Tíminn - 23.04.1992, Síða 15
Fimmtudagur 23. apríl 1992
Tíminn 15
Konsert með óvenju-
legu hljóðfæri
Sinfómutónleikunum 9. aprfl stjóraaði breska tónskáldið og hljóm-
sveitarstjórinn Sir Peter Maxwell Davies, sem fæddist 1934 í Manc-
hester en býr nú í Orkneyjum. Á efnisskrá voru fjögur verk tveggja
tónskálda; þar skiptust á mesta tónskáld allra tíma, Mozart, og
stjóraandinn Davies, sem tónleikaskrá sagði vera „meðal fremstu
tónskálda Breta í dag“. Davies er grannur maður og kvikur og létt-
ur á fæti, eins og margir Bretar, og stjóraar með tilþrifamiklum
léttleik.
Tónleikamir fóru vel af stað, því
hljómsveitin flutti forleikinn að
Brúðkaupi Fígarós prýðilega. Síðan
tók við trompetkonsert eftir Davies,
þar sem sænski trompetsnillingur-
inn Hákan Hardenberger (f. 1961)
lék einleik með miklum brag. Tón-
skáldið lýsir konsertnum betur í
tónleikaskrá en mér hefði hug-
kvæmst, því satt að segja þótti mér
hann heldur leiðinlegur, þótt lúður-
inn væri þeyttur af furðulegri list.
Davies segir: „Konsertinn er í einum
þrískiptum þætti og byggir á grego-
rískum söng „Franciscus pauper et
humilis“ og var saminn þegar ég var
að vinna að undirbúningi að ópem
um heilagan Franz. Ég hugsaði um
einleikstrompetið sem rödd Franz,
en staðset verkið ekki í sólríku
landslagi Úmbríu, heldur í harð-
neskjulegra landslagi, í vind- og
sjávarsorfmni auðn Hoy í Orkneyj-
um, þar sem konsertinn er saminn."
Þá kom 40. sinfónía Mozarts í g-
moll, eitt eilífasta snilldarverk höf-
undar síns og allrar tónlistar, en
náði sér einhvern veginn ekki á flug.
Og loks var rúsína í pylsuendanum
eftir Davies, Orkneyjabrúðkaup við
sólarupprás. Bretar hafa umfram
aðra menn dálæti á „gamansemi í
tónlist“, og þetta verk er einmitt
hugsað sem dálítil tónlistarleg
kímnisaga handa Boston Pops-
TONLIST
hljómsveitinni. Þetta er „prógram-
músík" sem lýsir brúðkaupsveislu,
eins og nafnið bendir til, þar sem
hljóðfæraleikararnir, sem spila fyrir
dansi í veislunni, fá meira viskí en
þeim er fyrir bestu. Enda lendir allt í
handaskolum, sem Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari lýsti
með tilþrifum á fiðlu sína. Undir
morgun ráfar sögumaður loks út í
morgunroðann og hittir þá fyrir
sekkjapípuleikara, sem væntanlega
er að spila fyrir sjóinn og fugiana.
Hann er þarna fulltrúi hinnar orkn-
eysku fjallkonu, sem hafin er yfir
mannlegt þras. Því atriði var íýst
með því að sekkjapípuleikarinn Ge-
orge Macllwham gekk um salinn og
upp á sviðið þeytandi pípur sínar og
klæddur hefðbundnum búningi píp-
ara. Þetta þótti flestum áheyrendum
öðrum en Ragnari Björnssyni
dæmalaust gaman, enda kom Mac-
Ilwham fram í anddyri Háskólabíós
á eftir og tók eitt eða tvö vinsæl
sekkjapípuaukalög. Og almennt
voru þetta hinir skemmtilegustu
tónleikar þegar upp var staðið.
Sig.St.
Þriðja sýning á La Bohéme
Eins og allir ættu að vita er Óperu-
smiðjan að sýna La Bohéme eftir
Puccini í Borgarleikhúsinu um
þessar mundir. Og eins og auglýst
var í upphafl, taka fleiri þátt í sýn-
ingunni en þar rúmast í rauninni,
þannig að 10 söngvarar munu, þeg-
ar upp er staðið, hafa skipst á að
syngja flmm hlutverk.
Á frumsýningunni sungu Ingi-
björg Guðjónsdóttir og Jóhanna
Linnet hlutverk Mímí og Músettu,
en á 2. og 3. sýningu sungu þær
Inga J. Backman og Ásdís Krist-
mundsdóttir. Allar gera þær þetta
ágætlega, en með mjög mismun-
andi hætti: þannig er Mímí Ingu
Backman mun veraldarvanari að sjá
en Mímí Ingibjargar Guðjónsdóttur,
en Músetta Jóhönnu Linnet hins
vegar stórum aðsópsmeiri en Mú-
setta Ásdísar Kristmundsdóttur.
Raunar hefur Músetta heldur verið
að róast gegnum tíðina, því mig
minnir að í túlkun Ingveldar Hjalte-
sted í Þjóðleikhúsinu um árið hafi
hún fyrst verið verulega „risky“, eins
og Kanarnir segja.
Annars hefur orðið merkari bylt-
ing á síðustu árum í óperuflutningi
hér og í heiminum öllum en menn
kannski átta sig á. Þar á ég við texta-
vélarnar, sem nú eru alsiða við
óperusýningar hér í bænum og gera
það að verkum að meiri áhersla
verður ósjálfrátt á leikritið — text-
ann og leikinn — en áður var, og þá
líklega jafnframt minni á sönginn.
