Tíminn - 19.09.1991, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 19. september 1991
l||l FlokKsstarf IdJ
Ólafsvík
Aðalfundur framsóknarfélaganna f Ólafsvlk verður haldinn
fimmtudaginn 19. september kl. 20.30 f Framsóknarhúsinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning á Kjördæmisþing.
3. Almennar umræður um málefni bæjarfélagsins.
4. Ingibjörg Pálmadóttir alþingism. ræöir um starfið
framundan.
Stjómln. Inglbjörg
Akranes - Bæjarmál
Morgunfundur verður haldinn laugardaginn 21. september kl. 10.30 I
Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Rætt verður um bæjarmálin.
Bæjarfulltrúamlr.
Fulltrúaráð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Drætti I skyndihappdrættinu hefur verið frestað.
Nánar auglýst slðar.
Breyttur opnunartími skrif-
stofu Framsóknarflokksins
Frá 16. september verður skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20. III. hæð, opin frá ki.
9.00-17.00 alla virka daga.
Veríö velkomin.
Framsóknarflokkurinn
Borgnesingar, nærsveitir
Spilum félagsvist f Féfagsbæ föstudaginn 20. september kl. 20.30. Mætum vel og
stundvlslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
5. landsþing LFK
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður ( Borgartúni 6, Reykjavfk,
dagana 4. og 5. október n.k. og hefst kl. 9.15.
Ávörp á þlnglnu fíytja:
Steingrlmur Hermannsson, form. Framsóknarflokksins
Siv Friðleifsdóttir, form. Sambands ungra framsóknarmanna
Páll Pétursson, form. þingfíokks Framsóknarflokksins
Fulltnji Miðfíokkskvenna á Norðuriöndum.
Konur, látið skrá ykkur sem fyrst f sfma 91-624480.
Framkvæmdastjóm LFK.
Borgarnes
Borgfirðingar —
Mýramenn
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður ræðir um stjómmála-
viðhorfið og starfið framundan I Framsóknarhúsinu f Borgar-
nesi mánudaginn 23. september kl. 20.30.
Framsóknarfálögln.
Ungir framsóknarmenn
Þjóömálanefnd SUF heldur opinn fund um landbúnaðarmál I Borgamesi laugardag-
inn 21. september kl. 16.00 i Framsóknarhúsinu.
Mætum öll og komum skoðunum okkar á framfæri.
ÞJóðmálanefnd SUF
Auglýsing
Vakin er athygli á að samkvæmt lögum nr. 34/1944 er óheimilt að
nota fána íslands á söluvaming og skv. lögum nr. 56/1978 má
eigi í heimildarleysi nota skjaldarmerkið við framboð vöru.
f bók sem ráðuneytið hefur gefið út, „Fáni Islands, skjaldarmerki,
þjóðsöngur, heiðursmerki", eru m.a. leiðbeiningar um meðferð
fána.
Forsætisráðuneytið,
16. september 1991.
Tíminn 11
John Travolta og Kelly Preston eru búin að gifta sig, tvisvar!
Einu sinni í París
og aftur í Flórída
John Travolta og Kelly Preston giftu sig í París, en það var
ekki nóg fyrir bandarískum lögum, svo þau létu pússa sig
saman í Flórída líka. Óhætt að segja að þau séu harðgift.
Ótrúlegt en satt, John Travolta
og hans heittelskaða Kelly
Preston þurftu að gifta sig aftur,
eftir að hafa uppgötvað að fyrri
gifting þeirra, sem átti sér stað í
París fyrir rúmri viku, var ekki
lögleg samkvæmt bandarískum
lögum.
Paul Bloch, umboðsmaður Tra-
volta, segir að parið, sem á von á
barni með vorinu, hefði verið
gift aftur í Daytona Beach, Flór-
fda, þar sem Travolta á heima.
Athöfnin var látlaus og fór fram
í ráðhúsi bæjarins. Preston býr í
Los Angeles, en þau hljóta að
finna sér sameiginlegt heimili
einhversstaðar núna, fyrst þau
eru gift.
Bloch sagði að hjónin hefðu
ekki vitað að fyrri giftingin, sem
fór fram í París á Hótel de
Crillo, væri ekki giid samkvæmt
bandarískum lögum. Það var
falleg athöfn og hátíðleg, eins
og tíðkast með brúðkaup.
Eftir að ljóst var að giftingin
var ekki alveg fullnægjandi
samkvæmt bandarískum lög-
um, ákváðu þau að láta pússa
sig saman í Daytona Beach, svo
að nú eru þau harðgift.
Bloch sagði að Travolta og
Preston litu á athöfnina í París
sem hina raunverulega giftingu.
John Travolta er frægastur fyr-
ir leik sinn í kvikmyndunum
Saturday Night Fever og Grease.
Þá vakti hann nokkra athygli í
Urban Cowboy. Eftir nokkra
lægð undanfarin ár kom hann
aftur fram á sjónarsviðið í
myndunum Look Who’s Talking
og Look Who’s Talking Too.
Hann og Kelly Preston kynntust
við tökur á kvikmyndinni The
Experts í Vancouver árið 1988,
en þau léku bæði í þeirri mynd.
Ástarsamband þeirra hófst svo
þegar þau hittust aftur í sömu
borg síðar sama ár. Þau unnu þá
bæði að kvikmyndum, en reynd-
ar ekki þeirri sömu.
John Travolta og Kelly Preston
ákváðu að gifta sig þegar þau
voru stödd í Parfs á kvikmynda-
hátíðinni Deuville Film Festi-
val.
Paul McCartney leysir frá skjóðunni:
Sjöundi áratugurinn
gegnsýrður af dópi
Bítillinn Paul McCartney seg-
ir í viðtali, sem birtist við
hann síðastliðinn sunnudag,
að meirihluti þeirrar tónlistar,
sem Bítlarnir sömdi á seinni
hluta ferils síns, hefði verið
saminn undir áhrifum fíkni-
efna.
„Frá því að Rubber Soul kom
út árið 1965 voru allar Bítla-
plöturnar samdar undir áhrif-
um fíkniefna, sérstaklega
marijúana og LSD,“ segir Paul
McCartney í viðtali við þýska
tímaritið Der Spiegel.
,Allur sjöundi áratugurinn
var gegnsýrður af dópi — tón-
list, bókmenntir, kvikmyndir.
Víetnamstríðið fór fram undir
áhrifum eiturlyfja," segir
McCartney.
Aðspurður um hvort hann
sjálfur hafi verið áfengis- og
fíkniefnasjúklingur svaraði
hann að hann hafi verið hin
mesta fyllibytta. „Ég sniffaði
heróín í eitt skipti. Það er eig-
inlega furða að það var ekki
oftar,“ segir McCartney.
En hann bætti við að hann
hafi verið svo djúpt sokkinn í
drykkju og eiturlyf að hann
hafi næstum dáið. „Hver hugs-
ar um að fá sér að borða eftir
að hafa tekið sýru?“ spyr hann.
Eftir að Bítlarnir hættu sam-
starfi sínu árið 1969, stofnaði
Paul McCartney nýja hljóm-
sveit og hann er enn að semja
ný lög. En hann segir að fíkni-
efnanotkun sín sé liðin tíð.
„Ég er mjög, mjög heppinn
maður. Næsta ár verð ég
fimmtugur og ég er enn að
uppgötva nýja hluti,“ segir
hann. „Ég á minn búgarð í
Bretlandi. Ég sem kvikmynda-
tónlist og fyrir þremur mán-
uðum var fyrsta klassíska
verkið mitt, óratoría, frum-
flutt í Liverpool," segir Paul
McCartney að lokum.