Tíminn - 02.04.1992, Side 3

Tíminn - 02.04.1992, Side 3
Fimmtudagur 2. apríl 1992 Tíminn 3 Davíð Oddsson forsætisráðherra minnir utanríkisráðherra á að hugsanleg aðild íslands að EB sé innanríkismál en ekki utanríkismál: Davíð segir aðild að EB ekki vera á dagskrá „Aöild að Evrópubandalaginu er ekki á dagskrá ríkisstjómarinn- ar. Það er ekki ástæða fyrír íslendinga að leggja inn aðildarum- sókn núna til að sjá hvemig tekið verður í okkar sérkröfur. Það verður ekki gert vegna þess eins að önnur EFTA-ríki og Norður- lönd em á leið í aðiidarsamninga. Hin EFTA-ríkin em ekki bara að knýja dyra hjá EB til að sjá hvað þar er innan dyra,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í umræðum um skýrslu utanríkisráð- herra á Alþingi í fyrrakvöld. Forystumenn stjórnarandstöð- unnar lýstu yfir ánægju sinni með yfiriýsingu forsætisráðherra. Þeir sögðu að með henni væri óvissu um stefnu íslensku ríkisstjórnar- innar í Evrópumálunum eytt, en mikil umræða hefur farið fram um stefnu íslands í Evrópumálum í þjóðfélaginu síðan utanríkisráð- herra lagði fram skýrslu sína í ut- anríkismálum. Þar er lagt til að stjórnstofnanir íslenska stjórn- kerfisins kanni kosti þess að ís- land gerist aðili að EB áður en að- ildarkostinum er hafnað. Forsætisráðherra kom sér hjá því að gagnrýna beint þann kafla skýrslunnar þar sem fjallað er um kosti þess að ganga í EB. Hins veg- ar sagði Davíð að hugsanleg aðild íslands að EB sé innríkispólitískt mál en ekki utanríkismál. Hann sagði að áður en ákvörðun hefði verið tekin um að taka þátt í sam- floti EFTA-ríkja um viðræður um EES, hafi farið fram ítarleg um- ræða um það innanlands. Skilja má þessi orð Davíðs sem áminn- ingu til utanríkisráðherra um að hann einn taki ekki ákvörðun um hvernig haldið verði á málum ís- lands á sviði evrópskrar samvinnu. Stefnubreyting á því sviði hljóti að kalla á ítarlega umræða innan- lands áður en farið er að fram- kvæma stefnuna á sviði utanríkis- mála. .Auðvitað hafa menn úr öllum flokkum, forystumenn allra flokka verið að skoða kosti og galla aðild- ar að EB. Slíkt er auðvitað for- senda þess að menn treysti sér til að taka afstöðu í öllum meginat- riðum til þess hvort aðild fyrir ís- lendinga sé æskileg eða óæskileg. Þannig að menn hafa auðvitað verið að skoða slíka kosti og það hlýtur auðvitað að vera gert áfram. Slík skoðun hefur að hluta til átt sér stað í sambandi við um- ræðuna um EES-samningana sem hófust 1989,“ sagði forsætisráð- herra og minnti á skýrslur sem síðasta ríkisstjórn lét vinna, t.d. úttekt á áhrifum EES á íslenskan sjávarútveg, úttekt á áhrifum innri markaðar EB á íslenskan iðnað, skýrslu um þjóðhagsleg áhrif EES, skýrslu um EES og byggðaþróun, skýrsla um efna- hagssamvinnu Evrópuþjóða og hagstjórn á íslandi, skýrsla um Evrópu 1992 og ríkisfjármálin, rit Stefáns Más Stefánssonar um Evr- ópuréttinn og sjávarútvegsreglur EB o.fl. Forsætisráðherra sagði að í þessum skýrslum væri víða fjall- að um áhrif aðildar íslands að EB. Þessari upplýsingaöflun og könn- unum verði haldið áfram. -EÓ Ný reglugerð frá sjávarútvegsráðuneytinu: Veiðibann um páska Sjávarútvegsráðuneytið hefur í framhaldi af því að samráðshópur um bætta umgengni um auðlindir sjávar gerði tillögur til ráðuneytis- ins um takmarkanir á þorskveiðum um páska, gefið út reglugerð um friðun hrygningarþorsks á þeim tíma. Byggir reglugerðin á tillögum starfshópsins og samkvæmt henni eru allar veiðar