Tíminn - 13.09.1991, Blaðsíða 11

Tíminn - 13.09.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 13. september 1991 Tíminn 11 FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39.108 Reykjavík. Sími 678500 Fax 686270 Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast tll starfa (50% stöðu á Áfangastaðinn Amtmanns- stlg 5A. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður I slma 26945. Umsókn- arfrestur er til 30. september n.k. Starfsmaður Starfsmann vantar [ 46% starf við Unglingaathvarfið, Tryggvagötu 12. Um er að ræða kvöldstarf með afmörkuðum hópi unglinga. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun eða reynslu sem nýtist I skap- andi meðferðarstarfi. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður [ slma 20606. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavlkurborgar, S(ðu- múla 39, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. ÍÞRÓTTIR HAF NARFJARÐARBÆ R Lóðaúthlutun Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum fyrir einbýlishús á Hvaleyrarholti og í Setbergslandi. Umsóknarfrestur er til þriðjudags 24. september n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjarverk- fræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkfræðingur. [£b FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS TCYCGVACOTU 25 - 800 SELFOSSl • SiMI 98 22111 • «NN1TALA 491181 - 0289 Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar eftir bókasafnsfræðingi til starfa. Upplýsingar gefur skólameistari, sími 98-22111. BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Landsbyggðar- ÞJÓNUSTA fyrirfólk, stofnanir og fyrirtæki á landsbyggðinnl Pöntum varahluti og vörur. Samningsgerð, tilboð í flutninga. Lögfræðiþjónusta, kaup og sala bifreiða og húsnæðis. Okkur er ekkert óviðkomandi, sem getur létt fólki störfin. LANDSBYGGÐ HF Ármúla 5-108 Reykjavík Símar 91-677585 & 91-677586 Box 8285 Fax 91-677568 • 128 Reykjavík ■Q ajftix frolta lamux traxn ! yojJFEROAR Blaðberar óskast víðs vegar um borgina Upplýsingar í síma 686300 rri r • Timmn Heimsmeistaramótið í handknattleik U21: ÍSLENDINGAR LEfKA UM FIMMTA SÆTID íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri gerði jafntefli við lið Þýskalands, 19-19, á heimsmeistaramótinu í Aþenu. Staðan í hálfleik var 10-9 fyrir ísland. Liðið leikur því við Rúmena um 5.-6. sætið og getur því jafnað góðan árang- ur frá síðasta heimsmeistaramóti. Að sögn Gunnars Einarssonar landsliðsþjálfara var leikurinn mikill barningur. ísland var yfir í hálfleik og liðin skiptust á um að hafa forystu. En þegar staðan var orðin 19-19 og 10 sekúndur voru eftir fengu íslensku strákamir boltann, en náðu ekki að skora. Þetta þýðir að ísland leikur við Rúmena um 5.-6. sætið. „Þetta var dæmigert þýskt lið. Fast fyrir, með sterka vörn og góða markvörslu, en hins vegar þunglamalegan sóknarleik, sem hentar okkur mjög vel. .Andstæðingar okkar um 5.-6. sætið, Rúmenar, em sterkir. Þessi sex efstu lið em mjög jöfn, sem sést best á því að leikir milli þeirra em að vinnast á einu marki, skomðu á síðustu sekúnd- um leiksins. Það er algjör vendi- punktur í þessari keppni, þegar við leikum við Svía. Ef við hefðum unnið þá, hefðum við verið að leika um gullið, en ekki 5.-6. sæt- ið, því að Svíar gjörsigmðu Sovét- menn. Það em því Svíar sem leika um gullið, en Sovétmenn sem leika um bronsið," sagði Gunnar Einarsson í samtali við Tímann Enska knattspyrnan: MICK HARFORD Á NÝ TIL LUTON Luton, sem hefur átt í miklum erfið- leikum í upphafi 1. deildarinnar ensku og aðeins unnið einn leik og styrki sóknarleik liðsins og að það fari að skora mörk. -PS eftir leikinn í gær. Sigurður Bjarnason skoraði flest mörk íslenska liðsins í gær, eða sex. Þar af vom tvö markanna úr víti. En besti maðurinn í mjög jöfnu liði íslands var, að sögn Gunnars, Hallgrímur Jónasson, sem varði vel á annan tug skota. „Þegar menn eygja verðlaunasæti og missa það síðan út úr höndun- um, verða þeir auðvitað svekktir. En við settum okkur það mark að tryggja okkur sæti á heimsmeist- aramótinu ‘93 og með þessum ár- angri höfum við gert það. Leikur- inn við Rúmena á að vera á laugar- dag, en ég heyrði áðan að það ætti að færa hann fram á föstudags- kvöld, vegna þess að leikurinn um 7.