Tíminn - 12.09.1991, Page 5

Tíminn - 12.09.1991, Page 5
Fimmtudagur 12. september 1991 Tíminn 5 Rekstur Perlunnar yfir 20 milljónir á ári, en leigan aðeins 12-14 milljónir: Húsaleigan dugar ekki fyrir rekstrarkostnaöi Rekstrarkostnaður Hitaveitu Reykjavíkur vegna Perlunnar er áætl- aður 20,5 milljónir króna á næsta ári, samkvæmt svari hitaveitu- stjóra vegna fyrirspuma Sigrúnar Magnúsdóttur í borgarráði. Húsa- leiga af Perlunni er aftur á móti áætluð um 12-14 milljónir á ári og nægir því aðeins fyrir um 2/3 rekstrarkostnaðarins. Ff«mk«aemda<mllun Ultaveilu R«yl»l»vlltur 1991 ■ 1996 [ þúa. kr. 1091 1992 1993 1994 1995 Nesjavallavlrkjun 2. áf. 147.000 30.000 225.000 200.000 Nesjavallavirkjun 3. ðfangi 400.000 Suðurað 132.000 500.000 200.000 Draifikérfl 104.000 130.000 130.000 130.000 130.000 Helmæðar og tenglngar 75.000 80.000 80.000 80.000 80.000 Útsýnishúi ð öskjuhllð 572.300 Raykjaæð 130.000 29.000 195.000 Húsbygging Grensðsvegl 1 50.000 Blrgðageymsla 20.000 40.000 40.000 Starfsmannahús ð Nesjavðllum 55.000 55.000 Samtals 1.110.300 740.000 G90.000 534.000 1.045.000 útreikningum sínum komust borgarráðsmenn Sjálfstæðisflokksins að þeirri merkilegu niðurstöðu að 740 m.kr. framkvæmdir á næsta ári þýði 38% aukning frá 1.110 m.kr. framkvæmdum í árl Hitaveitan hefur því minna en ekk- ert upp í byggingarkostnað og/eða vexti og afborganir af 450 m.kr. lán- inu sem ákveðið var að taka til að bjarga Hitaveitunni út úr bygging- arskuldunum. Stærsti kostnaðarlið- urinn við rekstur Perlunnar eru fasteignagjöld, 8,3 milljónir, þá 5,6 millj. í rafmagn, 2,8 millj. í hita, 2,1 millj. í Iaun húsvarðar og 1,8 millj- ónir í viðhald og glerhreinsun. Eftirlit algerlega úr böndunum, segir hitaveitustjóri í áðumefhdu svari hitaveitustjóra, Gunnars H. Kristinssonar, kemur fram að framkvæmdastjóri lög- fræði- og stjómsýsludeildar, hönn- uður hússins og byggingarstjóri sátu af hálfu Hitaveitunnar fundi þá þar sem ákvarðanir vom teknar um þær breytingar og viðbætur, sem leigutaki fór fram á eftir gerð leigu- samnings í október í fyrra. Og bygg- ingarstjóri hafi síðan stjórnað þeim fundum þar sem ákvarðanir vom teknar um einstaka verkþætti og út- færslur. Kostnaður við þessar breyt- ingar, sem áætlaður var um 230 m.kr. í áætlun frá 12. desember s.l., segir hitaveitustjóri hafa reynst mjög vanmetinn. Hitaveitustjóri segir síðan: „Ljóst er að eftirlit með kostnaði við bygg- inguna hefur farið algerlega úr böndunum á þessu ári, og endur- skoðun kostnaðar, sem var vemlega vanmetinn fyrir, fallið niður." Byggingarstjóri valdi hönnuðina Hitaveitustjóri upplýsir að bygg- ingarstjóri hafi átt mestan þátt í vali hönnuða. Arkitektinn var valinn þannig, að ákveðið var að taka hugmyndum hans um gerð hússins. Fjarhitun hf. var valin til að hanna burðarvirki og hitakerfi vegna þess að hún hafði áður hannað vatns- geymana. Rafteikning var valin vegna góðrar fyrri reynslu, m.a. af hönnun raf- Iagnar Borgarleikhússins. Hljóð hf. varð fyrir valinu sem hljóðhönnuður, því að þeir vom sá aðili (af tveim mögulegum) sem reyndist heimilisfastur hér á landi. Um 140% hækkun á „eldhúsgræjum“ í leigusamningi var gert ráð fyrir að Ieigutaki Iegði fram búnað í eld- hús og veitingasali fyrir 40 milljónir kr. (sem Hitaveitan eignast á 10 ára leigutíma). Með viðbótarákvæði, sem síðar var bætt við, var ákveðið að ef leigutaki (veitingamenn) keypti búnað og innréttingar fyrir hærri fjárhæð, mundi Hitaveitan endurgreiða honum mismuninn (sem óvart varð einar 58 milljónir, eða um 140% umfram upphaflega áætlun). 