Tíminn - 28.01.1992, Qupperneq 2

Tíminn - 28.01.1992, Qupperneq 2
2 Tíminn Þriðjudagur 28. janúar 1992 Fyrsta þing Baltneska ráðsins var haldið í Lettlandi um helgina. Halldór Ásgrímsson alþingismaður, fulltrúi Norðurlandaráðs á þinginu: Aðild að Norðurlanda- ráði er ekki á dagskrá Um helgina var haldið í Riga í Lettlandi fyrsta þing Baltneska ráðs- ins, en aðilar að því eru Eystrasaltslöndin þrjú: Litháen, Eistland og Lettland. Að sögn Halldórs Ásgrímssonar, sem sat þingið sem full- trúi Norðurlandaráðs, kom engin ósk fram um það á þinginu að löndin fengju beina aðild að Norðurlandaráði. Halldór sagði að aðild landanna að Norðurlandaráði væri ekki á dagskrá í dag, en ekki væri útilokað að þau tengdust Norðurlöndum nánari böndum í framtíð- inni í tengslum við fyrirsjáanlegar breytingar á Norðuriandaráði. Halldór sagði að Eystrasaltslöndin vildu umfram alit tengjast V-Evrópu og þá í gegnum Norðurlönd, eins og forystumenn þeirra orðuðu það gjaman. Halldór sagði að á þinginu hefði ekki komið fram nein ósk um að Eystrasaltslöndin fengju aðild að Norðurlandaráði. lrAðild er ekki á dagskrá af hálfu Norðurlandaráðs. Það, sem er á dagskrá, er að þeir byggi upp sitt samstarf og komi því í gott horf, sem mun að sjálfsögðu taka tíma. Síðan þarf að koma á föstu samstarfi milli Norðurlanda- ráðs og Baltneska ráðsins, en slíkt samstarf erum við að byrja að byggja upp. Það verður síðan seinni tíma mál hvemig þróunin verður hjá þeim og okkur. Það er alveg Ijóst að Norðurlandasamstarfið mun taka breytingum í ljósi þess sem er að gerast í Evrópu. Þama mun fara fram endurmat á næstu árum,“ sagði Halldór. Hvert land sendi 20 fulltrúa á þetta fyrsta þing Baltneska ráðsins. Full- trúar Norðurlandaráðs á fundinum vom Halldór Ásgrímsson, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra, og Jan P. Syse, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs. Búið er að ákveða að næsta þing ráðsins verði í júní í Litháen. Fulltrúar frá Norðurlandaráði munu einnig sitja þann fund. Balt- neska ráðið mun eiga áheymarfull- trúa á þingi Norðurlandaráðs, sem haldið verður í Helsinki eftir rúman mánuð. Halldór sagði að Baltneska ráðið ætti eftir að móta starfsemi sína. Eftir væri að ganga frá lagalegum grundvelli ráðsins og því starfi ráðið enn sem komið er einungis sem ráðgjafarþing. Ráðið hefur ekki Halldór Ásgrímsson sat fyrsta þing Baltneska ráðsins sem annar tveggja fulltrúa Norður- landaráðs. komið sér upp sameiginlegri skrif- stofú. Halldór sagði að það muni koma í ljós síðar, eftir því sem starfi ráðsins miðar áfram, hvers konar samstarf verður um að ræða. „Við viljum gjaman hjálpa þeim við að byggja þetta starf upp og koma á föstu sambandi milli Norðurlanda- ráðs og Baltneska ráðsins. Við telj- um að við getum ekki síst hjálpað til við lagalega uppbyggingu þjóðfélag- anna. Það vantar grundvallarlöggjöf á mjög mörgum sviðum. Þeir geta mikið lært af sameiginlegu laga- starfi Norðurlandanna. Þeir eiga hins vegar óskaplega mikið ógert og það er langt í land með að þama verði til eitthvað svipað samfélag og við höfum búið við,“ sagði Halldór. Halldór sagði að allt stjómmála- Iegt starf í Eystrasaltslöndunum bæri mikinn keim af vem rússneska hersins þar. Mikil áhersla væri lögð á að koma hemum í