Tíminn - 17.08.1991, Side 6
14
HELGIN
Laugardagur 17.ágúst 1991
Síðan Skein Sól
hefur sent frá sér
nýja plötur og seg-
ist Helgi Björns-
son, söngvari
sveitarinnar, vera
mjög ánægður
með útkomuna og
lögin á plötunni:
Síðan skein sól
Hljómsveitín Síðan Skein Sól sendi nýlega frá sér sína fjórðu breiðskífu
og hefur hún þegar þetta er ritað fengið með eindæmum góðar viðtök-
ur. Fyrstu vikuna fór hún beint í annað sætí yfir mest seldu skífurnar á
íslandi og strax vikuna á eftír fór hún á toppinn. Helgi Björnsson,
söngvari Sólarinnar, segist vera mjög ánægður með plötuna, enda má
hann vera það, hún er sannkallaður kostagripur.
Síðan Skein Sól var stofnuð árið 1987
og komu meðlimir hennar úr ýmsum
áttum, m.a. úr hljómsveitunum Grafík,
MX21 og Vunderfools. Meðlimir hennar
voru í byrjun Helgi Bjömsson söngvari,
Jakob Magnússon bassaleikari, Eyjólfur
Jóhannsson gítarleikari og Pétur Grét-
arsson trommuleikari. Pétur hætti fljót-
lega í sveitinni vegna anna og þá var
fenginn nýr trommuleikari, Ingólfur
Sigurðsson. Þannig var sveitin skipuð
þegar tveggja laga smáskífa með lögun-
um Blautar varir og Bannað kom út vor-
ið 1988.
Fyrir jólin sama ár kom fyrsta breið-
skífa sveitarinnar út og var hún skírð í
höfuðið á sveitinni, Síðan Skein Sól.
Sumarið eftir kom Sólin við sögu á safn-
plötu hjá Skífunni en um haustið ‘89
kom út breiðskífan Ég stend á skýi. Árið
eftir kom út breiðskífan Halló, ég elska
þig.
Nýjastaplatan, Klikkað, samanstendur
af nýju efni og gömlu, helmingur var
hljóðritaður í hljóðveri og helmingur á
tónleikum í skemmtistaðnum 1929 á
Akureyri. Þessi blanda af nýju og gömlu
efni kemur ótrúlega vel út, nýju lögin
eru öll mjög góð og gæðin á upptök-
unni á tónleikaútgáfunni eru með því
betra sem heyrst hefur. Sveitin er
greinilega í fínu formi um þessar
mundir og tónleikahljóðritunin sýnir
þann gífurlega kraft sem er í sveitinni á
góðum degi. Hún hefur spilað á tón-
leikum nánast í hverri viku í tæp fjögur
ár og samæfingin er nánast fúllkom-
lega hnökralaus.
TVO LÖG URÐU AÐ BREIÐSKIFU
Helgi Bjömsson er söngvari sveitar-
innar. Hann sagði að í fyrstu hefði átt
að koma út með þeim tveggja laga plata
í sumar, en málið hafi þróast og fyrr en
varði hefðu þeir haft í höndunum efni á
heila breiðskífu. „Upphaflega ætluðum
við að gefa út tvö ný lög á 12 tommu,
við höfum stundum verið með tvö til
þrjú lög á safnplötum og fannst það
orðið leiðinlegt form. Þá sáum við að
það var pláss fyrir eitthvað aðeins meira
og ákváðum að það væri þjóðþrifamál
að koma t.d. Blautum vörum á plast í
tónleikaútgáfu. Það varð til þess að við
hljóðrituðum tvenna tónleika. Síðan
þegar við hófum vinnu í hljóðveri, vor-
um við með miklu meira af lögum sem
við kýldum á að taka upp, og okkur
fannst þau virka vel. Fyrr en varði höfð-
um við í höndunum fimm ný lög sem
við vorum búnir að taka upp og klára,
og síðan völdum við fimm lög af tón-
leikunum sem við kunnum við, og
þannig varð þessi gripur til,“ sagði
Helgi Bjömsson.
Aðspurður hvers vegna jólamarkaður-
inn varð ekki fyrir valinu, sagði Helgi
að þeir hefðu verið búnir að ákveða að
taka sér frí eftir sumarið og vera ekki
með plötu fyrir jólin. „Við emm búnir
að spila síðan í apríl, reyndar verið að
spila sl. þrjú ár stanslaust. Við emm
bókaðir fram í miðjan október og eftir
það ætlum við að taka okkur frí frá
spilamennsku, en ætlum að finna okk-
ur einhvem skúr og leika okkur í friði
án þess að vera undir einhverri pressu.
