Tíminn - 12.09.1991, Síða 15
Tíminn 15
Fimmtudagur I2. september 1991
ítalskar getraunir:
VORU NÆRRI
ÞEIM STÓRA
Þeir voru nálægt því að detta í
lukkupottinn, Fylkismennimir tutt-
ugu, sem hafa verið að tippa í
ítölsku getraununum undanfarið,
þ.e.a.s. sem hafa verið að tippa á úr-
slit í ítölsku 1. deildinni, því um síð-
ustu helgi fengu þeir 12 rétta af 13
mögulegum.
Það er því óhætt að segja að þeir hafi
verið nærri þeim stóra, því heildar-
potturinn um helgina var um 23
milljarðar líra, eða um 1.137 milljón-
ir íslenskra króna.
Eftir því, sem við komumst næst, er
Sietta í fyrsta skipti sem vinningur í
tölskum getraunum fer til íslands.
Að sögn Jóns Magngeirssonar, eins
tuttugumenninganna, var vinning-
urinn, sem þeir fengu, um 400 þús-
und krónur. 37 raðir voru með 13
rétta og fengu fyrir það um 15 millj-
ónir íslenskra króna á röð. En það
voru 1396 raðir með 12 rétta og voru
greiddar, eins og áður sagði, 400 þús-
und fyrir röðina, og voru tuttugu-
menningarnir með eina slíka röð.
„Við höfum ekki spilað mikið í
þessu, við erum að fikta við þetta. Það
eru margir sem fikta við að tippa í er-
lendum getraunum. Munurinn á
ítölsku getraununum og öðrum get-
raunum erlendis, er að upplýsing-
arnar um þær eru mjög aðgengilegar
fyrir þá sem eru með gervihnatta-
disk, því þá sjá þeir allan ítalska fót-
boltann og textavarpið og við fáum
allar upplýsingar þar um leið,“ sagði
Jón Magngeirsson.
En eru Fylkismennimir svekktir að
hafa ekki fengið stóra vinninginn?
„Nei, nei, við erum ekki svekktir að
hafa ekki fengið 13 rétta. Það kemur
bara einhvem tímann seinna. Við er-
um aðallega ánægðir að hafa unnið.
Ætli við höldum ekki eitthvað áfram,
því við eigum þessa peninga þama
úti og við allavega fyrir þá,“ sagði Jón
Magngeirsson að lokum.
Til gamans má geta að potturinn í
íslensku getraununum var um 900
þúsund um síðustu helgi. Fyrir tólf
rétta var um 450 þúsund og gekk
hann ekki út. Ellefu vom með ellefu
rétta og fengu um 20 þúsund. -PS
Knattspyrna:
Leifur Geir ekki
markakóngur í ár
Baráttan um markakóngstitilinn í
Samskipadeildinni er hörð og þegar
aðeins ein umferð er eftir er Ijóst að
einn þeirra, sem beijast hvað harð-
ast um nafnbótina Markakóngur
Samskipadeildarinnar 1991, tekur
ekki frekar þátt í þeirri baráttu. Það
er Leifur Geir Hafsteinsson, sem á
þriðjudag náði í sitt fjóröa gula
spjald og fer því í Ieikbann í síðustu
umferðinni.
Guðmundur Steinsson stendur best
að vígi og hefur hann gert 13 mörk.
Næstir honum em markakóngur síð-
ustu tveggja ára, Hörður Magnússon
FH og Leifúr Geir Hafsteinsson ÍBV,
og hafa þeir gert 12 mörk hvor. Þá
hafa þeir Atli Eðvaldsson, Steindór
Elísson og Jón E. Ragnarsson gert
níu mörk, en ólíklegt er að þeir
blandi sér í baráttu þeirra Harðar
Magnússonar og Guðmundar Steins-
sonar. Eins og áður sagði hefur
Hörður Magnússon borið þessa nafn-
bót tvö síðustu árin, en hann hafði
aldrei áður náð því marki. Árið 1989
gerði Hörður 12 mörk, en árið 1990
skoraði hann 13 mörk. Guðmundur
Steinsson hefur hins vegar aðeins
einu sinni verið markahæsti maður
íslandsmótsins og var það fyrir sjö
ámm, eða 1984, en þá lék hann með
Fram. Hann gerði þá 10 mörk í deild-
inni. En það er Ijóst að það ræðst á
laugardaginn hvor þeirra Harðar og
Vegna frestana á tveimur leikjum og
til að allir sætu við sama borð í síð-
ustu umferð Samskipadeildarinnar
í knattspymu var fundur aganefnd-
ar KSÍ á þriðjudag tvöfaldur.
Þá komu inn spjöld úr leikjunum
tveimur, eða öllu heldur úr leiknum
í Vestmannaeyjum, þar sem engin
spjöld voru gefin í Kaplaskjólinu.
