Tíminn - 28.01.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87 j
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D • Modellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
AimviTAn Áskriftarsími
Tímans er
BÍLAR • HJÓL • ■ BÁTAR • VARA- .jinNs 686300
HLUTIR. 1»®'
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
ÞRIÐJUDAGUR 28. JAN. 1992
Spamaðaraðgerðimar hafa víðtækar afleiðingar og mest á Landakoti:
Skerðing á þjónustu hjá
sjúkrahúsum óhjákvæmileg
Um 550 milljónir kr. vantar á að framlög fjárlaga til Landspít-
alans nægi til að standa undir sömu starfsemi og á síðasta ári,
að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar framkvæmdastjóra. Að sögn
Davíðs hefur ráðherra þó gefið vilyrði fyrir 80 milljón kr. fjár-
veitingu til að draga úr niðurskurðinum.
Umfang niðurskurðarins segir
Davíð að megi m.a. marka af því að
þama er um hærri upphæð að ræða
en varið hefur verið til ýmissa nýj-
unga sem teknar hafa verið upp á
Ríkisspítulunum á undanförnum
árum. Má þar m.a. nefna hjarta-
skurðaðgerðir, kransæöaútvíkkan-
j ir, legudeild fyrir krabbameinssjúk-
j linga og geisiameðferðardeild fýrir
krabbameinssjúklinga, svo eitthvað
j sé nefnt. Þessi þjónusta var ekki til
fyrir fimm árum og þessar nýjung-
ar kosta um 350-400 m. kr. á ári.
Engum dettur í hug að hætta þess-
ari starfsemi og má því ljóst vera að
550 millj. niðurskurður,
hlýtur að þýða þeim mun meiri
samdrátt á öðrum sviðum, segir
Davíð.
Hlutfallslega er niðurskurðurinn
þó miklu meiri á Landakoti. Á fjöl-
mennum fundi með framkvæmda-
stjórn Landakotspítala mótmælti
starfsmannaráð harðlega 490 millj-
óna kr. niðurskurði á fjárveitingu
til spítalans, eða sem svarar 34%.
Þetta leiði til þess að öllum starfs-
mönnum spítalans, meira en 600,
verði sagt upp um næstu mánaða-
mót. Þetta verði sömuleiðis til þess
að þjónusta spítalans við bráða-
sjúklinga, sem hafi verið um 2/3
starseminnar, muni leggjast af.
Ekki verði séð hvernig aðrir spítal-
ar geti tekið á sig þessa þjónustu,
nema með meiri kostnaði en spar-
ast kunni á Landakoti. Starfs-
mannaráð Landakotsspítala skorar
því á heilbrigðisráðherra að endur-
skoða fjárveitingu til spítalans, svo
þessi stórfelldi niðurskurður þurfi
ekki að koma til. Tíminn spurði
Davíð Á. Gunnarsson hvort Land-
spítalinn sé reiðubúinn til að taka
við þessari bráðaþjónustu Landa-
kots að drjúgum hluta. Ámóta
spurningu frá heilbrigðisráðherra
sagðist Davíð hafa svarað á þann
hátt að Landspítalinn treysti sér til
að taka þátt í einhverri uppstokkun
verkefna í samráði og samvinnu við
starfsmenn og stjórnendur Landa-
kots. En þeir verði þá á móti að taka
við einhverjum verkefnum frá
Landspítala. Ráðuneytið taki þetta
því væntanlega til skoðunar á
næstu vikum, ef menn ákveða á
annað borð að fara þessa leið.
Á Landspítala segir Davíð stefnt að
því að niðurskurðurinn komi sem
jafnast niður. Reynt verði að vernda
alla hópa jafnmikið — eða lítið. í
því felist þá m.a. að biðin hljóti að
lengjast hjá þeim sem eru á biðlist-
um.