38% aukning meirihlutans? Margar bókanir vom gerðar í borg- arráði vegna Perlunnar. Sigrún Magnúsdóttir lét m.a. bóka, að þrátt fyrir 450 m.kr. lántöku verði Hita- veitan nú að draga saman allar framkvæmdir, orkuöflun, bygging- arframkvæmdir, viðhald og endur- nýjun lagna. Hin dýra Perla sé því mikill baggi á Hitaveitunni. Borgarráðsmenn Sjálfstæðisflokks- ins bókuðu á móti að samkvæmt framkvæmdaáætlun H.R. 1992- 1995 séu ráðgerðar 740 m.kr. fram- kvæmdir á næsta ári, „sem er 38% aukning frá þessu ári“. Þegar litið er á framkvæmdaáætlunina (sem fylgir hér með), virðist þarna vægast sagt um merkilega niðurstöðu að ræða, að 740 m.kr. framkvæmdir á næsta ári séu 38% meiri en 1.110 m.kr. framkvæmdir í ár. Framkvæmda- áætlunin bendir þvert á móti til þess að stefnt sé að verulegum samdrætti í framkvæmdum næstu þrjú árin. Hækkun um góð árslaun á 1 viku í bókun Sigrúnar Magnúsdóttur vekur m.a. athygli að í yfirliti hita- veitustjóra 27. ágúst, um kostnað Perlunnar 1991, sé greiðsla til arki- tekts 13,5 milljónir, en er síðan komin í 15 milljónir í sundurliðuð- um hönnunarkostnaði 4. september. tfk einni viku hækkar upphæðin um dágóð árslaun borgarstarfsmanns," segir Sigrún. Sigurjón Pétursson lét m.a. bóka um Perluna: „Þessi framkvæmd er að mínu mati versta fjármálasukk, sem upp hefúr komið í framkvæmd- um á vegum borgarinnar í áratugi." Eftir tillögu, sem Katrín Fjeldsted lagði fram, að dæma, virðist hún heldur ekki ánægð með framgang mála. Þar segir m.a.: „Borgarráð samþykkir að byggingamefndir skipaðar kjörnum fulltrúum hafi yf- irumsjón með einstökum stórum framkvæmdum á vegum borgarinn- ar.“ - HEI Ólga í flugheiminum vegna hugmynda Flugmálastjórnar um að fela einum aðila alla kennslu til atvinnuflugprófs. Helgi Jónsson flugkennari: Flugmálastjóri van- virðir minn skóla „Ég hef ákveðið að höfða mál á hendur flugmálastjóra vegna at- vinnurógs gagnvart mínum flug- skóla,“ segir Helgi Jónsson, flug- stjóri og framkvæmdastjóri Odin Air og Flugskóla Helga Jónssonar. Það eru ummæli, sem höfð eru eft- ir flugmálastjóra í frétt í Morgun- blaðinu í gær þar sem hann telur að aðeins Vesturflug hf. og Flugtak hf. séu að hans mati hæf til að annast kennslu til atvinnuflugprófs. Helgi sagði í gær að flugmálastjóri gerði með ummælum sfnum lítið úr Flugskóla Helga Jónssonar, sem hefði um 27 ára skeið kennt flug og útskrifað stærri hluta starfandi ís- lenskra atvinnuflugmanna en nokk- ur annar flugskóli. „Okkar flugmenn starfa um allan heim og meirihluti íslenskra flugmanna hjá Cargolux eru t.d. gamlir nemendur okkar og fljúga stærstu flugvélum, sem í um- ferð eru, við góðan orðstír," segir Helgi. Helgi segir að flugmálastjóri sé að reyna að fá einum aðila einkarétt á allri kennslu til atvinnuflugprófs, þ.e.a.s. Flugtaki hf., og beiti í þeim tilgangi aðferðum sem samrýmist ekki leikreglum í lýðræðisríki og hljóti að mistakast. „Ef Helgi vinur minn vill stefna mér, þá gerir hann það, en ég hef hvorki fyrr né síðar lagt illt orð til Flugskóla Helga Jónssonar," sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri. Flugmálastjóri segir að bókleg og verkleg kennsla til atvinnuflugprófs hafi verið í höndum einkaskóla til ársins 1978, en bóklega kennslan þá falin Fjölbrautaskóla Suðurnesja og framkvæmd