Tíminn - 14.01.1992, Page 8

Tíminn - 14.01.1992, Page 8
8 Tíminn Þriðjudagur 14. janúar 1992 Hlbýli Afríkumanna í Lissabon. Eymdin umkringir Lissabon Kofar og hreysi umkríngja höfuðborg Portúgals. Þar hafa afrísk- ir innflytjendur frá fyrrverandi nýlendum heimsveldis sem var komið sér fyrir. Séð úr fjarska hefur eymdin yfir sér næstum því rómantískt yfir- bragð. Kassafjalahreysin og blikk- kofamir á tvist og bast ná allt að girðingum um flugvöllinn í Lissa- bon. Þessi hrófatildur teygja sig líka upp hlíðar hæðanna. Þau hafa líka þrýst sér inn á síðustu auðu svæðin milli íbúðablokka og glæsilegra verslanamiðstöðva. „Bairros de lata“ (blikkhverfin) líkjast hinum brasilíönsku „favel- as“. Munurinn er sá að þau eru í vesturjaðri hinnar auðugu Evrópu. Áárinu 1990 gat Portúgal státað sig af mestum hagvexti innan Evrópu- bandalagsins. Glæsiverslanirnar í miðborg Lissabon eru rétt eins dýr- ar og þær í París og New York, og í elsta borgarhlutanum berjast fast- eignafurstar um hallir og niður- nídd íbúðarhús. A.m.k. 50.000 ólög- legir innflytjendur En allt þetta ríkidæmi í Lissabon umkringir eymd og örbirgð, sem er einsdæmi í stórborg í Evrópu. Til borgarbúa teljast meira en 50.000 aðkomumenn, sem hafa tekið sér ólöglega bólfestu á 130 stöðum í Lissabon. Að mati starfsmanna fé- lagsmálastofnana gæti hér allt eins verið um 100.000 manns að ræða. Þessir „nýfátæklingar" eru þeir sem hafa orðið undir í efnahags- uppganginum, uppflosnaðir smá- bændur frá norðurhéruðunum, sí- gaunar sem alltaf hafa lifað í útjaðri samfélagsins, en þó fyrst og fremst innflytjendur frá fyrrverandi ný- lendum. „Palop" (Países de língua oficial portuguesa) nefnast þessi ríki þar sem portúgalska er enn op- inbert tungumál. Sá siður hefur lengi verið við lýði að þegnar þeirra flytjist til fyrrum höfuðborgar sinn- ar. Sjálfstæðistaka Kap Verde (Græn- höfðaeyja), Angóla, Mósambík og Guinea-Bissau eftir „nellikubylt- inguna" 1974 rak ekki bara hvíta fólkið aftur til föðurhúsanna. Marg- ir Afríkumenn leituðu einnig til gamla herralandsins, alls 550.000 manns. Þeir gefa Lissabon framandlegt yf- irbragð hitabeltislanda. í hjarta borgarinnar, í grennd Rua do Poco dos Negros (Gata negrabrunnsins) standa þétt afrísk diskótek, veit- ingahús og búðir. Á söfnunum hef- ur rykið verið dustað af Afríkudeild- unum sem lítillar athygli hafa notið og við háskólann rannsaka vísinda- menn afríska menningu, tungumál og sögu. Þessi framandlega skreyting gerir Lissabon að heimsborg. En það eru ekki nema örfáir þeirra aðfluttu sem fljóta efnalega ofan á. Flestir Afríkumannanna, sem þyrpast á morgnana á ólöglega atvinnumark- aðinn á Rossio-torgi til að ráða sig í einhvern vinnuflokkinn, hafa ekki erindi sem erfiði í viðleitni sinni við að koma sér upp úr eymdinni. „Þeir eiga við sömu vandamál að stríða og allir farandverkamenn,“ segir faðir Henrique, hollenskur prestur í kofahverfinu „Pedreira dos Húngaros" (ungverska grjótnám- an). „En hér bætist líka við kyn- þáttamisrétti og fátækt." Innflytjendumir frá Kap Verde Um 700 fjölskyldur—að meðaltali með fimm til sex böm — búa í kofahraukunum bak við fallega út- hverfið Algés. Neðan brekkunnar glampar á fljótið Tejo, við hliðina er Monsantogarðurinn — útsýnið eitt gerir Algés að eftirsóknarverðu íbúðarhverfi. Flestir íbúar kofa- hverfisins tilheyra langstærsta og elsta innflytjendahópnum í Portú- gal, þeim frá Kap Verde sem þekkt- ur er að vinnusemi. 1462 lögðu Portúgalar undir sig eyjaklasann, sem á íslensku er kall- aður Grænhöfðaeyjar og er um 200 sjómflur undan Dakar. Þeir gerðu eyjarnar að mikilvægri umskipun- arhöfn fyrir þrælamarkað í Amer- íku. Aldrei hefur tekist að þróa eig- in efnahag á eyjaklasanum. Portú- galar fjárfestu í menntun svertingj- anna og notuðu þá sem aðstoðarmenn í nýlendunum á afr- íska meginlandinu. Þegar Portúgal varð aðalútflytj- andi á vinnuafli til iðnþróaðri Evr- ópuríkja á sjöunda áratugnum „komum við til að fylla upp í störfin sem losnuðu," segir Horacio Sant- os, leikstjóri frá Kap Verde sem hef- ur þýtt verk Bertolds Brecht á kre- ólamál. Fólkið frá Kap Verde flutti með sér eigin menningu og tungumál, sem leit út fyrir að tengja þá nánar Portúgölum, en reynist skilja þá frekar að. Orðaforði í máli Kreóla á að 90% rætur að rekja til portú- gölsku, en bygging málsins er afr- ísk. Fyrir bömin varð misskilning- urinn um móðurmálið í skólanum að óyfirstíganlegum þröskuldi. Kynþáttamismunun, sem meiri- hluti Portúgala afneitar í skoðana- könnunum, er alls staðar að finna. Eins og í Brasilíu virðast sam- skiptin vinsamleg en það er aðeins á yfirborðinu. Föðurleg umhyggja dylur mismununina. „Ég hef gott samband við vinnufélagana,“ segir svört saumakona, „en þegar eitt- hvað fer úrskeiðis hjá fýrirtækinu er það alltaf þessum heimsku negr- um að kenna.“ „Það er ekkert rúm fyrir okkur í heima- landinu lengur“ Hverfin þeirra þjóta upp í útjaðri borgarinnar. „Við lifum og hrær- umst í okkar eigin menningu, jafn- vel þeir sem eru fæddir í Portúgal," segir leikstjórinn Santos. Margir landa hans voru þegar sestir að í Lissabon fyrir nellikubyltinguna og geta fengið portúgalskt vegabréf. En þeir líta líka á sig sem Kap Ver- demenn fyrst og fremst. Margir þeirra vildu gjarna halda aftur heim á leið. „Okkur dreymir öll um það,“ segir Santos, „en þar er ekkert rúm fyrir okkur lengur." Staðreyndin er sú að lýðveldið Kap Verde með 350.000 íbúum gæti ekki viðhaldist nema með þróunar- hjálp, þaðan af síður ef fjöldi brott- fluttra kæmi aftur enda dregur ekk- ert úr brottflutningnum. „Þeir fara með þriggja mánaða ferðamannaáritun og verða svo ein- faldlega um kyrrt." Þannig lýsir starfsmaður félagsmálastofnunar aðferðum eyjaskeggja. Vegabréfin eru síðan send heim og vinir eða venslamenn nota þau aftur. „Þeir vita að í augum hvítra líta allir negrar svo gott sem eins út.“ Þannig fjölgar ólöglegum innflytj- endum frá Afríku til Portúgal stöð- ugt. Þegar eru þeir ekki undir 50.000 að mati verkalýðsfélaga. Þó undirrituðu Portúgalir Scheengen- er-samkomulagið um vemd landa- mæra Evrópubandalagsins sl. sum- ar. Nú á að herða eftirlitið — Afr- íkumönnum stendur stuggur af sameinaðri Evrópu. Pólitísk sjónamiið að baki EB í öndverðu TYefjarætur EB ná aftur til Marshall-áætlunarinnar, sem Banda- ríkin hófu í apríl 1948, er Þjóðþing þeirra samþykkti Economic Cooperation Act, lög um efnahagslega samvinnu. Á næstu fjór- um árum Iögðu Bandarfldn löndum í Vestur-Evrópu til 12,5 milljarða $ í styrkjum. Að sínu leyti settu þau upp Organization for European Co- operation, Samtök um evrópska efnahagslega samvinnu. Var þeim ætlað að koma á jöfnuði í greiðslum þeirra á milli á þessum fjórum árum. f því skyni stofhuðu þau 1950 Ec- onomic Payments Union (EPU), Evrópskt greiðslubandalag, til að jafna greiðslur sín á milli. Starfaði EPU til 1958. Nam greiðslujöfhun þess alls 46 milljörðum $. Framkvæmdastjóri Marshall- hjálparinnar, Paul Hoffman, setti í ræðu 1. nóvember 1948 stefnumið hennar svo fram: „... ekkert minna en samfelling hagkerfis Vestur- Evr- ópu... myndun eins stórs mark- aðar, að alveg brott felldum höftum á tilflutningi vamings, skorðum við tilfærslu greiðslna (aðildarlanda á milli) og loks að öll- um tollum niður felldum." Fjórum árum síðar, 1952, var stofnað hið fyrsta „evrópsku samfélaganna" þriggja, Evrópska stál- og kol- sam- félagið (sem raunar átti sér forvera á millistríðsárunum). Upphaf sameiginlegr- ar landbúnaðarstefnu EBE í Rómar-samningnum var kveðið á um sameiginlega stefnu EBE-landa í landbúnaðinum (þótt ekki um af- nám allra búvörutolla þeirra á milli). Að henni yrði stefnt í áföng- um að upptöku eins og sama verð- lags á búvörum í EBE-löndum, en í þeim var það mjög mishátt 1958. Um búvörur voru EBE-lönd þá að miklu leyti sjálfum sér nóg, en böggull fýlgdi skammrifi. Að stærð var helmingur bújarða þeirra undir 10 hekturum (25 ekrum) 1960. Og þótt í þeim væru samanlagðar bú- jarðir aðeins um 1/10 hluti saman- lagðra bújarða í Bandaríkjunum, voru bændur þeirra tvöfalt fleiri. Umbætur í landbúnaði þeirra voru þannig líklegar til að leiða til fækkunar bænda. Fyrstu fjögur árin eða fram til 1961 voru þær nær einvörðungu á um- ræðustigi, að heita má, en þá hófu þau samræmingu á verði búvara sinna. Um það leyti, 1962, beittu Bandaríkin sér fýrir umræðum um tollalækkanir á alþjóðlegum vett- vangi, á vegum GATT. Samþykkti þjóðþing þeirra Trade Expansion Act, lög um aukningu verslunar. Jafnframt gengu Bandaríkin til beinna viðræðna við EBE um gagn- kvæmar tollalækkanir, gagnkvæma niðurfellingu tolla á vamingi, sem þau ættu saman 80%, eða stærri, hlut að í alþjóðiegum viðskiptum sem og á búvörum, ef forsetanum litist svo á. Eftir undirbúnings við- ræður í eitt ár hófúst samningavið- ræður þessar 1964 á vegum GATT um lækkun tolla, Kennedy-lotan svonefnda, og stóðu þær til 1969. Allmiklar lækkanir tolla fengust fram, en minni en vonir Bandaríkj- anna höfðu staðið til. Úr viðskiptalifinu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.