Tíminn - 14.01.1992, Page 5

Tíminn - 14.01.1992, Page 5
Þriðjudagur 14. janúar 1992 Tíminn 5 Guðmundur P. Valgeirsson: Hvað rekur á eftir sölu ríkisstofnana og fyrirtækja? í umræðum, sem fóru fram fyrir síðustu kosningar um samn- inga okkar um þátttöku í EES og EB, sóru formenn núverandi stjómarflokka fýrir að nokkura tíma kæmi til þess að þeim er- lendu aðilum yrði hleypt inn í íslensku landhelgina til veiða í skiptum fyrir annað sem samið yrði um. Allt tal um það væri út í hött og nánast sem landráðabrigsl. Og reynt var að koma sök á Halldór Ásgrímsson, þáverandi sjávarútvegsmálaráðherra, fyrir að hafa léð máls á að það yrði gert. Nú hefur það gerst að Jón Bald- vin utanríkisráðherra hefur fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar gert samning við Efnahagsbanda- lagsþjóðirnar og heimilað þeim að veiða 3.000 tonn af karfa í landhelgi okkar. í fyrstu reyndi hann að villa um fyrir þjóðinni með því að halda því fram að samið hefði verið um veiðar langhala. Sú fisktegund hefur ekki verið veidd hér og óvissa um að hún væri til innan fiskveiðilögsögu okkar. Á þeim forsendum fór hann um landið þvert og endilangt til að kynna íandsmönnum samningssnilli sína: „Við höfum fengið allt fyrir ekkert," eins og hann komst að orði. Hafði það þó eftir öðrum manni, en gerði það að sínum eigin orðum í lítillæti sínu. Síðar varð hann að viðurkenna að í stað langhala hefði verið samið um karfa, að þessu magni. Sagði hann þá að það hefði alltaf legið fyrir að þessi umsamdi aflakvóti hefði verið í karfa og ekkert hefði verið sjálfsagðara en að veita heimild fyrir því. — Þar með var hann búinn að ganga á bak orða sinna og svardaga fyrir kosningar, eflaust í þeirri trú að það væri gleymt og almenningur léti sér það í léttu rúmi liggja. Og líkur benda til að svo muni verða. En þó varð það til þess að Magn- ús Gunnarsson sneri við blaðinu. Hann hafði tekið þessu fagnandi eins og Jón Baldvin lagði það fyr- ir. En þegar hann sá hvers kyns var um sannleiksgildi frásagnar utanríkisráðherra, snerist hann öndverður við og lýsti sig, fyrir hönd þeirra samtaka sem hann væri í forsvari fyrir, vera andvígan samningunum meðan hann vissi ekki hvað hefði verið sagt satt um hvað samningurinn fæli raun- verulega í sér. Úr því sagt hefði verið ósatt um þetta, þá gæti svo verið með fleira. En utanríkisráðherranum fannst það svo sjálfsagt að láta þennan karfakvóta af hendi að engin ástæða hefði verið að tala um það sérstaklega. Af þeim orð- um hans og öðru, sem fram hefur komið, sýnir hvert kapp ráðherr- ann lagði á að ganga frá þessum samningum. Og menn mega vera þakklátir fyrir að viðsemjendur ráðherrans skyldu ekki nefna þorsk eða aðrar verðmætari fisk- tegundir. Allt bendir til að það hefði verið samþykkt með jafn- Ijúfu geði af hendi hans. — Þetta og orð Þorsteins Pálssonar, að- stoðarmanns ráðherrans í þessari samningalotu, að ekki hefði verið sinnt um að reyna að ná betri hlut úr samningunum, fyrir okk- ar hönd, þó allar líkur hefðu ver- ið til að það væri hægt, segir sína sögu. Þessi undanþága, eða innrás er- lendra ribbalda, eftir því hvað menn vilja kalla það, í íslenska landhelgi er gefin, þó fyrir liggi að fiskveiðar okkar sjálfra verða dregnar stórlega saman vegna minnkandi fiskigengdar á okkar veiðisvæði og við megum þar engan hlut missa. Og jafnframt sé fyrirhugað að segja frændum okkar Færeyingum upp þeirri veiðiheimild, sem þeir hafa haft. — En þetta er ekki eina gjaldið sem við látum af hendi fyrir þau óljósu tollafríðindi sem sagt er að samið hafi verið um, þó lítið sé gert úr því, af hálfu okkar samn- ingamanna. — Jafnframt eru all- ar gáttir opnaðar fyrir hinum er- lendu aðilum að koma inn í sem flesta þætti okkar efnahagslífs og eignarhalds á nær öllum gögnum og gæðum okkar lands, sem hinir erlendu aðilar kunna að girnast í ágóðaskyni eða sér til dægrastytt- ingar og stundargamans, að því ógleymdu að með þessum samn- ingum erum við að afsala full- veldi þjóðarinnar og sjálfsákvörð- unarrétti í hendur hinna erlendu aðila, og við þar með orðin ófrjáls þjóð um aldur og ævi. í besta