Tíminn - 19.09.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 19. september 1991
Tíminn 5
Sigrún Magnúsdóttir leggur til að borgarstjórn endurmeti rekstur Sorpu:
SORPINU SMYGLAÐ
FRAMHJÁ KERFINU
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi leggur til að borgarstjóm beiti
sér fyrir gagngeru endurmati á gjaidskrá, starfsháttum og rekstri
Sorpu bs.
í greinargerð með tillögunni, sem
Sigrún leggur fram á fundi borgar-
stjórnar í dag, segir: „í ljósi fenginn-
ar reynslu er óhjákvæmilegt að end-
urmeta gjörsamlega gjaldskrá,
rekstur og starfshætti fyrirtækisins.
Starfsemi Sorpu bs. var ætlað að
stuðla að bættri sorphirðu og auk-
inni umhverfismenningu, þar sem
opnir sorphaugar væru aflagðir. Á
þessu hefur orðið mikill misbrestur.
Gjaldskrá fyrirtækisins er því miður
þannig, að spilliefni skila sér ekki og
þeim er hent í sjó eða komið fyrir
með öðrum hætti. Gjaldskráin knýr
gámafyrirtæki til að koma með sorp
í stórum gámum, því standa stórir
gámar opnir dögum saman á meðan
verið er að safna í þá, öllum til ama
nema varginum.
Þá er innvegið magn sorps minna
en gert var ráð fyrir, þannig að ljóst
er að verulegu magni sorps hlýtur
að vera fyrirkomið með öðrum
hætti. Ekki reynist unnt að bagga
allt sorp, s.s. fiskúrgang o.fl., og því
er eftir sem áður verulegt magn sett
á opna hauga.
Óhjákvæmilegt er að hefja
brennslu sorps í einhverjum mæíi.
Það er sorglegt til þess að vita að fyr-
irkomulag, sem átti að bæta um-
hverfismenningu og stuðla að um-
hverfisvemd, hefur í veigamiklum
atriðum orðið til hins gagnstæða.
Borgarstjóm ber því að hafa for-
göngu um gagngerar breytingar til
að ná upphaflegum tilgangi."
Sigrún Magnúsdóttir sagði í sam-
tali við Tímann í gær: „Ég hef
áhyggjur af því að við séum að fara í
alveg öfuga átt við þá sem við ætluð-
um okkur með því að hverfa frá opn-
um haugum. Ég hef fregnir af því að
fólk hendi msli í sjóinn, keyri með
msl á opna hauga á Selfossi og Akra-
nesi o.s.frv. frekar en að greiða skila-
gjald til Sorpu. Og ef það er stað-
reynd að gjaldskrá Sorpu sé svo há
að spilliefni skili sér ekki, er það al-
varlegt mál sem taka verður á af
festu. Ég spyr hvort ekki sé rétt að
lækka gjaldskrána, eða jafnvel að
sveitarfélögin taki þetta að sér eins
og hverja aðra þjónustu, að taka við
spilliefnum, svo að þau spilli ekki
umhverfinu.
Það hefur komið í ljós að stóran
hluta sorpsins er ekki hægt að bagga
og því neyðumst við til að hafa opna
hauga. Þess vegna segi ég að sorp-
böggun var spor í rétta átt, en ekki
nógu stórt. Ég tel að við hefðum átt
að fara út í fullkomna brennslustöð,
eins og bent var á fyrir tveimur ár-
um. Undirbúningurinn var ekki
nærri nógu góður. Og til að bæta
gráu ofan á svart er hinn venjulegi
borgari alveg mglaður í þessum
málum.
En alvarlegast er ef þetta verður að-
eins til að spilla árangri í umhverfis-
málum. Þegar við höfðum opna
hauga fór þó að minnsta kosti allt
sorpið þangað," segir Sigrún Magn-
úsdóttir borgarfulltrúi. -aá.
Skipað í embætti Þingvallaprests:
Séra Hanna María
þjóðgarðsvörður
Þorsteinn Pálsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, hefur skipað
séra Hönnu Maríu Pétursdóttur í
embætti sóknarprests á Þingvöllum
frá og með 1. október 1991. Hanna
María mun jafnframt gegna starí!
þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum.
Þingvallanefnd mælti með því að
Hanna María yrði skipuð í starfið.
Hún var valin úr hópi níu umsækj-
enda.
Séra Hanna María sagðist vera
mjög hamingjusöm og þakklát ráð-
herra og Þingvallanefnd íyrir það
traust sem sér hafi verið sýnt. Séra
Hanna María hefur ekki verið sókn-
arprestur síðastliðin 6 ár. Hún sagð-
ist vera afskaplega ánægð með að
vera orðin starfandi sóknarprestur
aftur og sérstaklega ánægð með að
fá tækifæri til að starfa á Þingvöll-
um. ,Á Þingvöllum bíða mín mörg
spennandi verkefni. Hæst ber undir-
búningur að 1000 ára afmæli
kristnitöku á íslandi. Ég kvíði ekki
þeim verkefnum sem bíða. Það er
mjög vel haldið utan um þennan
stað af Þingvallanefnd. Séra Heimir
hefúr unnið gott starf og ég á því
von á að það verði gott að koma að
þessu búi,“ sagði séra Hanna María.
-EÓ
Séra Hanna María Pétursdóttir.
Hvað á sýslumaðurinn í Árnessýslu að gera
við 11 myndir sem hann keypti ekki?
OLI Þ. KEYPTI
11 LISTAVERK
Sýslumannsembættið í Ámessýslu
fékk nýverið í hendur 11 vatnslita-
myndir efltir Grétar Hjaltason, lista-
mann á SelfossL Embættismönnum
þar á bæ mun ekki vera Ijóst hvað gera
á við þessar myndir, enda voru þær
ekki keyptar að frumkvæði þeirra. Það
mun hafa verið Óli Þ. Guðbjartsson,
fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem
tók ákvörðun um að kaupa myndimar.
Ókunnugt er um kaupverðið.
Andrés Valdimarsson, sýslumaður í
Ámessýslu, staðfesti að umræddar
myndir væru í eigu sýslumannsemb-
ættisins og jafnframt að hann heföi
ekki tekið ákvörðun um að kaupa
myndimar. Hann vildi að öðm leyti
ekíri tjá sig um málið, en vísaði á dóms-
málaráðuneytið. Ekki náðist í embætt-
ismenn í ráðuneytinu sem gátu gefið
frekari skýringar á þessum kaupum.
Umræddar vatnslitamyndir vom á
sýningu í Reykjavík og vom þar til sölu.
Eitthvað mun sala hafa verið dræm.
Eftír að fyrrverandi dómsmálaráðherra
ákvað að kaupa myndimar vom þær
settar í geymslu í Reykjavík. Nýlega var
þeim komið tíl réttra eigenda á Sel-
fossi. Hjá sýslumannsembættínu vita
menn hins vegar ekki almennilega
hvað gera á við myndimar.
Vélstjórafélag Islands:
Banni mætt með hörku
„Almennur félagsfundur Vélstjóra-
félags íslands mótmælir harðlega
hugmyndum fiskvinnslunnar um að
draga stórlega úr og jafnvel banna
allan útflutning á ákveðnum teg-
undum af ferskum fiski.
Verð á fiskmörkuðum erlendis hef-
ur verið mjög gott að undanförnu
og verið allt að 173% hærra á sum-
um tegundum en verð á innlendum
mörkuðum. Að leggja til bann á út-
flutningi á ferskum fiski við slíkar
aðstæður er harkaleg árás á kjör sjó-
manna, sem mætt verður af fyllstu
hörku." —Fr.tfik.
Vífilfell gefur
H.í. 10 m.kr.
Verksmiðjan VífUfeU gaf í gær Háskóla
íslands 10 migjón kr. peningagjöf í 80
ára afmælisgjöf. Gjöfin er gefin í minn-
ingu Björns Ólafssonar, stofnanda fyrir-
tækisms og fyrrum menntamálaráð-
herra.
