Tíminn - 28.08.1991, Side 13
Miðvikudagur 28. ágúst 1991
Tíminn 13
l|U FlolcKsstarfllll
n
Áslaug Slgrún Halldór Árelía Eydfs
5. landsþing LFK
5. landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið í
Borgartúni 6, Reykjavik, dagana 4. og 5. október nk.
Rætt verður um m.a.:
Konur (stjórnmálum.
Áslaug Brynjólfsdóttir, ritstjóri 10 ára afmælisrits LFK, lýsirsögu
Landssambandsins.
Eiga kvennasamtök í stjórnmálaflokkum rétt á sér?
Hvert stefnir í þessum málum til ársins 2001?
Framsögur flytja:
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi
Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins, og
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, nemi í stjórnmálafræði við H.l.
Framkvæmdastjórn LFK
Halldór Jón K. Jónas H. Karen íHrlc
Þingmenn Framsóknar-
flokksins á Austurlandi
boða til almennra funda dagana 1.-5. september. Fundimir verða sem hér
segir:
Sunnudaginn 1. september Amhólsstöðum, Skriðdal kl. 16.00
Brúarási, Jökulsárhlið kl. 20.30
Mánudaginn 2. september Bakkafirði kl. 20.30
Þriöjudaginn 3. september Miklagarði, Vopnafirði kl. 20.30
Miövikudaginn 4. september Valaskjálf, Egilsstöðum kl. 20.30
Fimmtudaginn 5. september Valhöll, Eskifirði kl. 20.30.
Umræðuefni: Stjórnmálaviðhorfið, atvinnumál og önnur baráttumál Austfirðinga.
Varaþingmenn Framsóknarflokksins á Austurlandi munu koma á fundina eftir
þvl sem tök eru á.
Allir velkomnir
Fundarboðendur
STEFNA '91 Fræðsluráðstefna SUF
Fræðsluráðstefna Sambands ungra framsóknarmanna .Stefna ‘91 ‘ verður haldin I Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki 31. ágúst nk. Dagskrá ráðstefnunnar verður sem hér segir:
10.00-10.10 Setningarávarp Siv Friöleifsdóttir, formaður SUF
10.10-11.00 Tækifæri ungs fóiks f breyttri Evrópu Tryggvi Gfslason, rektor Menntaskólans á Akureyri
11.00-11.50 Tækifæri ungs fólks á landsbyggðinni Jón Þórðarson, deildarstjóri H(, Akureyri Umræður
11.50-13.00 Hádegisverður
13.00-13.50 Stefnir EB f að verða Bandarikl Evrópu? Andrés Pétursson blaðamaður
Umræður
13.50-14.05 Ávörp Páll Pétursson, Elín Llndal
14.10-15.00 Jöfnun atkvæðisréttar Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur Umræður
15.00-15.50 Stjómmálaviðhorfið Steingrlmur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
Umræður
16.00 Kaffi Fótbolti — sund — gönguferðir, möguleikar á hópvinnu Hvlld
19.00-20.30 Kvöldverður
21.00- Héraðsmót framsóknarmanna I Skagafirði haldið i Mið- garði. Dansleikur, hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur.
Ráðstefnustjóri verður Guðrún Benný Finnbogadóttir, formaður FUF við Djúp. Ráðstefnan er opin öllum ungum framsóknarmönnum alls staðar af landinu og verður ráðstefnugjaldi stillt ( hóf. SUF-arar enj hvattir til þess að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20,
eða í sima 91- 624480, en þar eru veittar allar frekari upplýsingar.
3. miðstjórnarfundur SUF
verður haldinn dagana 31. ágúst kl. 18.00-22.00 og 2. september kl. 10.00-12.00 á
Sauðárkróki. Þann 1. september fer fram Stefna 91 á vegum SUF á sama stað.
Miðstjómarmenn eru hvattír tH að mæta og tilkynna þátttöku til Önnu I slma
91-624480.
Framkvæmdastjám SUF
Aþena og fjölskylda er í sumarfríi Frakklandi, og er beðið eftir fæðingu barnsins sem Gaby
gengur með.
Aþena býr hjá pabba sínum og fjölskyldu og á ekki
eins óhamingjusama æsku og móðir hennar heitin átti:
HAMINGJUSAMT
FJÖLSKYLDULÍF
Aþena, dóttir Cristina On-
assis, lifir hamingjusömu
lífi með föður sínum og fjöl-
skyldu. Aþena var ekki nema
þriggja ára gömul þegar
móðir hennar lést, og hún
er því eigandi Onassisauðs-
ins í dag. Aþena er því eitt
ríkasta barn í heimi.
Þessa dagana er von á
fjölgun hjá pabba hennar og
stjúpmóður. Gaby, en svo
heitir stjúpmóðir hennar, er
ófrísk að sínu þriðja barni,
og verður það jafnframt
þriðja hálfsystkin Aþenu.
Þau hjón hafa reynst
Aþenu mjög vel, og er stúlk-
an alin upp með systkinum
sínum, og er langt því frá að
vera eins einmana og móðir
hennar var alla sína ævi.
Þvert á móti er Aþena alin
upp í ást og hamingju.
Fáir eru eftir af Onassi-
sættinni, en um tíma var Ari
Onassis, afi Aþenu, mesti
skipakóngur í heimi. Hún
þarf því ekki að óttast fá-
tækt á efri árum því auður
ættarinnar er víst óhemju
mikill.
Gott samband er á milli Aþenu og stjúpmóður hennar.