Tíminn - 12.10.1991, Qupperneq 1
Heimsmeistarar í bridge árið 1991. Frá vinstri: Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Guðmundur Páll Amarson, Orn Amþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Þor-
lákur JÓnSSOn Og BjÖm EySteÍnSSOn. Ttmamynd Aml Bjama
Landslið íslands í bridge tryggði sér í gærmorgun
heimsmeistaratitilinn í bridge. íslendingar sigruðu
Pólverja í úrslitahrinunni, eftir nokkrar sviptingar í
síðustu tveimur lotunum. Nokkur upplausn virtist
herja á sveit Pólverjanna um tíma, og rekja margir
það til þess að íslendingar beittu „bros-aðferðinni“
og brostu í tíma og ótíma, jafnt þegar þeir unnu spil
og þegar þeir töpuðu spilum. Þetta er í fyrsta sinn í
sögu hópíþrótta á íslandi sem íslenskt lið vinnur
heimsmeistaratitil. Árangur íslenska liðsins er
hreint frábær, einkum þegar haft er í huga að í
keppninni mættu þeir atvinnumönnum úr öllum
sterkustu bridgesveitum heims. Afrek íslensku
áhugamannanna hefur vakið gífurlega athygli jafnt
hér heima sem í hinum alþjóðlega bridgeheimi.
Bridgesérfræðingar, sem fylgdust með mótinu, og
aðrir, sem vit hafa á málum, segja að íslenska
sveitin hafi fullkomlega átt sigurinn og heims-
meistaratitilinn skilið. Þeir hafi einfaldlega verið
bestir! • Blaðsíða 22