðskiptavinum sínum. Enginn
kannast við að hafa skrifað þessa
grein né getur svarað fyrir efni
hennar. Samkvæmt upplýsingum
dómsmálaráðuneytisins eru þær
upplýsingar sem þar koma fram
flestar rangar.
Fullyrt er t.d. að fasteignasalar eigi
að sjá um að láta þinglýsa kaup-
samningi hjá viðkomandi fógeta-
embætti. t>á segir og í greininni að
þeir eigi að sjá um flutning á lánum
milli eigna. Einnig eiga þeir, sam-
kvæmt því sem greinarhöfundur
telur, að fara með afsal í þinglýsingu
og sömuleiðis veðskuldabréf sem
seljandi fær sem greiðslu fyrir eftir-
stöðvar kaupverðs. Þá segir jafn-
framt, að sé þess óskað, eigi fast-
eignasalan að geta tekið að sér að
innheimta greiðslur sem tilgreindar
eru í kaupsamningi og einnig veð-
skuldabréf. Þessar fullyrðingar eru,
samkvæmt upplýsingum frá dóms-
málaráðuneytinu, rangar.
Þar segja menn að engin reglugerð
hafi verið gefin út um hvaða þjón-
ustu skuli veita. Þar fengust og þær
upplýsingar að lög séu til um lög-
gildingu fasteignasala frá 1987. Þar
er sagt í öðrum kafla laganna að
fasteignasalar beri þagnarskyldu og
skuli í hvívetna leysa störf sín svo
sem góðar viðskiptavenjur bjóði.
Þeir eiga að liðsinna báðum aðilum
og gæta réttmætra hagsmuna
þeirra. Þó er bent á að fasteignasali
sé bótaskyldur fari eitthvað úrskeið-
is við sölu fasteigna. í lögunum seg-
ir að fasteignasala sé rétt að áskilja
sér aukalega greiðslur fyrir útlagðan
auglýsingakostnað enda hafi eign
verið auglýst að beiðni eiganda. Að
öðru leyti er ekkert tiltekið í lögum
og reglugerðum um hver þjónusta
fasteignasala skuli vera.
Einn fasteignasali sem rætt var við
kvaðst veita þessa þjónustu en þá
gegn sérstakri þóknun. Hann áleit
að það færðist í vöxt að fasteignasal-
ar tækju að sér að fara með kaup-
samninga til þinglýsingar eftir að
húsbréfakerfið komst á. Það segir
hann að sé þannig til komið að þurfi
meiri hraða því ákvæði í fasteigna-
bréfi, sem á að skipta í húsbréf, segi
að það eigi að gera innan 60 daga.
Þess vegna sé ekki hægt að afhenda
kaupanda kaupsamninginn og síðan
seljandanum fasteignabréfið því
ekki sé hægt að tryggja seljandanum
að hann fái fasteignabréfinu þing-
lýst því það geti verið að kaupandi
trassi að þinglýsa kaupsamningn-
um. Þá fær seljandi ekki fasteigna-
bréfinu sínu þinglýst.
Aðrir fasteignasalar sem rætt var
við sögðu að þeir þyrftu að veita um-
fangsmeiri þjónustu en áður og þar
hefði verið um fjórföldun hennar á
undanförnum þremur árum. Það
segja þeir að felist í því að nú þurfi
fasteignasalar að afla allra gagna.
Reynt var að afla upplýsinga um
hver hefði skrifað greinina sem birt-
ist í tímaritinu Húsbyggjandanum.
Þær upplýsingar sem fengust voru
þær að blaðið hafi verið selt og þessi
grein hafi fylgt með í kaupunum.
Fyrrverandi ritstjóri mundi ekki eft-
ir því hver hefði samið þessa grein
og er því höfundur hennar ónefndur
og ókunnur. Það er þó ljóst að hér
hefur verið komið villandi upplýs-
ingum á framfæri sem hafa skapað
tortryggni á milli a.m.k. einhverra
fasteignasala og viðskiptavina
þeirra. -HÞ
[slenskar sjávarafurðir hf.
