Tíminn - 23.04.1992, Qupperneq 14
14 Tíminn
Fimmtudagur 23. apríl 1992
Óska eftir jörð til leigu
Þarf að hafa gott hesthús og (búðarhús, vegna fyrirhug-
aðrar tamningar. Upplýsingar í síma 91-35367.
m
Framsóknarmenn
í sveitarstjórnum og nefndum
á vegum þeirra
Málefnahópar þingflokks Framsóknarflokksins um byggðamál
og félagsmál, ásamt þingmönnum flokksins,
bjóða til funda í öllum
kjördæmum landsins
sem hér segir:
FUNDAREFNI:
Málefni sveitarstjórna og samskipti
ríkis og sveitarfélaga
Þingflokkur framsóknarmanna
Hafnarfjörður
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriöjudaga frá kl.
17.00-19.00.
Litiö inn i kaffi og spjall.
Framsóknarfélögin i HafnarfíróL
Kópavogur —
Heitt á könnunni
Skrifstofan að Digranesvegi 12 veröur framvegis opin á laug-
ardögum kl. 10.00-12.00.
Lltið inn og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö saman.
Framsóknarfélögin i Kópavogi.
Landsstjórn L.F.K.
Fundur veröur f Landsstjóm L.F.K. laugardaginn 2. mai n.k. kl. 9-12 I Bændahöllinni
I Reykjavik, 3. hæð. Allar konur, sem eru aöal- og varamenn, eru hvattar til aö
mæta.
Framkvæmdastjóm L.F.K.
Borgarnes — Nærsveitir
Spiluö veröur félagsvist I Félagsbæ föstudaginn 24. april kl. 20.30. 2. kvöldiö I 3ja
kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
Siglfirðingar
Páll Pétursson alþingismaöur veröur til viðtals á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Suðurgötu 4, föstudaginn 24. april kl.
16.00-18.00. Páll Pétursson
Siguröur Geirdal
Miðstjórnarfundur
Framsóknarflokksins
Miöstjómarfundur Framsóknarflokksins verður haldinn á Hótel Sögu, Átthagasal,
dagana 2.-3. mai n.k.
Fundurinn hefst laugardaginn 2. mal kl. 10.30. Dagskrá nánar auglýst slðar.
Framsóknarflokkurinn
Viðtalstímar alþingismanna
og borgarfulltrúa
Þriöjudaginn 28. april n.k. veröa
Finnur Ingólfsson alþlngismaö-
urog
Alfreö Þorsteinsson varaborgar-
fulltrúi
til viðtals á skrifstofu Framsóknarflokks-
ins, Hafnarstræti 20 (3. hæö), kl. 17-19.
Finnur á sæti I Heilbrigöis- og trygg-
inganefnd og lönaöarnefnd Alþingis.
Alfreö á sæti I stjóm Landsvirkjunar og
Innkaupastofnunar Reykjavikuiborgar.
Fulltrúaráð FFR.
Listasafn Flugleiða kynnir verkið Sabina eftir Erró:
Rúmlega 500 listaverk
í eigu fyrirtækisins
Félag íslenskra fræða vegna
stöðu þjóðminjavarðar:
Mótmælir
vinnu-
brögðum
Stjórn Félags íslenskra fræða hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún
mótmælir „þeim gerræðislegu
vinnubrögðum sem viðhöfð voru
nýlega við val á staðgengli þjóð-
minjavarðar", eins og það er orðað.
Stjórnin telur ámælisvert að þjóð-
minjaráð eða starfsfólk safnsins var
ekki haft með í ráðum áður en
ákvörðun var tekin. —GKG.
Samband íslenskra við-
skiptabanka ósátt við
hugmyndir um skattlagn-
ingu sparifjár:
Hækkun
skatta
- aukin neysla
Samband íslenskra viðskiptabanka
hefur sent frá sér ályktun vegna
hugmynda um skattlagningu spari-
fjár.
