Tíminn - 21.09.1991, Síða 14
22 Tíminn Laugardagur 21. september 1991
Efri-Vík
Páll
Fæddur 4. júlí 1901
Dáinn 5. september 1991
Páll Pálsson, fyrrverandi bóndi í
Efri-Vík í Landbroti, andaðist 5.
þ.m. níræður að aldri. Hann var
fæddur 4. júlí 1901 í Þykkvabæ í
sömu sveit og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum, Margréti Elíasdóttur
frá Syðri-Steinsmýri og Páli Sig-
urðssyni frá Eystri-Dalbæ. Bjuggu
þau allan sinn búskap í Þykkvabæ,
miklu myndarbúi, enda voru þau
bæði hagsýn og dugmikil. Var þar
unnið að miklum framkvæmdum í
búrekstri með ræktun, áveitum og
húsbyggingum, sem lagði grundvöll
að bættum hag. Vinnubrögð öll ein-
kenndust af reglusemi og kappi og
varð þetta uppeldi Páli giftudrjúgt
veganesti auk námsins í barnaskóla
hjá Elíasi Bjarnasyni, síðaryfirkenn-
ara í Reykjavík.
Kom það að góðum notum þegar
Páll hóf búskap í Efri-Vík árið 1925.
Með dugnaði og hagsýni var unnið
að ræktun og uppbyggingu jarðar-
innar og umgengni öll bar snyrti-
mennsku vitni. Mikið átak var þegar
Páll ásamt fjórum nágrönnum sín-
um fékk Sigfús H. Vigfússon á Geir-
landi, sem nú er nýlátinn, til að sjá
um byggingu rafstöðvar til nota fyr-
ir heimili og búrekstur. Við búskap-
inn naut Páll stuðnings konu sinnar,
Magneu G. Magnúsdóttur, en þau
giftust vorið sem þau byrjuðu bú-
skap í Efri-Vík. Fylgdist hún vel með
öllu og tók þátt í störfum þar sem á
þurfti að halda og var þá rösklega
tekið til hendi.
En þó að vel væri um búskapinn
sinnt, þá naut verka Páls víðar. Að-
stæður höfðu kennt Skaftfellingum
það að þeir yrðu að sigrast á erfiðum
samgöngum og fleiri vandamálum
með samstarfi og samvinnu. í því
tók Páll virkan þátt. Hann var m.a. á
bátunum sem önnuðust uppskipun
á vörum úr Skaftfellingi við Skaftár-
ós um nærri tveggja áratuga skeið.
Þar, eins og annars staðar, sögðu
samferðamennirnir að fárra hand-
tök hefðu verið drýgri.
Þessi reynsla hefur vafalaust átt
þátt í því að auka áhuga Páls á gengi
samvinnufélaganna sem hann
studdi af heilum hug og lét sér annt
um til hinstu stundar. Það var líka í
samræmi við hið jákvæða lífsviðhorf
hans að vilja leggja hverju góðu
máli lið, enda var hann góður liðs-
maður í flestum félögum sem starf-
andi voru í sveitarfélaginu. Áratuga
starf hans í hreppsnefnd Kirkjubæj-
arhrepps, stjórn Búnaðarfélags
Kirkjubæjarhrepps og margra ann-
arra, þar sem honum voru sérstak-
lega falin gjaldkerastörf, segja líka
sína sögu.
í kirkjukór Prestsbakkakirkju söng
Páll yfir 40 ár, frá stofnun hans og
fram á síðasta ár, og voru það ekki
margar æfingar eða athafnir þar
sem hann vantaði, þá vegna óviðráð-
anlegra forfalla. Á þann og ýmsan
annan hátt sýndi hann hug sinn til
kirkjunnar.
En þó að Páll kæmi þannig víða við
í sveitarfélaginu eru það þó ekki hin
ágætu störf þessa frænda míns sem
verða mér minnisstæðust, heldur
maðurinn sjálfur. Hin einstæða góð-
vild hans og jafnaðargeð hlaut að
hafa þau áhrif að mönnum leið vel í
návist hans. í bernskuminningu
minni er Páll og fjölskylda hans
hluti af tilverunni, þar sem heim-
sókna þeirra var beðið með tilhlökk-
un.
Þau Páll og Magnea fengu til sín
nýfæddan Magnús Bjarnfreðsson.