í ályktun sem stjórn Læknafélags
Reykjavíkur hefur sent frá sér segir
m.a.: .^Alþingi fslendinga hefur
leikið háskalegan leik við afgreiðslu
síðustu fjárlaga." Endurskipulagn-
ing og frekara aðhald dugi ekki til
að fleyta sjúkrahúsunum gegn um
erfiðleikana. Biðlistar muni óhjá-
kvæmilega lengjast á sumum svið-
um og þjónusta jafnvel leggjast
niður á öðrum sviðum. Stjórn
Læknafélagsins skorar því á heil-
brigðisráðherra að beita sér fyrir
nauðsynlegum aðgerðum til þess
að draga úr þeirri gífurlegu röskun
sem heilbrigðiskerfi landsmanna
verði fyrir, sé ekkert að gert.
Tvíhliða
viðræður?
Utanríkismálanefnd Alþingis
fiallað í gær um það hvort rétt
aé að ísland hefji undirbúning
að tvíhliða viöræðum við Evr-
ópubandalagiö. Skiptar skoðan-
hr voru um máiið og engin
formleg nlðurstaða varð á fund-
inum. Olafur Ragnar Grímsson
segist Jíta á fundinn sem nauð-
synlcgt skref í undirbúningi að
því að finna leið út úr þeim
ógöngum sem framtíðarsam-
starf íslands við EB er komið i
Hann sagðist ætla að beita sér
fyrir því að utanríkismálanefnd
haldi áfram að fjalla um málið.
„Það er alveg fjóst að flestar
EFTA-þjóðÍmar eru í reynd að
yfirgefa þennan EES-samning.
Þetta veikir samningsstöðu
þjóðanna gagnvart EB. Fimm
EFTA-þjóðir eru að ræða aðrar
leiðir. Svíar og Austurrílds-
menn eru búnir að ákveða að
fara aðra lelð. í Noregl, Fínn-
landf og Svlss er hafinn undhr-
búningur að annarri klð, þ.e.
inngöngu í EB. Þó að við höfn-
um þeirri kið er engu að síður
nauðsynlegt fyrir okkur að
ræða þá leið sem kynni að
henta okkur jafnvel eða betur.
Það liggur á borðinu í dag að
jafnvel þó að takist einhver
málamynda niðurstaða f þessu
dómstóiamáli þá er EES búið
sem eitthvað varanlegt fyrir-
bæri. Það virðast allir forystu-
menn stjóramálaflokka í land-
inu, nema kannsld Alþýðu-
flotdcsins, átta sig á þessu. Það
er því rökrétt að hefja undir-
búnlng að öðru vegna þess að
það tekur tíma,“ sagði Ólafur
Ragnar, en hann átti frum-
kvæði að því að þessi umræða
fór fram í utanríkismálanefnd í
gær. -EÓ
ÞAÐ MATTI EKKI MIKLU MUNA þegar bifreið með flutningavagn og á honum stór
kranabifreið hlekktist á, á Vesturlandsvegi viö Skálatún, síðari hluta dags í gær. Okumaður flutninga-
bifreiöarinnar missti bílinn út fyrir malbikið, en þar var jarðvegur mjög gljúpur og sökk tengivagninn
undan þunganum og rann kraninn hálfur út af vagninum. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna, en
starfsmenn Loftorku, sem á tækin, unnu að því í nokkrar klukkustundir að koma krananum aftur upp
á bílinn. Nokkrar umferðartafir voru á meðan á aögerðum stóð. -PS/Tímamynd Pjetur
Stjórnarformaður Sambandsins um ásakanir í garð þess vegna 900 milljón króna
greiðslu til hluthafa í Sameinuðum verktökum:
SAMBANDIÐ EITT REÐ
EKKI GANGI MÁLSINS
Sigurður Markússon, stjómarformaður Sambands íslenskra samvinnufélaga,
vísar á bug staðhæfingum Thor Ó. Thors, framkvæmdastjóra Sameinaðra
verktaka, um að Sambandið hafi alfarið ráðið ferðinni þegar ákvörðun var tek-
in um að greiða 900 milljónir til hluthafa í Sameinuðum verktökum. Sigurð-
ur bendir á að Regin, fyrirtæki Sambandsins, eigi aðeins 7-8% í Sameinuðum
verktökum.
