Tíminn - 12.09.1991, Qupperneq 4

Tíminn - 12.09.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn Fimmtudagur 12. september 1991 I 1 ÚTLÖND Mikhaíl Gorbatsjov og James Baker hittast í Moskvu: Sovétmenn ætla að flytja hersveitir sínar frá Kúbu Mikhaíl Gorbatsjov Sovétforseti sagði í gær að ríkisstjórn hans myndi fljótlega hefja viðræður um brottflutning 11.000 hermanna frá Kúbu. „Við munum fljótlega byrja viðræður við ráðamenn á Kúbu, um brottflutn- ing þeirra 11.000 sovésku hermanna sem þar eru,“ sagði Gorbatsjov á blaðamannafundi í Moskvu í gær. Hann átti fund með James Baker, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær. Baker er hæst setti embættismaður- inn sem kemur í heimsókn til Moskvu eftir að valdaránið þann 29. ágúst misheppnaðist, og Gorbatsjov fékk völd að nýju. Heimsóknin þykist hafa tekist ágæt- lega og fór vel á með þeim Gorbatsjov og Baker. Gorbatsjov þakkaði honum fyrir þann stuðning sem Bandaríkin sýndu honum þá þrjá daga sem valda- ránið stóð yfir. Baker var mjög sáttur við yfirlýsingu Gorbatsjovs um Kúbu, sem hefúr ver- ið þymir í augum Bandaríkjamanna í meira en þrjátíu ár. Hann kallaði þetta höfðinglegt vináttumerki. Baker hitti Gorbatsjov á milli fúnda í Moskvu, en þar stendur yfir þing Ráð- stefnu um öryggi og samvinnu í Evr- ópu (RÖSE). Þar stendur Gorbatsjov í ströngu við að fá hjálp til stuðnings efnahagskerfinu í Sovétríkjunum. Ríkisstjóm George Bush Bandaríkja- forseta hefur varað við að efnahagsað- stoð við Sovétríkin sé nokkuð undir því komin að Sovétrfkin hætti efna- hagsaðstoð og hemaðaraðstoð við Kúbu. Baker sagði að yfírlýsingin um Kúbu undirstrikaði að bæði hann og Gorbatsjov væru sammála um nýjar leiðir, og nýja stjórnmálastöðu þar sem breytingar í Sovétríkjunum em í brennidepli. Stjómmálamenn í Bandaríkjunum hafa sagt undanfarna mánuði að stuðningur Sovétmanna við Kúbu hafi farið minnkandi. Þeir hafa farið fram á að þau tengsl verði alveg rofin. Gorbatsjov hefur samþykkt að tengslum við Kúbu verði gjörbreytt, en segir að löndin tvö gætu samt átt með sér viðskipti. Hann sagðist hafa rætt við Baker ísraelar leysa 51 Araba úr haldi: Skriður að komast á lausn gíslamálsins John McCarthy fagnar þegar hann var látinn laus fyrír réttum mánuði. ísraelar og líbanskar hersveitir, hallar undir ísrael, létu 51 arabíska fanga lausa í gær, og afhentu Rauða krossinum jarðneskar leifar níu líb- anskra skæruliða. Vitni segja að fimm konur hafi ver- ið meðal fanganna. Þeir vom af- hentir Rauða krossinum í suður- hluta Líbanon. Tálið er að þetta liðki fyrir lausn vestrænna gísla í Líban- on. Þetta gerðist í kjölfar heimsóknar Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, til Iran. Hann er þar í heim- sókn til að liðka fyrir samningum um lausn á vestrænum gíslum, sem sveitir bókstafstrúaðra Shíta- músl- íma haida í gíslingu. Ekkert hefur gerst í gíslamálinu síðan í fyrri hluta síðasta mánaðar, þegar breska blaðamanninum John McCarthy og Bandaríkjamanninum Edward Tracy var sleppt úr gíslingu. Þessir atburðir þykja sýna að vilji sé hjá ísraelum um að gíslaskipti nái fram að ganga. Gíslamálið hefur verið í pattstöðu undanfarnar vikur, því ísraelar hafa neitað að láta nokk- um fanga lausan nema fá upplýsing- ar um afdrif sjö ísraelskra hermanna sem týndust í bardaga í Líbanon fyr- ir nokkrum árum og ekkert hefur spurst til síðan. Þær upplýsingar, sem Líbanir létu þeim í té um afdrif sjömenninganna, hafa ísraelar talið of almennar og ónothæfar. Loks virðist því vera að komast skriður á þetta mál. íranir sögðu á mánudag að boltinn væri í höndum ísraela og það væri undir þeim komið hvaða skref