Lokatónleikamir í þessari töm verða í
London. Við ætlum að taka þama
nokkra tónleika, aðallega fyrir okkur til
þess að hafa gaman af því. Við kannski
bjóðum einhverjum málsmetandi
mönnum að koma og hlýða á, ef þeim
líkar þá hafa þeir kannski eitthvað að
bjóða okkur, en ef svo er ekki þá nær
það ekkert lengra."
LÖGIN HAFA KVEIKT VEL í FÓLKI
Aðspurður um nýju plötuna sagði
Helgi að þeirra karakter kæmi vel og
dyggilega í gegn á henni. „Það em hlut-
ir á þessari plötu sem em svolítið í öðr-
um dúr en við höfum gert áður. En
okkar einkenni em sterk og ég er mjög
ánægður með þessa plötu og nýju lögin
sérstaklega. Þessi lög hafa kveikt vel í
fólki." Helgi sagði að samstarfið innan
sveitarinnar hefði gengið vel og menn
væm ekkert á þeim buxunum að hætta
þessu. „Við stefnum að því að setja okk-
ur frekari takmörk. Við ætlum að byrja
upp á nýtt, fara aftur á byrjunarpunkt,
inn í bílskúr og byrja á því að æfa og
semja og leika okkur, hafa óbundnar
hendur.“ Aðspurður sagði hann að nýja
platan setti að mörgu leyti punkt fyrir
aftan ákveðið tímabil. „í því ljósi finnst
mér vel við hæfi að hún sé sambland af
upptökum úr stúdíói og af tónleikum,
þverskurður af því sem við höfum verið
að gera.“ Helgi sagði að þeir hlökkuðu
allir til þess að hverfa aftur aðeins und-
ir yfirborðið. -SE
Kammertónlist á
Ki rkjubæjarklaust ri
Um helgina verður kammertón-
list flutt á Kirkjubæjarklaustri á
þrennum tónlelkum. Það eru tón-
listarmennimir Edda Erlends-
dóttir og Selma Guðmundsdóttir
píanóleikarar, Ólöf K. Harðardótt-
ir sópransöngkona, Pétur Jónas-
son gítarlcikari, Helga Þórarins-
dóttir víóluleikari, Sigrún Eðvalds
Og Guðný Cuðmundsdóttir flðlu-
leikarar og Gunnar Kvaran seiló-
ieikari sem sjá um flutninginn. Á
efnisskrá verða m.a. verk eftír
Mozart, Beethoven, Schumann,
Schubert, Moskovskky, Sarrasate,
Ama Thorsteinsson, Sigvalda
Kaldalóns, Jón Þórarinsson og
Eyþór Stefánsson.
Tónleikamir verða í félagsheim-
ilinu Kirkjuhvoli kl. 17 í dag,
iaugardag, og á sama tima á
morgun, sunnudag.
Tónlistarmennina þarf vart að
kynna, þau era fyrir löngu oröin
þjóðkunn fyrir list sfna, bæði hér
heima og erlendis. En það var
einkum að frumkvæði Eddu Er-
lendsdóttur að tónieikarair verða
haldnir, en áætlað er að slíkt verði
árviss atburður á Klaustri þó svo
að í ár séu þeir einn hlutí af M-há-
tíð á SuðuriandL
'""*SE
Auglýsing um viðtalstíma
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
á Eskifirði og Austurlandi
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verður með viðtalstíma á
Eskifirði og Akureyri sem hér segir:
Á skrifstofu Eskifjarðarkaupstaðar, þriðjudaginn 20. ágúst nk.
kl. 9.00- 12.00. Þeir sem áhuga hafa á að panta viðtalstíma við ráðherrann
skrái sig á skrifstofunni í síma 97- 61170.
Á skrifstofu Akureyrarbæjar, miðvikudaginn 28. ágúst nk., kl. 9-12.
Skráning viðtalstíma í síma skrifstofunnar, 96-21000.
Edda Erlendsdóttir píanóleíkari er eln af mörgum iistamönnum
sem koma fram á kammertónleikum í Klrkjuhvoli á Kirkjubæj-
arklaustri í dag og á morgun.