-8. sætið er úrslitaleikur um hvort liðið fer á HM ‘93 og móts- haldarar ætla að setja hann á laug- ardaginn í staðinn, til að reyna að skapa stemmningu í kringum þann leik. En við ætlum ekki að una því, því að við viljum fá okkar hvíld fyrir leikinn gegn Rúmen- um. Leikurinn skiptir miklu máli. Allir vilja ná eins góðu sæti og mögulegt er. Það er gott fyrir framhaldið,“ sagði Gunnar Einars- son landsliðsþjálfari, að lokum. -PS skorað þrjú mörk það sem af er móts, hefur fest kaup á framherjanum Mick Harford, frá Derby County, fyrir um 325 þúsund sterlingspund. Áður en Harford fór til Derby lék hann með Luton, en var seldur þaðan fyrir 18 mánuðum, svo að fjarvera hans frá Luton var stutt, en Derby leikur nú í annarri deild. Það er von Luton- manna að Harford, sem er 32 ára og fyrrum leikmaður enska landsliðsins, Enska knattspyrnan: PAULLYDERSEN TIL ARSENAL Vegna mjög slakrar byrjunar hjá Englandsmeisturum Arsenal, sem aðeins hafa unnið tvo leiki af Frjálsar íþróttir: TVÆR FALLA A LYFJAPRÓFI Tveir kvenhástökkvarar hafa verið dæmdir í tveggja ára keppnisbann, eftír að hafa fallið á lyfjaprófi á Grand Prix móti í Róm þann 17. júlí. Þetta eru þær Yelena Rodina fiá Sovétríkj- unum og Bifjana Petrovic frá Júgó- slavíu. Biljana Petrovic fékk bannið eftir að leifar af amfetamíni fúndust í sýni hennar. Hjá Yelenu Rodina fannst hins vegar efni sem nefnist Nandrolone, sem ku vera á bannlista, en undirrit- uðum er ekki kunnugt um hvers eðlis lyfið er. í síðasta mánuði ákvað Alþjóða frjáls- íþróttasambandið að þyngja refsingu fyrir að falla á lyfjaprófi, úr tveimur ár- um í fjögur ár. -PS sjö það sem af er tímabilinu, hef- ur framkvæmdastjóri liðsins, Ge- orge Graham, orðið að draga upp veskið og fjárfesta í nýjum leik- manni. Hann hefur ákveðið að snara út 500 þúsund sterlings- pundum fyrir norska landsliðs- manninn Paul Lydersen, en hann er varnarmaður hjá norska liðinu Start. Lydersen, sem á að mæta í næstu viku á Highbury til læknisskoðun- ar, kemur þó ekki til með að Ieika með liðinu fyrr en um miðjan október, þar sem liðið hans, Start, er að klára norsku 1. deildina þann 13. október. Liðið er nú í 2. sæti og leikur einnig í Evrópukeppni bik- arhafa. Paul Lydersen er 26 ára gamall og á að baki 10 landsleiki fyrir Noreg. Hann leikur sem bakvörður, bæði fyrir Start og landsliðið, en að sögn getur hann einnig leikið í miðjuvarnar. -PS Frjálsar íþróttir: SILFURHAFI FRA TOKYO FELLUR Á LYFJAPRÓFI George Andersen, norski kúluvarpar- inn sem vann silfúrverðlaun á heims- meistaramótinu í Tokyo í síðasta mán- uði, hefur verið dæmdur frá keppni í tvo mánuði eftir að hafa fallið á lyfja- prófi. Norska íþróttasambandið hefúr dæmt hann frá keppni á meðan fjallað verður um mál hans, en dómur í mál- inu verður kveðinn upp þann 19. októ- ber. Ef hann verður fundinn sekur, verður hann sviptur silfúrverðlaunum þeim sem hann fékk, þegar hann náði að kasta 20.81 metra í kúluvarps- keppninni í Tokyo. Andersen, sem er lögregluþjónn, neitar því að hafa tekið lyf sem em á bannlista, og segist geta skýrt út af hverju það fúndust anabol- ískir sterar í lyflaprófinu. Lögfræðing- ur Andersens segir að gerð hafi verið yfir 50 lyfjapróf á honum og alltaf hafi hann staðist þau. -PS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.