Enda er ástæða til að Ijúka lofsorði á
íslenska textann, sem Páll Baldvin
Baldvinsson er skrifaður fyrir og er
mjög fimlegur með köflum.
Það er einkenni „lifandi sýninga"
sem þessara að þær eru aldrei eins,
jafnvel þótt flytjendur séu þeir
sömu. Og nú sat ég annars staðar en
á frumsýningunni og allt horfði
öðruvísi við. Báðar sýningar voru
skemmtilegar og stundum glæsileg-
ar, en þegar allt er talið skemmti ég
mér betur á hinni fyrri. Sig.St.
Ársfundur Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu í Búdapest:
Almenn ánægja með
fyrsta starfsárið
Ársfundur Endurreisnar- og þróun-
arbanka Evrópu var haldinn í Búda-
pest í Ungverjalandi 13. og 14. apr-
fl. Fyrir Islands hönd sátu fundinn
Jón Sigurðsson iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, sem er fulltrúi ís-
lands í bankaráðinu, og Bjöm Frið-
fmnsson ráðuneytisstjóri, sem er
Sautjándu Andrésar Andar- leikam-
ir á skíðum hófust í Hlíðarfjalli við
Akureyri í gær. Andrésar Andar-
leikamir em Iangfjölmennasta
skíðamót landsins á þessu ári, en
um 740 þátttakendur á aldrinum 6-
12 ára frá 16 stöðum á landinu
mæta til leiks. Þá em starfsmenn
mótsins um 200 manns, auk um
200 fararstjóra.
Andrésar Andar-leikarnir hófust
með skrúðgöngu frá Lundarskóla að
íþróttahöllinni kl. 18, en keppni
hófst nú í morgun. Keppendur búa
flestir í Lundarskóla og í KA- heim-
varamaður hans, Finnur Svein-
björasson skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, og HaUdór J.
Kristjánsson varafuUtrúi íslands,
Eistlands og Svíþjóðar í stjóra
bankans í London.
Evrópubankinn var stofnaður árið
1991 og er ætlað að stuðla að þróun
ilinu. Að lokinni keppni dag hvern
verður verðlaunaafhending í
íþróttahöllinni, og þar verður einn-
ig boðið uppá leiki, þrautir og ýmiss
konar skemmtan auk skíðaíþrótt-
anna.
Aðalstyrktaraðili leikanna nú er
Pepsi á Islandi, sem gefur öll verð-
laun, en Vaka-Helgafell, sem gefur
út Andrésblöðin vinsælu, styrkir
leikana einnig. Þriðji styrktaraðili
leikanna er Alsport, sem gefur skíða-
verðlaun, auk þess sem Akureyrar-
bær og ýmis félög veita styrki vegna
leikanna. hiá-akureyri.
fjölflokkalýðræðis og markaðsbú-
skapar í ríkjum Mið- og Austur-Evr-
ópu og fyrrum Sovétríkjunum.
Hann leggur áherslu á fyrirgreiðslu
við einkaaðila og opinber fyrirtæki,
sem verið er að einkavæða.
Almenn ánægja með fyrsta starfs-
ár Evrópubankans kom fram á árs-
fundinum, og bendir allt til að hann
gegni mikilvægu hlutverki í endur-
reisn Austur-Evrópu.
Jón Sigurðsson lagði m.a. áherslu
á það í ávarpi sínu á fundinum, að
bankinn tæki þátt í stofnun fjárfest-
ingarsjóða í þessum ríkjum og
byggði þar upp þekkingu og fjár-
málastofnanir.
Samningur Norðurlandanna og
Evrópubankans var undirritaður um
stofnun fjárfestingarlánasjóðs fyrir
EystrasalLsríkin og að bankinn hafi
umsjón með sjóði, sem Norðurlönd-
in stofnuðu til að fjármagna sér-
fræðiráðgjöf í ríkjunum. Stofnun
sjóðanna var samþykkt á þingi Norð-
urlandaráðs í Helsinki í mars s.l.
Á ársfundinum voru Albanía, Eist-
land, Lettland og Litháen boðin vel-
komin í hóp aðildarríkja bankans,
ásamt öllum fyrrum Sovétlýðveld-
unum að Georgíu undanskilinni.
—GKG.
Akureyri:
Andrésar Andar-leik-
arnir hófust í gær
QíeðiCegt sumar!
s. árnason & co.
VATNAGÖRÐUM 4
QíeðiCegt sumarí
Búnaðarfélag íslands
Bændahöllinni
QCeðiCegt sumar!
HAPPDRÆTTNlfSw
Suðurgötu 10
CjCeðiCegt sumar!
ora
Niðursuðuverksmiðja • Vesturvör 12
QCeðiCegt sumar!
ÚÐAFOSS
Fatapressa Vitastíg 13
,/áfev
HUÐARENDI
VEITIHUASTADUR
Austurvegi 3 • Hvolsvelli
óskar starfsfólki sínu og viðskiptavinum
gCeðtfegs sumars
Óskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum
gCeðiíegs sumars
SAMTAKf
HUSEININGAR
□
GAGNHEIÐI 1—800 SELFOSSI
— SlMI 98-22333
Til sölu
Massey Ferguson 135 dráttarvél, árg. 1974, með ámokst-
urstækjum. Upplýsingar í síma 95-11120 eftir kl. 20.00.