Átti Magnús heima í Efri-Vík þar til
hann vegna náms og starfa fluttist á
höfuðborgarsvæðið. Þrátt fyrir þá
fjarlægð hefur sambandið ekki rofn-
að og ánægja þeirra hjóna var mikil
að fá með gagnkvæmum heimsókn-
um og á annan hátt að fylgjast með
vexti barna Magnúsar. Og þegar erf-
iðleikar steðjuðu að fyrr á þessu
sumri dvaldi Guðrún Árnadóttir,
kona Magnúsar, hjá þeim hjónum
þegar þörfin var brýnust.
Um leið og þakklæti fyllir hugann
við þessi leiðarlok vil ég og fjöl-
skylda mín biðja Guð að styðja
Magneu og Magnús og fjölskyldu
hans. Og mikils virði er sannfæring-
in um að sú hlýja og gleði, sem jafn-
an fylgdi honum, muni gera það
áfram þrátt fyrir þessi þáttaskil og
minningin um hann í huga okkar
því hafa sömu áhrif og návist hans.
Jón Helgason
Ég var stödd í sól og hita á sólar-
strönd þegar maðurinn minn
hringdi til mín og tilkynnti mér að
Páll föðurbróðir minn væri látinn.
Þessi fregn kom ekki sem þruma úr
heiðskíru lofti, þar sem Páll hafði
þrásinnis veikst hastarlega núna í
sumar og máttum við frændfólk
hans og vinir búast við að brátt væri
komið að leiðarlokum í lífi Páls.
Páll var fæddur 4. júlí 1901 í Land-
broti í Vestur-Skaftafellssýslu, sonur
hjónanna Páls Sigurðssonar og
Margrétar Elíasdóttur sem þar
bjuggu. Páll var fjórða af sjö börnum
þeirra hjóna. Enn eru á lífi Gyðríður,
elsta barn þeirra hjóna, móðir Jóns
Helgasonar alþingismanns, og Giss-
ur, næstyngstur, sem lengi var ljósa-
meistari hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Páll dvaldi í foreldrahúsum til 1925
en þá keypti hann Efri-Vík í Land-
broti af Eiríki Þorgeirssyni og gerð-
ist bóndi þar. Hann kvæntist 9. maí
1925 Magneu Guðrúnu Magnús-
dóttur, dóttur hjónanna Magnúsar
Hansvíumsonar og Guðríðar Sig-
urðardóttur. Fluttu þau hjón fyrst í
gamla bæinn til Eiríks og voru þar á
meðan Páll byggði nýjan bæ gegnt
gamla bænum. Ekki tók það nema
tvo mánuði að reisa húsið, tvílyft
steinhús, en yfirsmiður var Sveinn
Jónsson, bróðir Helga í Seglbúðum,
mágs Páls. Eiríkur var síðan í hús-
mennsku hjá Páli og önnuðust þau
hjón hann af alúð þar til hann lést
árið 1943. Guðríður, móðir Möggu,
var einnig hjá þeim hjónum alla tíð
þar til hún lést árið 1963.
Þeim hjónum varð ekki barna auð-
ið, en þann 9. febrúar 1934 fæddist
drengur á Efri-Steinsmýri í Meðal-
landi í mikilli fátækt. Þennan dreng
sóttu hjónin í Seglbúðum, Gyðríður
og Helgi, og fluttu hann í reifum til
Möggu og Páls í Efri-Vík þar sem
hann ólst upp til fullorðinsára.
Helgi hafði drenginn innan klæða á
ferðalaginu til að hlífa honum fyrir
nepju vetrarins. Þarna var kominn
Magnús Bjarnfreðsson, hinn lands-
kunni blaða- og fjölmiðlamaður.
Hann hefur alla tíð í þeirra huga og
eins okkar frændfólksins verið son-
ur þeirra. Magnús á 4 börn og er
kona hans Guðrún Árnadóttir.
Páll og Magga voru alla tíð ákaflega
vinnusöm og unnu stöðugt að um-
bótum og uppbyggingu jarðarinnar,
þar til þau brugðu búi er hjónin
Hörður Davíðsson og Salóme Ragn-
arsdóttir keyptu jörðina 1968.
