Tíminn - 23.04.1992, Page 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI - BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR•VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
HOGG-
> DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
Gi varahlut
LbL
Hamarshöfða 1 - s. 67-6744,
Tímiim
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
Nýjungar í messuhaldi í Dómkirkjunni á föstu og páskum:
Kross borinn inn á
gólf Dómkirkjunnar
Boríð hefur á ýmsum kirkjusiöum í messuhaldi Dómkirkjunnar
í Reykjavík, sem fólk hefur ekki átt að venjast áður.
Þar er til dæmis að myndast hefð fyrír páskavöku seint á laug-
ardagskvöldið fyrir páskadag. „Þá söfnumst við saman í myrkrí
kirkjunni," segir sr. Jabob Hjálmarsson sóknarprestur, „og
hlustum á dapurlega tónlist. Síðan göngum við öll út úr kirkj-
unni, út að brennandi báli í jámkerí úti á stétt.“
Þar er kveikt á páskakertinu, sem
er stórt og mikið, búið til eftir sér-
stökum reglum. Þá er gengið aftur
inn í kirkjuna með söng og er eld-
ur páskakertisins látinn kveikja á
kertum sem kirkjugestir hafa í
höndum. Því er svo stillt upp í kór
kirkjunnar, við hlið skírnarlaugar-
innar. Þá er kirkjan uppljómuð
inni í kórnum en hálfrökkur inni í
kirkjunni því páskamorgunn er
ekki ennþá runninn upp.
Á páskavökunni fer líka fram
skírn eða endurnýjun skírnarheit-
anna. Sé óskað eftir skírn fullorð-
inna er hún helst látin fara fram
við þessa athöfn.
Þennan vetur hefúr 10. hvert
fermingarbarn verið óskírt. „Mér
finnst þetta safnast dálítið saman
hjá okkur hér í Dómkirkjunni,"
segir sr. Jakob, „ég held það sé
vegna þess að þeir sem hafi verið
trúastir fulltrúar ‘68-kynsIóðar-
innar og hafi ekki haft áhuga á að
skíra börnin sín hafi haft mikinn
áhuga á gömlum húsum, því eru
börnin þeirra hér í Dómkirkj-
unni.“
Á föstudaginn langa var höfð at-
höfn sem nefnist tignun krossins,
en sá siður hefur m.a. tíðkast í
Þingeyjarsýslu. Þar voru sungnir
hefðbundnir krossfestingarsálmar
og píslarsagan lesin. Síðast í at-
höfninni bar presturinn inn gróf-
an kross og setti inn í kórinn. Við
fót krossins var lagt ljós og athöfn-
in endaði á því að kirkjugestir sátu
í þögulli kirkjunni og hugleiddu
krossinn. ,Annað hlutverk hefur
þessi kross ekki en að vera tilefni
hugleiðingar,“ segir sr. Jakob. „Við
erum að byggja upp ákveðna hefð í
páskahaldinu hér í Dómkirkjunni
og erum þar að draga fram ýmis-
legt frá fyrri tíð, sem sumum
finnst vera kaþólska en er ekki
meiri kaþólska en svo að við sækj-
um þetta flest til lútersku kirkj-
unnar í Ameríku. Hún hefur verið
mjög ötul við að vekja upp gamla
samkristna hefð. Kirkjan hefur
verið lengur óskipt en klofin svo
rétt eins og aðrir kristnir menn
eigum við þennar arf, sem sóttur
er til frumkirkjunnar."
Sr. Jakob er mjög á móti þeim
trúarofsa sem viðgengst til dæmis
á Filippseyjum, þar sem menn láta
negla sig upp á kross á föstudag-
inn langa til að minnast píslar-
göngunnar: „Þetta er ekki sérlega
kristilegt í mínum augum og
stangast sérstaklega á við lúterska
boðun um það að maðurinn öðlist
hjálpræðið við náð Guðs eina. Guð
gefur það algerlega óverðskuldað."
—GKG.
Kirkjuvörður Reykjavíkurdómkirkju kveikir á páskakertinu. Nýj-
ar venjur í kirkjulífinu eru að skapast í Dómkirkjunni og er
páskakertið einn þáttur þeirra. Tímamynd Ámi Bjama
Gjaldþrot
Veraldar
er um 255
milljónir
Kröfur í þrotabú ferðaskrifstof-
unnar Veraldar hljóöa upp á 255
milljónir króna. Stærstu kröfu-
hafar eru Búnaðarbankinn og
Landsbanldnn. Samþykktar for-
gangskröfur nema 15 milb'óniun
króna, en abnennar kröfur nema
240 miQjónum. Óverulegar eign-
ir eru í búinu og ijóst er að ekkert
ftest upp í almennar kröfur.