„Regin á 7-8% í Sameinuðum
verktökum sem þýðir að á félags-
fundum, sem fara með æðsta vald í
málefnum félagsins, fer Regin með
atkvæðahlutfall í samræmi við það.
Aðrir hluthafar fara með 92-93% at-
kvæða. í stjórninni sjálfri á Regin
einn mann af fimm sem þýðir að á
stjórnarfundum fer Regin með 20%
atkvæða og aðrir með 80%. Ég verð
því að vísa því á bug að Regin hafi al-
farið ráðið framgangi þessa máls,“
sagði Sigurður.
I viðtali Morgunblaðsins við Thor
Ó. Thors, sem er undir fyrirsögninni
„Tók nauðugur þátt í þessum harm-
leik“, fer Thor mjög hörðum orðum
um þátt Sambandsins í þeirri
ákvörðun að greiða hluthöfum í
Sameinuðum verktökum 900 millj-
ónir. „Það var greinilega meirihluti
fyrir því í Sameinuðum verktökum
að gera þetta svona og það ber alveg
að viðurkennast að Regin og Sam-
bandið töldu sig eiga samleið með
þeim meirihluta," sagði Sigurður.
Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um einstakar fullyrðingar Thors
sem koma fram viðtalinu.
-EÓ
Stykkishólmur:
Milljóna-
tjón í eldi
Milljónatjón varð þegar eldur kom
upp í tvflyftu húsi í Stykkishólmi í
gærmorgun. Þegar slökkviliðið í
Stykkishólmi kom á staðinn logaði
eldur undan þakskegginu og út um
glugga. Húsið, sem er gamalt forsk-
alað timburhús, var einangrað með
spæni og torfi og því var eldmatur
nógur. Tvær íbúðir voru í húsinu,
en enginn var í þeim. Húsið er talið
ónýtt af eldi, sóti og vatni, en innbú
var tryggt, en talið er að tjónið í eld-
inum sé fast að tíu milljónu króna.
Ekki er vitað um eldsupptök, en
RLR sendi menn vestur í gær til að
rannsaka þau. -PS
Isafjarðardjúp:
Föst í snjó
Lögreglan á ísafirði fékk á sunnu-
dagskvöld tilkynningu um að farið
væri að óttast um hjón sem voru á
ferð með kornabarn. Hjónin voru að
koma frá Hólmavík og ætluðu til ísa-
fjarðar. Þau festu Lödujeppa sem þau
voru á í snjóskafli í Hestaklifi, en
snarvitlaust veður var. Lögreglan
hafði samband við bóndann í Hey-
dölum sem fór á fjórhjóladrifinni
dráttarvél til móts við hjónin. Hann
fann bflinn í þann mund sem hjónin
voru að leggjast til hvflu og dró
bóndinn bflinn að Heydölum, þar
sem fjölskyldan eyddi nóttinni. Engu
þeirra varð meint af volkinu, en
kornabarnið var orðið mjög órólegt
vegna matarleysis. -PS
Seltjarnarnes:
*
Skýli sprengt
Strætisvagnaskýli við Suðurströnd
á Seltjarnamesi fékk heldur betur að
finna til tevatnsins, þegar ókunnir
aðilar tóku sig til og fylltu Soda stre-
am hylki af sprengiefni og sprengdu
f skýíinu. Atburðurinn gerðist um
miðnættið á laugardagskvöld. Skýlið
er mikið skemmt og hafa flísar úr
hylkinu skotist út í loftið og gert fjöl-
mörg göt á skýlið. Það má segja að
það sé mildi að ekki fór verr, því ef
fólk hefði komið þar að um leið og
sprengingin varð hefðu afleiðingarn-
ar orðið hörmulegar. -PS
Vinningstölur 25.jan.1992
(®! (2 l)(26) (29)
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA
1. 5at5 1 2.952.423
2. 4^5* af e 64.167
3. 4al5 128 6.918
4. 3a)5 4.205 491
Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 6.415.918
M 1 ■
upplysingar simsvari91 -681511 lukkulina991 002