Tíminn - 21.08.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 21.ágúst1991
Bush og Jeltsin ræddu saman í síma í gær. Bush segir: íbúar Moidovu:
Bandaríkin vilja
Gorbatsjov aftur
George Bush, forseti Bandaríkjanna, fullvissaði Borís Jeltsin, for-
seta Rússlands, í gær um að hann gæti fullkomlega treyst á að
Bandaríkin styddu Gorbatsjov aftur til valda í Sovétríkjunum.
Á blaðamannafundi í gær sagðist
Bush hafa reynt að ná símasam-
bandi við Gorbatsjov, en það hefði
ekki tekist.
Á fundinum kom fram að Banda-
ríkjastjóm fordæmir hina nýju
stjórn í Sovétríkjunum og segir
hana ólöglega. George Bush Banda-
ríkjaforseti sagði að í ljósi þess
myndi ekki komast á venjulegt sam-
band á milli ríkjanna tveggja. Þá
sagði hann að á þessari stundu
kæmi fjárhagslegur stuðningur við
Sovétríkin ekki til greina og það yrði
ekki fyrr en valdaræningjarnir færu
frá að það yrði.
„í morgun (þ.e. gærmorgun) talaði
ég við Boris Jeltsin, sem er lýðræð-
islega kjörinn forseti rússneska lýð-
veldisins. Ég fullvissaði hann um
áframhaldandi stuðning Bandaríkj-
anna við Mikhail Gorbatsjov sem
forseta landsins," sagði Bush Banda-
ríkjaforseti.
Á fundinum tilkynnti Bush að Ro-
bert Strauss yrði sendur til Sovét-
ríkjanna sem sendiherra Bandaríkj-
anna þar, en hann myndi ekki af-
henda trúnaðarbréf sitt strax, held-
ur kanna ástandið í landinu.
Bush sagði að staða Gorbatsjovs
væri óljós og hann og Boris Jeltsin
eru sammála um að fullyrðingar
hinna nýju ráðamanna um að heilsa
hans væri í ólagi væru hrein þvæla
og aðeins gert til að breiða yfir ólög-
lega valdatöku. Jeltsin hefur krafist
þess að hlutlausir læknar fái að
rannsaka Gorbatsjov og athuga hvað
sé athugavert við heilsu hans. Þá
sagði Bush að tilraunum til að ná í
Gorbatsjov í gegnum síma yrði hald-
ið áfram.
Að sögn Bush hefur John Major
einnig reynt að ná sambandi við
Gorbatsjov, en ekki tekist. Bush
sagði að líklega væri Gorbatsjov
haldið í einangrun einhvers staðar.
Rétt áður en fundurinn átti sér stað
talaði Bush við ráðamenn í Austur-
Evrópu. Hann sagði þeim að lýð-
ræðið sem komið er á í löndunum
yrði ekki fótum troðið af valda-
mönnum í Kreml. „Mig langar til að
nota tækifærið og segja ráðamönn-
um í A-Evrópu að fylgst verður
gaumgæfilega með framvindu mála
og það er nauðsynlegt að allir haldi
stillingu sinni,“ sagði Bush. „Það er
ekkert sem ég vil gera til að réttlæta
þessa ólöglegu stjóm,“ sagði Bush
að lokum. Reuter-SIS
Þúsundir
mótmæla
nýrri
stjórn
í Búkarest í Moldovu mótmæltu
þúsundir manna nýjum valdhöfum í
Moskvu, að því er fréttir herma frá
Búkarest.
Forseti Moldova, Mircea Snegur,
ávarpaði mannfjöldann þar sem
hann fordæmdi hina nýju valdhafa
og sagði að valdarán hefði verið
framið. Mótmælunum var útvarpað
beint um allt landið.
„Forsetaembættið í Moldovu hefur
lýst svokallaða neyðarstjórn ólöglega
og allar aðgerðir hennar einnig,"
sagði Snegar. „Við látum ekki ein-
ræðisherra taka hér við völdum." Þá
hvatti hann fólkið til að halda ró
sinni.
Snegur hvatti íbúa Moldovu til að
stöðva allar tilraunir sovéska herliða
til að hertaka borgina. Fréttir frá
Moldovu herma að mikill ótti hafi
gripið um sig á mánudagsnótt, þegar
þúsundir manna gættu opinberra
bygginga og allra nauðsynlegra
fréttabygginga. Þá nótt keyrðu rúm-
Iega 20 sovéskir skriðdrekar um
borgina, án þess þó að stoppa.
Búið er að koma upp vegatálmum
víðs vegar um borgina og fólk gætir
útvarps- og sjónvarpsstöðva, svo og
skrifstofu ríkisstjórnarinnar.
Reuter-SIS
Lögreglan á Indlandi telur sig hafa fundið meintan
morðingja Rajivs Gandhi:
Fannst lát-
inn á felu-
staðnum
Boris Jeltsin.
LEITAR STUÐNINGS
VIÐ ÚTLAGASTJÓRN
Yfirlýsing EB:
Ætla ekki
að mæta
á ráð-
stefnu
í Moskvu
Evrópubandalagið tilkynnti í
gær að það myndi ekki mæta á
mannréttindaráðstefnu í
Mosku, sem fyrirhuguð er í
næsta mánuði, ef valdaránið frá
því á mánudag, þegar Mikhail
Gorbatsjov var vikið frá völd-
um, yrði ekki afturkallað. Þetta
var tilkynnt eftir neyðarfund
utanríkisráðherra landanna
tólf, þar sem þeir ræddu um
ástandið í Sovétríkjunum.