Háskólinn hefúr nýlega fest kaup á hús-
inu Haga, en í þeim húsakynnum hóf
Bjöm Ólafsson rekstur fyrirtækisins fyrir
tæpum 50 árum. í Haga verða kennsla og
rannsóknir í lyfjafræði lyfsala tíl húsa. I
minningu Bjöms, sem brautryðjanda og
áhugamanns um menntun og vísindi,
hefur Háskólinn ákveðið að láta nafn
hans tengjast einni rannsóknarstofú sem
rekin verður í húsinu.
Frá afhendingu peningagjafar Vífilfells til H.f. Sveinbjörn Bjöms-
son rektor tekur viö gjöfinni úr hendi stjórnarformanns Vífilfells.
Tfmamynd: Aml Bjama
Tiiiaga stjórnar-
andstöðunnar á
borgarstjórnar-
fundi Reykjavíkur
í kvöid:
Sporvagnar
og/eða
lestir gegn
loftmengun
r gai g a rg
I II Hlflí 121111 lí
i Hv|i«jflviiv
Fyrlr borgarstjórnarfundi í
kvöld liggur tillaga frá fnlitrú-
um stjómarandstöðunnar þar
sem lagt er tll að kannaðir verði
möguleikar á því að koma á
lesta- eða sporvagnasamgöng-
um í Reyýavík/höfuðborgar-
svæðinu.
Með tillögunni er jafnframt
lagt til að kannað verði bvort
önnur sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæöinu vilji taka þátt í
könttuninni með það í huga að
samgöngukerfið næði Ul alls
svæðisins. M.a. verði kannaöir
möguleikar á tengingu strætis-
vagnaferða við lesta- eða spor-
vagnakerfið. Mlðað er við að
þessi könnun feli í sér áætiun
um stofn- og rekstrarkostnað
og að jafnframt yrði áætlað
hversu mikiö sparaðist með
minni notkun einkabíla. TiUag-
an gerir ráð fyrir að á fjárhags-
áætlun næsta árs verði tryggðir
fjánnunir tíl þessarar könnun-
*í greinargerð stjómarand-
stöðunnar segir m.a.: „Til þess
að verða raunverulegur val-
kostur þurfa almenningssam-
göngur að svara kröfum fólks
um hraða og ferðatíðni. Lestir
eða sporvagnar á sérstökum
forgangsbrautum hafa betrí
mögulelka á slíkrí þjónustu en
straetisvagnar á þungum um-
ferðaræðun».“ Síðan er bent á
að á heímsþingi Alþjóðasam-
bands sveitarstjóraa sl. sumar,
þar sem fjallað Var um um-
hverfismál, var lögð rík áhersla
á að borgaryfirvöld sýndu við-
Ieitni til að draga úr notkun
einkabíla. Orðrétt segir í grein-
argcrðinni: „Baráttan gegn
loftmengun frá bílum, m.a.
koltvísýringsmengun, sem tal-
in er eiga stóran þátt í að valda
svokölluðum gróðurhúsaáhríf-
um, var þar lögð til grundvall-
ar. Á heimsþinglnu voru ein-
mitt kynntar almenningssam-
göngur, sem þróaðar hafa verið
sfðustu ár í Ziirfch og Grenoble
(400-500 þúsund manna borg-
ir) og þykja hafa heppnast ein-
staklega vel.“
Fram að þessu hafa tillögur
um að kanna hagkvæmni spor-
vagna- eða lestaferða í Reykja-
vfk ekki náð fram að ganga, en
flutningsmenn tiiiögunnar
segja nauðsynlegt nú að finna
valkosti sem geti keppt við
einkabílinn. Þeir teija það jafn-
framt skynsamlegt að slík
könnun nái til alls höfuðborg-
arsvæðisins, enda liggi fyrir að
áætlaður íbúaíjöldi þess árið
2010 verði á bilinu 168-198
þúsund manns.
í opnugrein í Tímanum í gær
kom m,a, fram að ólíkt því sem
gerist erlendis era það bílar
sem valda mestri koltvísýrings-
mengun á íslandi, samkvæmt
fyrirlestri sem Dean Abra-
hamssoh, Júlíus Sólnes og
Valdimar Jónsson verkfræði-
prófessorar fluttu á norrænnl
ráðstefnu náttúruvísinda-
manna um gróðurhúsaáhrifin,
sem haldin var í Kaupmanna-