Tíminn - 08.05.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur8. maí 1992
Stjórnarformaður S.H. telur ýmislegt benda til dvínandi vinsælda „ferskra" fiskafurða:
„Ferskui* fiskur með 27
milljón geria í grammi?
ítarleg úttekt sem bandarísku neytendasamtökin gerðu á gæðum
ferskra fiskflaka í verslunum leiddi m.a. í ljós að í nærri fjórðungi
allra sýna fór gerlafjöldi upp í 27 milljónir í hverju grammi — eða
meira en 50 sinnum umfram það hámark (500 þús. gerla í grammi)
sem ferskleiki var miðaður við í könnuninni. Sumir kaupendur á
frystum flski krefjast þess m.a.s. að fjöldi gerla í honum fari ekki
yfir 100 þúsVgr.
Það var Jón Ingvarsson, stjórnarfor-
maður S.H., sem færði aðalfundar-
fulltrúum þessar athyglisverðu nið-
urstöður úr febrúarblaði bandarísku
neytendasamtakanna, Consumer
Reports. „í stuttu máli sagt var sú
einkunn sem ferskur fiskur almenn-
et hlaut í þessari úttekt vægast sagt
léleg,“ sagði Jón. Hann telur ýmis-
legt benda til þess að vinsældir
ferskra fiskafurða muni fara dvín-
andi í náinni framtíð og jafnframt að
enn frekari kröfur verði gerðar til
ferskleika, gæða og geymslu en áð-
ur, sem aftur muni auka á mögu-
leika frystingarinnar.
Hitastig, hreinlæti og geymslutími
eru lykilatriöin í varðveislu fersk-
leika og heilnæmis fisksins. Úttektin
hafi hins vegar Ieitt í ljós að aðstæð-
um í fiskverslunum hafi víða verið
ábótavant. Þótt fiskurinn hafi í
mörgum tilvikum verið í mjög góðu
ástandi að lokinni vinnslu hafi
ástand hans, eftir flutning og með-
ferð í verslun, oft orðið mjög slæm.
í úttektinni var settur sá mæli-
kvarði að fiskurinn ætti að innihalda
færri en 500 þús. gerla í grammi,
sem áður segir. Þegar gerlafjöldi fari
yfir eina milljón í grammi sé fiskur-
inn byrjaður að skemmast og fari
fjöldi gerla yfir 10 milljónir ætti
helst ekki að borða þann fisk. En
30% sýnanna fóru yfir þau mörk í
úttekt bandarísku neytendasamtak-
anna.
Jón vitnaði einnig til víðtækrar
bragðprófunar ,sem blað bresku
neytendasamtakanna Which?, stóð
fyrir. Fjöldi fólks var fenginn til að
gera samanburð á bragðgæðum á
ferskum þorski og frystum. Niður-
staða þeirrar athugunar hafi sýnt yf-
irburði frysta þorsksins hvað fersk-
leikann snerti og bragðgæðin hafi
sömuleiðis verið óumdeild.
Þá sýna nýlegar neyslutölur í Bret-
Iandi að sala á frystum fiski hafi
undanfarið farið vaxandi á kostnað
„ferskra" afurða, sagði Jón. „Þessar
niðurstöður sýna okkur, að ekki er
sopið kálið þótt í ausuna sé komið
og enn eru mörg ljón á veginum til
að geta náð góðum árangri í útflutn-
ingi og sölu á ferskum fiski þótt nú
verði senn úr vegi rutt flestum þeim
tollahindrunum sem verið hafa,“
sagði Jón. Ýmsir þættir takmarki
möguleika á útflutningi fersks fisks
héðan í stórum stfi, m.a. lengd
veiðiferða, fjarlægð frá mörkuðum
og krafa kaupenda um a.m.k. 4 daga
geymsluþol í verslunum. Fiskinn
verði því að flytja með flugvélum.
„Eftir stendur þá að fá það verð sem
keppir við okkar bestu og dýrmæt-
ustu frystipakkningar, þegar allur
kostnaður hefur verið réttilega met-
inn. M.a. af þessum sökum er fjarri
því eins og sumir virðast trúa, að út-
flutningur á ferskum unnum fiski
Landspítali og Landakot verða að auka lokanir sjúkrarúma í sumar.
Nyting sjukrarúma á Borgarspítala mun hins vegar aukast:
100 sjúkrarúmum
lokað í Reykjavík
Lokanir sjúkrarúma á spítölum í Reykjavík í sumar og haust þýða að
um 100 rúm verði lokuð að meðaltali allt árið. Lokanimar verða
mestar á Landspítala og Landakoti, en ekki er gert ráð fyrir að lok-
anir á Borgarspítala verði umfram hefðbundnar lokanir sem til
koma vegna sumarleyfa starfsfólks. Áætlað er að veija 115 milljón-
um til Qárfestinga á Borgarspítala og Landakoti á þessu ári.