með þorsknetum óheimilar í fiskveiðilandhelgi ís- lands frá klukkan 20.00 laugardag- inn 11. apríl til klukkan 10 árdegis þriðjudaginn 21. apríl 1992. Þá eru veiðar í öll veiðarfæri, aðrar en skel- og grásleppuveiðar, bannaðar á viss- um svæðum frá Stokksnesvita að Bjargtöngum. -PS Suðurland: Harmar vinnubrögð Fjölmennur fundur stjómar- og trún- aðarráða Alþýðusambands Suður- lands, sem haldinn var á Selfossi 31. mars 1992, harmar vinnubrögð ríkis- stjórnar íslands í þeim samningavið- ræðum sem staðið hafa undanfama mánuði. Fundurinn vítir aðför ríkis- stjórnar að launafólki og skorar á hana að ganga að réttmætum kröfum verka- lýðshreyfingarinnar. -PS Ólína Þorvarðardóttir segist hafa fengið fátækleg svör við fyrirspurn sinni um ástand leiguíbúða í eigu borgarinnar. Hún er ekki hætt og mun leggja fram tillögu um málið á fundi í dag: Heilbrigóis- eftirlitið kanni ástand íbúðanna Ólína Þorvarðardóttir, borgaríulltrúi Nýs vettvangs, mun á borgar- stjómarfundi í dag leggja fram tillögu þess efnis að heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur kanni ástand leigíbúða í eigu borgarínnar. Tillögu þessa ber Ólína upp í framhaldi af fyrirspum þeirri sem hún bar fram á fundi þann 19. mars síðastliðinn. Hún segir að svör byggingardeildar borgar- innar séu afskaplega fátækleg og það sé ekki hægt að una því. Þorvarðardóttir borgarfulltrúi í sam- tali við Tímann. Ólína segir ástæðuna fyrir því að hún hafi farið að grennslast fyrir um þessi mál vera að síðustu vikur og mánuði hafi fjöldinn allur af fólki haft sam- band við sig og lýst því fyrir sér hve seint og illa það gangi að fá gert við íbúðir. Kona ein hafði samband við Ólínu og hún býr í húsnæði þar sem mikill saggi er. Hún er asmasjúkling- ur og hún hefur ekki getað setið í stof- unni og horft á sjónvarpið síðan í sept- ember, því annars á hún á hættu að bera heilsutjón af. Önnur kona í Aust- urbrún hafði þá sögu að segja að íbúð- in sé varla fokheld og megi sjá í beran steinninn á gólfum og hafi þetta ástand varað í mörg ár. Aðaltilefni segir Ólína að hafi verið að sér hafi borist til eyma mál gamals manns sem bjó við Austurbrún. Þrátt fyrir margra ára baráttu fyrir því að fá gert við íbúðina, hafi það ekki tekist og fyrir nokkrum vikum hafi verið svo komið að maðurinn var fluttur úr íbúðinni. „íbúðin var þannig að hún var eldd hundum bjóðandi hvað þá fólki. Ég fór til byggingardeildar og spurði þar hvemig þeir röðuðu íbúðum í for- gangsröð og hvemig þeir rökstyddu sínar fjárveitingarbeiðnir. Það hlytu að liggja fyrir einhverjar áætlanir um þörf, en ég fékk svo loðin og óskýr svör að ég hafði fulla ástæðu til að ætla að slíkar áætlanir væm ekki til staðar og því væri hentistefnan ríkjandi," sagði Ólína Þorvarðardóttir. —PS Á dagskrá borgarstjómarfundar í kvöld er fyrirspum frá Sigurjóni Pét- urssyni um viðhald leiguíbúða og hyggst Ólína taka málið upp undir þeim lið. í fýrirspuminni bað Ólína um upp- lýsingar um hve margar íbúðir biðu viðhalds og væm í þokkalegu ástandi, hversu margar íbúðir væm famir að láta á sjá og væm lélegar, en væm þó fokheldar. í þriðja lagi spurði Ólína um hve margar íbúðir væm enn ófra- gengnar og í óíbúðarhæfu ástandi og heilsuspillandi. „Við þessu fékk ég af- skaplega fátækleg svör og ég mun í dag leggja það til að heilbrigðiseftirlit- inu verði tafarlaust falið að kanna ástand leiguíbúða borgarinnar og skila um það skýrslu," sagði Ólína Aprílgabb