Páll lærði bókband þegar hann var
14 eða 15 ára unglingur af frænda
sínum Elíasi Einarssyni frá Fossi í
Mýrdal, sem var á þeim árum vinnu-
maður hjá foreldrum hans í Þykkva-
bæ. Svo vel lærði hann þessa iðn að
Elías gaf honum verkfæri sín, sem
þá voru gömul, og batt Páll inn bæk-
ur af sérstakri vandvirkni með þess-
um gömlu verkfærum alla tíð og
kannski mest eftir að hann hætti
búskap, enda féll honum illa að sitja
aðgerðalaus. Þær eru orðnar ansi
margar bækurnar sem hann hefur
bundið inn, m.a. fyrir bókasafnið á
Klaustri, ýmsa bókasafnara o.fl. Við
hjónin erum svo heppin að eiga
nokkuð margar bækur sem hann
hefur bundið inn, bæði nýjar bækur
og gamlar, sumar illa famar. Þær
lagfærði hann og batt inn svo lista-
vel að ótrúlegt er.
Páll var mikils metinn í sveit sinni
og gegndi þar mörgum trúnaðar-
störfum, var meðal annars í hrepps-
nefnd í 36 ár, þar til hann baðst und-
an endurkjöri árið 1970. Árum sam-
an var Páll gjaldkeri sjúkrasamlags-
ins á staðnum og þurfti vegna þess
starfs að ferðast mikið um vegna
innheimtu. Þetta var töluvert erfið-
ara þá en nú, því Páll átti aldrei bíl
og fór því allt fótgangandi eða á
hestum. Páll var alla tíð alger bind-
indismaður og var virkur félagi í
stúkunni Klettafrú á Kirkjubæjar-
klaustri á meðan hún starfaði. Páll
var trúmaður mikill og svo kirkju-
rækinn að séra Sigurjón á Kirkju-
bæjarklaustri tjáði mér að væri
messað hefði mátt ganga að Páli vís-
um eins og klerki. Þótti honum
ákaflega vænt um kirkju sína, Prest-
bakkakirkju, og var hann safnaðar-
fulltrúi til fjölda ára, einnig var Páll
einn af stofnendum kirkjukórsins
og söng með kórnum alla tíð þar til
á síðasta ári.
Þegar ákveðið var að byggja Kap-
ellu séra Jóns Steingrímssonar á
Kirkjubæjarklaustri ákváðu þau
hjónin, Páll og Magga, að gefa orgel-
ið í kapelluna ásamt öllum sálma-
og nótnabókum, til minningar um
foreldra þeirra beggja. Orgelið var
svo keypt árið 1970 og geymt hjá
frænda þeirra, Gissuri Elíassyni org-
elsmiði, þar til kapellan var vígð ár-
ið 1974. Þetta var stórhöfðingleg
gjöf sem sýndi vel hug þeirra til
kirkjunnar.
Páll frændi var alla tíð sérlega skap-
góður, barngóður og elskulegur
maður og sama má segja um Möggu
konu hans. Þegar ég var lítil stelpa
var ég í sveit hjá Gyðríði föðursystur
minni í Seglbúðum. Þegar pabbi og
mamma komu austur á sumrin fór-
um við að sjálfsögðu í heimsókn að
Efri-Vík og alltaf var tekið á móti
okkur eins og koma okkar væri
þeim sérstök gjöf, svo gestrisin voru
þau hjónin. Flest sumur í marga
áratugi höfum við hjónin, ýmist ein
með bömum okkar eða síðustu árin
með föður mínum, dvalið í nokkra
daga í Landbrotinu og langar okkur
til að þakka fyrir þær elskulegu mót-
tökur sem við höfum alltaf orðið að-
njótandi hjá þeim hjónum. Fyrst í
mörg ár í Efri-Vík, en síðan eftir að
þau árið 1979 fluttu að Kirkjubæjar-
klaustri í íbúðir aldraðra að Klaust-
urhólum og nú síðast í ágústmánuði
sl. eftir að þau voru nýflutt að
Heiðabæ, dvalarheimili aldraðra
sem rekið er af hjónunum sem tóku
við búi í Efri- Vík af Páli og Möggu.
