Tíminn - 13.08.1991, Qupperneq 15
Þriðjudagur 13. ágúst 1991
Tíminn 15
FH-ingar bikarmeistarar í frjálsum íþróttum í annað sinn:
íl RFÉLLí r I
AÐRA DEILD
FH-ingar uröu bikarmeistarar í ann-
að sinn í 1. deild bikarkeppni Fijáls-
íþróttasambands íslands, sem haldin
var á Varmárvelli í Mosfellsbæ um
helgina. HSK varö í öðru sæti en þeir
unnu titilinn í fyrra. ÍR-ingar, frjáls-
íþróttastórveldiö sjálft, féll í aðra
deild í fyrsta sinn, en liðið hafði árið
1989, þegar FH vann titilinn í fyrsta
skipti, verið áskrifandi að bikarmeist-
aratitlinum í næstum tvo áratugi.
Keppnin í fyrstu og annarri deild var
ótrúlega spennandi og úrslitin réðust
á síðustu stundu. FH-ingar sigruðu í
fyrstu deild með 139 stigum, HSK
varð í öðru sæti með 127 stig, KR lenti
í þriðja sæti öllum að óvörum með
120 stig. Ungmennasamband Eyja-
Qarðar fékk 111 stig og hafnaði í fjórða
sæti, einu stigi meira en ÍR sem hafh-
aði í fimmta sæti og féll þar með í aðra
deild. Annað fyrrum frjálsíþróttaveldi,
Ármann, fékk 107 stig í 1. deild og
hafnaði í sjötta og neðsta sæti.
í annarri deild vann Ungmennasam-
band Skagafjarðar nokkuð öruggan
sigur og fékk 144 stig. Slagurinn um
annað sætið var öllu harðari og þegar
upp var staðið skildi aðeins hálft stig
liðin í öðru og þriðja sæti. Héraðssam-
band Þingeyinga fékk 125,5 stig, en
Ungmennasamband Kjalamesþings
fékk 125 stig. Það eru því UMSS og
HSÞ sem taka sæti ÍR og Ármanns í
fyrstu deild. Ungmennasamband
Áustur- Húnvetninga varð í fjórða
sæti í annarri deild með 117 stig. Ung-
mennasamband Borgarfjarðar fékk
einu stigi minna og féll því í þriðju
deild ásamt Ungmennasambandi
Dalamanna sem fékk 88 stig.
Sæti UMSB og UDN í annarri deild
taka HSH og USÚ sem urðu í fyrsta og
öðru sæti í þriðjudeildarkeppninni
sem fram fór á Akureyri um helgina.
—SE
Pétur Guðmundsson kúluvarp-
ari varpaði kúlunni tæpa tutt-
ugu metra á Varmárvelli í Mos-
fellsbæ um helgina og virðist
vera í fínu formi um þessar
mundir.
Tímamynd: Pjetur
13. umferð Samskipadeildarinnar leikin í gær og um helgina:
Risarnir sýndu
rislítinn leik
Leikur Reykjavíkurrisanna KR og
Vals á sunnudagskvöldið var held-
ur rislítiil og lítið fyrir augað.
Einkenndist hann af miðjuþófí og
fáum sem engum marktækifær-
um. Valsmenn sigruðu með einu
marki gegn engu og var sigurinn
mikilvægur fyrir liðið, enda hefur
það verið í botnbaráttu að undan-
fömu. KR-ingar töpuðu sínum
fjórða leik í röð.
Eina mark leiksins kom í síðari
hálfleik og var ótrúlega klaufalegt.
Sævar Jónsson tók aukaspyrnu við
hliðarlínu langt fyrir utan teig.
Hann gaf háan bolta inn í teiginn
og á einhvern óskiljanlegan hátt
skoppaði boltinn í markið framhjá
markverði KR-inga og án þess að
nokkur kæmi við hann. Um leik-
inn er annars lítið að segja. Hann
var fyrst og fremst leiðinlegur og
lítið fyrir augað, marktækifærin
hægt að telja á fingrum annarrar
handar. Sigur Valsmanna var
hvorki sannfærandi né sanngjarn,
leikurinn bauð ekki upp á neitt
annað en að úrslit hans yrðu
steindautt jafntefli.
KR-ingar, sem nú hafa tapað fjór-
um leikjum í röð, gerðu aðeins
eina breytingu á liði sínu fyrir
leikinn á sunnudagskvöldið. Ung-
ur leikmaður, Óskar Þorvaldsson,
kom inn í byrjunarliðið og skilaði
hlutverki sínu ágætlega. Framan
af var hann eini leikmaður KR
sem eitthvað var ógnandi. Gamlir
jaxlar í KR liðinu, eins og Ragnar,
Pétur og Atli, náðu ekki að rísa
upp úr meðalmennskunni, og
Ragnari Margeirssyni virðist alveg
vera fyrirmunað að skora úr upp-
lögðum færum. Hilmar Björnsson
og áðurnefndur Óskar voru ásamt
Þormóði Egilssyni bestir KR-inga.