En eftirtaldir leikmenn vom úr-
skurðaðir í leikbann á fundi aga-
nefndar KSÍ:
Vegna brottvísana:
Heimir Erlingsson Stjaman 1 leikur
Luca Kostic IA1 leikur
Guðmundur Erlingsson Þrótti
2 leikir
Helgi Ragnarsson ÍK-þjálfari
1 leikur +25.000 króna sekt
Guðmundar verður markakóngur í
ár. -PS
Jóhannes Númason 2.fl Leikni
3 Ieikir
Davíð Ingvarsson Haukar 2.fl
1 leikur
Helgi Arason KA 3.fl. 1 leikur
Unnar Sigurðsson ÍBK 3.fl. 4 leikir
Vegna fjögurra gulra snjalda:
Leifur Geir Hafsteinss. IBV1 leikur
Sveinbj. Hákonars. Stjaman
1 leikur
Erling Kristjánss. KA1 Ieikur
Úlfar Óttarsson ÍK 1 leikur
Halldór Halldórss. Val. 2.fl. 1 leikur
Sig. Ómarsson KR 2.fl. 1 leikur
Þórarinn Jóhannsson Selfoss 2.fl.
1 leikur
Andri Sveinsson KR 3.fl. 1 leikur
Ómar Friðriksson Valur 3fl. 1 leikur
-PS
Tvöfaldur fund-
ur aganefndar
Knattspyrna:
Tryggt að leikið
verði á sama tíma
Um helgina ráðast úrslit í Sam-
skipadeildinni í knattspymu og
veröur leikin heil umferð á laug-
ardaginn. Úrslitaleikimir eru
tveir. Annar þeirra er á Laugardal-
svelii og leilá þar Fram og ÍBV. í
Garðinum leika hins vegar Víðir
og Víkingur. Aðrir leikir í deild-
inni skipta ekki máli, því að
Stjarnan og Víðir eru þegar fallin.
Að sögn skrifstofu KSÍ, er það
tryggt að báðir leikh-nir fari fram
á sama tíma og hefur liðunum
Qórum verið tilkynnt það að ef að
þurfi að fresta öðrum leiknum af
einhverjum orsökum þá verði
þeim báðum frestað.
Tvö síðustu ár hefur það ráðist í
síðustu umferð hvar íslandsbik-
arinn verður afhentur og svo er
einnig nú, því annað hvort verður
hann afhentur í Laugardalnum
eða í Garðinum. 1989 kom upp
svipuð staða og nú, því þá voru
það FH og KA sem voru að bftast
um titilinn og þótiu FH-mgar sig-
urstranglegri, því að þeir voru að
eiga við fallna Fylkismenn, og var
því bikarinn hafður þar til taks.
En svo fór þó ekki, Fylkir lagði
FH og varð Ellert Schram, þáver-
andi formaður KSÍ, að keyra til
Keflavikur, eftir að leiktíma var
lokið og afhenda bikarinn þar. í
þetta skiptið veröur formaður KSÍ
staddur ásamt Bikarnum á skrif-
stofu KSÍ, allt þar til um hálftími
er eftir af leikjunum, en þá hljóta
hnur að vera að skýrast. -PS
-__________________ - ' - - •
Fulltrúaráð framsóknarfélag-
anna í Reykjavík
Drætti I skyndihappdrættinu hefur verið frestað.
Nánar auglýst síðar.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Helmlll Slml
Hafnarfjörður Jóhanna Eyfjörð Breiðvangur 14 653383
Kjalarnes Katrln Gfsladóttir Búagrund 4 667491
Garðabær Jóhanna Eyfjörð Breiðvangur 14 653383
Keflavík Guðrlöur Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvfk Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Láaisdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Lilja Guðmundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búöardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
Isafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangl Hólmfriður Guðmundsd. Flfusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjamason Urðarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahllö 13 95-35311
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275
skrifstofa Skipagötu 13(austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavík Svenir Einarsson Garðarsbraut 83 96-41879
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aöalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Arskógum 13 97-11350
Seyðisflörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaöur Heimir Ásgeirsson Melagötu 14 97-71461
Reyðarfjörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B
735 Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsd. Hliðargötu 4 97-51299
Djúplvogur Jón Bjömsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hverageröi Elín Harpa Jóhannsd. Réttaheiði 25 98-34764
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakkl Þórir Eriingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Guömundur Einarsson Irageröi 6 98-31211
Laugarvatn Halldór Benjamlnsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónína og Ámý Jóna Króktúni 17 98-78335
Vík Ingi Már Bjömsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIl) ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
F rétt |
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
| 91 SIMI -676-444
Landsbyggðar-
ÞJÓNUSTA
fyrir fólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinnú
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomtmdi,
sem getur léttfólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5 -108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœr þurfa aö vera vélritaðar.