Tíminn - 24.06.1992, Side 3

Tíminn - 24.06.1992, Side 3
Miðvikudagur 24. júní 1992 Timinn 3 Póst- og símamála- stofnunln tilkynnir: Gjald fyrir símtöl til utlanda lækkar Cjaldskrá fyrir símtöl til útlanda lækkar næstu mánaðamót um að meðaltali 15%. „Það er ein af eldri stefnu- mörkunum hjá fyrirtækinu allt firá 1990 að iækka símkostnað tíi útlanda, því hann hefur þótt óþarfiega hár,“ segir Kristján Indriðason, aðstoðarfram- kvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Póst- og símamálastofnuninnL „Það hefúr skapast smá svigrúm hjá fyrirtækinu tii að geta lækk- að gjöldin og við viljum beina þeirri lækkun í þennan ferveg.“ Miklar greiðslur Pósts og síma í ríkissjóð síðustu 4 ár hafe hins vegar gert fyirtækinu erfitt um vik. Þessi gjaldskráriækkun er í samræmi við verðþróun hjá póst- og símastjómum í öðrum iöndum og með henni er Póstur og sími að Jeyfe vlðskiptavinum sínum að njóta aukningar í miililandasímtölum. Mest verður Íækkunin tíi Bandaríkjanna, Frakklands, Þýskalands, Japans og HoDands. Norðurlöndin eru einnig í hópi þeirra landa, sem hfjóta hvað mesta lækkun og lækka gjöidin um 15%. Mínútan tii Danmerk- ur, Noregs og Svíþjóðar lækkar um 72 kr. í 61 kr. á dagtaxta. Boðið verður upp á sérstakan næturtaxta, sem gildir frá kl. 23:00 á kvöldin tíl 8:00 á morgnana alla daga vikunnar og verður hann 25% lægri en dag- taxtínn. —GKG. Skólabygging á Sauðárkróki strand vegna gjaldþrots byggingaraðila: Borg klári bóknámshús Frá Guttormi Óskarssyni, fréttaritara Tímans í Skagafirfti: Samningar standa nú yfír við Tré- smiðjuna Borg hf. á Sauðárkróki um áframhaldandi byggingu bók- námshúss Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki, sem stöðvast hefur í bili vegna gjaldþrots Byggingafé- lagsins Hlyns hf., sem tekið hafði að sér veririð samkvæmt útboði í maí 1991. Framkvæmdir við bóknámshúsið hófust um mitt sumar og stóðu til áramóta, en áttu að hefjast aftur 1. maí samkv. samningum. Fyrr í þess- um mánuði kom héraðsnefnd Skag- firðinga saman til fundar og sam- þykkti eftirfarandi ályktun: „Fundur héraðsnefndar Skagfirð- inga, haldinn í Skagaseli 19.6.1992, heimilar héraðsráði og byggingar- nefnd bóknámshúss að gera samn- ing við Trésmiðjuna Borg hf. um byggingu bóknámshúss Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á grund- velli tilboðs þeirra frá því í maí 1991." Jafnframt var samþykkt viðbótartil- laga á fundinum um málið. Hún hljóðar svo: „Héraðsráð hefur heim- ild til að flýta framkvæmdum um eitt ár, þannig að húsið verði tekið í notkun haustið 1994.“ Það mun skýrast í þessari viku hvort samningar nást við TVésmiðj- una Borg eða hvort til nýs útboðs þurfi að koma. Víðimýrarkirkja er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum norðanlands. Víðimýrarkirkja opnuð ferðafóíki Víðimýrarkirkja hefur veríð opnuð ferðamönnum. Kirkjan var byggð árið 1834, en þarna hefur staðið kirkja allt frá Sturlungaöld. Meðal þeirra fjöl- mörgu, sem þjónað hafa staðnum, er Guðmundur góði Arason áður en hann varð biskup á Hólum. Byggingarefnið var rekaviður sótt út í Skaga og torf úr landi Víðimýr- ar. Innviðir kirkjunnar eru þeir sömu og í þeirri upphaflegu, en torf hefur verið endurnýjað. Kirkjumun- ir eru úr eldri kirkjum. Víðimýrarkirkja er enn notuð sem sóknarkirkja og er oft messað. Hún verður opin í sumar alla daga vik- unnar milli kl. 9:00 og 18:00. —GKG. Altaristaflan er dönsk aö upp- runa og er frá árinu 1616. Timamynd: GKG. Nýnemum fækkar við Háskólann: Engin áform um niðurfellingu náms í Félagsvísindadeild Félagsvísindadeild Háskóla íslands hefur enga ákvörðun tekið um niður- fellingu náms, að sögn Þorbjamar Broddasonar, dósents við deildina. í Morgunblaðinu í síðustu viku gaf Gunnlaugur H. Jónsson háskólaritari í skyn, að vegna niöurskurðar þyrftí að fella niður nám í hagnýtri fjölmiðlun við Félagsvísindadeild. Þorbjöm segir að þegar hafi 15 um- sækjendum um námið verið skrifáð bréf og þeim tilkynnt að þeir geti haf- ið nám í haust. Honum segist ekki vera kunnugt um að niðurskurður í Félagsvísindadeild bitni sérstaklega á þessum nemendum. Hins vegar er nú komið í Ijós að veruleg fækkun nýnema verður í Háskólanum næsta vetur miðað við árið í fyrra. Nú hafa um 1380 nýnemar skráð sig til náms, en á sama tíma í iyrra um 1680. Mest fækkar nýnemum í hjúkrunarfræði. Á svipuðum tíma í fyrra höfðu 112 nýnemar skráð sig í hjúkrunarfræði, en aðeins 67 nú. Þetta eru ekki endanlegar tölur. Enn gætu nokkrar umsóknir legið í pósti, en umsóknarfrestur rann út 12. júní. Umsóknir stúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri hafa enn ekki borist, því útskrift skólans var heldur seinna en annarra, eða 17. júní. Þá eiga enn eftir að bætast við um 70 umsóknir útlendinga, sem hyggjast stunda nám við skólann næsta vetur. Þórður Kristinsson, kennslustjóri Háskólans, segir að eftir þessum fyrstu tölum sé ekki hægt að segja endanlega til um helstu strauma milli deilda skólans. Þó er ljóst að veruleg fækkun verður í hjúkrunar- fræði. Einnig stefnir í einhverja fækkun í Félagsvísinda- og Heim- spekideild. Þá er Ijóst að fjölgun verður í verkfræði, í þá grein hafa borist um 220 umsóknir, en nýnem- ar voru þar í fyrra um 325. í aðrar deildir Háskólans virðist sækja svipaður fjöldi og í fyrra. Heildarfækkun umsókna nýnema má rekja til breyttra forsendna. Skólagjöld eru nú 22.350 krónur, en voru í fyrra 7.700. Lánasjóður hefur hert reglur sínar og atvinnuleysi blasir við. Atvinnuleysi getur virkað í báðar áttir. Á Norðurlöndunum er algengt að það fjölgi í háskólum þeg- ar atvinnuleysi eykst. Harðar reglur Lánasjóðsins hér með kröfú um námsárangur og bankalán, ef ekki tekst vel til, virðast gera það að verk- um að fólk veigrar sér við að hefja nám. Ef illa færi, stæði það ef til vill uppi atvinnulaust og með bankalán. Fundur Vestnorræna þingmannaráðsins á Akureyri: Kynna þarf lífshætti á norðurslóðum Árlegur fundur Vestnorræna þing- mannaráðsins, sem íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar eiga aðild að, var haidinn á Akureyri fyrir skömmu. Ráðið var stofnað árið 1985, og er þetta í áttunda sinn sem það kemur saman. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður var kosinn formaður ráðsins fyrir næsta starfs- ár, en auk hans eiga Jonathan Motz- feld frá Grænlandi og Lisbeth Peder- sen frá Færeyjum sætí í forsætís- nefndinni. Næsti fundur ráðsins veröur í Færeyjum að ári liðnu. Á þinginu fluttu formenn lands- deildanna þriggja ræður um störf deildanna á liðnu starfsári. Þá voru umræður um efnahags- og stjóm- málaástandið í löndunum þremur, og miklu púðri var eytt í áhrif minnk- andi þorskveiða og áhrif samning- anna um Evrópskt efnahagssvæði. Loks vom samþykktar níu tillögur til stjóma landanna þriggja, þar eð aðil- ar ráðsins hafa ekkert framkvæmda- vald. Meðal þeirra tillagna, sem sam- þykktar vom á þinginu, var að þegar verði hafist handa við að safna efni um það tímabil í sjávarútvegssögu Grænlands og íslands, er þorskveiðar Færeyinga stóðu þar sem hæst um síðustu aldamót. Skipulögðu samstarfi verði komið á um kynningu landanna og lífshátta þar út á við, og sýnt fram á mikilvægi lífrænna auðlinda fyrir veiðimanna- samfélög þjóðanna. Jafnframt var al- gerlega vísað á bug gagnrýni á hefð- bundna nýtingu dýrastofna, sem nú byggist í auknum mæli á siðrænum gmndvelli en ekki útrýmingar- hættu. Greitt verði fýrir samskiptum og viðskiptum milli landanna með end- urskoðun skatta- og tollalaga ásamt gjaldskrám fýrir póst- og símaþjón- ustu, en símgjöld milli landanna þykja óeðlilega há. Tekið verði upp virkara samstarf á sviði samgöngumála og ferðaþjón- ustu, og í því sambandi bent á að tengja þyrfti Grænland og Færeyjar við Bretlandseyjar með reglulegum sjósamgöngum, á sama hátt og ís- lendingar hafa gert Nákvæmar upplýsingar um lífs- hætti þjóðanna þriggja verði prent- aðar á þjóðtungum þeirra, og verði aðgengilegar í skólum og á bóka- söfnum. Er það rökstutt með því að oft á tíðum er þekkingu um ná- grannana ábótavant. Jafnframt verði reglum breytt á þann hátt að nem- endaskipti landa verði auðvelduð. Fylgt verði eftir með beinum að- gerðum samvinnu landanna í tilefni vestnorræns árs. í því sambandi er sérstaklega bent á þrjár ráðstefnur: Kvennaráðstefnu á Egilsstöðum, umhverfismál á Grænlandi og æsku- lýðsmál í Færeyjum. Samstarf á sviði tölvumála verði aukið og t.d. verði könnuð aðild Grænlands að tölvubanka um ferða- þjónustu, sem fyrirhuguð er á ís- landi. Náð verði fram og fylgt eftir alþjóð- legri tryggingu fyrir því að úrgangur af hernaðarlegum toga verði ekki losaður í hafið. Loks var samþykkt að beina því til stjórna landanna þriggja að bær Ei- ríks rauða í Brattahlíð á Grænlandi verði endurbyggður, til að minnast 500 ára afmælis byggðar norrænna manna þar, enda sé alþjóðleg viður- kenning fyrir því að rústimar séu stórmerkar. Þá var samþykkt áskor- un um að endurbyggja Þjóðhildar- kirkju á Grænlandi, enda kirkjan sú fyrsta sem byggð var í Vesturheimi í kristnum sið og er byggð um sama leyti og íslendingar tóku upp kristni, árið 999. hiá-akureyri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.