Tíminn - 26.10.1991, Qupperneq 15

Tíminn - 26.10.1991, Qupperneq 15
Laugardagur 26. október 1991 Tíminn 23 húsakosti þess tíma, jafnvel hlóðaeld- húsum og baðstofúm. í uppvextinum urðu samrýmdastar systumar Lovísa og Olga, en sem fyrr segir fór Lovísa ung til hjúkrunamáms í Noregi. í Færeyjum og eins í Noregi bjuggu einnig um tíma Maxemine og Lúðvík, vegna hafnsögu- náms hans og siglinga, og höfðu með sér unga soninn Hans, sem þar vandist á að tala klingjandi norsku. Hann drukkn- aði, eins og áður segir, aðeins 19 ára gamall. Olga, ásamt systkinum sínum gekk í bamaskóla þorpsins, en þá var aðal- kennari þar Jón Stefánsson í Hammers- minni, faðir Stefáns Jónssonar ffétta- manns, og einnig uppffæðari séra Jón Finnsson í Hrauni. Snemma varð hún trúhneigð og urðu biblíusögur henni hugstæðar. Einnig lærði hún undir- stöðu í orgelleik hjá ffú Sigríði í Hrauni, konu séra Jóns, og gaf Lúðvík afi henni gamalt kirkjuorgel, kjörgrip sem áður hafði átt Stefán faktor á staðnum, en Maxemine hafði 17 ára gömul verið bamfóstra á heimili hans og Andreu WeywadL 18 ára að aldri fór hún fyrst til Reykja- víkur í vist á Staðarstað til Magnúsar Guðmundssonar, sem var fjármálaráð- herra á þeim tíma, og frú Soffíu Boga- dóttur Smith. Þetta var ánægjulegur tími í lífi hennar og minntist hún þess oft hve einstæðrar góðvildar hún naut í því húsi og þótti okkur dætmm hennar síðar skemmtilegt að heyra minningar hennar frá Reykjavík á árunum kring- um 1925. Við húskveðjuna í Sjólyst log- aði Ijós á fallegum kertastjaka sem hún forðum hafði keypt á þeim árum af stofustúlkukaupi sínu og gefið móður sinni. Eins loguðu þar kertaljós á ferða- kistli Maxemine móður hennar sem hún hafði komið með aleigu sína í frá Fær- eyjum forðum. Blóm úr garðinum kvöddu í vasa sem var gjöf frá Antoníusi skáldi til heimilisins. Olga lærði einnig fatasaum í Neskaup>- stað hjá Guðlaugu Sigurðardóttur kjóla- meistara, sem á sínum tíma hafði lært f Kaupmannahöfn, en móðir okkar var mjög hög til handanna og vann þannig fyrir sér. Gaman var að sjá útsjónarsemi hennar við að nýta efni og myndi heim- urinn ekki á heljarþröm vegna bruðls og mengunar ef þau sjónarmið væru meira í heiðri höfð. Árið 1938 giftist hún Sigfinni Vil- hjálmssyni frá Hátúni í Neskaupstað og áttu þau síðan heimili í Sjólyst Við dæt- ur þeirra tvær nutum þar umhyggju og kærleika hins gamla fjölskyldumynsturs sem nú er um það bil horfið, þar sem yngri og eldri kynslóð og jafnvel ætt- menni bjuggu undir sama þaki og böm voru tekin til dvalar. Þegar við vorum að heiman var annríkið aldrei svo mikið að ástúðleg bréf með fagurri rithönd föður okkar bærust ekki þétt og við það hafði mamma gjaman bætt nokkrum orðum. Faðir okkar dó um aldur fram, 52 ára ár- ið 1965. Hann var góður og grandvar maður og treguðum við mæðgumar mjög fráfall hans. Faðir okkar vann margvísleg störf fyrir þorpið og vildi fús- lega vera til liðs þar sem um góð mál var að ræða. Hann var lengi meðhjálpari í Djúpavogskirkju, söng alla tíð í kirkju- kómum og vom foreldrar okkar báðir kirkjunni mjög hlynntir. Þau ráku enn- fremur mörg ár gisti- og kostgangara- þjónustu á heimili sfnu, en Sjólyst hafði, eins og áður segir, verið athvarf og húsa- skjól margra og naut fólk þar góðvildar húsráðenda. Þetta vom einnig erfið ár og vann móðir okkar ósleitilega, oft meira en heilsa og kraftar þoldu, en hún var með afbrigðum ósérhlífin og var raunar með öllu óskiljanlegt hverju hún gat komið í verk og hún ekki öfundverð af hlutskipti sínu í allt of miklum önn- um hinna oft vanmetnu heimilisstarfa. Ekki fyrr en með aldri og auknum þroska höfðum við skilning á því erfiði sem hún lagði á sig, svo sjálfsagt var að hún mamma héldi öllu í horfinu. Hún fann sinn innri styrk í trúnni og fannst sem góðar vættir héldu yfir sér vemdar- hendi alla tíð. Megi almættið launa henni ríkulega og jafhframt opna augu okkar enn betur svo virðingin sé meiri fyrir hinum hversdagslegu störfúm. Móðir okkar átti einnig í ríkum mæli til að bera létta Iund og kímnigáfú og var hvort tveggja einnig hennar innri styrk- ur. Hún gat mjög auðveldlega sett sig í annarra spor. Fjölskyldunni fannst á góðum stundum að hún byggi við sitt einkaleikhús, þegar hún fór á kostum og brá upp lifandi myndum af framkomu, málrómi og persónuleika fólks sem hún hafði kynnst á langri lífsleið. Litlar sögur voru sem heimur í hnotskum og alltaf hægt að hlæja jafninnilega hversu oft sem sagðar voru og hugleiða á eftir hin- ar margbreytilegu hliðar lífsins. Við lát föður okkar urðu þáttaskil og var þá flust búferlum til Reykjavíkur og gamla heimilið tekið upp. Gluggarósimar, sem verið höfðu við lýði í stofum Sjólystar allt frá aldamótum, vom gefnar burt og hurfu sjónum. Um áratuga skeið höfðu þær verið grafnar í jörð að hausti og teknar inn að vori af umhyggju og natni. Engar rósir voru fegurri eða ilmuðu bet- ur. Finnast þær aftur eða eru þær best geymdar sem Ijársjóður í minningunni? Sjólyst var seld systkinum frá Papey, þeim Gústaf og Sigríði. Var það okkur hugarléttir að húsið komst í hendur foms vinafólks. Meðan á búferlaflutn- ingum stóð og beðið var eftir öðru hent- ugu húsnæði, en við systumar fjarri, átti móðir okkar mikilli vinsemd að mæta á heimili Bjama þjóðskjalavarðar, mágs sfns, og konu hans Kristínar, og dvaldi hún hjá þeim hluta úr vetri. Þar var vissulega heimili þar sem húsráðendur víluðu ekki fyrir sér að hýsa gesti og óhætt að þakka fyrir sig og sína. Böm Lovísu, systur hennar, þau Kristján, Karl og Elín, sýndu henni alla tíð mjög mikla ræktarsemi. Á þessum tíma var Lovísa einnig orðin ekkja og vantaði húsnæði. Hún hafði um tíma af dyggð sinni og óskiljanlegum dugnaði gengið til liðs við störf móður okkar á gamla æsku- heimilinu, þrátt fyrir veikindi sín. Nú var aftur í heiðri haft hið gamla, góða Ijölskyldumynstur og fest sameig- inlega kaup á húsnæði um hríð, þangað til Lovísa fékk sérhæfða íbúð, en hún var hjartasjúklingur. Hún lést árið 1970 og er minning hennar fögur. Hún var „engl- anna mynd“ eins og ort var í brag um hana sem unga hjúkrunarkonu. Jónatan lést árið 1969. Hann starfaði sem vélsmiður við fyrirtæki frænda sfns, Jóhanns Hanssonar á Seyðisfirði. Áður hafði hann byggt hús í gömlu húsi Sjó- lystar og vom böm hans, Max og Aðal- heiður, kærir leikfélagar bemsku okkar. Max varð síðar vélsmiður og hélst báta- smíði þannig lengi í ættinni. Dóttir Aðal- heiðar, Eydís Ema, stundar nám í al- þjóðasamskiptum í Bandarikjunum, til að verða starfsmaður Sameinuðu þjóð- anna, sem kemur í hugann nú á degi S.Þ. 24. október. Árin liðu hratt og við áttum saman ör- yggi og góða daga í borginni. En „aldrei gleymist Austurland" og náttúruperlan Djúpivogur átti sterkt aðdráttarafl. Þegar þar að kom að Gústaf og Sigríður vildu selja Sjólyst var einsætt að slíku var ekki hægt að hafna. Já, „þorpið fer með þér alla leið“. Móðir okkar fagnaði að sínu leyti þessari ákvörðun, en þann skugga bar á að hún var þá orðin hjartasjúkling- ur. Hafist var handa um gagngerar endur- bætur á gömlu húsi með öllu því raski og róti sem því fylgir, og hægara er um að tala en f að komast Slíkt veraldarbrölt og mikil veikindi fara ekki alls kostar sam- an. Umönnun móður okkar sat að sjálf- sögðu í algjöru fyrirrúmi, en líf hennar hékk á bláþræði síðustu ár hennar og var það erfið ganga, en jafhffamt tengdumst við henni enn nánari böndum og það var þroskandi og vakti okkur til umhugsun- ar um lífið og dauðann að fylgja henni. Þá daga, sem hún nauðsynlega þurfti að vera fjarri, var hugurinn heima, þótt hún nyti góðrar aðhlynningar á fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað, en þar bar sjúkrahúslæknirinn Magnús Ásmunds- son fyrir henni sem öðrum sjúklingum fagra umhyggju. Föðursystir okkar og önnur skyldmenni í Neskaupstað sýndu einnig mikla alúð og eru þeim sem öðr- um feerðar þakkir fyrir tryggð fyrr og síð- ar. Nöfn þar og annars staðar er of langt að telja. TVúin átti sífellt ríkari ítök í móður okk- ar og kærleikur hennar til okkar var tak- markalaus. Tveim