Tíminn - 09.10.1991, Side 3
Miðvikudagur 9. október 1991
Tíminn 3
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, telur engar líkur á að álversframkvæmdir
hefjist á næsta ári:
Gengur afvopnunin
af álverinu dauðu?
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjórí VSÍ, telur ekki hyggi-
legt að reikna með því að framkvæmdir við byggingu álvers á Keilis-
nesi hefjist á næsta árí. Hann segir að samdráttur í hergagnafram-
leiðslu leiði til áframhaldandi offramboðs á álmörkuðum og allar
líkur séu því á að heimsmarkaðsverð á áli verði áfram lágt, a.m.k.
næstu fimm ár. Jóhannes Nordal, formaður álviðræðunefndar, telur
að samdráttur í vopnaframleiðslu hafí ekki afgerandi áhríf á álmark-
aði. Jóhannes er bjartsýnn á að framkvæmdir við álver hefjist á
næsta ári, en viðurkennir að mörg ljón séu á veginum.
Vinnuveitendur telja óvarlegt að
reikna með að bygging álvers og
virkjana hefjist á næsta ári. Þórar-
inn V. var spurður um á hvaða for-
sendu þeir byggðu þessa skoðun.
„Málmmarkaðirnir hafa verið að
breytast mjög mikið í sumar. Loka-
höggið, sem þeir fengu, var ræða
sem Bush, forseti Bandaríkjanna,
flutti fyrir tæpum þremur vikum.
Samdráttur í vopna- og hergagna-
framleiðslu hefur mikil áhrif á ál-
markaðinn, ekki bara vegna þess að
álið er notað utan um vopnin heldur
líka vegna þess að álduft er mikil-
vægur þáttur í eldsneyti á eldflaug-
ar. Altjent er talið að þessar breyt-
ingar í heiminum í átt til friðar
dragi mjög mikið úr notkun og eft-
irspum á áli.
Austurblokkin, einkum Sovétríkin,
hefur sett feiknalega mikið af áli inn
á heimsmarkaðinn á þessu ári.
Menn hafa trúað því til þessa að
þetta væru gamlar birgðir, sem rúss-
neskir verksmiðjustjórar væru að
grafa úr jörðu, og um væri að ræða
einhverjar umframbirgðir fram yfir
fimm ára áætlanir. Þetta eru for-
sendur sem menn eru hættir að trúa
á. Menn telja nú að þetta sé nýfram-
leitt ál. Það er ekki markaður fyrir
álið í heimalandinu, vegna þess að
úrvinnsluiðnaðurinn er hruninn.
Meginástæðan er þó sú að herinn
hefur notað stærstan hluta af þess-
ari framleiðslu með einum eða öðr-
um hætti.
Spádómar manna í álheiminum
ganga út á það í dag að álverð verði
lágt a.m.k. næstu fimm ár. Við ger-
um ráð fyrir að aðilar, sem hafa hug
Stjórn Neytendasamtakanna:
Samgönguráðuneytið
hamlar samkeppni
„Neytendasamtökin mótmæla
ákvörðun samgönguráðuneytis-
ins, að hafna bciðni flugfélagsins
SAS um 6 nátta fargjald til Norð-
urlanda. Með ákvörðun sinni er
samgönguráðuneytið að koma í
veg fyrir að neytendur geti keypt
ferðir á iægra verði en nú er, og
miililandaflugi. Ástæðan, sem
talsmaður ráðuneytisins gefur,
er sú, að ef fallist hefði verið á
bciðni SAS um 6 nátta fargjald
hefði það náð tii stórs hluta af
utanlandsferðum landsmanna á
viðkomandi flugleiðum. Það þýð-
ir, að hefði beiðnin verið sam-
þykkt, þá hefði orðið veruleg
verðlækkun fyrir neytendur á
stórum hluta af utanlandsferð-
um þeirra.“
Þetta er álit stjómar Neytenda-
samtakanna á hlut samgöngu-
ráðunevtisins í fargjaldastríði
SAS og Flugleiða. Eins og fram
hefur komið f fréttum, fór SAS
þess á lelt við yfirvöld flugmála á
Isiandi að mega bjóða sama verð
á 6 nátta ferðum til Norðurlanda
og Flugleiðir bjóða í 3 nátta
ferðum. Rökin eru þau að Flug-
leiðir séu eina íslenska flugféiag-
ið og haidi uppi ferðum til iands-
ins alit árið; taka beri tíllit tíi
þess.
Það flnnst sfjóm Neytendasam-
takanna ekki rétt og i ályktun
hennar segir svo: „Neytenda-
samtökin telja það óhæfu, aft
stjómvöld skuli banna breytíng-
ar á verðlagningu í millilanda-
flugi tí! að halda uppi verði og
um leið hindra eðUlega sam-
keppni í mlUilandaflugi.
Það er miklivægt til að viðhalda
fijálsri samkeppni og eðtílegri
verðlagningu tll neytenda, að
komið sé f veg fyrir samráð
þeirra sem selja vöra og þjón-
ustu. Slíkar samkeppnishömlur
halda uppi verði til neytenda.
