Tíminn - 07.09.1991, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvagotu
tS 28822
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
| 91 SIMI -676-444
Tíminn
LAUGARDAGUR 7. SEPT. 1991
Undir læknum komiö
hvort sýklalyfin kosta
100 eða 1000 m.kr.
„Með tilkomu nýrrar reglugerðar um greiðslu almannatrygginga
á lyfjakostnaði, þurfa sjúklingar að greiða sýklalyf að fullu. Það
er því enn mikilvægara en áður að gera sér grein fyrir verði sýkla-
Iyfja,“ segir Karl G. Kristinsson á sýklalyfjadeild Landspítalans
m.a. í samantekt um verð sýklalyfja í Læknablaðinu. í Ijós kem-
ur að verðmunur getur verið meira en tífaldur á sambærilegum
sýklalyfjum.
Verðið er gjarnan einhversstaðar
á bilinu frá 50 til 500 krónur fyrir
venjulegan dagsskamt sýklalyfja (í
töflum eða hylkjum). Sala sýkla-
lyfja í landinu er a.m.k. tvær og
hálf milljón dagsskammtar á ári.
Það virðist því velta á vali lækn-
anna hvort verð á „ársskammti"
þjóðarinnar er nær 100 milljón-
um eða 1.000 milljónum króna á
ári.
Það val virðist þó geta verið snún-
ara fýrir lækna en leikmenn
kynnu að ætla. „Erfitt hefur verið
fyrir lækna að þekkja öll sýklalyf,
verkunarsvið, lyfjahvarfafræði og
helstu aukaverkanir þeirra. Auk
þess eru á skrá fjöldi lyQa með
mjög líka eiginleika, sem lítið skil-
ur að annað en verðið," segir Karl
G. Kristinsson.
Og síðan, sem telja verður sér-
lega athyglisverðar upplýsingar:
„Upplýsingar um verð hafa ekki
verið aðgengilegar fýrir Iækna.“
Hrósar Karl þess vegna framtaki
þeirra, sem stóðu að útgáfu heftis-
ins Lyfjaverð, júlí 1991. En þrátt
fýrir að upplýsingar séu þar að-
gengilegar, segir hann tímafrekt
að gera verðsamanburð á sam-
bærilegum sýklalyfjum. Vegna
þess ákvað Karl að gera saman-
burð þann sem hann birtir í
Læknablaðinu, enda ekki ólíklegt
að fleiri hafi áhuga á þeim saman-
burði.
{ verðsamanburðinum er alltaf
miðað við verð á lyfjaskammti fýr-
ir einn sólarhring, þótt lyfin séu
yfirleitt gefin í 3-14 daga. Mis-
munur á verði lyfjanna margfald-
Gífurlegur verðmunur er, sem glöggt má sjá, á þeim lyfjum sem
mikið eru notuð við þvagfærasýkingum. Venjulegur dags-
skammtur getur kostað allt frá því í kringum 30 krónur (Nítróf-
úrantóín frá Delta) og upp í 470 krónur (Negram). En virk efni,
sem þessi lyf innihalda, eru samt þau sömu í þeim báðum.
ist því með þeim dagafjölda sem
lyfið er notað. Jafnframt bendir
Karl á að oft séu ekki til lyfja-
pakkningar með hæfilegum fjölda
taflna/hylkja fýrir fýrirhugaða
meðferð. Sjúklingur getur því
þurft að borga fýrir töflur/hylki
sem honum nýtast ekki.
í samanburði, sem Karl gerir á
sex flokkum sýklalyfja, kemur í
Ijós að lítill verðmunur er á þeim
fjórum nöfnum penisillínlyfja,
sem auk þess eru meðal ódýrustu
sýklalyfja. í öðrum lyfjaflokkum er
algengt að dagsskammturinn
kosti frá 40-70 kr. og upp í 400-
450 kr. Og dæmi eru um lyf (Fuc-
idin) sem fer í allt að 1.300 krónur
fýrir dagsskammtinn.
- HEI
—
STATION 1.8DL4WD
Valkvætt fjórhjóladrif
Hátt og lágt drif
Vökvastýri
Samlæstar hurðir
Rafstillanlegir speglar
Þriggja ára ábyrgð
Hreint frábært verð kr. 1. 222.000,-
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sími 91-674000
V—■
<7 ✓ -s <r?