Það telur aukna neyslu muni fylgja
hækkun skatta á þessu sviði og að
vextir muni hækka. Sambandið seg-
ir höfuðatriði að skattar á sparifé
verði ekki hærri hér á landi en í öðr-
um löndum. Sömu reglur þurfi að
gilda um alla flokka sparifjár, þar
með talin spariskírteini ríkissjóðs,
en því er ekki gert ráð fyrir í fyrr-
nefndum hugmyndum.
Að lokum álítur sambandið nauð-
synlegt að allar breytingar verði
gerðar í áföngum með hæfilega
löngu millibili, þar eð frelsi í gjald-
eyrismálum verði bráðum að veru-
leika og því séu breytingar á skatt-
lagningu spariljár viðkvæmari en
ella.
Samband íslenskra viðskiptabanka
telur þessi atriði ekki hafa verið höfð
nægilega í huga við mótun þeirra
hugmynda, sem nú liggja fyrir.
—GKG.
Flugleiðir hefur í gegnum tíðina
keypt myndlistarverk eftir merk-
ustu listamenn þjóðarinnar, sem
sett hafa verið upp víðs vegar um
fyrirtækið.
Fyrir tveimur árum hóf sérstök
listaverkanefnd hjá fyrirtækinu að
kom á fót safni af íslenskri nútíma-
list. Upphafstími safnsins miðast við
þau straumhvörf, sem urðu í ís-
lenskri myndlist um og eftir síðari
heimsstyrjöld.
Nú telur Listasafn Flugleiða rúm-
lega 500 verk, sem hafa verið ljós-
mynduð og skráð á þar til gerð eyðu-
blöð og er það því mjög aðgengilegt.
Listasafnið hefur tekið upp þá ný-
breytni að kynna sérstaklega verk úr
eigu safnsins á söluskrifstofunni í
Kringlunni. Að þessu sinni er það
olíumálverkið Sabina eftir Erró, frá
árinu 1990. Safnið eignaðistverkiðá
síðastliðnu ári. —GKG.
Siglufjörður:
Nýr fullkominn sjúkrabíll
Siglufjarðardeild Rauöa kross ís-
lands hefur fest kaup á nýjum
sjúkrabíl af Econoline-gerð, og
kom hann til Siglufjarðar 14.
mars síðastliðinn. Bifreiðin er
búin fullkomnum tækjum til
sjúkraflutninga og flutnings
slasaðra.
Það er stjórn Rauða kross-deild-
arinnar á Siglufirði sem hefur veg
og vanda af kaupunum, og eru um
75% af kaupverði bíisins fjár-
mögnuð af RKÍ-deildinni þar, en
Rauði kross íslands fjármagnar
25%. „Það eru margir, sem hafa
lagt okkur lið. Bæjarfélagið lagði
fram stóran hlut og félög, fyrir-
tæki og einstaklingar hafa heldur
ekki látið sitt eftir liggja. Við gæt-
um þetta ekki án fólksins í bæn-
um, og við erum afar þakklát fyrir
þann skiining og velvilja sem við
höfum mætt,“ sagði Halldóra S.
Jónsdóttir, formaður RKÍ-deildar-
innar, í samtali við Tímann. Ekki
er hægt að segja nákvæmlega á
þessari stundu hvað bifreiðin
kostar, en til þess að gefa hug-
myndir þá kostaði sambærilegur
bíll, sem nýlega var afhentur í
Borgarnesi, um 7 milljónir.
Valþór Stefánsson læknir á
Siglufirði lætur vel af bílnum,
segir hann vera nánast gjörgæslu
á hjólum og veita mjög góða
vinnuaðstöðu m.a. fyrir hópslys.
Valþór Stefánsson læknir, Halldóra S. Jónsdóttir formaður RKf-
deildarinnar á Siglufirði, og Jóhann P. Jónsson frá Rauða krossi
fslands.
Bíllinn er vel búinn tækjum, s.s.
öndunarvél, hjartatæki með línu-
riti, tæki til að fylgjast með hita
og súrefni í blóði, og fullkomnum
ljósa- og rafmagnsbúnaði.
Heilsugæsiustöðin á Siglufirði
sér um alla sjúkraflutninga, en
lögregluþjónar annast aksturinn.
-PS