Mál þetta var rætt í fyrirspurna-
tíma á Alþingi í gær að frumkvæði
Finns Ingólfssonar alþingismanns.
Fyrir svörum varð Eiður Guðna-
son umhverfisráðherra, sem gegn-
ir embætti heilbrigðisráðherra í
forföllum Sighvats Björgvinsson-
ar.
Engar skipulagðar lokanir verða á
Borgarspítala í sparnaðarskyni í
sumar. Þær lokanir sem verða á
spítalanum í sumar verða ein-
göngu vegna hefðbundinna sum-
arleyfa og tengjast að engu leyti
sérstökum sparnaðaraðgerðum.
Með tilliti til breytts hlutverks
spítalans, en spítalinn hefur tekið
yfir bráðaþjónustu Landakotsspít-
ala, er gert ráð fyrir að fleiri rúm
verði þar nýtt en verið hefur.
Á Landspítalanum verða lokanir í
sumar líkt og verið hefur vegna
sumarleyfa. Spítalinn verður hins
vegar að grípa til sérstakra lokana
vegna niðurskurðar á fjárveiting-
um til hans. Ákveðið hafði verið að
loka öidrunardeildinni í Hátúni í
sex mánuði á þessu ári. Vegna
þrýstings við gerð kjarasamninga
hefur verið ákveðið að stytta þenn-
an tíma niður í þrjá mánuði. Gert
er ráð fyrir að þeir sjúklingar sem
þar eru geti dvalist í 19 rúmum á
Vífilsstaðaspítala meðan lokað
verður í Hátúni. Lokun Hátúns
kemur illa við hvíldarinnlagnir
sjúklinga. Verið er að kanna leiðir
til að koma hvíldarinnlögnunum
annars staðar fyrir, en niðurstaða
liggur ekki fyrir. Ríkisspítalar telja
að lokanir umfram hefðbundnar
sumarlokanir spari samtals um
100 milljónir.
Vegna þeirrar endurskipulagn-
ingar sem nú fer fram á Landakoti
er erfitt að tala um lokanir rúma á
einstökum deildum og sömuleiðis
hve miklum sparnaöi lokanirnar
muni skila. Stjórnendur spftalans
gera ráð fyrir að loka handlækn-
ingadeild 3-B (19 rúm) í fjóra
mánuði, en undanfarin ár hefur
deildinni verið lokað í einn mán-
uö. Rúmum á handlækningardeild
2-B verður fækkað úr 28 í 13 frá 1.
júlí til 10. ágúst. Lyflækningadeild
1- A (29 rúm) verður lokuð frá 1.
maí, en opnar aftur síðar í sumar
að loknum endurbótum á húsnæð-
inu og þá sem 22 rúma hjúkrunar-
deild. Rúmum á lyflækningadeild
2- A verður fækkað úr 22 í 16 frá 1.
júní til 10. ágúst, en venjan er að
loka henni í einn mánuð á sumri
vegna sumarleyfa starfsfólks.
Rúmum á gjörgæsludeild verður
fækkað úr 10 í 15 frá 28. júní til
10. ágúst. Óvíst er hvað spítalinn
sparar mikið með þessum lokun-
um, en aðgerðirnar eru hluti af
heildstæðum aðgerðum sem miða
að því að spara 400 milljónir.
muni að miklu leyti leysa hraðfryst-
inguna af hólmi," sagði Jón.
Síðar í ræðu sinni sagði hann eigi
að síður víst að samningurinn um
EES geti m.a. orðið lyftistöng fyrir
útflutning á ferskum fiskflökum,
sem til þessa hafi mátt sæta 18%
innflutningstolli. Jón tók fram að
frystiiðnaðurinn njóti þegar toll-
frelsis á öllum hraðfrystum flökum,
sem séu uppistaðan í útflutningi
frystra afurða til Evrópubandalags-
ins. „Ávinningur frystingarinnar af
samningnum mun því fyrst og
fremst byggjast á hugsanlegum
tækifærum til enn frekari full-
vinnslu á fiski en nú er, ferskum eða
frystum," sagði Jón Ingvarsson.
- HEI
VISA stofnar menningarsjóð:
Fétil
listaog
vísinda
VlSA-fsland (Greiðslumiðlun hf.)
hefur samþykkt að stofna til sér-
staks menningarsjóðs á vegum fyr-
irtækisins.
