Tíminn - 23.04.1992, Page 17
Fimmtudagur23. apríl 1992
Tíminn 17
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands
verður haldinn í starfsstöð félagsins á Hvolsvelli
á morgun,
föstudaginn 24. apríl, og hefst kl. 14.00.
Stjórnin
Orlofshúsaleiga SFS
sumarið 1992
Starfsmannafélag fyrirtækja Sambandsins
minnir félagsmenn og þá lífeyrisþega,
sem hafa verið félagar í starfsmannafélaginu,
á að umsóknareyðublöð fyrir orlofshúsaleigu
félagsins sumarið 1992 liggja frammi
hjá Jóhanni Steinssyni í Goða hf.
við Laugarnesveg.
Umsóknum skal skila á sama stað
fyrir 30. apríl 1992.
Hin áiiega kaffisala skátanna
veiður í
félagsheimili Kópavogs
fráM.3-6.
Hlabboið me6 gimilegum kökum.
Styrkiö okfeur í starfi!
KVENNADEILDIN URTUR
&
SKÁTAFÉLAGIÐ KÓPAR
VERSLUNARMANNAFÉLAG
SUÐURNESJA
Aðalfundur
Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja
verður haldinn að Hafnargötu 28, Kefiavík,
miðvikudaginn 29. apríl n.k. kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Stjórnin.
Lorna Luft og maöur hennar Jake Hooker geta ekki hugsaö sér aö skilja dótturina Vanessu eftir heima
meöan móöir hennar er að skemmta í Englandi. Vanessa er bara 18 mánaöa, en bróöir hennar Jesse,
sem er 7 ára, ætlar aö klára skólann heima áður en hann slæst í för meö fjölskyldunni.
Lorna Luft skemmtir
í Englandi
— syngur ekki bestu lög Lizu né mömmu
Lorna Luft er önnur heimsfrægra
dætra Judy Garland, hin er Liza
Minnelli. Báðar hafa þær systur
erft talsvert af hinum geysilegu
hæfileikum móður sinnar og hafa
lagt fyrir sig söng, dans og leik.
Um þessar mundir er Lorna að
skemmta í London, en hún hefur
verið á þriggja mánaða tónleika-
ferðalagi um England að undan-
förnu.
Margt frægra skemmtiatriða er á
sýningunni, sem Wayne Sleep hef-
ur samið dansana í. Þar eru m.a.
atriði úr Cabaret, High Society,
Singing In The Rain og West Side
Story. Ekki ætlar þó Loma að
syngja sjálf úr Cabaret, sem systir
hennar hefur gert svo góð skil,
enda segir hún þær systur sam-
mála um að t.d. hvorug þeirra
syngi nokkum tíma Somewhere
Over The Rainbow, sem mamma
þeirra fór svo snilldarlega með, né
heldur muni Lorna nokkm sinni
flytja Cabaret. Hvers vegna?
„Vegna þess að það er ekki hægt að
gera betur en þær gerðu," segir
Lorna.
Annars á Lorna mörg áhugamál
og lætur til sín taka í góðgerðar-
starfsemi. Þar ber hæst sjúk böm,
sem hún vill bæði gleðja með fjár-
framlögum og list sinni enda segir
hún mjög veitandi að syngja og
dansa fyrir börn. Og þá vill hún
ekki síður veita eyðnisjúklingum
og rannsóknum á þeim hræðilega
sjúkdómi lið, enda segist hún hafa
misst marga af sínum bestu vinum
afvöldum hans.
„Ég hef tapað 60 vinum mínum.
Allar þessar jarðarfarir á undan-
förnum 8 ámm. Það em næstum
því allir sem ég hef þekkt sem
nokkurn tíma hafa skapað eitthvað
yndislegt, og þau dóu öll úr eyðni-
skyldum sjúkdómum," segir Lorna
döpur.
Benny Hill látinn
Fyrir þrem árum var breski grínistinn Benny Hill lát-
inn hætta hjá Thames sjónvarpsstöðinni á þeim for-
sendum að þættirnir hans væru gamaldags og byggð-
ust á kynferðisórum. En honum tókst að fá uppreisn
æru áður en hann dó nú um páskana og kom þar með
gagnrýnendum sínum á óvart.
Það var sjónvarpsstöðin ITV sem áttaði sig á að Benny
átti meiri vinsældum að fagna en sérfræðingar Tham-
es sjónvarpsstöðvarinnar héldu, og tók aftur upp sýn-
ingar á þáttum Bennys, og það á besta sjónvarpstíma.
ITV hefur endursýnt hálftímaþætti Bennys frá árunum
1988-1989 að undanförnu. Þar bregður fyrir gamal-
kunnum hjálparkokkum s.s. Angelsdansmeyjum
Bennys.
Benny átti í viðræðum við alþjóðadeild Thames sjón-
varpsstöðvarinnar þegar hann þurfti að ieggjast á
sjúkrahús í febrúarmánuði sl. vegna hjartveiki sem
varð honum að aldurtila um páskana eins og áður seg-
ir, 67 ára gömlum.
í spegli
Tímans
Benny Hill naut
almennari vin-
sælda en margur
hugði. Nú er
hann látinn og
má búast viö aö
sumir endurskoöi
afstööu sína til
gamansmekks
hans.