Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 14
22 Tíminn Laugardagur 12. október 1991 MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkir til háskóla- náms í Noregi og Þýskalandi 1. Norsk stjómvöld bjóða fram styrk handa íslensk- um stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi námsárið 1992-93. Styrktímabilið er níu mánuðir frá 1. september 1992. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur um 5.300 n.kr. á mán- uði. Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa stundað háskólanám í a.m.k. 2 ár. 2. Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt ís- lenskum stjórnvöldum að boðnir væru fram eftirtaldir styrkir handa (slendingum til náms og rannsóknastarfa í Þýskalandi á námsárinu 1992-93: a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. b) Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1992. Umsækjendur skulu vera komnir nokkuð áleiðis i háskólanámi og leggja stund á nám í öðr- um greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa um allt að sex mánaða skeið. Nánari upplýsingar um styrkina, svo og umsóknar- eyöublöð, fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum skal skilaö í ráðuneytið fyrir 15. nóvember n.k. um þýsku styrkina, en 1. desember n.k. um norska styrkinn. Menntamálaráðuneytið, 11. október 1991. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkir til háskóla- náms í Noregi og Svíþjóð 1. Norsk stjórnvöid hafa tilkynnt aö þau bjóði fram í löndum, sem aðild eiga að Evrópuráðinu, fimm styrki til framhaldsnáms viö háskóla í Noregi skólaárið 1992- 93. Ekki er vitaö fyrirfram, hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut (slendinga. Umsóknir skal senda til: Norges allmennvitenskapenlige forskn- ingsrád, Sandakerveien 99, N- 0483 Oslo 4, fyrir 1. mars n.k., og lætur sú stofnun í té umsóknareyöublöð og frekari upplýsingar. 2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð námsárið 1992-93. Styrkir þessir eru boðnir fram í mörgum löndum og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem eingöngu er unnt að leggja stund á í Svíþjóð. Sér- stök athygli er vakin á þvi að umsækjendur þurfa að hafa tryggt sér námsvist við sænska stofnun áður en þeir senda inn umsókn. Styrkfjárhæðin er 6.440 s.kr. á mánuði námsárið, þ.e. í 9 mánuði. Til greina kemurað styrkur verði veittur i allt að þrjú ár. Umsóknir um styrk- ina skulu sendar til Svenska Institutet, Enheten för ut- bildnings- och forskningsutbyte, box 7434, S-103 91 Stockholm, og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknar- eyðublöð fram til 1. desember n.k. Menntamálaráðuneytið, 11. október 1991. HAFNARFJARÐARBÆR Lóð fyrir háhýsi Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir tilboðum í bygg- ingarrétt á lóð fyrir fjölbýlishús við Háholt. Húsið verður tólf hæðir, með 92 íbúðum ásamt bílgeymslum og verslunar- og þjónusturými. Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 22. október 1991. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu bæj- arverkfræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkfræðingur ISLENDINGAR EIGA BESTU BRIDGEMENN í HEIMINUM íslendingar eru heimsmeistarar í bridge. Þeir sigruðu Pólveija með 415 stigum gegn 376. Þetta er í fyrsta skipti sem íslendingar verða heimsmeistarar í flokkaíþrótt. ísiendingar hafa í allan gærdag fagn- að frábærum árangri sinna manna. Það var mikil spenna í húsi Bridge- sambands íslands við Sigtún í Reykja- vík í fyrrinótt, þar sem á milli 150-200 manns vöktu og spáðu í síðustu spilin. Fögnuðurinn var mikill, þegar ljóst var að íslendingar voru orðnir heims- meistarar. í fyrrinótt voru leiknar tvær lotur, 32 spil, en alls voru spiluð 160 spil. Fyrir íokaloturnar höfðu ís- lendingar 60 stiga forskot, 338 stig gegn 258. íslendingar héldu áfram að safna stigum í upphafi áttundu lotu. Þá snérist leikurinn Pólverjum í vil og þeir náðu að saxa á forskotið, en sigur- inn var þó aldrei í verulegri hættu. Mönnum stóð þó ekki alveg á sama, þegar Pólverjar unnu 7 spil í röð í síð- ustu lotunni. íslendingar náðu að stöðva Pólverjana og vinna með 39 stiga mun. Það voru stoltir og glaðir íslendingar sem stóðu upp frá borðinu eftir sigur- inn í fyrrinótt. „Ég