yrði tekið næst, þ.e. hvort eitthvað skref yrði tekið. Antoine Lahd, yfirmaður Iíbanskra hersveita sem ísraelar styðja, segir að þetta skref sé tekið til að hjálpa Perez de Cuellar í tilraunum sínum til að fá vestræna gísla lausa, og sagði að þeir hefðu verið of lengi í burtu frá fjölskyldum sínum. Bretar fögnuðu því að ísraelar hafa brotið odd af oflæti sínu og leyst þessa fanga úr haldi. Ráðamenn í Bretlandi sögðust vonast til að þetta yrði til að gíslamálið leystist fljótt í kjölfar þessa. Utanríkismálaskrif- stofan vildi samt ekki segja til um hvort þetta yrði til að allir vestrænu gíslarnir í Líbanon yrðu leystir fljót- lega. Af þeim 10 gíslum, sem enn eru í haldi í Líbanon, eru tveir Bret- ar. Talsmaður breska utanríkisráðu- neytisins sagði að vonast væri eftir áframhaldandi samvinnu á alla kanta til að leysa gíslamálið. Þá var sagt að vonandi yrði þetta til að auð- velda viðleitni Perez de Cuellars til að leysa gíslamálið. Reuter-SIS um „mjög áríðandi málefni", þar á meðal sovéska efnahagskerfið, og fyr- irsjáanlegan matvælaskort og lyfja- hörgul. Þá sagði hann að ríkisráðið kæmi saman næsta mánudag til að ræða sérstök málefni, sem þyrftu á stuðn- ingi vestrænna þjóða að halda. Baker lofaði ekki neinni annarri hjálp við Sovétríkin en þegar er búið að tala um. Hann tók fram að Wash- ington drægi skýr mörk á milli hjálp- ar við fólk og tæknilega aðstoð ann- ars vegar og hins vegar annarrar að- stoðar við Sovétríkin sem miðaði að viðreisn efnahagskerfisins. Þá sagði Baker að þeir Gorbatsjov hefðu eytt löngum tíma í að ræða mikilvægi trúverðugra umbóta á efnahagskerfinu. Sérstaklega til að fá inni hjá stofnunum á borð við Al- þjóðlega gjaldeyrissjóðinn. Gorbatsjov ítrekaði áform sín um að koma á markaðskerfi í Sovétríkjun- um og styrkja stöðu rúblunnar á al- þjóðavettvangi. Hann talaði einnig um að samvinna Bandaríkjanna og Sovétríkjanna myndi halda áfram í framtíðinni. Og talaði þá um friðar- ráðstefnuna um málefni Miðaustur- landa, en bæði þessi ríki styðja og standa að þessari ráðstefnu. Baker sagði að hann væri þess full- viss að samvinna á efnahagssviðinu og stjómmálasviðinu væri nauðsyn- leg milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna. Reuter-SIS Fréttayfirlit MOSKVA - 10 manns af 14, sem handtekin voru vegna ásakana um aðlld aö valdaráninu f llðka fyrir setu þeirra á friðarráð- stefnu um mátefnl Miðaustur- landa PARÍS - Forsætisráðherrar Grikklands og Tyrklands eru á Moskvu, hafa verið ieyst úr haidí, fundi tll aö ræða málefnl Kýpur. og dæmd saklaus. Þeir, sem dæmdir eru sekir, eiga á hættu að KUVÆT - Mannréttindasamtök verða teknlr af lifi, sakaöir um segja að á hveijum degi séu landráð. mannréttindí brotin í Kúvæt, og __ að enn séu stríösfangar f haidi BELGRAD - Hersveitir Serba og þar, þótt sex mánuðlr séu liðnlr Króata halda átökum áfram í sfðan stríðinu lauk. Króatíu. JÓHANNESARBORG - Að minnsta kosti fimm manns létu líf- Ið f miklum átökum á milli svartra þjóðflokka f gær. Sfðan óefrðlr á mllli þjóðflokkanna hófust hafa nálægt 100 manns látfð lífiö. FORT WORTH, Texas - Sam- komulag virðist vera f nánd á mlili tennisstjömunnar Martlnu Navra- tllova og fyrrum ástkonu hennar, sem hefúr krafist helmfngs allra hennar elgna eftir að slitnaðl upp úr sambúð þeirra. JERÚSALEM - fsraelski harð- NAÍRÓBÍ - Douglas Hurd, utan- finumaðurinn Arlel Sharon seglr ríklsráðherra Bretiands, er farinn f að Bandaríkjamenn hafi fafliö í ar- opinbera heimsökn til Kenýa. Ke- abfska gildru með því aö halda að nýa er fyrrum nýlenda Breta. efnahagsaðstoð við fsrael munl Sovéskar hersveitir flytjast frá Eystrasaltsríkjunum Jevgeny