Tíminn - 13.09.1991, Page 12

Tíminn - 13.09.1991, Page 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Holnarhusinu v Tryggvagotu 28822 Lausnin er: Enzymnl' Nýtt í Evrópu EUQO-HAIR á Islandi M ■Engin hárígræösla ' BEngin geriihár jLm aEngin lyljameðferð ■ Einungis tímabundin notkun Eigid hár meú hj'álp lífefna-orhu ©91 -676331e.kt.t6.oo ■ ■■■■■■■■■■■■■ Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga SIMI 91-676-444 T Iíniinn FOSTUDAGUR 13. SEPT. 1991 Jón Baldvin og Ólafur G. neita báðir að gangast við hugmynd um gjaldtöku af námsmönnum: HVER ÁTTIHUGMYND Óvenjulegt faðernismál er nú komið upp í ríkisstjóminni. í sjón- varpsfréttum í fyrrakvöld lýsti Ólafur G. Einarsson menntamáia- ráðherra því yfir að hugmyndin um töku skólagjalda í tengslum við yfirstandandi fjárlagagerð hafi „upphaflega verið komin frá formanni Alþýðuflokksins“. Yfirlýsing menntamálaráðherra um faðerni skólagjaldahugmynd- arinnar hefur vakið nokkra at- hygli í ljósi þess að skólagjöldin hafa fyrst og fremst staðið í þing- flokki Alþýðuflokksins, og tókst ekki að afgreiða málið fýrr en eft- ir sérstaka bókun þriggja þing- manna flokksins. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, hefur brugðist illa við ummælum menntamálaráðherra og sendi í gær frá sér ítarlega fréttatilkynningu þar sem hann neitar að gangast við þessari hug- mynd og segir fullyrðingar Ólafs G. „úr Iausu lofti gripnar". Orð- rétt segir Jón Baldvin í tilkynn- ingu sinni: „Gildandi lagaheim- ildir eru frá menntamálaráð- herratíð Birgis ísleifs Gunnars- sonar. Þeim lagaheimildum var viðhaldið af fv. menntamálaráð- herra, Svavari Gestssyni, við síð- ari lagabreytingar. Innheimta skólagjalda, á grundvelli þessara lagaheimilda, hefur vaxið veru- lega á sl. árum. Við undirbúning fjárlaga fyrir árið 1992 var hug- myndin fyrst sett á blað í „hug- myndabanka" fjármálaráðuneytis þann 24. júní s.l. Tillagan um ráð- stöfun innheimtra gjalda var að sjálfsögðu sett fram að frum- kvæði og á ábyrgð menntamála- ráðherra, sem hluti af sparnaðar- tillögum hans ráðuneytis." Þá upplýsir Jón Baldvin í frétta- tilkynningu sinni að á ríkisstjórn- arfundi þann 3. sept. sl. hafi verið samþykkt að hækka útgjalda- ramma menntamálaráðuneytis- ins um 50 milljónir, en skólum hafi verið ætlað að brúa bil rekstrarútgjalda og ríkisframlaga með sparnaði eða gjaldtöku allt að 250 milljónum. Jafnframt kemur fram að slík gjaldtaka átti að vera háð niðurstöðu nefndar, sem m.a. var sett á laggirnar til að kanna hvaða lagaheimildir væru fyrir hendi til að ráðstafa inn- heimtufé til reksturs skóla. Nefndin átti að skila niðurstöðu fyrir lok fjárlagaafgreiðslu. í til- kynningu Jóns Baldvins segir að það hafi verið á þessum forsend- um, þ.e. með fyrirvara um niður- stöðu nefndarinnar og að skólum hafi verið heimilað að velja hvort þeir mættu rekstrarútgjöldum með gjaldtöku eða sparnaði, sem Alþýðuflokkurinn hafi samþykkt gjaldahlið fjárlaga, þ.m.t. menntamálaráðuneytisins. Orð- rétt segir Jón Baldvin: ,A1Ht þing- menn Alþýðuflokksins (að undan- skildum einum, sem var fjarver- andi) hafa því skuldbundið sig til að styðja fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnarinnar, á þessum forsend- um, að því er menntamálaráðu- neytið varðar." Jón Baldvin Hannibalsson. Þá segir formaður Alþýðuflokks- ins að bókun þriggja þingmanna flokksins um þetta mál taki ekki til gjaldtöku þeirrar, sem rætt hefur verið um í tengslum við Ijárlagagerð. Hins vegar segir í bókun þingmannanna: „... hins Ólafur G. Einarsson. vegar áskiljum við okkur rétt til að hlutast til um breytingar í lög- um um framhaldsskóla til að tryggja að í framtíðinni verði námsgjöld ekki látin standa undir rekstri skóla í meiri mæli en nú tíðkast." Fulltrúar landssambanda og félaga ASÍ hittust í gær til að bera saman bækur sínar fyrir kom- andi samningalotu. Enn er ekki að fullu Ijóst með hvaða hætti staðið verður að viðræðunum, en flest aðildarfélögin hafa þegar hafið viðræður við atvinnurekendur um sínar sérkröfur. Samnings- tími, kauptryggingar og samskipti við stjórnvötd verða hins vegar trúlega á sameiginlegu borði. Á myndinni má sjá kunna verkalýðsleiðtoga bera saman bækur sínar. Timamynd: Ámi Bjama Menntamálaráðuneytið skipar Menntaskólanum á ísafirði að draga saman seglin eftir að skólahald er komið í gang, og segir: Fyrirmæli um niðurskurð á kennslu strax Menntaskólanum á ísafirði bár- ust í gær bréfieg fyrirmæii frá menntamálaráðuneytinu um að skera niður kennslukvóta skóians um 60 kennsiustundir á viku eða um 10%. Þetta þykir skólamönn- um nokkuð seint í rassinn grípið, þar sem kennsla er þegar hafin fyrir tæpum hálfum mánuði. Venjan er sú að fyrirmæli af þessu tagi eða athugasemdir við rekstr- aráætlanir framhaldsskóla eru sendar til skólanna í júlíbyrjun. Björn Teitsson skólameistari sagði í gærkvöld í viðtaii við Ríkisút- varpið að um væri að ræða meiri niðurskurð á áætlunum skólans en dæmi væru um í hans tíð. Þá væri þetta þeim mun harkalegra og ósvífnara fyrir þá sök hversu seint bréf ráðuneytisins er sent af stað, en það væri dagsett eftir að skólahald var hafið. Björn sagði við RÚV að reynt yrði að fá fram leiðréttingu hjá menntamálaráðuneytinu, enda næði þetta engri átt af þess hálfu. Ef leiðrétting fengist ekki, yrði skólinn að draga sama seglin og fleygja einhverjum nemendum fyrir borð og beita sparnaðarhnífn- um innan skólans með einhverjum hætti. —sá

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.