falli að við höldum rétti til að senda frá okkur bænarskrá til yfir- drottnara okkar — í bljúgri und- irgefni, á sama hátt og meðan við lutum valdi erlendra konunga og ráðgjafa þeirra. Það þarf enginn að ætla að þeir menn, sem hafa gefist upp við að ráða málum þjóðarinnar eins og þeir flokkar sem nú fara með völdin og mæna í ofvæni á erlent bjargræði í fjármagni og fram- kvæmdum, leggi sig fram um að setja upp þær „girðingar" sem aðrir telja lífsnauðsynlegt til þess að við höldum eignarhaldi á ein- hverju af landi okkar. Það vekur athygli að forystu- menn ríkisstjórnarflokkanna vinna nú af ofurkappi að því að selja öll ríkisfyrirtæki og stofnan- ir á þess vegum. Skiptir þar engu máli hvort þær hafa skilað drjúg- um fjárhæðum í ríkiskassann eða verið eitthvað óarðbærari, um stundarsakir, vegna tímabund- inna aðstæðna. Þar í eru ríkis- bankarnir, Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins, Póstur og sími, Sementsverksmiðjan á Akranesi, Landsvirkjun og Rafmagnsveitur ríkisins o.fl. o.fl. — Fram til síð- ustu tíma hefur varla hvarflað að nokkrum manni að flest af því, sem nú er komið á söluskrá hjá forsvarsmönnum ríkisstjórnar- innar, kæmi til greina að selja undan yfirráðum ríkisstjórnar og þar til kjörinna stjórnenda á Al- þingi. Flest eða allt þjónar þetta lífsafkomu og sameiginlegum hagsmunum almennings í land- inu og því ekki sama í hverra höndum þær stofnanir og fyrir- tæki lentu. Nú étur nálega hver eftir öðrum að slík ráðstöfun sé nauðsynleg, ég held í hugsunar- leysi. En þó eru ekki allir sama sinnis og sjá hættuna. Eflaust hugsa fjölskyldurnar 15 gott til glóðarinnar að grípa þess- ar gæsir, sem svo auðveldlega fljúga í munn þeirra. Varla er hægt að finna rök fyrir því að sú breyting á eignaraðilum yrði til þess að skapa samkeppni, sem leitt gæti til hagsbóta fyrir al- menning, þar sem þessar stofn- anir yrðu einar um hituna, hver á sínu sviði. Meiri Iíkur eru á að sú eignarhaldsbreyting yrði til þess að skapa þeim einokunaraðstöðu, sem veitti eigendum sínum auk- inn gróða og þrengdi þar með lífskjör almennings. Svo mikið kapp er Iagt á þessa sölu að ráð- herrar ríkisstjórnarinnar eru farnir að tala um það í alvöru að gefa þessi fyrirtæki og stofnanir til þess að losa um núverandi eignarrétt yfir þeim, ef ekki vilji betur til. Að forystumenn Alþýðuflokksins gangi fram fyrir skjöldu í þessum sölu- eða gjafamálum þarf kannski engum að koma á óvart, þó flokkssamþykktir þeirra og stefnuskrár á undanförnum árum hafi bent til annars. Þeir virðast nú leggja kapp á að yfirbjóða Sjálfstæðisflokkinn í einstak- lingshyggju og markaðsbraski á kostnaö hagsmuna almennings og þeirra sem minna mega sín. Hvort þeir hugsa til samkeppni um forystu í Sjálfstæðisflokknum skal ósagt, þó margt geti bent til þess. Það gerist svo margt skrítið á þeim bæ. Það er haft fyrir satt að sú hindr- un sé í vegi fyrir að hinir erlendu aðilar EES- og EB- samningsins geti hindrunarlaust gengið að kaupum á því sem íslenskt er, að þær stofnanir og fyrirtæki, sem eru í eigu ríkisins, geti þeir ekki keypt beint og krókalaust eins og flest eða allt annað. Hvort leynist ekki fiskur hér undir steini, það getur skýrt þennan ákafa sem stjórnarflokkarnir sýna í að losa um þetta eignarform svo eignayf- irtaka geti farið fram á því og öllu öðru? Ég hef ekki orðið var við að þessum þætti í stefnu ríkis- stjórnarinnar hafi verið sá gaum- ur gefinn sem vert er. Með sölu þessara umtöluðu eigna ríkisins hafa allar gáttir verið opnaðar fyrir eignar- og umráðarétti allra hluta íslensku þjóðarinnar í hendur erlendra aðila. — í þessu Ijósi skýrist margt, sem ekki hef- ur verið á orði haft í sambandi við „langhalasamning" Jóns Baldvins og hans nánustu skoð- anabræðra og sálufélaga í hinni nýju rikisstjórn. — Komi ríkis- stjórnin þessum hugsjónamálum sínum í framkvæmd, ásamt yfir- lýstu afskiptaleysi af atvinnulífi þjóðarinnar, má segja að hún sé búin að leysa upp íslenskt þjóðfé- lag í frumparta sína, svo að þar standi ekki steinn yfir steini af því sem hefur verið byggt upp í áranna og aldanna rás. Eftir standa