Tíminn - 13.09.1991, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Föstudagur 13. september 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Otgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavlk
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Glslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrlmsson
Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason
Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavlk. Slmi: 686300.
Auglýslngaslmi: 680001. Kvöldslmar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Össur skýrir mál sitt
Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, hefur nú tekið af skarið um afstöðu
sína og tveggja eða þriggja annarra þingmanna
krata til hugmyndar ráðherra í ríkisstjórninni um
álagningu skólagjalda. Hann hefur formlega gert
menntamálaráðherra grein fyrir því að þingflokkur
Alþýðuflokksins sé ekki einhuga um stuðning við
skólagjöld. Hann segir að nægilega margir þing-
menn flokksins séu skólagjöldum andvígir til þess
að álagning þeirra hafi ekki þingfylgi.
Með þessu hefur Össur hreinsað loftið eftir loð-
mullulega bókun í fundargerðabók þingflokksins á
föstudaginn í fyrri viku, þar sem ómögulegt var að
vita hver afstaða andstæðinga skólagjaldanna yrði
þegar á hólminn væri komið. Af hálfu menntamála-
ráðherra hefur komið fram yfirlýsing um að hann
yrði neyddur til að hætta við skólagjaldaálagning-
una, ef svo reynist að þingflokkur Alþýðuflokksins
sé klofinn í málinu.
Full ástæða er til að fagna því að enn eru til menn
í Alþýðuflokknum sem standa tveimur fótum á hin-
um gamla sósíaldemókratíska grundvelli um velferð
og samhjálp, þótt forystumennirnir séu skriðnir
upp í sæng hjá íhaldinu og gleypi ákaft við and-fé-
lagslegum skoðunum, haldi þeim jafnvel fram af
meiri ástríðu en þeir sem kenna sig beint við mark-
aðshyggju nýkapitalismans.
Össuri og sr. Gunnlaugi hefur tekist að slá örlítið á
það orð sem fer af sósíaldemókratískum aumingja-
skap á íslandi. Félagshyggjumenn í öðrum stjórn-
málaflokkum fagna því að velferðarhugsjón og jafn-
aðarstefna er ekki útdauð með öllu í þingflokki
krata. En hvort sú lífsvon lifir árið af er annað mál.
Nýkapitalismi toppkrata er eins og arfinn sem yfir-
gengur nytjagróðurinn. Hann breiðist örar út en
nemur því sem hann er upprættur. En viðleitni Öss-
urar Skarphéðinssonar er virðingarverð.
Áfangi aö EB
Alþýðublaðið hefur það eftir aðalsamningamanni
Svía í viðræðum EFTA og EB um evrópskt efnahags-
svæði, að með því að skrifa undir samning um EES
í haust „væru að baki tveir þriðjuhlutar af leiðinni
inn í Evrópubandalagið". Blaðamaður Alþýðublaðs-
ins segir frá eigin brjósti að þessi sé staðan ef samn-
ingar Islands séu ekki flóknari en Svía.
Þótt hér sé beitt að sumu leyti nýjum samlíkingum
ber að sama brunni um skoðun sænska samninga-
mannsins og margir hafa bent á áður, að hvert skref
sem tekið er, og byggist á að slaka á fyrirvarastefnu
gagnvart evrópsku efnahagssvæði, færir okkur ekki
einasta nær EES sem slíku, heldur erum við að
nálgast Evrópubandalagið sjálft. Þetta er ein áminn-
ingin enn um að slá ekki af um fyrirvara gagnvart
fjórfrelsisstefnu EES. Hún er engu síður afsprengi
Rómarsáttmálans, hún er sama eðlis og efnahags-
og viðskiptastefna Efnahagsbandalagsins, að opna
aðildarríkin fyrir útlendri fésýslu af hvaða tagi sem
er.
■■ VÍTT °® breitt ■»—i mmmmmmmmmmmm
Hverjir stjórna ríkisstjórninni?
Flokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins, sem sagt er að hafi verið
haldinn s.l. föstudag, verður sífellt
dularfyllri.
Dagana íyrir auglýstan fundardag
voru sögð mikil tíðindi af flokk-
stjórnarfundinum og voru þau
einkum um að þar ætti að tugta
ráðherraliðið til og þá þingmenn
flokksins sem lýlgdu því að mál-
um. Byltingarkenndar hugmyndir
voru uppi um að völd og ákvarð-
anataka ættu að færast til almúg-
ans í krataflokknum og ætti for-
maður að fara að hafa sig hægan.
(Man nokkur menningarbylt-
ingu?)