undir samstjórn skól- ans og Flugmálastjórnar. Hann sagði að atvinnuflugnám væri frum- stætt hér á landi og nauðsynlegt að samræma verklega og bóklega kennslu. „Við höfum skoðað málið lengi og sendum út bréf fyrir viku síðan til allra skóla, sem stundað hafa verklega kennslu og útskrifað atvinnuflugmenn sl. fimm ár, og óskum eftir undirtektum þeirra við hugmyndum okkar,“ sagði Pétur. Hann segir að Vesturflug hafi út- skrifað 22 atvinnuflugmenn, Flug- skóli Akureyrar 2, Flugskóli Helga Jónssonar 1 og Flugtak hf. 32. Af þessum fjórum skólum séu því Flug- tak hf. og Vesturflug hf. tvímæla- laust hæfir á þessari stundu til að taka að sér atvinnuflugkennslu að fúllu. Flugmálastjóri segir nauðsynlegt að taka upp nýja háttu í atvinnuflug- kennslu, vegna þess að búið sé að stofna staðalsamband loftferðaeftir- lita í Evrópu, sem væri að vinna að sameiginlegum kröfum. um mennt- un atvinnuflugmanna. Þegar hann taki gildi, muni íslenskt skírteini gilda hvar sem er innan þessa staðal- sambands. Því verði að uppfylla kröfur sem þar verða gerðar. Flug- nám sé einnig afar dýrt og ekkert niðurgreitt af ríkinu. Því sé Flug- málastjórn áfram um að verðið sé sem hagstæðast og námið sem hag- nýtast fyrir nemendur. I þriðja lagi segir flugmálastjóri að aldrei hafi staðið til að breyta fyrir- komulagi náms til einkaflugprófs og þeir skólar, sem leyfi hafi til þeirrar kennslu, muni hafa það áfram, að öllu óbreyttu. „Þeir, sem nú hafa leyfi til atvinnuflugkennslu, munu halda þvf áfram og nemendur, sem nú eru í einhverjum öðrum skólum en sem hugsanlega fá atvinnuflug- kennsluna í sínar hendur, munu geta haldið áfram námi sínu þar sem þeir eru nú. Þá var hugmyndin að semja við einn flugskóla í þrjú ár og endurskoða samninginn árlega. Það hefur enn ekkert verið gert í þessu máli annað en kanna hug flugskól- anna til þessara mála,“ sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri. —sá Gunnar H. Kristínsson hitaveitustjöri: að hruni „Það er þó ckki vegna sögunnar um að Perlan sé að hrynja?“ sagðí Gunnar H. KristSnsson hitaveitustjórí, þegar blaðið hafði samband við hann vegna nýrra lausafregna af Perlunni í Oskjuhlfð. Gunnar sagði engan fót vera fyrir því að mætti hluta af miklum verídræði- og eftirlitskostnaði við Perluna tíl þess að burðarviríri í hvolfþalri hafi sigið um 2-3 cm. Hann sagði að slíkt sig myndi ekki sjást með berum augum og engar mælingar hafi verið gerðar til að kanna þetta, enda ekki gef- ist nokkur ástæða til þess, þar sem hann vissi ckld betur en Perlan væri eíns traust og hún gæti verið. Hann kunni enga skýringu á því hvernig sögusagn- ir um þetta hefðu komist á kreik, taldi helst að einhver hrekkjalóm- ur hefði komið henni af stað. Bæjarþing Hafnarijarðar: 8 m án. fyrir á rás með hamri Fallinn er dómur í bæjarþingi Hafn- arfjarðar í máli mannsins sem ákærður var fyrir tilraun til mann- dráps er hann réðst að sofandi eig- inkonu sinni með hamri aðfaranótt hins 3. júlí sl. Maðurinn var dæmd- ur til 18 mánaða óskilorðsbundinn- ar fangelsisvistar. í dóminum er ekki fallist á megin- kröfu ákæruvaldsins um að tilraun til manndráps hafi verið að ræða, enda skorti frekari sannanir og ákærði neiti staðfastlega. Brot ákærða felst hins vegar í líkamsárás á konu sína með hættulegu vopni. Gæsluvarðhaldsvist hins dæmda, alls 77 dagar, kemur til frádráttar frá fangelsisvistinni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.