rústir einar í höndum mi- sviturra einstaklinga og hlut- hafa, erlendra sem innlendra, sem slást um hvernig skuli nýta hræið. Þá talar enginn um íslenska landhelgi Almenn hreyfing hefur verið vakin til að koma í veg fyrir að sú ógæfa hendi, að langhalasamn- ingur Jóns Baldvins, utanríkis- ráðherra í stjórn Davíðs Odds- sonar, nái að ganga yfir þjóðina. Margir góðir menn hafa gengið í lið með þeim. Óvíst er hvort þau samtök ná því að verða svo sterk að þeim takist það. Ótrúlega margir af forystumönnum al- mennings á Alþingi eru ískyggi- lega hljóðir um þessi mál. Þeir voru þó fyrst og fremst kosnir til setu á Alþingi til að sjá um að þjóðin héldi frelsi sínu, sjálfstæði og löggjafarvaldi óskertu. Því verður ekki trúað að þeir láti það úr hendi ganga og að sjálfræði þjóðarinnar og löggjafarvald verði lagt í rúst með því að leggja það í hendur erlendrar yfir- drottnunar í nýlendustíl. Geri þeir það, hafa þeir fyrirgert allri tiltrú kjósenda sinna Höfundur er bóndi. r Enn er ekki komin skrá yfír frí- merki þau, sem áætlað er að gefa út á þessu ári hér á landi, þótt öll önnur lönd heimsins hafí þegar sent frá sér sínar skrár og sum jafnvel hverjar verði fyrstu útgáfur árins 1993. Það er nú samt svo, að ýmsir telja að þeir viti nokkurn veginn hvers er að vænta. Því skulum við rekja hér þetta, sem talað er um, og síðan sjá til, hver verður svo útkoman. Tekið skal fram að heimildarmenn mínir njóta fullr- ar nafnleyndar. Það verður aðeins sagt þeim til hróss, að þeir hafa verið furðu sannspáir á síðustu árum, svona eins og völva Vik- unnar. Fyrsta útgáfan að þessu sinni verður merkjapar í íþróttaútgáf- unni. Sennilega verða þetta tvö merki með innanlands burðar- gjaldi eða tvö 26 króna frímerki með stílgerðum myndum af íþróttaiðkunum. Önnur útgáfan er svo talin verða Evrópufrímerkin. Þema þeirra f ár er landafundir. Þarna er tilval- ið að minnast þess að Leifur Ei- ríksson fann Ameríku fyrir um 1000 árum. Því er upplagt að gefa út frímerki með mynd hans og 55,00 króna burðargjaldi til álf- unnar sem hann fann. Þess má Frimerki geta um leið, að maður að nafni Kólumbus endurfann svo þessa álfu 500 árum seinna, eftir að hann frétti um hana á íslandi. Má því jafnvel gefa út frímerki með mynd hans og þá einhverju öðru burðargjaldi. En það eru fleiri en fslendingar sem ætla að hafa þennan hátt á. Færeyingar ætla að gefa út sams- konar frímerki og auk þess blokk með báðum merkjunum í, jafn- vel á sama degi og við. Þarna bætist því í tegundasafnið sem kallað er samútgáfur. Þriðja útgáfan er ætluð til að minna okkur á aðalútflutning- svarning okkar, fiskinn. Verður þetta að öllum líkindum svipað frímerki og Verslunarráðsfrí- merkið frá 1967. Eða þá 3-4 frí- merkja útgáfa. Fjórða útgáfan verður svo til að minnast World Wildlife Fund (tekið skal fram að það á ekkert skylt við Greenpeace). Þarna á að gefa út fjögur frímerki; ein heimildin nefndi myndir af hvöl- um. Leifur Eiríksson. Maximkort meö frímerki hans, stimplaö f Kefla- vík. Fimmta útgáfan verður svo með myndum af póstbílum. Sú var tíðin hér á landi að allir farþega- flutningar með bifreiðum voru reknir af Pósti og síma og þá allir póstflutningar með slíkum bif- reiðum. Þarna er því af mörgum mismunandi bílum að taka, eða allt frá þeim allra fyrstu til hrað- sendingabílanna í dag. Verður þarna um smáörk að ræða með 8 mismunandi merkjum í. Þetta er sama hugmyndin og skipamerkin síðasta ár. Kemur því þessi smá- örk að öllum líkindum út á degi frímerkisins þann 9. október. Sá dagur er einnig dagur Leifs Ei- ríkssonar. Þá verður eitthvert eitt frímerki gefið út til viðbótar þennan dag, sem enginn virðist vita neitt um hvaða myndefni verður á eða af hvaða tilefni. Síðasta útgáfan verður svo eins og venjulega jólafrímerkin. Nema hvað ekki er þekkt ennþá hverjir munu vinna þau. Af öllu þessu má sjá að ef allt fer eftir verður þetta myndarlegasta útgáfuár frímerkja, eða um 20-22 frímerki í 6-7 útgáfum. Svo er bara að sjá hvort heimildarmenn mínir reynast sannspáir. Sigurður H. Þorsteinsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.