Eftir fundinn afneituðu þeir Jón
Baldvin og Guðmundur Árni hvor
öðrum og sögðu að hvorugur hefði
setið fundinn og sögðu tíðindi að
samþykkt hafi verið hjartnæm
traustsyfirlýsing á ráðherra og
þingflokk og jafnframt að sam-
þykkt hafí verið vantraust á ráð-
herra og þingflokk og að þeir verði
eftirleiðis að biðja múgamenn
flokksins leyfis til að sinna stjórn-
arstörfum og leggja fram tillögur.
Boðleiðakerfí
kratanna
En málin gerast enn flóknari.
Aðrir flokksstjórnarfundarmenn,
sem ekki eru bornar brigður á að
hafi verið á fundinum, eru farnir
að ræðast við með fréttatilkynn-
ingum og nota Morgunblaðið sem
boðleið, og fer í sjálfu sér vel á því.
Borgarfulltrúi Nýs vettvangs,
Ólína Þorvarðardóttir, varð fyrst til
að senda frá sér fréttatilkynningu
þar sem túlkuð var túlkun hennar
og Guðmundar Hafnfirðings Árna
um hvað samþykkt var á flokks-
stjórnarfundinum.
Næst ber það við að Guðmundur
Einarsson, aðstoðarmaður iðnað-
Ekki meirihluti
„í,'1 íííIJ...
arráðherra, sendir Mogga tilkynn-
ingu um mishermi og rangtúlkun
í fréttatilkynningu Ólínu, sem
hann vill leiðrétta. Eftir þá bragar-
bót er maður orðinn svo kolrugl-
aður í ríminu að maður veit tæpast
lengur hvor er Jón Árni og hvor
Guðmundur Baldvin. í sinni
fréttatilkynningu segir Ólína að
Guðmundur Einarsson hafi lagt
fram tillögu um traustsyfirlýsingu
á ráðherraliðið á flokksstjórnar-
fundinum og síðan hafi hún og
Guðmundur Árni lagt fram sína
tillögu um grundvallarhugsjónir
krata og lagt til að tekin yrðu upp
vinnubrögð menningarbyltingar-
innar. (Ekki sagt berum orðum). í
tilkynningunni segir að aðstoðar-
maðurinn hafi dregið sína trausts-
yfirlýsingu á ráðherragengið til
baka.
Guðmundur aðstoðarmaður Ein-
arsson lætur Mogga koma því til
skila að hann hafi fjandakornið
aldrei dregið neitt til baka og hafi
aldrei lagt fram annað en breýtihg-
artillögu til tillögu Ólínu og Guð-
mundar Árna þar sem þau lýstu yf-
ir frati á þingflokk, ráðherra og
stjórnarsamstarf og fjárlagagerð
sér í lagi.
Sé hægt að komast að vitrænni
niðurstöðu um hverju fólkið er að
reyna koma á framfæri er hún
helst sú, að niðurstaða flokks-
stjórnarfúndarins hafi verið sú, að
hengja traustsyfirlýsingu aftan í
ályktun um vantraust á ráðherra
flokksins.
En sjálfsagt munu kratar rífast
lengi enn um hvort kom á undan,
eggið eða hænan, og hverju sé
mark á takandi í tillögugerð
þeirra.
Fella eigin tillögu
En hvað sem því líður steytir Öss-
ur þingflokksformaður hnefann
framan í sína gömlu aðdáendur,
lesendur Þjóðviljans, í gær, og
boðar þau fagnaðartíðindi að ekki
sé meirihluti innan þingflokksins
um skólagjöld og er nú rammi,
fjárlagagerðarinnar farinn að
gliðna þar sem síst skyldi.
Ólafur G. menntamálaráðherra
upplýsti nefnilega í fyrrakvöld, að
hugmyndin um að leggja á skóla-
gjöld, sem hefur hitað svo mörg-
um krötum, sem fleirum, í hamsi
síðustu vikurnar, sé komin frá Jóni
Baldvin, formanni Alþýðuflokks-
ins, og með samþykki þingflokks
hans.
Hvað sem því líður er greinilegt'
hverjir eru farnir að stjórna ríkis-
stjórninni. Það er Nýr vettvangur
og aðrir þeir sem búnir eru að
eigna sér patentið á grundvallar-
hugsjónum Alþýðuflokksins. Þing-
flokkur og ráðherrar eiga að taka
við skipunum gæslumanna grund-
vallarins og aðhafast ekkert nema
með þeirra leyfi.
Og hver er betri miíligöngumað-
ur toppkrata og vettvangskrata í
hinni nýju menningarbyltingu en
Össur Skarphéðinsson? OÓ