Shaposhnikov, varnarmála-' ráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær að Moskva væri tilbúin til að kalla hersveitir sínar heim frá Eystrasalts- ríkjunum. Hann sagði þetta eftir fund sinn með háttsettum mönnum frá Lettlandi í Ríga. Hann sagðist álíta að flutningur hersveita frá landsvæðum Eystra- saltsríkjanna gæti hafist árið 1994, þegar allir hnútar um flutning her- sveita frá Austur-Evrópu væru leyst- ir. Moskva hefur samþykkt að her- sveitir Sovétmanna í fyrrum Austur- Þýskalandi væru komnar heim árið 1994. Talavs Jundzis, forseti lettneska þingsins, sagði að yfirvöld landsins vildu að hersveitirnar færu sem fyrst á brott, en það væri ekki af öryggis- ástæðum heldur frekar vegna pláss- leysis og skorts á húsnæði fyrir her- mennina. Lettneskir embættismenn segja að um 80.000 sovéskir hérmenn séu á þeirra landsvæði. Yfirvöld í Sovét- ríkjunum hafa aldrei staðfest hversu marga hermenn þau hafa í Eystra- saltsríkjunum. Reuter-SIS Wisconsin-morðinginn kemurfyrir rétt í fyrsta sinn: Hann játar á sig a.m.k. 16 morö Jeffrey Dahmer játaði í gær ákæru um að hafa myrt 15 unga karlmenn og drengi. Lík nokkurra þeirra fund- ust í ibúð hans, illa útleikin. Verjandi Dahmers fór fríun á að hann yrði dæmdur saklaus, eða sak- laus því hann værí ekki sakhæfur. Réttarhöld yfir honum byija þann 27. janúar. Ákæruvaldið verður að sýna fram á sekt Dahmers í fyrsta áfanga réttar- haldanna, og ef hann verður sakfelld- ur verður verjandi hans að sýna fram á að hann sé ósakhæfur. Gerald Boyle, verjandi Dahmers, sagði í gær að hann vonaðist til að eitthvað gott kæmi út úr þessu hrylli- lega máli og hvað hefði fengið þennan mann til að fremja slík óhæfúverk. „Hver sá, sem heldur að þessi ungi maður hafi ekki framið þessi ódæðis- verk, hlýtur að vera blindur á stað- reyndir málsins. Hvers vegna gerði hann þetta? Ég hef sjálfur ekki hug- mynd,“ sagði Boyle. Jeffrey Dahmer kom fyrir rétt í gær. Hann hafði látið sér vaxa skegg, var í bleikum bol og appelsínugulum fangabuxum. Boyle sagði að Dahmer væri mjög langt niðri, og væri undir ströngu eftirliti svo hann fremdi ekki sjálfsmorð. Dahmer hefur verið ákærður fyrir 15 af þeim 16 morðum sem hann hefur játað að hafa framið í Wisconsin. Þá hefur hann játað að hafa myrt alls 17 menn. Þann sautjánda, sem ekkert hefur fundist um, segist hann hafa kyrkt, hlutað líkið í sundur og grafið nálægt heimaslóðum sínum árið 1978. Ef Dahmer verður úrskurðaður geð- veikur verður hann vistaður á geð- sjúkrahúsi í Wisconsin og gæti losnað þaðan ef og þegar hann verður úr- skurðaður heilbrigður að nýju og ekki hættulegur umhverfinu. í Wisconsin er dauðadómur ekki ieyfilegur, en Dahmer stendur frammi fyrir því að verða dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir hvert morð sem hann framdi. Flestir lögfræðingar telja útilokað að hann verði nokkum tímann látinn laus án eftirlits. Dahmer er ákærður fyrir að hafa gef- ið fómarlömbum sínum eiturlyf og síðan kyrkt þau, haft mök við lík þeirra og síðan hlutað þau í sundur með keðjusög. Þegar kvartað var undan fnyk úr íbúð hans, fann lögreglan hluta af nokkmm líkömum, höfuð sem höfðu verið soðin, líkamshluta sem lágu í sýru til upplausnar. Hann er jafnvel talinn hala lagt sér líkamsleifar fóm- arlambanna til munns. Lögreglan hafði ekki hugmynd um að raðmorð- ingi gengi laus í bænum, og fann hann því aðeins fyrir tilviljun. Mál þetta hefúr vakið mikinn óhug meðal fólks, en sérfræðingar hafa sagt að fjöldi raðarmorðingja sé laus á götum úti í Bandaríkjunum án þess að nokk- ur hafi hugmynd um það. Reuter-SIS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.