Tíminn - 10.10.1991, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 10. október 1991 Tíminn 7
■■ AÐ UTAN
ísrael stendur ekki við fyrirheitin:
Elsta atvinnugrein kvenna
þrautalending þeirra rússnesku
Vitaskuld kostar mikið fé að
koma upp húsaskjóli yfir mörg
hundruð þúsund manns og þess
vegna hafa ísraelsmenn gert þá
kröfu til bandamanna sinna og
velgerðarmanna, Bandaríkja-
manna, að þeir hlaupi nú enn
einu sinni undir bagga og veiti
ábyrgð fyrir 10 milljarða dollara
láni sem nota eigi til uppbygg-
ingar fyrir nýju innflytjenduma.
Nú bregður hins vegar svo við
að Bush Bandaríkjaforseti vill
ekki stuðla að frekari uppbygg-
ingu ísraelsmanna á hemumdu
svæðunum, og veldur þar mestu
um að hann vill ekki styggja Ar-
aba um of meðan einhver von er
til að koma megi á friðarviðræð-
um milli erkióvinanna í Mið-
Austurlöndum. Hann hefur því
synjað ísraelsmönnum um
ábyrgðina.
Tölvufræðingur í
gamla landinu —
vændiskona í því
nýja
Hún kallar sig Natöshu. Hún
situr í flegnum svörtum kjól á
fínum hótelbar í Tel Aviv og blæs
Ietilega frá sér fullkomnum reyk-
hringum. Natasha fluttist nýlega
til ísraels frá Sovétríkjunum. í
gamla landinu starfaði þessi 23ja
ára stúlka sem tölvufræðingur, í
fyrirheitna landinu hefur hún
lifibrauð af vændi.
Hún er ein af mörg hundmð ný-
komnum rússneskum konum,
sem eru of menntaðar fyrir þau
fáu störf sem gefast, og hafa snú-
ið sér að vændi til að komast af.
Erfitt hefur verið að komast hjá
að taka eftir að skyndilega hefur
ljóshærðum konum fjölgað á
götum Tel Aviv og auglýsingafl-
óran í dagblöðunum hefur orðið
fjölskrúðugri. Þar má sjá t.d.:
„Bráðfalleg rússnesk kona, ný-
komin frá Moskvu". „Nuddstofan
Varalitur" heitir viðskiptavinum
þjónustu „hóps af rússneskum
fýrirsætum á alþjóðlegan mæli-
kvarða“.
Rétt eins og flestir aðrir inn-
flytjendur frá Sovétríkjunum,
flúði Natasha efnahagsóreiðu og
Gyðingahatur. „Ég kom hingað í
þeirri trú að hér myndi mér
ganga vel að vinna mig upp í
starfi mínu, en í þessu landi eru
of margir tölvufræðingar. Ég
leitaði að kennarastarfi, en hebr-
eskan mín var ekki nógu góð. Ég
reyndi að vinna við ræstingar, en
fólk notaði sér mig og borgaði
mér ekkert," segir hún.
Natasha er búin að fá nóg af
ísrael. „Eftir nokkra mánuði verð
ég búin að safna nægum pening-
um. Ég ætla að kaupa flugmiða
umhverfis jörðina. Þá sé ég
hvaða land mér líst best á og þar
ætla ég að setjast að."
Olga hætti verkfræðináminu í
Riga til að flytjast með foreldrum
sínum til ísraels fyrir ári. Þau
settust að í bænum Migdal
Ha’emek í norðurhluta landsins.
Að sjö mánuðum liðnum var
enginn í fjölskyldunni búinn að
fá vinnu og Olga, 21 árs, stóðst
ekki lengur freistinguna.
,Mig langaði til að kaupa mér
gallabuxur, skó og hljómplötur,
en engir peningar voru til,“ segir
hún. Hún segist eiga vinkonu,
sem vann við símavændi í Haifa,
og hún hefði sagt sér að hringja
þegar hún væri alveg viss um að
hún vildi vinna sér inn peninga.
Nú segist Olga vera búin að spara
saman fimm þúsund dollara og
ætla að láta gera sér myndmöppu
á dýrri ljósmyndastofu. Draum-
urinn er að verða fyrirsæta.
320.000 sovéskir
Gyðingar þegar
komnir — von á
milljón til viðbótar
Efnahagslegir örðugleikar mæta
flestum sovésku innflytjendanna.