burtu. Halldór sagði að mörg erfið vandamál fylgdu því að flytja herinn frá löndunum. Enginn vissi td. hvert hann ætti að fara. Húsnæði og fjármagn til flutn- inganna skorti. Að ósk fulltrúa þjóð- þinganna í löndunum þremur vom Halldór og Syse viðstaddir fúnd, sem fulltrúamir áttu með herfor- ingjum í rússneska hemum. Slíkur fundur hefúr ekki verið haldinn áð- ur. Halldór sagði að það hefði verið merkileg upplifun að sitja þennan fúnd. Hann sagði greinilegt að það væri forgangsverkefni að koma rússneska hemum ffá Eystrasalts- löndunum. -EÓ Jón Sigurðsson skýrði Bush frá íslandsaðstoð við nýfrjálsu ríkin í austri: Vill kenna athafnafólki frá Rússíá kapítalisma I umboði utanríkisráðherra sat Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, ráðstefnu sem Bush Bandaríkjaforseti boðaði til um að- stoð við lýðveldin, sem áður töldust til Sovétríkjanna. Jón greindi þar m.a. ffá þeirri ákvörðun íslensku ríkisstjómarinn- ar að taka þátt í þessari aðstoð og að hann vænti auk þess framlaga ffá ís- lenskum fyrirtækjum og félagasam- tökum. Hann skýrði einnig frá tækniaðstoð íslendinga við fyrmm Iýðveldi Sovétríkjanna á sviði jarð- hita, fiskeldis og sjávarútvegs og þeirri hugmynd sinni að bjóða ungu athafnafólki frá lýðveldunum til Is- lands til náms og þjálfunar í rekstri fyrirtækja og markaðsmálum. Ráðstefnan var haldin í Washington DC dagana 22. og 23. janúar. Hana sóttu fulltrúar 47 ríkja, auk forystu- manna alþjóðastofnana. Markmið ráðstefnunnar var að samræma efnahags- og félagslega aðstoð við lýðveldin, sem áður töldust til Sov- étrfkjanna, og þannig styðja við bak- ið á lýðræðisöflunum. Með því yrði dregið úr hættunni á öngþveiti í þessum ríkjum. Sérstaklega var fjallað um matvæla-, lyfja-, húsnæð- is- og tækniaðstoð, ásamt aðstoð á sviði orkumála. - HEI Menntamálaráðuneytið segist ekki ætla í bílaleik með skólabörn: Hagræöing þar sem hagræð- ingar er þörf Menntamálaráðuneytið hefur svarað bréfí kennarafélaganna í Reykjavík, Kópavogi, á Seltjarnamesi, í Kjósarsýslu og á Reykjanesi þar sem bornar voru upp sex spurningar vegna meints tilfíutnings nemenda milli skóla. Bréf ráðuneytisins fer hér á eftin „Vísað er til bréfs dags. 9. janúar sl. þar sem aðstæður leyfa. Samkvæmt þar sem lagt er út af ummælum menntamálaráðherra á Rás 2, mið- vikudaginn 8. janúar, um tilflutning nemenda milli skóla. Með vfsun í umræddan útvarpsþátt skal eftirfarandi tekið fram: Menntamálaráðherra sagði í þætt- inum: „Ég sé ekkert í veginum fyrir því á stað eins og Reykjavík að færa milli skóla. Mér finnst það ekki vera eitthvað sem ekki megi tala um.“ Hins vegar sagði ráðherra með vís- un til frumvarps til laga um ráðstaf- anir í ríkisfjármálum á árinu 1992 þar sem gert er ráð fyrir heimild til fjölgunar í bekkjum um allt að tvo nemendun „Við erum eingöngu að tala svo sem um að nýta þessa heim- ild þar sem hún á við, en hún á ekki alls staðar við...“ Ennfremur sagði ráðherra um tilflutning nemenda milli skóla, að slíkur tilflutningur væri hins vegar sérmálefni sem ekki væri verið að taka á núna, þ.e. að færa einhver ný viðfangsefhi yfir á sveitarfélögin. Það væri ekki; þó að í þessum aðgerðum öllum væri ætlast til ákveðinna hluta af sveitarfélögun- um, væri það óviðkomandi þessu máli. Af því, sem hér kemur ffarn, má vera ljóst að umrætt heimildarákvæði um Qölgun í bekkjum er ekki til þess ætl- að að hefja flutning bama milli skóla, heldur til að koma við hagræðingu heimildarákvæðinu verður hagræð- ingin í höndum fræðslustjóra. Með vísun til ofangreinds telst spumingum kennarafélaganna svar- að.“ Undirbuningur fyrir vetrarólympíuleikana í Albertviiie er nú á lokastigi: keppendur til leiks t framhaldi afþessari ákvörðun hefur Skfðasamband íslands Ulkynnt nöfn þelrra þátttakcnda, þjálfara og fiokk- stjóra sem fara til Albertville. Þehr Haukur Eiríksson Akureyri, og Rögnvaldur Ingþórsson Akureyri, verða fuUtrúar Islands ( skíðagöngu. Þrír keppendur verða í alpagrcinum. Það eru Ásta Slgríður Halidórsdóttir, Bolungarvik, sem er eina konan með- al íslensku keppendanna, Kristinn BJömsson Ólafsfirði og Omólfur Valdimarsson Reykjavik. Þjálfarar eru þeir Sigurður Jónsson í alpa- Gunnar M. Hansson forstjóri Nýherja, Árni Vilhjálmsson stjómarformaöur og Óll Kr. Slgurðsson stjórnarmaður. Tfmamynd: Aml Bjama Nýr tölvurisi við sameiningu IBM og Skrifstofuvéla-Sunds: Nýherji herjar á tölvumarkaði Að ffumkvæði IBM hefúr nýtt markaðs- og þjónustufyrirtæki, Ný- herji hf., verið stofnað á grunni IBM á íslandi og Skrifstofuvéla. Nýheiji hf. tekur til starfa 2. april n.k. á sviði boðmiðlunar, skrifstofu- og tölvutæknimála. Stærstu eigendur fyrirtækisins eru Eignasamlag Draupnissjóðsins og Vogunar sf. með 35% eignaraðild, IBM Danmörku með 30%, eigendur Skrifstofuvéla með 22,5% og nokkrir starfsmenn með 12,5% eignaraðild. Nýherji hf. verður umboðs- og þjón- ustuaðili fyrir m.a. IBM, Rank Xerox, Facit, Omron og Star, auk þess sem það mun annast alla starfsemi sem hin sameinuðu fyrirtæki haía séð um til þessa. Forstjóri IBM, Gunnar M. Hansson, stjómar einnig nýju sam- steypunni. Stjómarformaður er Ámi Vilhjálmsson. vctrarólympíuleikana í Albertville, sem er í frönsku Ölpunum, en þelr hefjast 8. febrúar og lýkur 23. febrúar. Þá verða með í förinni tveir þjálfarar og tveir fíokkstjórar, auk aðalfararstjóra og for- manns Ólympíunefndar. greinum og Bo Ericsson í skíða- göngu, og flokkstjórar cru þau Helgi Gclrharösson og Inga Huld TVausta- dóttlr. Aðalfararsfjóri er Ágúst Ás- geirsson, en hann er jafnframt í ís- lensku ófympfunefndlnni. Þá mun Giali Hallddrsson, formaður ólymp- íunefndar íslands, verða viðstaddur meirihluta lcikanna. Ákveðið hefur verið að Ásta Sigríður Halldówdóttir verði finaberi íslenska hópsins í opn- unarathöfninni. Sktðamennirnir hafa í vetur undir- búið sig vandlega fyrir ólympíuleik- ana og hefnr þjáífun þeirra að mest- um hluta farið frimt eriendis. Þeir hafa teldð þátt í fjölda stðrmóta og hefur árangur þeirra verið ágætur, en einmitt þrír af keppendunum fimm eru nú staddír erlendts. Visa ísland er aðalstyrktaraðili Ófymptunefndarinn- ar fsiensku og styridr þátttöku fs- lands í vetrarófympíuleikunum nú. Að sðgn Gísla HaUdórssonar er kostnaður við þátttöku í vetrar- og sumarófympfuleikunum f áráætlaður um 22 mUljónir króna. Ríkissjónvarpið mun verða með fjölda beinna útsendinga frá leikun- um og mun sýna 55 IdsL beint frá Frakkiandi. Þá munu verða sýndar 11 klst. af upptökum og samantekt- um, fyrir utan fréttir af mótinu. -PS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.