Tíminn - 09.10.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.10.1991, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 9. október 1991 Tíminn 13 Aðalfundur FUF í Reykjavík verður haldinn þann 18. október kl. 20 að Hafnarstræti 20, skrifst. Framsóknarflokks. Dagskrá: 1. Kosning embættismanna fundarins. 2. Skýrslur stjórnar, gjaldkera. 3. Kosning formanns, stjómar endurskoðenda og fulltrúa (fulltrúaráð framsóknarfélaganna f Reykjavlk. 4. Tillaga til lagabreytinga og eru þær eftirfarandi: 14. grein breytist eða dvelja þar langdvölum" I „eða hafa aðsetur þar". Og f 12. grein breytist „samkvæmt flokkslögum" f „það er einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn og jafnmargir til vara". Tillögur liggja frammi á skrifstofu Framsóknarflokksins. 5. Ávarp nýkjörins þingmanns, Finns Ingólfssonar. Umræður. 6. Önnur mál. Stjómin. Létt spjall á laugardegi REYKJAVIK Laugardaginn 12. október verður fyrsti léttspjallsfundur vetrarins. Umrsðuefni: Stjórnmálaviðhorfið og flokksstarfið Flnnur Ingólfsson alþingismaður mun innleiða spjallið. Fundurinn verður haldinn að Hafnarstræti 20, III. hæö, og hefst kl. 10.30. Fulltrúaráðið. Fulltrúaráð framsóknar félaganna í Reykjavík Drætti I skyndihappdrættinu hefur verið frestað. Nánar auglýst sfðar. Konur Suðurlandi Aðalfundur Félags framsóknarkvenna Ámessýslu verður haldinn þriðjudaginn 15. október kl. 21 að Eyrarvegi 15, Selfossi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Nýir félagar velkomnir. Fjölmennum. Stjómin Kjördæmisþing á Vestfjörðum Kjördæmisþing framsóknarmanna I Vestfjarðakjördæmi verður haldið á Hólmavfk dagana 19.-20. október. Þingstörf hefjast kl. 13.00 laugardaginn 19. október. Dagskrá nánar auglýst sfðar. Aðalfundur framsóknarfélaganna I Vestur- Skaftafellssýslu verður haldinn föstudaginn 11. október kl. 21 f Brydebúð, Vík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing 3. Lagabreytingar 4. Önnur mál Á fundinn mæta alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson og Olavfa Ingólfsdóttir, formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna á Suðurlandi. Nýir félagar velkomnir. Stjómln. Árnesingar Aðalfundur Framsóknarfélags Ámessýslu verður haldinn mánudaginn 21. október kl. 21 að Eyrarvegi 15, Selfossi. Dagskrá samkvæmtfélagslögum. Stjómin. Akranes — Bæjarmál Morgunfundur verður haldinn laugardaginn 5. október kl. 10.30 I Framsóknarhús- inu við Sunnubraut. Rætt verður um bæjarmálefni. Bæjarfulltrúamlr. Madonna hefur nád tökum á honum: Lét gera á sig brjóst til að vera eins og Madonna Svona Ktur Kelly út áður en hann bregður sér í hlutverk Madonnu. Kelly Michaels, sem lfldr eftir Madonnu, þráði svo heitt að líkjast goðinu að hann eyddi 3.500 dollurum eða 210.000 íslenskum krónum í silikon- brjóst til að líkjast henni einn meira. „Ég er eini karlmaðurinn sem lfldr eftir Madonnu, sem er með bijóst. Mín eru að vísu einu númeri minni, ég nota skál B en hún C,“ segir Kelly. Hann er svo heppinn dreng- urinn að hann er með spá- dómsgáfu í bijóstunum. „Bijósin á mér vita hvenær þaö rignir. Alltaf þegar ég fæ verk í bijóstin veit ég að nú fer að rigna.“ Þetta eru sem- sagt yfimáttúrleg bijóst, hugsið ykkur bara. „Ég hef verið kallaður öfuguggi, norn, padda, hóra og þaðan af verra. Það er greinilegt að það er fullt af fólki þarna úti sem virki- lega hatar Madonnu,“ segir Kelly. „Svo eru aðrir sem biðja mig um eiginhandaráritanir og þá hugsa ég með mér: ,Ja, ef þau bara vissu að ég er karlmaður en ekki Mad- onna pæja.“ Fólk yrði sennilega brjálað ef það vissi það. Það held- ur örugglega að ég sé bara Mad- onna,“ segir Kelly, sem er aðeins tvítugur. Fyrir 6 árum barði hann Mad- onnu fyrst augum og síðan þá hefur hann verið haldinn þrá- hyggju. „Ég vissi þá að ég yrði að verða hún. Ég var hvort eð er lík- ur henni, meira að segja með sömu beinabygginguna." Þremur árum síðar, þegar hann var 17 ára, fékk hann nægilegan kjark til að klæða sig upp eins og Mad- onna. „Vinkona mín í gaggó mál- aði mig eins og Madonnu. Hún lagaði líka á mér augabrúnimar. Svo fórum við á ball. Það var ekk- ert smáræði af strákum sem fóru að reyna við mig. Vinkona mín, sem kom með mér, varð svo af- brýðisöm, að við hættum að vera vinir,“ segir þessi geðþekki ungi maður. Kelly hélt þessu leyndu fyrir for- eldrum sínum þar til dag einn að þau gripu hann glóðvolgan. „Ég kom heim um miðja nótt. Þau kveiktu ljósin og þar var ég, alveg eins og Madonna. Þau fóru alveg í rusl. Sex mánuðum seinna fór ég að heiman til að reyna fyrir mér sem eftirlíking af Madonnu." Núna kemur hann fram í Finocc- hio’s klúbbnum í San Francisco. Þangað ætlar Spegill Tímans að bregða sér næst þegar hann fer til San Francisco. Hann er örugg- lega æði. Hann er alls ekki svo ólíkur Madonnu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.