Um 320.000 Gyðingar hafa flust
til ísrael frá 1989. Von er á einni
milljón til viðbótar. Opinberar
tölur segja 40% innflytjendenna
atvinnulausa, en óopinbert mat
er miklu hærra eða allt að 75%.
Verkfræðingar hafa tekið að sér
störf sem Palestínumenn unnu
áður, s.s. að leggja bílum eða
sópa götumar. Margir hafa skrif-
að til gamla landsins og ráðlagt
vinum og vandamönnum að
hætta við að flytjast til ísraels.
Nú eru ísraelsk yfirvöld áhyggju-
full um að vonbrigðin verði til
þess að taki fyrir innflytjenda-
strauminn.
Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra hefur haft í hótunum og
átt á hættu vináttuslit ísraels-
Lífsbaráttan er erfið fyrir sov-
ésku innflytjenduma í fsrael.
Þrautalending margra kvenna
til að hafa í sig og á, er að
taka upp vændi, og hér er ein
á vinnustaðnum í Tel Baruch.
manna og Bandaríkjamanna í
viðleitni sinni til að knýja fram
ábyrgð hinna síðarnefndu á 10
milljarða dollara láni til að koma
innflytjendunum fyrir í ísrael,
reyndar á hernumdu svæðunum.
Stéttaskipting í
vændiskvennastétt
og rígur milli þeirra
gamalgrónu og ný-
komnu
Þeir kaldhæðnu segja að Natas-
ha og Olga hafi haft heppnina
með sér. Natasha tekur 200 doll-
ara þóknun fyrir þjónustu sína
hverju sinni, á fastan hóp við-
skiptavina, vinnur á góðum hót-
elum og yfirmaður hennar er
strangur og hefur aga á við-
skiptavinunum.
Starfssystur hennar í Tel
Baruch, ruslidrifnum sandhæð-
um norðan við Tel Aviv sem sagð-
ar eru „stærsta vændishús Mið-
Austurlanda", eru ekki eins
heppnar. Að kvöld- og næturlagi
stilla konur og klæðskiptingar
sér ögrandi upp á vegum, sem
aðeins eru upplýstir af bílljósum
þegar karlmenn — Arabar og
Gyðingar — koma í kynlífsleit.
Rússnesku vændiskonunum
hefur ekki verið vel tekið af
heimakonunum sem fyrir voru.
Etti er innfædd og hefur starfað í
Tel Baruch árum saman. Hún
segir rússnesku stúlkurnar hafa
rænt yfirráðasvæði þeirra sem
fyrir voru, og þær fari firam á
lægri greiðslur fyrir þjónustuna.
Þær dragi stéttina niður í svaðið.
Ora Namir hefur forystu í þing-
nefnd sem fjallar um félagsleg
málefni. Hún álítur að meira en
15% vændiskvenna í ísrael séu
rússneskar. Yitzhak Peretz rabb-
íni, innflytjendaráðherrann,
sagði nýlega að þetta fyrirbæri
væri „blettur á enni landsins".
Minniháttar vaxtar-
verkur
Aðrir embættismenn segja
vandamálið minniháttar vaxtar-
verk. „Ekkert annað land hefði
þorað að takast á við þá innflytj-
endaögrun sem ísrael hefur
gert,“ segir formælandi sjálfs-
hjálparhóps innflytjenda. „Það er
ekki hægt að sjá birtuna í enda
ganganna, en við vitum hvaða
möguleikar geta verið fyrir
hendi.“
Þessi orð eru þó lítil huggun
þeim sem enn eru í göngunum.
Olga, verkfræðineminn fyrrver-
andi, sér litla möguleika á því að
sá draumur hennar, að fara aftur
í háskóla, eigi eftir að rætast.
Hún segir lífið núna ógeðslegt,
en að hún geti ekki sagt skilið við
starfið núna.
Opinber stefna ísraela
hefur löngum verið að
allir Gyðingar ættu sér
griðland í Israel. Þeir
hafa þess vegna lengi
lagt áherslu á að Sovét-
menn gæfu öllum sov-
éskum Gyðingum farar-
leyfi til ísraels sem þess
hafa óskað. Nú hefur
það fararleyfi verið veitt
og sovéskir Gyðingar
flykkjast til fyrirheitna
landsins. Þar sem það
hefur líka verið opinber
stefna ísraelsmanna að
þeir eigi yfirráð á þeim
svæðum, sem þeir hafa
hernumið af Palestínu-
mönnum að unnum
stríðum, hafa þeir lagt
ofurkapp á að koma sov-
ésku innflytjendunum
fyrir þar.