Jafnframt kom það fram að trú-
lega myndi ráðstefnan ekki fara
fram meðan harðlínumenn
væru við völd. í yfirlýsingu
Evrópubandalagsins segir að
skoðun ráðamanna landa inn-
an bandalagsins sé sú að þar til
stjórnskipulegri reglu og lýð-
ræðislegu frelsi verði komið í
samt lag aftur sé þátttaka
þeirra á fundinum ekki réttlæt-
anleg.
Lögreglan á Indlandi telur að hún
hafi fundið aðalforsprakka samtak-
anna sem grunuð eru um að hafa
staðið að baki morðinu á Rajiv
Gandhi, fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins. Maðurínn fannst lát-
inn í felustað sínum, en hann hefur
faríð huldu höfði í nokkum tíma.
Fimm karímenn og ein kona voru
einnig í felustaðnum. Þau vom öll
látin. Talið er að þau hafi gleypt blás-
ýruhylki til að stytta sér aldur.
Lögreglan á Indlandi hefur lengi
leitað þessa manns og þegar búið var
að finna felustað hans gerði lögregl-
an umsátur um staðinn. Þegar fólkið
kom ekki út úr húsinu, réðst sérsveit
lögreglunnar inn og kom þá að fólk-
inu látnu.
Fólkið var í frelsissamtökum sem
kalla sig Tamílsku tígrarnir og var frá
Sri Lanka. Vijay Karan, sem stjórnar
rannsókninni á morðinu, segir að
leitað sé að öllum meðlimum sam-
takanna.
Tálið er að Támílsku tígrarnir hafi
myrt Gandhi vegna ótta um að hann
kæmist til valda á ný.
Maðurinn, sem leitað var að, hét
Raja Arumainayagam. Hann var 32
ára gamall og var frá Jaffna.
Reuter-SIS
í gær sendi Boris Jeltsin, forseti
Rússlands, utanríkisráðherra
sinn, Andrei Kozyrev, til Parísar
til að leita eftir stuðningi Vestur-
landa við útlagastjórn.
Kozyrev sagði að ástæða þess að
Jeltsin hefði valið sig til að fara til
Parísar, Washington og til við-
ræðna við Sameinuðu þjóðirnar
væri sú að samkvæmt alþjóðalög-
um gæti hann, sem utanríkisráð-
herra, komið á útlagastjórn án
þess að þurfa til þess sérstök völd.
Jafnframt sagðist Kozyrev vera
að leita eftir stuðningi Vestur-
landa við Jeltsin og biðja þau um
að viðurkenna ekki neyðarstjórn-
ina.
Fréttayfirlit
MOSKVA - Boris Jeltsin, forseti
Rússlands, býður valdaræningj-
unum I Kreml birginn fullum
hálsí, dyggilega studdur, m.a. af
ríámumönnum sem farið hafa aö
tilmælum hans og lagt niður
vinnu. Stuðningsmenn Jeltsins
söfnuðust þúsundum saman við
þinghús rússneska lýðveldisins í
Moskvu í gær þegar búist var viö
skriðdrekaárás valdaræningj-
anna á bygginguna.
MOSKVA - Boris Jeltsin sagði í
simtali við John Major, forsætis-
ráðherra Breta, að hann byggist
við árás á þinghúsið á hverri
stundu og þungvopnað herlið
stefndi I átt til þess. Jeltsin átti
einnig stmtal i gær við George
Bush, forseta BNA, sem fullviss-
aði Jeltsin um að hann myndi
reyna að stuðla að þvi að Gor-
batsjov næði völdum á ný.
PARIS - Jeltsin sendi utanríkis-
ráðherra sinn til Parisar I gær-
morgun. Honum er ætlað að
stofna útlagastjóm ef valdaráns-
stjórninni tekst að hanga á völd-
unum
MOSKVA - Gorbatsjov er hald-
iö i stofufangelsi á Krimskaga af
KGB. KGB hefur tekiö öll fjar-
skiptatæki Gorbatsjovs i sína
vörslu og heldur honum föngn-
um og sambandslausum við um-
heiminn.
MOSKVA- Orðrómurerumað
einhverjir liðsmenn KGB hafi
reynt að frelsa Gorbatsjov úr
haldi. Tilraunin hafi mistekist.
HAAG - Evrópubandalagið
samþykkti á neyðarfundi sínum t
gær harðorð mótmæli gegn
valdaráni harðlinumannanna I
Moskvu. Þá var ákveðið að
stöðva rúmlega miiljarös dala
efnahagsaðstoð.
BERLIN - Bæði yfirstjóm sov-
éska hersins f Þýskalandi og
Bonnstjómin nertuðu í gær orð-
rómi um að sovétherinn í Þýska-
landi væri f bardagastöðu vegna
atburðanna f Moskvu.
LONDON - Harðlínukommún-
istar um alian heim eru sagðir
kætast mjög við fall Gorbatsjovs.
BELGRAD - Valdaránið f
Moskvu í fyrradag hefur aukið á
ótta manna um svipaða hluti í
Júgóslavfu. Einnig óttast menn
að Serbar sæki nú i sig veðrið í
óyfiriýstu stríði sínu gegn Króöt-
um og að jreir leggi undir sig
stærrí hluta af lendum Króata.