Talsmaður samgönguráðuncytis-
ins virðist ekki áta sig á þessum
mikilvægu atriðum í frjálsu hag-
kerfl. Þannig |ýsir hann því yfir,
að það sé dapurlegt að flugféiög-
in skuU ekki geta náð samkomu-
lagi um fargjöld á vetrarpakkan-
um. UmmæUn þýða, að það sé
dapuríegt að flugfélögin skuU
ekki hafa getað náð samkomu-
lagi um að halda uppi háu veröi á
þjónustu sinni
Neytendasamtökin telja mjög
mikilvægt, að íslendingum bjóð-
ist á hverjum tíma sem hagstæð-
ust verð á milUiandaflugleiðum.
Nú þegar liggur fyrir, að íslcnd-
ingar þurfa að gjaida meira verð
fyrir farmiða stna til og frá tand-
inu en ýmsír þeir sem kaupa far-
mlða sína erlendis. Það á aö vera
hlutverk samgönguráðuneytis-
ins að sjá til þess, að íslendingar
sitji við sama borð og aðrír hvað
varðar verð á farmiöum í miUi-
landaflugi, en það er ekki hlut-
verk ráðuneytisins aö stuðla að
því að takmarka samkeppni,
banna hana og halda uppl háu
verði á þessari þjónustu."
Samgönguráðuneytíð ætlar nú
að kanna síðast talda efnlsatriði
gagnrýni stjórnar Neytendasam-
takanna; hvort dýrara sé að
kaupa flugmiða hér en eriendis.
Forstjóri Fluglelða, Sigurður
Helgason, hefur sagt að svo sé
ekkL Verðið ráðist af verðbólgu
og gengi krónunnan stundum sé
dýrara að kaupa flugmiða hér,
stundum ódýrara. -aá.
á að fjárfesta í framleiðslu á áli, taki
mið af því hvemig ástandið er. Við
vonumst sannarlega til þess að af
þessum framkvæmdum verði, en við
metum það þannig að þessar breyttu
aðstæður á mörkuðunum hafi dreg-
ið svo mjög úr líkunum á því að af
þessu verði á næsta ári, að það sé af-
skaplega óhyggilegt að byggja heim-
ilisbókhald þjóðarinnar á þessum
tekjuvæntingum. Það er of seint að
endurskoða fjárlagafrumvarp og
efnahagsstefnu á miðju næsta ári,“
sagði Þórarinn.
Þórarinn sagðist ráðleggja alþing-
ismönnum að endurskoða fjárlaga-
fmmvarpið og miða við að ekkert
verði af byggingu álversins. í frum-
varpinu er miðað við að fram-
kvæmdir hefjist við byggingu álvers
og virkjana á næsta ári. Tekjur, sem
ríkið áætlar að fá vegna veltuaukn-
ingar í efnahagslífinu vegna þessa,
eru áætlaðar rúmur einn milljarður.
Jóhannes Nordal, formaður álvið-
ræðunefndar og stjórnarformaður
Landsvirkjunar, vildi ekki gera mik-
ið úr áhrifum minnkandi hergagna-
framleiðslu á álmarkaði. Hann sagði
að notkun áls í hernaðartæki væri
ekki stór hluti af heildarnotkun áls í
heiminum. Stærstu markaðir fyrir
ál væru annars staðar.
Jóhannes sagðist telja að sala Sov-
étmanna á áli til Vesturlanda stafaði
íyrst og fremst af slæmu efriahags-
ástandi hjá þeim og þörf þeirra fyrir
erlendan gjaldeyri. Hann útilokaði
þó ekki að minni hergagnafram-
íeiðsla hefði þar einhver áhrif. Jó-
hannes sagði að menn ættu von á að
Sovétmenn og þjóðir í Austur-Evr-
ópu myndu halda áfram að senda ál
á markaði á Vesturlöndum um
nokkurt skeið. Aukin eftirspurn eft-
ir áli heima fyrir, samhliða bættu
efnahagsástandi, og óhagkvæmar
álbræðslur ættu hins vegar, þegar til
lengri tíma er litið, að draga úr ál-
sölu til Vesturlanda.
Jóhannes sagði að á næstu árum
myndi notkun á áli aukast. Álnotk-
un væri stöðugt að aukast á nýjum
sviðum, ekki síst f bílaiðnaði. Til
þessara nýju markaða væri horft
þegar ákvarðanir væru teknar um
fjárfestingar í áliðnaði.
„Það getur enginn fullyrt að þessi
álbræðsla verði byggð. Málið er í
fullum gangi. Unnið er að því, án
þess að maður sjái nokkra tilhneig-
ingu hjá okkar samningsaðilum til
að hægja nokkuð á ferðinni með
sinn undirbúning. Ég er frekar von-
góður um að í byrjun næsta árs
verði tekin ákvörðun um að fara í
þessa framkvæmd, en það er ljóst að
það er ýmislegt í stöðunni sem auð-
veldar ekki málið. Þar á ég við ál-
verðið í dag og ástandið á fjármála-
mörkuðum." sagði Jóhannes.
