Tíminn - 14.01.1992, Side 12
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIOI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mo.fe||,ba>
Sfmar 668138 6 667387
ÐVITAÐ
rlandsbraut 12
Öðruvísi bífasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
hlutir. ___________________
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁÞÉR
Áskriftarsími CríA
Tímans er
686300
1 JmÉÆm/
Tímiim
ÞRIÐJUDAGUR14. JAN. 1992
——B—W^mbbb—n^MBW'viMiviriir'TTin in»n ,iwr«w n»»mniiMi 1 Landsbankinn hætti við að lána Rússum 800 milljónii síldarviðskipta eftir að stjórnvöld lögðust gegn þ rvegna >ví:
Afstaða ríkisstjórr réð úrslitum í máli iar inu
Landsbankinn ákvað í gær að lána ekki 800 milljónir til að
greiða fyrir síldarviðskiptum við Rússland og því eru mestar
líkur á að ekkert verði af því að íslendingar selji Rússum 150
þúsund tunnur af sfld eins og gerður hafði verið samningur
um. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, sagði
að Landsbankinn væri með þessari ákvörðun að fara eftir ráð-
leggingum stjórnvalda og Seðlabankans.
„Við lánum ekki gegn eindregnum
andmælum og ráðleggingum. Við
leituðum álits hjá réttum yfirvöld-
um og svar þeirra verður ekki mis-
skilið. Við fengum þaö svar að við
ættum tvímælalaust ekki að ráð-
ast í þetta,“ sagði Sverrir Her-
mannsson þegar hann var spurður
um forsendur fyrir ákvörðun
bankans.
í bréfi viðskiptaráðherra til
Landsbankans er vísað til umsagn-
ar Seðlabankans, en þar er talað
um að síldarviðskipti við Rússa
geti verið mjög áhættusöm eins og
nú er ástatt í Rússlandi. Orðrétt
segir: „Telja verður mjög vafasamt
að Landsbankinn taki á sig um-
ræddar skuldbindingar og þá
miklu áhættu sem felast í þessum
lánsviðskiptum." Síðan segir að
bankinn verði að taka ákvörðun á
grundvelli þessara upplýsinga.
Hermann Hansson, kaupfélags-
stjóri á Höfn í Hornafirði, á sæti í
sfldarútvegsnefnd. Hann sagðist
ekki vilja fullyrða að með þessari
ákvörðun Landsbankans væri
sfldarsamningur við Rússland úr
sögunni. Hann sagði hins vegar
ljóst að mjög erfitt yrði að koma
þessum viðskiptum á eftir þetta.
Hermann sagði að þessi niður-
staða hefði komið sér dálftið á
óvart, ekki síst með tilvísun í um-
mæli sem sjávarútvegsráðherra
Sjópróf vegna strands Eldhamars:
Aðstæður vanmetnar
lét falla fyrir helgi, þar sem hann
fagnaði því að af þessum viðskipt-
um yrði.
„Vafalaust er einhver áhætta f
þessu fólgin, en er ekki alltaf verið
að taka áhættu í viðskiptum?"
sagði Hermann þegar hann var
spurður álits á þeirri áhættu sem
fylgir sfldarviðskiptum við Rússa.
Hermann sagði að það væri
vissulega áfall ef ekkert yrði af
sfldarviðskiptum við Rússa núna.
Hann sagðist hins vegar hafa
meiri áhyggjur af því að ekkert
verði af sölu á sfld til Rússa næsta
haust. „Mér virðist að menn séu
með þessu búnir að dæma þessi
viðskipti úr leik,“ sagði Hermann.
í þeim samningi við Rússa sem
fyrir liggur er gert ráð fyrir að
helmingurinn, 150 þúsund tunn-
ur, verði afgreiddur á þessari ver-
tíð og aðrar 150 þúsund tunnur á
næstu vertíð.
Sverrir sagðist vona að þrátt fyr-
ir að ekkert verði af sölu á saltsfld
til Rússlands á þessari vertíð,
verði hægt að koma á sfldarvið-
skiptum þangað í framtíðinni.
„Við höfum mikilla hagsmuna að
gæta á þessum mikilvæga mark-
aði og þess vegna hefði að mínum
dómi þessi sfldarsamningur getað
liðkað fyrir framtíðarviðskiptum.
Við skulum vona að úr rætist."
sagði Sverrir. -EO
Bragi Guðbrandsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, dregur mjög
í efa það sem kemur fram í frétt Tímans á laugardag um hótanir og
annað ónæði af völdum vistmanna á sambýli geðfatlaðra við Þverársel:
„Legg ekki trúnað á
Sjóprófum vegna strands Eldhamars við Hópsnes í Grindavík er nú
nær lokið og hefur Bæjarfógetaembættið í Keflavík sent frá sér
skýrslu sem eru um 260 síður. Þar kemur fram að í samtölum
björgunarsveitarmanna, skipverja á Eldhamri og starfsmanna
Slysavarnafélagsins hafi ekki komið fram að skipvetjar um borð í
Eldhamri væru í alvarlegri hættu fyrr en skipið lagðist á hliðina.
slíkar sögusagnir“
Eyþór Björnsson stýrimaður, sem
komst lífs af úr strandinu, var í
brúnni þetta kvöld, en hann hafði
aldrei staðið viö stjórnvölinn við
innsiglinguna í Grindavík í myrkri
áður. Eyþór segir að hann hafi ekki
gert sér grein fyrir því hversu stutt
væri í Hópsnesvitann fyrr en um
seinan. Ástæðan fyrir því er sú að
hann var að reyna að átta sig á
hvítu leiðarljósunum við höfnina,
en að sögn Eyþórs getur verið
ákaflega villandi að greina þau, þar
sem mikið er af Ijósum í bak-
grunninum, frá bænum og götu-
lýsingu við höfnina. Vegna þessa
hafi þeir sem í brúnni voru að hon-
um meðtöldum aðeins horft bak-
borðsmegin í átt að bænum, en
ekkert fram fyrir, fyrr en um sein-
an. Eftir að Eldhamar tekur stefn-
una á vitann er skipstjórinn með
Eyþóri í brúnni. Radar var í gangi
og lóran, en GPS kerfi var ekki
virkt þessa helgi. Þá var dýptar-
mælir ekki í gangi, né voru skip-
verjar með kort af innsiglingunni í
Grindavík um borð.
Það er nokkrum mínútum fyrir
klukkan 20.00 sem formaður
björgunarsveitarinnar Þorbjarnar
í Grindavík, Gunnar Tómasson,
hringir í Tilkynningaskylduna í
Reykjavík og tilkynnir um strand-
ið. í samtali Gunnars við Hauk
Bergman, starfsmann Tilkynn-
ingaskyldunnar sem var á vakt-
inni, kemur fram að sá fyrrnefndi
óskar þess að Haukur grennslist
fyrir um nálæg skip og í framhaldi
af því láti Landhelgisgæsluna vita
og biðja um þyrlu. Engin skip voru
nálæg, en skip fór úr höfninni úr
Grindavík til aðstoðar. í símtali
sem Haukur átti við Landhelgis-
gæsluna hefur hann eftir Gunnari
Tómassyni, formanni Þorbjarnar,
að frekar kyrrt sé í sjóinn og það sé
„rétt að hafa þyrluna klára, ef...“,
en þá er gripið fram í fyrir Hauki af
starfsmanni Gæslunnar og sagt að
þyrlan sé biluð á ísafirði. Haukur
telur sig hafa minnst á að rétt væri
að hafa samband við Varnarliðið,
en telur þó hugsanlegt að hann og
starfsmaður Gæslunnar hafi talað
hvor ofan í annan og skilaboðin
ekki skilað sér. Haukur og starfs-
maður Gæslunnar áttu annað
samtal klukkan 20.15, en þær sam-
ræður eru mjög óskipulegar, óná-
kvæmar og einkennast af framm-
ígripum. Ekki er hægt að skilja
neinar niðurstöður úr því samtali.
í framburði Hauks kemur hins
vegar fram að í öllum samtölum
sínum við Gæsluna hafi verið efst í
huga sér að tryggja þyrfti þáttöku
þyrlu í björgunaraðgerðum og í
huga sér væri það Ijóst að ef beðið
væri um þyrlu hjá Gæslunni og
þeirra þyrla væri ekki til taks,
myndi varnarliðsþyrla sjálfkrafa
vera í viðbragðsstöðu. Það kemur
hins vegar fram að Gæslan skyldi
þetta ekki svona þar sem ekki væri
veruleg hætta á ferðum.
Það má glöggt lesa út úr skýrsl-
unni að björgunarsveitarmenn,
skipverjar á Eldhamri og starfs-
menn Slysavarnafélagsins mátu
stöðuna þannig að ekki hafi verið
um að ræða alvarlegt hættu-
ástand um borð framan af. Skip-
verjar töldu möguleikana mikla á
að koma línu í land og því óttuð-
ust þeir ekki alvarlega um líf sitt.
Það gerðu þeir ekki fyrr en bátur-
inn lagðist á hliðina, en það var
einmitt þá sem samband rofnaði
við björgunaraðila. PS
Bragi Guðbrandsson, aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra, segist
ekki leggja trúnað á þær morðhót-
anir og annað ónæði sem íbúar við
Þverársel segjast hafa orðið fyrir
og Tíminn sagði frá síðastliðinn
laugardag. Bragi skorar á íbúa að
láta af svona skotgrafahemaði.
„Mér finnst þessi frétt á laugardag-
inn óskaplega ótrúverðug. Eg leyfi
mér að draga þetta í efa, því mér
finnst viðbrögð fólks, þ.e.a.s. ef
þetta hefur gerst, vera aldeilis ótrú-
leg. Að sjá enga ástæðu til að hafa
samband við lögreglu, við starfs-
menn sambýlisins, sem eru á staðn-
um allan sólarhringinn, eða við
geðlækna sem fara með þessi mál.
Ég legg ekki trúnað á að fólk hafi
þurft að rífa sig upp og flytja vegna
hótana og ég held að hver maður
með sæmilega dómgreind hljóti að
sjá að sögusagnir af þessu tagi eiga
ekki við rök að styðjast vegna þess
að viðbrögðin eru ekki eðlileg. Ég
myndi telja það eðlilegt þegar fólk
verður fyrir morðhótun að þá
hringdi það á lögreglu, en ekki á
sendibfl," sagði Bragi Guðbrands-
son í samtali við Tímann. Það skal
tekið fram að samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu hafa morðhótanir
ekki verið kærðar.
Bragi sagðist ekki hafa fengið
neinar upplýsingar um drykkju-
skap, en sagðist jafnframt hafa beð-
ið um upplýsingar frá starfsfólki
sambýlisins um atburði þar, ef ein-
hverjir væru, en þær upplýsingar
hefðu ekki borist til sín. Ennfremur
vegna frétta af því að leigjendur hafi
flutt út vegna óþæginda, vildi Bragi
koma því á framfæri að hann tryði
ekki öðru en að íbúar við Þverársel
og nágrenni væru löghlýðnir, en
með því að Ieigja út íbúðir í húsum
sínum væru þeir að brjóta skipu-
lagsreglur. Þær reglur segja að ekki
megi útbúa íbúðir til útleigu í hús-
um í hverfi þessu.
„Mér finnst þessi málflutningur
Gunnlaugs Sigmundssonar í Tím-
anum á laugardag broslegur. Hann
hefur frá upphafi atast út í þetta fólk
eins og naut í flagi og honum er
ekki sæmd af þeirri framgöngu,
hvað þá að hann geti gefið öðrum
einkunnir. Það er helst að skilja á
lýsingum Gunnlaugs Sigmunds-
sonar að áður en sambýlið var opn-
að hafi hverfið verið eins og paradís
á jörð, en eftir að það opnaði hafi
ríkt hernaðarástand og paradís því
breyst í martröð. Þetta er broslegur
málflutningur. íbúarnir við Þverár-
sel höfnuðu þessu fólki áður en það
flutti inn á sambýlið og því ekki gef-
in nokkur möguleiki til að sanna sig
á einn eða annan hátt. Lætin byrja
og það er lögð fram lögbannskrafa,
áður en nokkur maður flytur inn.
Ég álít að hér sé um að ræða hreina
fordóma í garð geðfatlaðs fólks. Það
bendir allt til þess að fólkið á sam-
býlinu hafi verið nánast undir smá-
sjá. Ég er ekki í neinum vafa um að
ef einhver raunverulegur atburður
hefði átt sér stað, þá hefði verið far-
ið út í, með brambolti og látum, að
kæra,“ sagði Bragi Guðbrandsson,
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra,
að lokum. -PS