Tíminn - 19.09.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.09.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 19. september 1991 Ásgeir Leifsson og Baldur Líndal: Súrálsverksmiöja í Þingeyjarsýslum Á íslandi má fá mikla og ódýra orku. Taliö er aö aöeins sé búið aö virkja um 5% af því vatnsafli sem hagkvæmt væri að nýta og brot af gufuorku háhitasvæöa. Meö gufu er þá fyrst og fremst átt við gufuvirkjun fýrir Kísiliðjuna hf. í Mývatnssveit og saltvinnsluna á Reykjanesi til iðnaðarframleiðslu, Kröfluvirkjun til raforkufram- leiðsíu og Nesjavallavirkjun og Svartsengisvirkjun til hita- og raf- orkuframleiðslu. Sé háþrýst gufa notuð til raforkuframleiðslu einvörðungu er nýt- ing hennar í besta falli, eins og í Kröfluvirkjun, um 14%. Nýting háhitans er hins vegar mest þegar hann er nýttur beint sem varmi, eða að öðrum kosti bæði til hitunar og raforkuvinnslu. Mannfjöldi áriö 2010 meö flutningum og breyting frá 1990 Island 298.500 +17,4% Heimild: Byggðastofnun Rannsókn háhitasvæðis er flókin og dýr. Mæla þarf yfir- borð varðandi hita og viðnám. Þá þarf að leggja veg og vatns- leiðslu vegna djúpborunar til að fá upplýsingar um hugsan- lega gufuframleiðslu og eigin- leika hennar. Slík rannsókn getur kostað um kr. 100.000.000, svo það er aug- ljóst að ekki verður farið í slíka rannsókn nema góðar og gild- ar ástæður séu til þess. Fyrir um 20 árum var nokkuð um slíkar rannsóknir á háhita- svæðum, einkum nálægt byggð svo sem í Hveradölum við Hveragerði, á Reykjanes- svæði, í Mývatnssveit vegna Kísiliðjunnar og Kröfluvirkj- unar og svo nýlega á Nesjavöll- um, en lítið hefur verið gert annars staðar. Reyndar er kostnaðarverð á jarðgufu ekki fyllilega þekkt, en það er verið að þróa reikni- líkan á Orkustofnun þar sem nánar verða kannaðir ýmsir áhættuþættir sem tengjast há- hitasvæðum og rekstri gufu- veitna. Því má bæta við að álit- ið er að virkjun orku frá há- hitasvæði geti verið ódýrasti virkjunarkostur sem völ er á. Auðlindir í Þingeyjar- sýsium í Þingeyjarsýslum eru ýmis athyglisverð háhitasvæði, eins og á Þeistareykjum, við Öxar- fjörð og Fremri-Námur. Ekk- ert þessara svæða hefur verið kannað nema á yfirborðinu og þau verða ekki könnuð að ráði nema hægt sé að benda á eitt- hvert verkefni þar sem hægt verði að nýta orku þeirra. Fyrir u.þ.b. ári voru auðlindir í Þingeyjarsýslum kannaðar. Þetta var fyrst og fremst skrá- setning á þáttum þar sem fyrir hendi voru aðstæður sem hugsanlega skópu möguleika með nýtingu í huga vegna eðl- is þeirra, þar sem til staðar var mikil orka, hagnýt jarðefni, þekking o.s.frv. Auðlindakönn- unin er ein leið til að skoða nýja möguleika í atvinnumál- um. Háhitasvæðin í Þingeyjar- sýslum eru hugsanlega ein stærsta auðlind þeirra, ef hægt er að nýta þau á hagkvæman hátt. Ljóst er að framtíðarhorfur í atvinnu- og búsetumálum í Þingeyjarsýslum eru dökkar um þessar mundir, nema eitt- hvað verði gert til úrbóta. Samkvæmt framreikningi frá Byggðastofnun, sem gerður var síðastliðið sumar, var spáð 8% fækkun íbúa í Suður-Þing- eyjarsýslu og 49% fækkun í Norður- Þingeyjarsýslu, Bakkafírði og Vopnafirði á næstu 20 árum á meðan spáð var fíölgun í Reykjavík um 37%. Aðstæður við Húsavík Það hefur ýmislegt verið skoðað á undanfömum ámm varðandi atvinnuuppbyggingu t.d. á Húsavík. Eitt stærsta átakið var vegna hugsanlegrar trjákvoðuverksmiðju sem var skoðuð 1980-1983. Athugun var gerð á stofnun verksmiðju sem ynni úr 200.000 tonnum af hráviði á ári og átti að hag- nýta orkuna frá Þeistareykja- svæðinu til þess. Gerð var at- hugun á flutningi gufu frá Þeistareykjasvæðinu til Húsa- víkur, en vegalengdin þar á milli er um 32 km. Niðurstað- an var sú að það væri vel mögulegt og með viðráðanleg- um kostnaði. Hins vegar er hagkvæmni stærðarinnar við pípulögn mjög mikil, svo ef það á að vera hægt að flytja gufu um leiðslu með ódýmm hætti verður leiðslan að vera tiltölulega stór. Einnig var gerð athugun á stórskipahöfn þar sem gætu lagst 40.000 dwt. stór skip. Var höfnin hugsuð við Bakkahöfða rétt norðan við Húsavík. Þess má geta að nið- urstaða könnunarinnar fyrir trjákvoðuverksmiðjuna var sú að hún þótti of áhættusöm, en það var sökum annarra þátta en gufuöflunar. Jarðhiti til iðnaðamota Áhugi á jarðhitanotkun til iðnaðarframleiðslu hefur lengi verið til staðar og lághiti hefur verið notaður lengi, t.d. við þvotta. En án þess að fara of djúpt í söguna þá hafa ýmsir kostir verið í athugun á seinni hluta þessarar aldar og þar á meðal hugsanleg súrálsfram- leiðsla á íslandi. Á árinu 1974 var ungverskur maður að nafni dr. György Sigmond á vegum Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hér á landi til að skoða þetta mál. Þá var verið að tala um aðstæður á Reykjanesi, að nýta háhita- svæðið Trölladyngju og fá markað fyrir súrálið hjá álver- inu í Straumsvík. Dr. Sigmond samdi skýrslu um málið og kom þar fram ýmis fróðleikur um málið, þó ekki hafí allt staðist tímans tönn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.