Tíminn - 12.10.1991, Page 15
Tíminn 23
Laugardagur 12. október 1991
llfl ÍÞRÓTTIR
Knattspyma:
Bannað að senda
aftur á markmann?
— reglubreytingar fyrirhugaðar í knattspyrnunni
Alþjóöaknattspyrnusambandiö,
FIFA, hefur í hyggju að banna
markvörðum að taka boltann með
höndum þegar leikmenn spyraa
knettinum til baka til þeirra. Á þetta
að verða til þess að koma í veg fyrir
tafir og gera leikinn áhugaverðari.
Andreas Herren, talsmaður FIFA,
segir að reglubreytingin, sem gerir
ráð fyrir að refsað verði fyrir ef
markvörður tekur knöttinn með
höndum eftir sendingu til baka
(hann má þó leika knettinum með
öðrum líkamshlutum), verði lögð
fyrir næsta þing FIFA í maí á næsta
ári.
Herren segir að sambandið hafi
ákveðið að leggja þessa reglubreyt-
ingu til, frá og með keppnistímabil-
inu 1992-1993, eftir að hún reyndist
vel í sumar í heimsmeistarakeppni
17 ára og yngri á Ítalíu, þar sem
reglan var reynd.
Komið hefur í ljós að mestu tafir á
knattspymuleikjum verða þegar
markvörður er með knöttinn, en
hann er með boltann að meðaltali í
3 mínútur í leik.
Verði reglubreytingin samþykkt
mun hún verða í gildi á HM í Banda-
ríkjunum 1994, en þar í landi á
knattspyman undir högg að sækja,
vegna þess að fólki finnst íþróttin
hæg og tilþrifalítil. Tillagan um
breytingar á reglunum eru þó ekki
gerðar til þess að þóknast Banda-
ríkjamönnum.
Þá hefur FIFA ákveðið að atvinnu-
mennska meðal dómara veri tekin
upp í HM 1994, en hingað til hafa
dómarar verið áhugamenn að dæma
hjá háttlaunuðum atvinnumönn-
um. „Þessu verður að breyta. Við
ÚRSLIT
Þrír leikir voru í fyrrakvöld í
2. deild karla í handknattleik.
Úrslitin urðu sem hér segir:
ÍR-KR..........22-20
Ögri-ÍH........17-30
Völsungur-Þór..20-27
Lið ÍS hefur dregið sig út úr
mótinu.
Staðan í 2. deild karla
í handknattleik:
ÍR 3300 76-49 6
Afturelding 22 0 0 45-32 4
HKN 1100 29-11 2
Þór 1100 27-20 2
Ármann 2 10 1 42-40 2
ÍH 3102 60-70 2
Fjölnir 2101 33-48 2
KR 2 002 38-41 0
Völsungur 1001 20-27 0
Ögri 3003 49-81 0
Bo Jackson
viljum gefa dómurum sams konar
aðstöðu og leikmönnum," segir for-
seti FIFA, Joao Havelange. Hann
segist einnig hlynntur því að HM
í dag verður hörkuleikur í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í íþrótta-
húsinu við Strandgötu í Hafnar-
firði, en þar mætast Haukar og
Punktar
• Bo Jackson, einn fjölhæfasti
íþróttamaður Bandaríkjanna, mun
ekki leika amerískan fótbolta í vetur
með liði sínu, LA Raiders. Jackson
meiddist í úrslitakeppninni í janúar
sl., og hefur ekki náð sér það vel að
hann geti leikið þessa erfiðu íþrótt
sem atvinnumaður meir. Kappinn er
þó ekki af baki dottinn, því hann hef-
ur leikið með Chicago White Sox í
atvinnumannadeildinni í hafnabolta
síðan í ágúst. Ekki þykir Jackson
síðri sem hafnaboltaleikmaður, en
fótboltaferli hans er líklega lokið.
• Gary Pallister og David Hirst hafa
sökum meiðsla dregið sig út úr
enska landsliðshópnum í knatt-
spyrnu, sem undirbýr sig nú fyrir
leikinn gegn Tyrkjum á miðvikudag.
í hópinn hefur verið bætt þeim Gary
Mabbutt Tottenham, Earl Barrett og
Richard Jobson Oldham og mark-
verðinum Tony Coton frá Manchest-
er City.