Valsmenn leika með eindæmum
leiðinlega knattspymu þessa dag-
ana, enda hafa þeir varla skorað
mark í venjulegum leiktíma síðast-
liðinn mánuð eða lengur. Vömin
hjá þeim er sterk en gróf og sóknin
bitlítil. Bjami Sigurðsson var bestur
að vanda hjá Valsmönnum og Einar
Páll Tómasson sýndi ágætan leik.
Jafntefli á Akureyri
Fram og KA gerðu 1-1 jafntefli á
Akureyri á sunnudagskvöldið.
Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik
og vom sérlega glæsileg. Pétur
Ormslev skoraði mark á 19. mfn-
útu úr aukaspyrnu og Pavel Vand-
as jafnaði sex mínútum síðar með
firnaföstu skoti í þverslá og inn.
Loks lágu
Hafnfirðingar
Breiðablik sigraði FH í Kapla-
krika á sunnudaginn með þremur
mörkum gegn einu. Steindór Elís-
son skoraði tvö af mörkum Blik-
anna og Valur Valsson eitt. Mark-
amaskínan Hörður Magnússon
skoraði mark FH úr vítaspyrnu.
Breiðablik stöðvaði þar með sigur-
göngu Hafnfirðinga, en þeir höfðu
unnið sjö leiki í röð.
Víðismönnum
rúllaö upp
Stjaman rúllaði Víðismönnum
upp í Garði á sunnudagskvöldið.
Leikurinn endaði með fimm
mörkum Stjörnunnar gegn engu
og var staðan í hálfleik 4-0. Svein-
björn Hákonarson skoraði
þrennu, þar af eitt úr vítaspymu
og Ingólfiir Ingólfsson skoraði tvö
mörk.
Markasúpa
í Stjömugróf
í gærkvöldi áttust svo við lið Vík-
inga og ÍBV í Fossvoginum og
gerðu heimamenn sér lítið fyrir og
unnu Eyjamenn með 6 mörkum
gegn engu. Lengst af var þessi
leikur f þokkalegu jafnvægi og
staðan var 1-0 þegar rúmar 20
mínútur vom eftir. Þá hófst stór-
skotaliðsárás Víkinga sem skor-
uðu 5 mörk til viðbótar og
tryggðu sér annað sætið í deild-
inni á eftir Fram og löguðu um
leið markahlutfallið hjá sér svo
um munaði. —SE
Opin hjóna- og parakeppni á Hellu:
Kristín og
Haukurunnu
Á sunnudaginn fór fram opin hjóna-
og parakeppni á Strandarvelli á veg-
um golfklúbbs Hellu. Leiknar vom
18 holur með forgjöf og verðlaun
veitt fyrir 6 fyrstu sætin. Ffyrsta sæti
urðu Haukur Gíslason og Kristín
Pétursdóttir, GOS, á 65 höggum. í
öðru sæti Kristján Ágústsson GKJ og
Anna J. Sigurbergsdóttir GK, á 69
höggum. f þriðja sæti Sigurður Héð-
insson og Lóa Sigurbjörnsdóttir GK,
á 69 höggum. I fjórða sæti Ómar
Kristjánsson og Hjördís Ingvadóttir
GR, á 70 höggum. í fimmta sæti Rík-
harður Pálsson og Selma Hannes-
dóttir, GR á 70 höggum og í sjötta
sæti lentu Hilmar Björnsson og Sig-
rún Gunnarsdóttir GR, á 72 höggum.
AIls tóku 26 pör þátt í mótinu.
. —SE
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
JEPPA
HJÓLBARÐ
ARNIR
VINSÆLU
3? HANKOOK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15, kr. 6.320.
235/75 R15, kr. 6.950.
30- 9,5 R15, kr. 6.950.
31- 10,5 R15, kr. 7.950.
31-11,5 R15, kr. 9.470.
33-12,5 R15, kr. 9.950.
Látum bíla ekki
ganga að óþörffu!
verst á börnum . . .
Hröð og örugg
þjónusta.
BARÐINN hf.
Skútuvogl 2, Reykjavík
I Símar: 91-30501 og 91-84844
Grímur E. Thorarensen
frá Sigtúnum
er andaðist laugardaginn 3. ágúst verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu þriðjudaginn 13. ágúst kl. 13.30.
Bryndís Guðlaugsdóttir Kristín D. Thorarensen
Kristín Thorarensen Örn Vigfússon
Guðríður M. Thorarensen Þórður Ásgeirsson
Egill Thorarensen Þórunn Gestsdóttir
Guölaugur Thorarensen Laila Thorarensen
Daníel Thorarensen Þórey Hilmarsdóttir
Siguröur Thorarensen Áslaug Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.