-EÓ
Ewos hættir
framleiðslu á
Fyrirtsekið Ewos { Reykjavík,
aem framleiðir fiskafóður, befur
neyðst til að dnga verolega samaa
framleiðslu vegna samdráttar í
sölu fóðurs á Færeyjamarkað.
Ámi Gunnarsson, framkvaemda-
atjóri Ewos, sagði að fyrirtækið
myndi einbeita sér að því að sinna
heimamarkaði. Hann sagftl elg-
endur Ewos ákveðna í aö komast
yfir þetta áfall.
Framkiðsla Ewos á markaði {
Fscreyjum hefur verið kringum
6000 tonn á ári, en heildarfram-
ieiðsla fyrirtældslns hefur verið
að Ewos myndi einbeita sér að
innanlandsmarkaði, en jafnframt
reyna að finna nýja markaðl. Ilann
sagði að á meftan ekki hefðu fund-
ist nýir markaðir væri ekki um
annað að ræða en draga úr fram-
leiðslu. Hann sagði eígendur fyr-
Irtækisins ákveðna í aö halda
framleiðsfu áfram, þrátt fyrir
þetta áfall
Ewos hóf framleiðslu 1986 og
var þá gert ráð fyrir að framleiða
eingöngu á innanlandsmarkað.
Innanlímdsmarkaðurinn varð
var eftir, vegna áfalla, sem fiskeld-
Íð varð fyrir, og brcyttra markaðs-
aðstæðna. Þegar ljóst var að inn-
Íendi markaðurinn myndi bregð-
ast að verutegu leyti, féllst norska
fyrfrtækift Ewos, sem á 49% i Ew-
os á íslandi, á að hlcypa islensku
framleiðslunnl inn á Færeyja-
markað. Erflölelkar í flsketdi hafa
þrengt aö norska fyrirtækinu, eins
og öðrum fyrirtækjum f þessari
grein, og þess vegna féllst það
eidd á að endumýja samning við
Ewos á ísiandi um að það fram-
leiddi á Færeyjamarkað. -EÓ
Tfmamynd Áml Bjama
Nokkrir af hestunum sem nú fara utan.
Sölusamtök íslenskra hrossabænda:
Sölumiðstöö í Þýskalandi
Sölusamtök íslenskra hrossa-
bænda hafa tekið á leigu búgarð
nærri Kaufungen í miðju Þýska-
landi. Hann verður sölumiðstöð
samtakanna. Á næstu dögum fara
svo fyrstu hestamir utan, 70 sam-
tals í þessum mánuði, flestir þegar
seldir. Ráðgert er að í framtíðinni
fari um 40 til 50 hross utan f hverj-
um mánuði.
SÍH hafa komið sér upp kerfi sér-
stakra matsmanna. Þeir meta
hross og verðleggja samkvæmt þar
til gerðum stöðluðum ramma
samtakanna. Þá hafa SÍH fengið
sér sérstakt vörumerki, Edda hest-
ar, og hyggja á víðtæka kynningu
erlendis. -aá.
Næg verkefni en vantar fé
Niðursuðuverksmiðjan hf. á ísafirði
hefur fengið tveggja mánaða
greiðslustöðvun. Þann tíma ætlar
stjórn fyrirtækisins að nota til að
endurskipuleggja, með aðstoð sér-
fræðinga, reksturinn fjárhagslega,
m.a. með öflun nýs hlutafjár og láns-
fjár, auk þess að leita samninga við
SAMGONGURAÐUNEYTIÐ
TIL MÓTS VIÐ SAS
Samgönguráðuneytiö hefur veitt
SAS heimild til að bjóða fjögurra og
fímm nátta fargjald til Norðurfanda
á sama verði og Flugleiðir bjóða
þriggja og fjögurra nátta ferðir.
Heimildinni fylgir það skilyrði að
farþegar Flugleiða fái að sitja við
sama borð og farþegar SAS í fram-
haldsflugi til níu borga á Norður-
löndum. Og að samkomulag takist
með félögunum um skiptingu
tekna á flugleiðunum. Félögin
hafa fengið frest til mánaðamóta
til að semja. -aá.
lánardrottna um skuldaskil. Stefnt er
að því að þessu verkefni ljúki fyrir
áramót.
í frétt frá fyrirtækinu segir m.a. að
næg verkefni liggi fyrir við að fram-
leiða upp í staðfesta samninga.
Stjóm Niðursuðuverksmiðjunnar
heitir á starfsfólk og aðra velunnara
að vinna saman að því að koma fyrir-
tækinu út úr þeim erfiðleikum sem
nú steðja að því og öllum rækjuiðn-
aðinum. Takist slík samstaða þurfi
ekki að óttast um árangur. Á daglegri
stjórn verður sú breyting að Stefán
Jónsson viðskiptafræðingur verður
framkvæmdastjóri, en Éiríkur Böðv-
arsson tekur við stjórnarformennslu
og vinnur að framtíðarverkefnum.