Tíminn - 24.06.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 24.06.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn Miðvikudagur 24. júní 1992 Eyjafjörður: Nýtt Edduhót- el á Þelamörk Nýtt Edduhótel tók nýveriö til starfa í Þelamerkurskóla í Hörgárdal, í um 10 km fjariægð frá Akureyri. Miklar endurfoætur hafa veriö gerðar á hús- næði skólans þar sem hótelið er rek- ið. M.a. hafa verið sett ný rúm í öll herfoergi, en þau eru alls 30. Veitingasalur hefur sömuleiðis ver- ið endumýjaður. Þá hafa gestir að- gang að setustofú, sjónvarpsstofu og sérstakri leikstofu fyrir börnin. Marg- vísleg útileiktæki em til staðar, og gestir hafa aðgang að útisundlaug, heitum potti og gufubaði. Hótelstjóri nýja Edduhótelsins er Hafdís Ólafs- dóttir. Hótel Edda á Þelamörk býður, auk gistingar, uppá alhliða veitingaþjón- ustu frá morgni til kvölds. Veitinga- salurinn verður opinn allan daginn, og segir Hafdís Ólafsdóttir hótelstjóri að boðið verði uppá sérstakan matseð- 11 á góðu verði, auk þess sem áhersla verður lögð á úrval af heimabökuðu brauði og tertum, ásamt ísréttum. Þá hefúr þegar verið opnuð myndlistar- sýning í hótelinu og von er á fleiri slíkum uppákomum í sumar. Minja- gripaverslun verður einnig starfrækt þar, og er aðaláhersla lögð á sölu vam- ings sem unninn er í héraðinu. í sumar em liðin 30 ár frá því að fyrsta Edduhótelið hóf starfsemi sína á Laugarvatni. Síðan hefur hótelun- um fjölgað og em þau nú sextán tals- ins, hringinn í kringum landið. Alls starfa um 240 manns á Edduhótelun- um og er reiknað með að 70-80 þús- und gistinætur seljist í sumar, en alls er talið að frá upphafi séu komnar yfir 1 milljón gistinátta á Edduhótelun- um. Ferðaskrifstofa íslands hefur rek- ið Edduhótelin undanfarin ár, og hef- ur hún staðið fyrir umtalsverðum endurbótum á húsnæði og búnaði hótelanna, í samvinnu við heima- menn, og verður því haldið áfram í sumar. Mjög hefur færst í vöxt að haldin séu ættarmót, fúndir og ráðstefnur á Edduhótelunum, og er kappkostað að bæta aðstöðu þar að lútandi, sem og aðstöðu fyrir fjölskyldufólk. í sumar bjóða Edduhótelin uppá svokallaðan „Eddupassa". Hann er í því fólginn að þeir íslendingar, sem gista fleiri en fjórar nætur á Edduhót- elum, fá fimmtu nóttina án endur- gjalds. Tilboðið gildir á öllum Eddu- hótelunum og er óháð því hvort gist er í fleiri en eina nótt á hverjum stað. hiá-akureyri. Hér má sjá þá nemendur, sem luku námi, ásamt Valdimar K. Jónssyni prófessor og stjórnarformanni Endurmenntunarstofnunar, Sveinbirni Björnssyni rektor H.í. og Margréti Björnsdóttur endurmennt- unarstjóra H.f. Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands: 14 nemendur luku prófum 14 hafa lokið prófum við Endur- menntunarstofnun H.í. í rekstrar- og viðskiptagreinum. Námið tekur þrjú misseri í rekstr- ar- og viðskiptagreinum fyrir aðra en viðskipta- og hagfræðinga. Hægt er að stunda námið með starfi. Tekin eru fyrir helstu undirstöðu- atriði hagfræða og rekstrar og reynt að gera þeim betri skil en hægt er á styttri námskeiðum. Þeir, sem lokið hafa háskólanámi, ganga fyrir um inngöngu, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf eða sambæri- lega menntun sem hefur reynslu í rekstri og stjórnun. Markmið námsins er að þátttak- endur öðlist öryggi og getu til þess að takast á við hin ýmsu svið rekstr- ar og stjórnunar. Einnig er reynt að gefa nemendum fræðilega yfirsýn og þeim kynntar hagnýtar aðferðir, sem reynst hafa vel í rekstri fyrirtækja. —GKG. ISLENSKIHESTURINN KYNNTUR FERÐAIUIÖNNUM ARMULA 11 8IMI 681500 Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi Jón Egilsson Selalæk lést aöfaranótt 23. júnl á Sjúkrahúsi Suöurlands. Ólöf Bjamadóttir, böm, tengdabörn, bamabörn og barnabarnabörn Hrímnir ásamt hinum hrossunum fjórum, sem þátt taka í sýningunni. m úi 1, LUBACC i HB im ■ UWL ■SSSi „Til fundar vift íslenska hestinn“ er heitift á sýningu, sem fer fram þrisvar í viku á Vindheimamelum í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem þar er boftift upp á slíka sýningu, en Hestasport gengst fyrir henni. Boðið er upp á ýmsa bæklinga með upplýsingum um íslenska hest- inn og sýnd fræðslumyndbönd áður en kemur að hápunkti sýningarinn- ar. Sýningargestum eru boðin sæti í brekkunum fyrir ofan skeiðvöllinn þaðan sem fylgst er með sýningu á fimm gangtegundum íslenska hestsins. Fimm hross taka þátt í þeirri sýningu, en stjarnan er óneit- anlega hinn glæsilegi Hrímnir frá Hrafnagili í Eyjafirði. Að lokum getur fólk fengið að bregða sér á bak til að komast í nána snertingu við hestinn, sem gerði það eilítið auðveldara að byggja þetta land. —GKG. Skagfiröingar taka yfirleitt iag- iö, þegar þeir koma saman. Þetta eru starfsmenn Hesta- sports, sem taka á móti feröa- mönnum. Frá vinstri stjórnand- inn Sólveig Einarsdóttir, Björn Sveinsson, Ingimar Ingimars- son, Sigurjón Jóhannsson og Magnús Sigmundsson. Bjöm Sveinsson á hesti sínum, Hrímni frá Hrafnagili, sem unniö hefur til fjölda viðurkenninga. A Fyrlr baggastæröir 1,20m og 1,50m ▲ Fyrir flestar tegundir ámoksturstækja ▲ Fer vel meö baggana - stöflun auðveld A Hagstætt verð - Til afgreiðslu strax

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.