Mig langar til að lýsa því í nokkrum
orðum hvernig var að koma til
þeirra eftir að þau hættu búskap og
vil ég taka fram að oftast komum við
óvænt án þess að þau vissu fyrirfram
um ferðir okkar. Páll sat oftast við að
binda inn þegar við komum en
Magga sat eða lá fyrir í sófanum sín-
um, því hún hefur í mörg ár verið
slæm í hnjánum og því átt erfitt
með að hreyfa sig um; hún var oftast
með bók eða blað í hönd, því hún les
mikið. Páll lagði ávallt strax frá sér
verkefnin þegar gesti bar að garði og
settist með okkur. Það var mann-
bætandi að koma til þeirra og
breytti það engu um hvort við kom-
um bara fjölskyldan eða með vinum
okkar, þeim ókunnugum, allir voru
alltaf jafnvelkomnir. Fyrir nokkrum
árum komu sænsk vinahjón okkar
með okkur til þeirra að Klaustri, við
höfðum verið að ferðast víða með
þau og sýna þeim það sem þykir sér-
staklega áhugavert á Suðvestur- og
Suðurlandi. Þegar þessi hjón voru
spurð hvað þeim hefði fundist
minnisstæðast við íslandsferðina,
sögðu þau að það hefði verið að
koma til gömlu hjónanna á Klaustri.
Segir þetta ekki töluvert?
Eg veit að Páll frændi minn hefði
viljað að ég notaði þetta tækifæri til
að þakka vinum okkar, hjónunum
Sallý og Herði í Efri-Vík, fyrir hve
einstaklega vel þau hafa reynst þeim
hjónum eftir að heilsan fór að gefa
sig og þau þurftu á hjálp að halda.
Þegar ungu hjónin Hörður og Sallý
komu að Efri-Vík til Páls og Möggu,
endurtók sig sagan frá 1925. Þau
fluttu fyrst inn í bæinn til eldri
hjónanna á meðan þau byggðu sinn
nýja bæ. Páll og Magga tóku ungu
hjónunum og börnum þeirra opn-
um örmum. Börn þeirra Sallýjar og
Harðar eru fjögur og kölluðu þau
öll Pál og Möggu afa og ömmu í
Gamlabæ, enda þótti þeim líka eins
vænt um þau og væru þau bama-
böm þeirra. Þetta kunnu Sallý og
Hörður vel að meta og hafa þau nú í
mörg ár annast og litið til með Páli
og Möggu eins og um foreldra
þeirra væri að ræða. í sumar, þegar
Páll var orðinn mikið veikur og
Magga var svo óheppin að detta og
lærbrjóta sig, fengu þau leyfi bygg-
inganefndar til að flytja sumarhús
að Heiðabæ (dvalarheimili aldr-
aðra). Þetta sumarhús ætluðu þau
að hafa fyrir bændagistingu heima í
Efri-Vík, en tengdu það nú við hús-
ið sem fyrir var til að geta annast
gömlu hjónin eftir að þau voru ekki
lengur fær um að búa ein í íbúðinni
í Klausturhólum. Fyrir þetta og alla
þeirra umönnun til margra ára vilj-
um við skyldfólk Páls og Möggu
þakka.
Elsku Magga mín, þó að við Sig-
urður og pabbi þökkum Guði fyrir
að Páll þurfti ekki að þjást lengi,
finnum við samt mjög til með þér,
sem sannarlega átt nú um sárt að
binda þegar þú nú verður að sjá á
bak elskulegum eiginmanni eftir 66
ára einstaklega ástríkt og gott
hjónaband. Guð blessi þig um
ókomna tíð.
Eilíft líf—
ver oss huggun, vöm og hlíf,
lífí oss, svo ávallt eygjum
æðra lífið, þó að deyjum.
Hvað er allt, þá endar kíf?
Eilíftlíf.
(Matth. Jochumsson)
Sigrún Gissurardóttir
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag.
Þœr þurfa aö vera vélritaöar.
SLOKKVISTOÐIN I REYKJAVIK
Varaslökkviliðsstjóri
Laus er til umsóknar staða varaslökkviliðsstjóra frá og með
1. desember næstkomandi.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Upplýsingar veitir Hrólfur Jónsson varaslökkvi-
liðsstjóri í síma 22040.
Umsóknarfrestur er til 15. október.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, á sérstökum eyðublöðum sem
þar fást.
Viðskiptafræðingur
Laus er til umsóknar staða viðskiptafræðings Fjármála-
og hagsýsludeildar Reykjavíkurborgar.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Upplýsingar veitir borgarhagfræðingur í síma
18800. Umsóknarfrestur er til 5. október.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, á sérstökum eyðublöðum sem
þar fást.
Hafnargerð
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Vita- og hafnamálastofnunar
óskar tilboða í stálþil og festingar fyrir Hafnarfjarðarhöfn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð merkt: Útboð 3733/1 skulu berast fyrir kl. 11.00
þann 14. október n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK