Tíminn - 24.06.1992, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 24. júní 1992
Timinn 9
Aðalsteinn Ásberg með tvær
nýjar bækur
Útgáfufélagið Dimma hefar sent frá sér
tvær nýjar ljóðabækur: „Draumkvæði"
eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og „TVé
hreyfa sig hægt“ eftir Paal-Helge Haugen
í þýðingu Aðalsteins Ásbergs.
„Draumkvæði" er sjötta ljóðabók Aðal-
steins Ásbergs. Hann hefur einnig samið
skáldsögu, bamabækur og fjölda söng-
texta, bæði við eigin lög og annarra. Ný-
verið hlaut hann verðlaun í bókmennta-
samkeppni Almenna bókafélagsins fyrir
bamabókina „Dvergasteinn". „Draum-
kvæði“ er 62 blaðsíður, en bókin skiptist
í fjóra kafla, sem hafa að geyma 39 ljóð.
„TVé hreyfa sig hægt“ er úrval ljóða úr 7
bókum sem út komu á tímabilinu 1967-
1990. Paal-Helge Haugen er vel þekktur í
heimalandi sínu og hefur auk ljóða m.a.
skrifað leiktexta og bamabækur. í ljóð-
um sínum notar hann oft hversdagslegt
málfar og myndir á nýstárlegan hátt og
tekst þannig að varpa nýju ljósi á hið
ljóðræna landslag. Bókin er 72 blaðsíður
og gefin út með styrk frá Norræna þýð-
ingarsjóðnum.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. maí er skrifstofa okkar I Hafnarstraeti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Þórsmörk
Hin víðfræga og fjölsótta Þórsmerkurferð ungra framsóknarmanna verður farin dag-
ana 3. til 5. júli n.k. Tjaldað verður I Langadal. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til SUF
I slma 91-624480, eigi síöar en kl. 16 föstudaginn 26. júnl. Athugið takmarkaö
sætaframboð.
Ferðamálaráð SUF.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Drætti í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til 10. júli n.k. Vel-
unnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til að greiða heimsenda
giróseðla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I síma 91-624480.
Framsóknarfíokkurínn
Framsóknarmenn
Sauðárkróki
Aðalfundur Suðurgötu 3, eignarfélags Framsóknarhússins á Sauðárkróki, verður
haldinn I Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki miövikudaginn 24. júní 1992 kl. 21.
Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjómin.
Ingibjörg
Dalamenn
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður er með viðtalstíma
I Dalabúð i Búöardal í dag, miðvikudaginn 24. júni,
kl. 17-19.
Framsóknarkonur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir hópferð á Kvennaþingið á Egils-
stöðum 20.-23. ágúst n.k.
Vinsamlegast látið skrá ykkur strax hjá Jafnréttisráði, simi 91-27420, og á skrifstofu
Framsóknarflokksins, slmi 91-624480.
Framkvæmdastjóm L.F.K.
SARAH 0G
ANDREW
ANDA LÉTTAR
Ekki verður séð að hjónakornin
Andrew prins og Sarah, hertoga-
ynjan af York, taki nærri sér
lengur yfirvofandi lögskilnað
sinn. Þau sinna hvort fyrir sig
skylduverkum sínum, prinsinn
nú sem endranær í sjóhernum
þar sem hann var fyrir skömmu
skipaður aðmíráll af föður sín-
um, hertoganum af Edinburgh,
og heretogaynjan annast börnin,
sem einsog svo mörg íslensk
börn sjá ekki föður sinn svo vik-
um skiptir, vegna þess að hann er
Sarah leiöir Beatrice prinsessu
í skólann. Mseögurnar líta vel út
eftir gott sumarfrí. Sjóherinn er
Andrews lífog yndi.
alltaf úti á sjó.
Nýlega sást til Söru fara með
dæturnar í leikskólann. Hún var
einstaklega afslöppuð að sjá, úti-
tekin og frískleg, enda nýkomin
úr góðu fríi. Andrew veifaði bros-
andi til mannfjöldans á fimm-
tugsafmæli landgöngu ameríska
sjóhersins í seinni heimstyrjöld-
inni, sem haldið var fyrir
skemmstu. Þótt það hellirigndi,
virtist hann leika við hvern sinn
fingur. Líklega þykir þeim þau
hafa sloppið vel í samanburði við
harmleikinn, sem allur heimur-
inn þykist vera vitni að nú í sam-
bandi við hjónaband Karls krón-
prins og Díönu.
Clint
tugtar
aðdáanda
Þótt leikarinn Clint Eastwood sé
ekki lengur borgarstjóri í Carmel
í Kaliforníu, þá stendur hann enn
í ströngu við að koma lögum yfir
bófa og ofbeldisseggi.
Hann getur sofiö rólega nú, því
einn hinna mörgu aðdáenda hans
er bak við lás og slá.
Brian Neun frá Maryland þóttist
lengi vera „vinur og aödáandi"
leikarans og hafði hringt með
jöfnu millibili heim til Clints und-
anfarin fjögur ár, eða þangað til
Clint og fjölskyldu var nóg boðið
og þau kærðu símtölin.
Dómur var kveðinn upp svo-
hljóðandi að símtölin væru ógn-
vekjandi og sönnuðu illa náttúru
aðdáandans. Segulbandsupptökur
sýndu að aðdáandinn heimtaði
peninga og fleira af goði sínu, fyr-
ir utan að hundsa friðhelgi heim-
ilis leikarans. Var Brian þessi síð-
an snarlega tekinn úr umferð.
Clint Eastwood stendur f ströngu.