Tíminn - 07.09.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. september 1991
Tíminn 3
Rekstraráætlun Samtaka fiskvinnslustöðva:
Botnfiskvinnslan
rekin með halla
Samtök fískvinnslustöðva hafa gert
áætlun um rekstur botnfískvinnsl-
unnar, miðað við skilyrði nú í byij-
un september.
Þar kemur meðal annars fram að
vinnslan er nú rekin með 6.9%
halla.
Útlitið er heldur ekki sérlega bjart.
Reikna má með að kvótaskerðingin
rýri tekjur botnfískvinnslunnar um
13.5%.
Reikna má með að tekjur af fryst-
ingu verði 23.378 milljónir, en tekj-
ur af söltun 13.766 milljónir, sam-
tals 37.144 milljónir. Ef fiskverð
helst óbreytt má svo reikna með að
greiða þurfi 21.918 milljónir í gjöld
af frystingunni og 13.683 milljónir í
gjöld af söltuninni, samtals 35.602
milljónir. Miðað við 6% ávöxtun
stofnfjár er tap af rekstri írystingar-
innar 4.6% og 7.8% af söltuninni,
samtals 5.8%. Miðað við 8% ávöxtun
stofnfjár er 5.9% tap af frystingunni
og 8.8% tap af söltuninni, samtals
6.9%.
-aá.
Skagstrendingur hf. hefur keypt kvóta í staðinn fyrir 15% skerðingu:
Oll hlutabréfin uppseld
Ný hlutabréf, sem nýlega voru boð-
in út í Skagstrendingi hf„ ruku út
og eru nú öll uppseld. Nafnverð
bréfanna var 50 miUjónir, en sölu-
verðið 250 mUljónir króna.
Hagnaður Skagstrendings var 32,6
m.kr. fyrir skatt á fyrra misseri
þessa árs. Að sögn Verðbréfamark-
aðar Fjárfestingarfélagsins er þetta
betri afkoma heldur en reiknað var
með.
Skagstrendingur hf. hefur þegar
kaypt viðbótarkvóta til að mæta 14-
15% kvótaskerðingu félagsins á ný-
byrjuðu kvótatímabili. Þannig að
kvóti félagsins verður sambærileg-
ur við það sem hann var fyrir skerð-
ingu.
Eins og fram hefur komið í Tímanum er uppskera garðávaxta
með besta móti nú í haust. Það á líka við hjá yngstu garðyrkju-
bændunum, sem tilein kað hafa sér réttu handtökin ( sumar
hjá Skóiagörðum Reykjavíkur. Hér má sjá unga blómarós upp-
skera laun erfiðisins í sumar, en hún var með skika við Mjódd-
ina í Reykjavík. Tfmamynd: Aml Bjama
Har skólavörurnar -
kólafatnaðurinn -
stílabaekur
ritföng og
Pennaveski og
skólatöskur í mikiu
úrvali. Wijög gott ver
JKL
KAUPSTADUR
su„ ^rÆ"laröa6æo9“ðwan9'
IMJÓDD
AHKUG4RDUR