Tíminn - 13.09.1991, Blaðsíða 1
Tilkynning heilbrigðisráðherra um að breyta St. Jósefsspítala í hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða kom stjórn spítalans og bæjaryfirvöldum í opna skjöldu:
Ræna sjúkrahúsinu
af Hafnfirðingum
Heilbrigðisráöherra hefur einhliða og fyrirvaralaust
ákveðið að leggja niður St. Jósefsspítala í Hafnarfirði
og setja þar þess í stað á fót hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða. Stjórnendum spítalans var tilkynnt um þetta í vik-
unni um leið og þeim var gert Ijóst að breytingin yrði að
eiga sér stað fyrir áramót. Það telja spítalamenn hins
vegar gjörsamlega óframkvæmanlegt. Heilbrigðisráð-
herra hafði ekkert samráð við flokksbróður sinn, Guð-
mund Árna Stefánsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði, um
þessa ákvörðun, en Hafnarfjörður á þó 15% í spítalan-
um. Bæjarstjórinn segir þetta einsdæmi í samskiptum
sveitarfélaga og ráðuneyta og kallar þetta fljótræðis-
ákvarðanir. Nái þessi ákvörðun fram að ganga verða
Hafnfirðingar í einu vetfangi sviptir deildarskiptu
sjúkrahúsi, sem þeir töldu sig hafa fjárfest í fyrir fjórum
árum. • Blaðsíða 5
Guðmundur Ámi Stefánsson Sighvatur Björgvinsson ræddi
segir ákvörðun Sighvats fljót- ekki ákvarðanir sínar við bæjaryf-
fæmi og einsdæmi. irvöld í Hafnarfirði.