Nýtt rit um
ísl. fiska
íslenskar sjávarafurðir hf gáfu
nýlega út upplýsingabækling á
ensku um íslenska nytjafiska.
í ritinu er að finna myndir af 16
tegundum nytjafiska og nöfn þeirra
á 9 tungumálum. Þá eru í ritinu yfir-
lit yfir afla og nýtingu og ýmsar fieiri
upplýsingar. Einnig er að finna í riti
þessu næringarfræðilegar upplýs-
ingar.
Fyrirtækið hefur áður gefið út svip-
að rit og kom það að góðum notum
við kynningar á erlendum mörkuð-
um.
-HÞ (fréttatilkynning)
/ FYRSTA SÆTI
ÞRJÚÁR ÍRÖÐ
í FÖÐURLANDIJEPPANNA ERU MENN EKKI í VAFA!
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300
• • • I þrjú ár í röð hefur hið heimsþekkta bílablað FOUR WHEELER
metið að bestu og hagkvœmustu kaupin í 5 dyra jeppum séu í
Isuzu Trooper, af 10 sem biaðið prófaði.
isuzu Trooper er nú mest seldi erlendi jeppinn í Bandaríkjunum.
Reynslan afþessum bíl hérlendis er frábœr, enda koma hingað
bílablaðamenn frá mörgum löndum Evrópu til þess að prófa hann í
umhverfi sem á við hann.
Isuzu Trooper er ekki bara
góðs fólksbíls.
jeppi, hann hefurlíka alla eiginleika
Verð á þessum frábœru bílum er aðeins frá 2.075.000 kr.
fyrir 5 dyra bíl (sfaðgreiðsluverð).
NÚ EINNIG FÁANLEGIR SJÁLFSKIPTIR
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ.
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN.
Komdu með tjðlskylduna með þér
tll okkar og reynsluaklu þessum
Iráþœra bíl. sem menn mela
svo mlklls! lóðurlandi jeppanna!
SKÁTAMÓT
í KÓREU
Um þessar mundir stenduryf- af stað til London en hélt síðan
ir alheimsmót skáta í Kóreu. áleiðis tö Kóreu. Ðagana 2. til 4.
Það er skátahreyfing Kóreu sem ágúst dvaldi hópurinn á stað er
býður til mótsins. Þetta er 17. nefnist Kyunggi í boði kóreskra
mótið sem er haldið en alheims- fjölskyldna. Jafnframt voru
mót skáta eru alltaf haldin á markverðir staðir skoðaðir og
fiögurra ára fresti. Mótið hófst einnig gafst íslendingunum
8. ágúst sfðastliðinn og er það tækifæri á að kynnast lifnaðar-
haldið í Soraksan þjóögarðin- háttum innfæddra. Frá 4. tíl 8.
um. Það stendur í eina viku og ágúst dvaldi hópurinn á hóteli
verður því siitið þann 16. ágúst. og var þá tíminn vel nýttur til
Búist er við að um 20.000 skoðanaferða þar sem margt
manns muni taka þátt í mótinu nýtt er að sjá í Kóreu.
en að þessu sinni eru 16 ísiend- Að mótinu loknu mun ístenski
ingar meðal þátttakenda. Undir- hópurinn dvelja i boði japanskra
búningur þeirra hefur staðið yf- skáta f Osaka f Japan um nokk-
ir hátt í hálft annað ár. Þann 30. urra daga skeið.
júlí síðastliðinn lagði hópurinn
BÚNAÐUR fl? MEÐAL ANNARS:
ZálogilSha aHmikil og spameytin benslnvélmeð belnnl Innspýllngu eða2,8l
100 ha díselvél með totþjóppu og belnnl innspýtingu • Afe/ýií • AHhemlar
með læsingavara • framdrllslokur • tregðulœslng á atlurdrifl • Samlœslng
áhurðum • Ratdritnar túðuvindur • Sporifelgur • RathHuð tromsœll
• Útvaip með segulbandi • Háþrýstlþvoltur tyrir aðaHjós • Dagljósabúnaður.