Tíminn - 09.10.1991, Side 1
1
■Rvm
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í
Afvopnunin gæti
stoppað álverið
Séð yfir Keilisnes á Vatnsleysuströnd. Heflast þar álversframkvæmdir á næsta ári?
Vinnuveitendasambandið telur það óráðlegt að
reikna með að bygging nýs álvers hefjist hér á
landi á næsta ári, eins og ráð er fyrir gert í þjóð-
hagsáætlun og þar með í forsendum fjárlaga-
frumvarpsins. Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, hafa málmmarkaðir í
heiminum verið að breytast mikið í sumar og
samdráttur í hergagnaframleiðslu hefur mikil
áhrif á álmarkaðinn. Lokahöggið segir Þórarinn
hafa komið fyrir þremur vikum með hinni víð-
frægu afvopnunarræðu Bush Bandaríkjaforseta
og nú sé svo komið að fáir búist við að álverð
hækki á næstunni, a.m.k. ekki næstu fimm árin.
Þórarinn segir of seint að endurskoða þjóðhags-
áætlun og fjárlög á miðju næsta ári og því væri
hyggilegt fyrir þingmenn að endurskoða þessar
forsendur áður en fjárlagafrumvarp er sam-
þykkt. Jóhannes Nordal, formaður álviðræðu-
nefndarinnar, telur hins vegar að hergagnafram-
leiðslan hafi ekki svo mikil áhrif á álmarkaðinn
og kveðst bjartsýnn á að álversframkvæmdir
hefjist á næsta ári. • Blaðsíða 3
Jóhanna Sigurðardóttir boðar 4-5 milljarða lækkun í húsbréfakerfinu
en útgáfan verður engu að síður 12 milljarðar