Svo virðist sem íslenskir fjölmiðlar ætli að viðhalda gamalli hefð með því að fá lesendur sína til að hlaupa apríl. Aprílgabb Tímans að þessu sinni fjallaði um sölu á framleiðslu- deild ÁTVR og sölu á áfengi á niður- settu verði í framhaldi af því. Nær allir flölmiðlar vom í gær með apríl- gabb og sumir með mörg. Eflaust hefur það verið misjafnt hversu margir hlupu aprfi, en við vitum um nokkra sem hugðust kaupa áfengi á niðursettu verði. Einn vongóður hringdi t.d. til blaðsins og spurði: „Er þetta ekki ömgglega gabb?“ Hann vildi bara vera viss! Starfsfólk Miklagarðs raðar í hillurnar í nýjum og ódýrari stórmarkaði. Mikligarður tekur nýja stefnu í verslunarrekstri Ætla að bjóða lægsta verð á sér- og matvöru Stórmarkaðurinn Mikligarður við Sund opnaði að nýju í gær eftir gagngerar breytingar. Eftir breytingamar er Mikligarður langstærsti „bónusmarkaður" landsins, þar sem höfuðáhersla er lögð á lágt verð, bæði hvað varðar matvöru, fatnað, sportvömr og fleira. Fram- kvæmdastjórí Miklagarðs segir markaðinn við Sund nú samkeppn- ishæfan við lægsta verð sem boðið er á matvöm og sérvöm í dag. Vömúrvalið hefur dregist vemlega saman, sér í lagi í matvömnni, en þetta skapar svigrúm til þess að lækka verð vemlega. Framsetning dagvör- unnar í Miklagarði er nú breitt og lík því sem gerist í verslunum Bónus. Hver vömtegund hefur meira rými og lögð er áhersla á sem minnstan til- kostnað frá því að vömnni er skipað upp þar til hún er komin í hendur neytenda. Aðstaða Miklagarðs er hins vegar betri heldur en Bónus, því vömlagerinn og verslunin em undir sama þaki og flutningskostnaður þar á milli í algem lágmarki. Flutnings- kostnaður frá hafnarbakka er einnig í lágmarki vegna staðsetningar mark- aðarins. „Hér leggjum við fyrst og fremst áherslu á lágt vömverð, en ekki íburð," segir Bjöm Ingimarsson, framkvæmdastjóri Miklagarðs. ,Auð- vitað verða viðskiptavinir okkar þjónustaðir hér eftir sem hingað til, en það verður ekki hægt að tína allar mögulegar og ómögulegar vömteg- undir úr hillunum hjá okkur. Neyt- endur geta gert sín bestu innkaup hjá Miklagarði. Ég fullyrði þó ekki að við munum alltaf vera lægstir í öllu. Það munu alltaf verða einhverjir sem undirbjóða okkur á einhverju sviði í einhvem tíma. Með breyttu fyrir- komulagi á rekstrinum og í innkaup- um hjá okkur, hefur náðst það mikill árangur að við emm fyllilega sam- keppnisfærir við það besta og lægsta sem gerist á markaðinum í dag.“ Bjöm segir að þessi breyting á Miklagarði sé ákveðið afturhvarf til þess þegar markaðurinn fyrst hóf starfsemi árið 1983. Reyndar sé geng- ið lengra en þá með því að leggja enn meiri áherslu á lítinn tilkostnað, sjálfsafgreiðslu og lágt vömverð. Þetta á ekki bara við um matvöm, heldur einnig fatnað, íþróttavömr, hreinlætisvömr og fleira, sem verður boðið á algem lágmarksverði. Mark- miðið er að slagorð Miklagarðs ,>lik- ið fyrir Iítið“, standi fyrir sínu. Verðlækkunin í Miklagarði er ekki eina breytingin, sem orðin er á versl- unarrekstri fyrirtækisins. Aðrar Miklagarðsverslanir en stórmarkað- urinn við Sund verða framvegis rekn- ar undir merkjum Kaupstaðar. Þar verður áfram lögð áhersla á hagstætt verð, en bæði úrval og þjónusta meiri en í Miklagarði. Þriðji þátturinn í verslunarkeðjunni em 11/11 verslan- imar, sem em að segja má hverfa- verslanir með takmarkað vömúrval og sama verð og stórmarkaðimir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.