er nú varla farinn að trúa þessu," sagði Jón Baldursson. „Þetta var sigur liðsheildarinnar. Við erum kannski ekki með bestu einstak- linganna, en við vorum með besta lið- ið og besta fyrirliðann," sagði Jón. íslensku keppendurnir og forystu- menn Bridgesambandsins voru sam- mála um að þáttur fyrirliðans í sigrin- um væri mikill. Undirbúningur fyrir keppnina hefði verið markviss og góð- ur. Hann fólst m.a. í mikilli líkams- þjálfun. Fyrirliðinn bannaði keppend- um að spila bridge í tvo mánuði eftir Evrópumeistaramótið í sumar, enda var svo komið, þegar dró að keppn- inni, að spilarana þyrsti í að fá að handleika spilin. Þeim, sem ekki kunna bridge og hafa ekki fylgst með uppgangi íþróttarinn- ar hér á landi, kemur þessi frábæri ár- angur nokkuð á óvart. Þeir, sem þekkja til getu íslenskra bridgespilara, eru hins vegar ekki eins hissa. Þó hef- ur líklega engan grunað að ísland ætti eftir að koma heim með heimsmeist- aratitil í bridge. ísland hefur í gegnum árin oft náð góðum árangri á Evrópumeistaramót- um. Lið íslands var t.d. í 4.-5. sæti í Brighton árið 1987. Liðið tryggði sér rétt til að keppa á heimsmeistaramót- inu, með því að lenda í 4. sæti á Evr- ópumeistaramótinu í Killamey á ír- landi fyrr á þessu ári. í íslensku bridgesveitinni eru 6 spil- arar, auk fyrirliðans sem ekki keppir við bridgeborðið: Aðalsteinn Jörgen- sen, 32 ára framkvæmdastjóri. Guð- laugur R. Jóhannsson, 47 ára endur- skoðandi. Guðmundur Páll Arnarson, 34 ára blaðamaður og skólastjóri Bridgeskóla íslands. Jón Baldursson, 37 ára fulltrúi hjá Flugleiðum. Þorlák- ur Jónsson, 35 ára verkfræðingur. Örn Arnþórsson, 45 ára skrifstofustjóri. Fyrirliði liðsins er Björn Eysteinsson, 43 ára bankamaður. Jón og Aðalsteinn spila saman, Þorlákur og Guðmundur Páll, og Guðlaugur og Örn. Það, sem hefúr vakið einna mesta at- hygli varðandi frammistöðu íslenska liðsins, er hve spilamennskan hefur verið jöfn. Liðið tók forystu í sínum riðli í upphafi keppninnar og hélt henni til loka. Liðið tapaði ekki nema tveimur leikjum. Sama var upp á ten- ingnum í undankeppninni. fsland tók forystuna í öllum þremur leikjunum, gerði fá afdrifarík mistök og sigraði án þess að andstæðingamir næðu að komast upp fyrir þá á stigatöflunni. Lið ísland spilaði raunvemlega eins og heimsmeistarar. Spenntir fslend- ingar, sem vanir em að fylgjast með íslenska handboltalandsliðinu, biðu alltaf eftir slæma kaflanum, en hann kom bara ekki. Þegar litið er til baka, finnst manni hreinlega að þetta hafi verið létt hjá „strákunum", svo vitnað sé í Bjama Fel. En íslenska liðið þurfti svo sann- arlega að hafa fyrir sigrinum. Keppnin í undanúrslitum stóð í um 12 tíma á dag og Örn Amþórsson sagði að hver keppandi hefði tapað að meðaltali um 4-5 kílóum meðan á keppninni stóð. Það var því ekki að ástæðulausu að Björn Eysteinsson, fyrirliði liðsins, lagði áherslu á að keppendur væru í góðu líkamlegu formi fýrir keppnina. fsland vann riðlakeppnina, fékk 254,25 stig. í undanúrslitum keppti íslenska liðið við B-lið Bandaríkjanna. ísland sigraði næsta auðveldlega, hlaut 271 stig gegn 184. Til að fá að keppa um heimsmeistaratitilinn urðu íslendingar að vinna Svía. Það gerðu þeir með 43 stiga mun, 269 gegn 226. Svíamir vom reyndar næstum búnir að jafna í næst síðustu lotunni. Úrslit- in í sjálfum úrslitaleiknum urðu síðan 415-376. Á þessu stigi er ekki Ijóst hvað bíður heimsmeistaranna. Elín Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Bridgesambands- ins og eiginkona Jóns Baldurssonar, sagði líklegt að þeim muni í framtíð- inni bjóðast mörg tækifæri til að keppa á stórmótum úti um allan heim. Ólíklegt er að um beinan fjár- hagslégan ávinning verði að ræða fyr- ir keppendur. Mikill tími hefúr farið í bridge hjá meistumnum síðasta árið, og ljóst er að sá tími mun ekki minnka alveg á næstunni. Elín sagði að at- vinnuveitendur þeirra hefðu sýnt þeim mikinn kilning og gefið þeim frí frá vinnu. Áhugi á bridge hefur aukist gífurlega hér á landi í kjölfarið á glæsilegum sigri. Bridgebækur renna út eins og heitar lummur og bridge- námskeið eru yfirfull. Heimsmeistaramir koma heim til ís- lands síðdegis á sunnudag. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.