Stofnfé hans er kr. 2.500.000 og þar
af verður 1,5 milljónum útlutað í
haust. Tekjur sjóðsins eru árleg
framlög VISA-fsland sem aðalfund-
ur mun ráða hverju sinni s.s. vaxta-
tekjur og aðrar tekjur sem kunna að
berast sjóðnum. Tekið verður við
umsóknum til ágústloka.
Tilgangur sjóðsins er að styðja ís-
lenska menningu og listir, veita fé til
líknar- og menningarmála og að efla
verkmenntun, vísindi og tækni.
í stjórn sjóðsins eru Jóhann Ág-
ústsson, aðstoðarbankastjóri Lands-
banka íslands og stjórnarformaður
VISA, Einar S. Einarsson fram-
kvæmdastjóri og Jón Stefánsson,
organisti og söngstjóri. —GKG.
Finnur gagnrýndi framgöngu
heilbrigðisráðherra við niður-
skurðinn í heilbrigðismálum.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa
gengið það fast fram í niðurskurði
til sjúkrahúsa í Reykjavík að starf-
semi sumra þeirra hefði verið hálf-
lömuð. Síðan hefði heilbrigðisráð-
herra komið eins og frelsandi eng-
ill og fyrirskipað að ekki mætti
skera niður starfsemi einstakra
deilda. Finnur sagði að með þessu
hefði ráðherra tekið völdin af
stjórnendum sjúkrahúsanna.
Hann sagði ennfremur að stjórn-
endur spítalanna hefðu verið settir
í erfiða stöðu vegna þess að þeir
hafa ekki fengið að vita hvað þau
hafa nákvæmlega til rekstur
sjúkrahúsanna á þessu ári, en ekki
hefur endanlega verið ákveðin
skipting á 500 milljóna króna fjár-
veitingu sem ráðherra fékk til ráð-
stöfunar á fjárlögum þó að liðnir
séu rúmir fjórir mánuðir af árinu.
Finnur gagnrýndi stjórnvöld fyrir
að verja 115 milljónum til fjárfest-
inga á Landakoti og Borgarspítala.
Setja á 65 milljónir í B-álmu Borg-
arspítalans og 25 í skurðstofu
Borgarspítalans. Þá hefur verið
ákveðið að veita 15 milljónum úr
Framkvæmdasjóði aldraðra til
breytinga á Landakoti. Finnur
sagði að hægt hefði verið að halda
57 rúmum opnum með þessum
peningum heföi þeim verið variö
til reksturs. Hann sagði að lokan-
irnar núna þýði að um 100 rúm að
meðaltali hefðu verið lokuð allt ár-
ið. Hann minnti jafnframt á þá
staðreynd að um 300 aldraðir sjúk-
lingar bíði eftir sjúkrarúmi í
Reykjavík í dag. -EÓ
Samningur Ástundar og knattspyrnudeildar Vals:
Valsmenn
í Umbro
Knattspyrnudeild Vals og Ástund, sem er umboðsaðili fyrir Um-
bro og Diadora íþróttavörur á íslandi, hafa gert með sér sam-
komulag til þriggja ára sem felur í sér að aliir flokkar Vals, karla
og kvenna, munu leika í Umbro búningum og Diadora skóm.
Þetta er stærsti samningur sem
knattspyrnudeild Vals hefur gert
hvað varðar búninga og skóbúnað.
Það eru mörg þekkt félög í Evrópu
sem leika í Umbro búningum og
má þar nefna Leeds, Man.Utd, sem
nýverið hefur gert samning fyrir
næsta keppnistímabil, enska
landsliðið, brasilíska landsliðið og
fleiri þekkt lið. Á meðfylgjandi
mynd, sem tekin var við undirrit-
un samningsins, má sjá sitjandi þá
Guðmund Arnarsson frá Ástund
(t.v.) og Þorstein Ólafs, fulltrúa
knattspyrnudeildar Vals. Með þeim
á myndinni eru þrír leikmenn frá
félaginu, Þór Steinar Ólafs sem
leikur með 7 fl., María Rúnarsdótt-
ir í 3.fl.kv. og Einar Páll Tómasson
landsliðsmaður. -PS
Nýr hótel-
stjóri Hótel
Loftleiða
Þórunn Reynisdóttir hefur tekið við
starfi hótelstjóra Hótel Loftleiða af
Hans Indriðasyni, sem verður
svæðisstjóri Flugleiða í Noregi.
Þórunn hefur starfað hjá Flugleið-
um síðan árið 1976 og m.a. verið
stöðvarstjóri félagsins á Kastrup-
flugvelli í Kaupmannahöfn og nú
síðast markaðsstjóri Bfialeigu Flug-
leiða. —sá
Þórunn Reynisdóttir.