Tíminn - 19.09.1991, Síða 3

Tíminn - 19.09.1991, Síða 3
Fimmtudagur 19. september 1991 Tíminn 3 Neytendasamtökin benda á gífurlegan verðmun á staðgreiðslu og gjaldfreststilboðum í vörukaupum: Langir afborgunarskil- málar snarhækka verðið Neytendasamtökin hafa nú vakift athygli á því að útbreitt er orðið að fólk kaupir vörur með mjög löngum gjaldfresti, og er með því að borga miklu meira fyrir vöruna en ef stað- greitt væri og eins ef lán væri tekið fyrir þessum vörukaupum í banka. Algengt er að boðið sé upp á að út- borgun sé greidd með skuldabréfi til eins árs með 12 afborgunum. Af- gangurinn af kaupverði sé síðan greiddur með munaláni, oft til 30 mánaða. Samkvæmt upplýsingum frá Sól- rúnu Hallsdóttur frá Neytendasam- tökunum hafa samtökunum borist nokkrar kvartanir vegna þessa, og því var talið nauðsynlegt að vekja at- hygli neytenda á þeim aukakostnaði sem þessi viðskipti hafa í för með sér. Bent er á dæmi af vöru sem kostar staðgreidd 107.100 kr. Ef var- an er hins vegar keypt með ofan- greindum skilmálum verður heild- arkaupverð hennar 177.733 kr. eða tæplega 66% hærra en staðgreiðslu- verðið. Sundurliðun Neytendasam- takanna á þessum kostnaði er eftir- farandi: - þóknun til fjármögnunar fýrirtækis kr. 8.982 -vátrygging kr. 1.360 - lántöku- og stimpilgj. kr. 2.928 - afborgunarverð umfram staðgreiðsluverð kr. 10.000 - innheimtukostnaður kr. 20.160 Samtals krónur 43.430 Alþjóðleg farandsýning í Ásmundarsal: Arkitektar frá New York sýna í samvinnu Arkitektafélags íslands og Menningarstofnunar Bandaríkj- anna hefur borist hingað alþjóðlega farandsýningin ,J4ew York Architects" og hefst hún laugardaginn 21. sept- ember kl. 17 í Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningin er þverskurður af verkum síðmódernískra arkitekta frá New York. Sýndar eru teikningar, ljós- myndir og líkön. Sýningin spannar vítt svið, allt frá hönnun húsgagna til háhýsa. Meginhugmyndir arki- tektanna tuttugu og tveggja, er mynda sýningarhópinn, er að end- urspegla ríka tilhneigingu arkitekta til áframhaldandi nútímastefnu í arkitektúr. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-18 og 14-20 á laugardögum og sunnudögum. Henni lýkur 2. október. -js Öryrkjar ósáttir við SVR: Fleiri ferðir strætisvagna „Stjórn Öryrkjabandalags íslands beinir þeim eindregnu tilmælum til borgarstjórnar Reykjavíkur að fjölg- að verði ferðum strætisvagna frá því sem nú er,“ segir j ályktun stjórnar Öryrkjabandalags íslands. Þá segir að sú ákvörðun að fækka ferðum vagnanna um vetrarmánuð- ina stríði gegn hagsmununv fjölda öryrkja, aldraðra, barna og skóla- fólks sem eigi engra annarra kosta völ en nýta sér ferðir strætisvagn- anna. Þá er bent á að með því að fækka ferðum vagnanna sé vegið mjög að kjörum fjölmenns hóps borgarbúa. —sá Við þennan kostnað bætist sfðan vaxtakostnaður sem er áætlaður 21,6%, eða 27.200 krónur. Sé þessi niðurstaða borin saman við hvað það hefði kostað kaup- anda að taka lán í banka til jafn langs tíma og með sömu vöxtum og staðgreiða vöruna, þá hefði hún kostað 143.577 kr. eða 34.156 krónum minna en hún kostaði samkvæmt afborgunarskilmálun- um. Dúfnaveislan eftir Halldór Laxness frumsýnd á morgun: Sonarsonur skáldsins setur verkið á svið Dúfnaveislan eftir Halldór Lax- ness verður frumsýnd annað kvöld, föstudaginn 20. september. Sjónleikurinn er jafnframt fyrsta frumsýning Leikfélags Reykjavík- ur í vetur. Það er sonarsonur skáldsins, Halldór Einar Laxness, sem setur Dúfnaveisluna á svið. Halldór samdi verkið á árunum 1965 og 1966, en þá um vorið var verkið frumsýnt í Iðnó. Það naut talsverðrar hylli áhorfenda á þeim tíma, þótt margt kæmi þeim furðulega fyrir sjónir. Dúfnaveisl- an er sérkennilegt verk. Undir yfir- borði fyndninnar og snjallrar orð- ræðu búa spennandi og afdrifarík átök. Höfundurinn spyr áleitinna spuminga um breytingar samfé- lags okkar frá nauðþurftabúskap til velferðar. Hann skoðar og sýnir gildismat ólíkra kynslóða, ólíkra heima. -js AST Bravo 486/25 - vinnustöb framtíbarinnar. Aflmikill Í486 25MHZ örgjörvi. 2MB innra minni, stækkanlegt. 14" Super VGA litaskjár. Miklir tengimöguleikar. Úrval diska frá 52MB - 1GB. Verö frá 299.900 kr. stgr. m/vsk. Tilboö í september. VICTOR V386MX 80386 SX örgjörvi. 1 MB innra minni, stækkan- legt. 14“ VGA litaskjár. 52 MB diskur. Disklinga- drif 3,5" 1,44 MB. MS-DOS. WINDOWS. Hólf fyrir ADD-PAK, (færanlegur harður diskur). Uppfæranleg. Tengi fyrir mús, prentara o.fl. 139.950 kr. stgr. m/vsk. Tilbob í september. Victor og AST eru löngu viðurkennd gæðamerki í tölvuheiminum fyrir áreiðanleika, tæknilega fullkomnun og framsýni. Hvers vegna Victor og AST gæbatölvur? - Fjárfesting til framtíbar, þær hafa þá sérstöbu ab fást uppfæran-- legar sem þýbir ab líftími þeirra er lengri en sambærilegra tölva og eigendurnir sitja ekki skyndilega uppi meb úrelta tölvu - þær vaxa meb verkunum. i Öflugar, afkastamiklar og hljóðlátar. > Fyrsta flokks EJS þjónusta og þekking. VICTOR V386MWX -nett disklaus vinnustöb á netib. 80386SX örgjörvi. 1MB minni, stækkanlegt. 14" VGA litaskjár. Tengi fyrir mús, prentara o.fl. 109.980 kr. stgr. m/vsk. Tilboö í september. EINAR J. SKULASON HF Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 686933 -lykill að árangri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.