árum fyrir dauða hennar brast skammtímaminni hennar að mestu, en hún gleymdi þó ekki fógr- um textum og tónum gamla tímans og það var fagurt að heyra hana, svo veik sem hún var, rifja það upp. Hún sagði að það sfðasfa, sem hún hefði heyrt foður okkar syngja, heföi verið „Hvert svífið þér svanir af ströndu?" — og andblær ljóðs- ins og táknrænar spumingar leifa nú á hugann þegar við horfúm á svani hausts- ins á friðsælu vatni, sem blasir við húsi okkar, og hlustum á kliðinn sem frá þeim berst „í svanalíki lyftist moldin hæst“ Útfarardagur móður okkar var fagur og minnisstæður. Vinir og vandamenn komu um langan veg og sýndu með því einstæða tryggð sína og ræktarsemi. Þessi dagur skar sig úr þeim sem á und- an og eftir komu sakir veðurblíðu. Milda austfirska morgunþokan vék fyrir skæru sólskini sem heilsaði gestunum. í gamal- kunnu, hlýlegu þorpskirkjunni voru sungnir af einlægni eftirlætissálmar móður okkar, sem svo mjög höfðuðu til hennar f veikindum hennar. Gestimir lylgdu henni allir til síðasfa hvílusfaðar í umhverfinu fagra, þar sem kirkjugarður þorpsins er, en henni var valinn sfaður gegnt leiði foreldra henn- ar, þar sem tvö tré vaxa þétt og veifa fag- urt skjól: en þá var liðin nákvæmlega hálf öld frá dauða móður hennar, Max- ernine. Friðsæld stundar og sfaðar höld- um við að hafi hrifið alla. Við stíg í garð- inum var lítil laut þar sem stungið hafði verið niður rós. Einhver spurði hverju það sætti. Þar hafði Iítið bam fengið góðfúslegt leyfi sóknarprestsins til að grafa fuglinn sinn. — Hér var sannkall- aður andblær friðarins. Einhver lét einnig þau óvanalegu orð falla í kirkju- garðinum að þaðan væri varla hægt að slífa sig. Ef til hefur þá komið í hugann ósk Klettafjallaskáldsins: — Við verka- lok: En þegar hinst er allur dagur úti og upp gerð skil, og hvað sem kaupið veröld karm að virða sem vartn ég til. — Íslíkri ró ég kysi mér að kveða ■ eins klökkvan brag og rétta að heimi að síðstu sáttarhendi um sólarlag. Síðust gekk að gröfinni ung og trygg kona, Elín Amardóttir, kona Lúðvíks, nafna langafa síns, Hanssonar, og móðir Lovísu Lúðvíksdóttur yngri, og kvaddi fagurlega með blómum. Á kistunni lágu einnig bleikar rósir, sem minntu á gömlu rósimar f gluggunum forðum. Friður veri með minningu móður okk- ar og föður og öllum ættmennum, vin- um og vandamönnum, lífs cg liðnum. Ester og Kristín Húsbréf Húsbréfaviðskipti vegna greiðsluerfiðleika íbúðareigenda Hætt verður að taka við umsóknum um húsbréfaviðskipti vegna greiðsluerfiðleika íbúðareigenda 31. október 1991. Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í desember 1990, lög nr. 124/1990, hefur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar einungis heimild til að skipta á húsbréfum og fasteignaveðbréfum vegna greiðsluerfiðleika íbúðareigenda til 14. janúar 1992. Umsóknareyðublöð um skuldabréfaskipti vegna greiðsluerfiðleika er unnt að fá hjá Húsnæðisstofnun ríkisins að Suðurlandsbraut 24, Reykjavík, og hjá flestum bönkum og sparisjóðum. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVlK • SlMI 91-896900 ^SRARIK RAFMAGNSVEmiR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í ræstingu á skrifstofuhúsnæði Rafmagns- veitnanna að Laugavegi 118 í Reykjavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raf- magnsveitna ríkisins að Laugavegi 118 frá og með þriðjudeginum 29. október. Tilboðum skal skila á skrifstofuna fyrir kl. 14.00 5. nóvember nk. Tilboðin séu í lok- uðu umslagi merkt: „RARIK-91010 Ræst- ing“. .Æ. : POST F** T ÍMAN 3 * HRARIK ^ RAFMAGNSVEmjR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar- andi: RARIK 91008 Afistrengir, stýristrengir og ber koparvír. Opnunardagur: Þriðjudagur 19. nóvember 1991 kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og veröa þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með þriðjudegi 29. október 1991 og kosta kr. 1.000 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 REYKJAVÍK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.