Skiptafundur í þrotabúi Veraldar
verður haldinn eftir næstu helgi.
Búnaðarbankinn hcfur lagt fram
kröfur upp á um 51 milljón krón-
ur í þrotabúið og Landsbankinn
um 43. Erlend hótel og fcrða-
skrifstofur eiga einnig kröfur
sem skipta tugum milljónum
króna, Gjaldheimtan 10 milljónir
og tollstjóraembættið um 3,5
mílljónir. Að auki þykir Ijóst að
rikissjóður þurfi að greiða milij-
ónir vegna ríkisábyrgðar launa.
Bóstjóri þrotabús Veraldar,
Brynjólfur Kjartansson, hefur
ákveðið að láta endurskoðanda
fara yfir bókhald fyrirtækisins til
þess að kanna hvort ástæða sé tíi
þess að fara fram á opinbera
rannsókn á bókhaldinu.
I
1990 var jákvætt eigiö fé fyrir-
tækisins rúmai 57 milljónir og í
millhippgjöri sem gert var í októ-
her 1991 var eigið fé taKð jákvætt
um rúmar 8 miljjónir. -EÓ
Tekjur Samskipa 3,7 milljarðar á síðasta ári og jukust um 16%:
Sambandið vill selja 400
m.kr. hlutafé í Samskipum
„Það má með sanni segja að
fyrsta starfsár Samskipa hf. hafi
einkennst af miklum sviptingum.
Árið reyndist tími mikilla umsvifa
og margra nýjunga hjá fyrirtæk-
inu eins og við mátti búast. Sú
ákvörðun að breyta Skipadeild
Sambandsins í hlutafélagið Sam-
skip hf. hefur reynst viðskiptavin-
um og starfsfólki fyrirtækisins
happadrjúg," segir Ómar Hl. Jó-
hannsson framkvæmdastjóri m.a.
í ársskýrslu á aðalfundi. Hann
sagði mikla breytingu hafa orðið
hjá félaginu þegar öll starfsemi
þess í Reykjavík var sameinuð á
Holtabakka sl. haust. Á döfinni sé
að koma þar einnig fyrir banka og
tollþjónustu þannig að viðskipta-
vinir geti þá fengið alla flutninga-
þjónustu á einum stað. Þetta yrði
þá eina þjónustumiðstöð sinnar
tegundar á landinu.
Heildartekjur Samskipa námu
rúmlega 3,7 milljörðum króna á
árinu og höfðu þá aukist um 16%
sé borið saman við síðasta rekstr-
arár Skipadeildar. Rekstrargjöld
námu 3.584 milljónum kr. fyrir
fjármagnsliði, sem námu 123
Frá aðalfundi Samskipa í gær.
milljónum. Hagnaður var því að-
eins 21 milljón kr., sem er minna
en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Heildareignir Samskipa í árslok
voru bókfærðar 3.373 milljónir en
heildarskuldir 2.400 milljónir.
Eigið fé var því 973 milljónir eða
tæplega 29% af eignum.
Hluthafar Samskipa voru 80 í lok
Timamynd Ámi Bjama
ársins, en Samband ísl. samvinnu-
féiaga átti þá enn 98% hlutafjár-
ins. Sambandið stefnir að því að
selja 400 milljónir, eða kringum
44%, af tæplega 900 milljóna kr.
hlutafé sínu.
Framkvæmdastjóri segir starfs-
mönnum Samskipa hafa verið gef-
inn kostur á að kaupa hlutabréf í
félaginu á sérstökum kjörum og
hafi fjöldi þeirra nýtt sér það til-
boð. Segir framkvæmdastjóri það
mikla hvatningu fyrir stjórnendur
að sjá hvern hug starfsfólk ber til
fyrirtækisins.
Starfsmenn Samskipa voru 256 í
byrjun ársins en 274 í lok þess. Þar
af voru skipverjar 111 og 99 í vöru-
afgreiðslu. Launagreiðslur hjá fé-
laginu námu samtals 604 miíljón-
um kr. á árinu.
Samskip fluttu samtals 552 þús-
und tonn á árinu, sem var aukning
um 5% frá árinu á undan. Aukn-
ingin er aðaliega rakin til meiri
flutninga milli erlendra hafna, svo
og aukinna strandflutninga og
innflutnings. Strandflutningar
(olía og önnur vara) voru stærsti
hluti flutninganna, eða 37%. Inn-
flutningur óx um tæpan fjórðung
milli ára og var nær 30% flutning-
anna. Útflutningur minnkaði aftur
á móti um 19% og varð tæplega
22% heildarflutninganna. Hlut-
fallslega varð þó langmest aukning
á flutningum milli erlendra hafna
eða 193% og námu þeir 63 þús.
tonnum. - HEI