• Gríska liðið PAOK Salonika verð-
ur að leika fyrir luktum dyrum í 2.
umferð Evrópukeppninnar, vegna
þess að áhangendur liðsins réðust á
áhangendur aðkomuliðsins, Meche-
len frá Belgíu, í 1. umferðinni.
2002 verði haldin í Asíulandi. Þá
segir forsetinn að Frakkland hafi
vinninginn hvað varðar HM 1998
keppnina. BL
Grindvíkingar. Leikurínn hefst kl.
16.00.
Á morgun eru þrír leikir á dagskrá í
deildinni. Nágrannaslagur verður í
Borgamesi þegar heimamenn í
Skallagrími taka á móti Snæfelli úr
Stykkishólmi. Er það jafnframt fyrsti
leikur Skallagríms í úrvalsdeild á
heimavelli. Þessum liðum er spáð
fallbaráttu í vetur, þannig að hart
verður áreiðanlega barist.
Á Akureyri taka Þórsarar á móti
Keflvíkingum og á Sauðárkróki leika
Tindastóll og Njarðvík. Allir leikirnir
hefjast kl. 20.
1. deild karla hefst í dag með leik ÍS
og Hattar frá Egilsstöðum í Haga-
skóla kl. 14. Þess má geta að austan-
menn hafa fengið til liðs við sig
mjög sterkan Bandaríkjamann.
Strax á eftir, kl. 15.30, leika nýlið-
arnir í Keilufélagi Reykjavíkur gegn
Breiðabliki. Breiðabliksmenn tefla
fram Bandaríkjamanni í liði sínu. Á
morgun leika síðan Reynir Sand-
gerði og ÍR-ingar syðra kl. 17. Með
Reynismönnum mun Bandaríkja-
maðurinn Larry Hotaling leika, en
hann lék með Haukum í haust. ÍR-
ingar tefla fram Bandaríkjamannin-
um Arthur Babcock.
í dag verða tveir leikir í 1. deild
kvenna. í Hagaskóla leika kl. 17 KR
og Keflavík, en í Grindavík mætast
heimastúlkur og stöllur þeirra úr
Haukum kl. 17.30.
BL
Markverðir halda boltanum í um það bil 3 mínútur í hverjum leik.
Það er of langur tími. Á myndinni er Eggert Guðmundsson, fyrrum
landsliðsmarkvörður.
íslandsmótið í körfuknattleik:
Fjórir leikir í
úrvalsdeildinni
— um helgina, auk leikja í 1. deild karla og kvenna
Almngi
lSLÉNDINGA
Frá fjárlaganefnd Alþingis
Viötalstímar nefndarinnar
Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undanfarin
ár viðtöku erindum frá stofnunum, félögum,
samtökum og einstaklingum er varða fjárlög ársins
1992.
Fjárlaganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja fylgja
erindum sínum eftir með viðræðum við nefndina,
kost að eiga fundi með nefndinni á tímabilinu 6. til
og með 21. nóvember n.k.
Þeir sem óska eftir að ganga á fund nefndarinnar
skulu hafa samband í síma 91-624099 eigi síðar en
föstudaginn 1. nóvember n.k.
Þv( miður gefst ekki tími til þess að sinna
viðtalsbeiðnum, sem fram kunna að koma síðar eða
veita viðtöl utan þess tíma, sem að framan greinir.
HRARIK
RAFMAGNSVEmjR RÍKISINS
Vélstjórar
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráöa
vélstjóra til starfa á Siglufiröi. Æskilegt er aö
viökomandi geti hafiö störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita rafveitustjóri
á Siglufirði og svæðisrafveitustjóri á Blönduósi.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf
sendist fyrir 19. október nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Ægisbraut 3
540 BLÖNDUÓS
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Landsbveffðar-
ÞJÓNUSTA
fyrir fólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinni.
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, káup og
sala bifreiða og húsnæðis/
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur létlfölki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5 -108 Reykjavik
Símar 91-677585 & 91-677586
Box8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Ókeypis
HÖNNUN ÞEGAR ÞU
auglýsingar AUGLÝSIR í
Tímairam
680001