Tíminn - 24.06.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 24.06.1992, Blaðsíða 12
'JGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI BÍLAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEKH ■ BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbas Símar 668138 6 667387 AUÐVITAÐ Suöurlandsbraut 12 Oðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. ■VND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 Jg m SAj HOGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum oi i varahlutir , Hamarshöfða I - s. 67-6744 j MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1992 Tekjur verkfræðinga í opinberri þjónustu hafa ekki rýrnað eins mikið og á almenna markaðinum: Meðaltekjur verkfræðinga 240 þús.kr. á mánuði 1991 Verkfræðingar í starfi hjá verktökum máttu sætta sig við að lækka um 25% í tekjum (úr 343 í 256 þús.kr. á mánuði) milli áranna 1990 og 1991. Á sama tíma gátu verkfræðingar í þjónustu sveitar- félaga hrósað happi yfir 14% hækkun tekna (úr 254 í 290 þús.kr.). Niðurstöður kjarakönnunar 1992, sem Fréttabréf verkfræðinga segir frá, leiða m.a. í ljós geysilegan mun á þróun heildartekna verk- fræðinga milli þessara ára, eftir vinnuveitendum þeirra. Að meðaltali lækkuðu heildartekj- urnar um 1% milli ára. Sú lækkun og meira til (3% lækkun) varð hjá verkfræðingum á almenna vinnu- markaðinum, en hinir náðu 1% hækkun. Þá var 1991 merkilegt ár fyrir þær sakir að þá fengu verkfræð- ingar (6) í fyrsta sinni atvinnuleysis- bætur. Þá vekur m.a. athygli, í ljósi ára- langrar umræðu um léleg kjör hjá hinu opinbera, að aðeins um 4-5% munur er á meðaltekjum verkfræð- inga í starfi hjá hinu opinbera (ríki, borg, sveitarfélögum og opinberum eða hálfopinberum stofnunum) ann- ars vegar, og verkfræðinga í starfi á almenna vinnumarkaðinum (á verk- fræðistofum, við tölvuþjónustu, í verslun/þjónustu, iðnfyrirtækjum og hjá verktökum) hins vegar. Tekju- bil innan hvors þessara hópa var Útgjöld Félagsmálastofnunar Reykjavíkur 83 milljónum undir fjárhagsáætlun 1991: Færri óskir og lægri styrkir Einstaklingar, sem fengu fjárhags- aðstoð frá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar árið 1991, voru um 2.530 talsins, sem er fækkun um 10%, eða kringum 280 manns frá árinu áður — og þeim hefur enn farið fækkandi það sem af er þessu ári, borið saman við sama tíma í fyrra. Sú fjárupphæð, sem Félags- málastofnun varði til fjárhagsað- stoðar, lækkaði þó hlutfallslega enn meira milli ára. Fjárhagsaðstoð Félagsmálastofn- unar nam samtals 290 milljónum króna 1991, sem var 83 milljónum kr. (22%) undir fjárhagsáætlun árs- ins og meira að segja 40 milljónum kr. (12%) lægri upphæð heldur en árið 1990. í Ijósi aukins atvinnuleys- is og lækkandi tekna hlýtur þessi þróun að vekja sérstaka athygli og undrun. Gunnar Sandholt, yfirmaður fjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnunar, segir fækkun umsókna um fjárhags- aðstoð í fyrra hafa komið mörgum á óvart. Mönnum komi þó enn meira á óvart að sú fækkun hafi haldið áfram það sem af er þessu ári. Að fmna skýringu á þessu segir hann hins vegar hafa vafist mjög fyrir mönnum, þar sem þetta sé þvert á alla fyrri reynslu. Könnun, sem nái áratug aftur í tímann, hafi leitt í ljós mikla fylgni með ástandinu í þjóðfé- laginu og fjölgun eða fækkun skjól- stæðinga stofnunarinnar. Umsókn- um um fjárhagsaðstoð hafi jafnan fjölgað þegar að þrengdi í þjóðarbú- inu, atvinna dróst saman og kaup- máttur minnkaði. Að umsækjend- um skuli nú stórum fækka og fjár- hagsstyrkir til þeirra lækka, samfara auknu atvinnuleysi og lækkun tekna, segir Gunnar því erfitt að finna skýringu á í fljótu bragði. Eitt atriði gæti þó hugsanlega skýrt þetta að hluta. Hækkun á barnabót- um og öðru slíku og aukin endur- greiðsla skatta gæti e.t.v. gert það að verkum að fleiri hafi farið yfir þau viðmiðunarmörk, sem fjárhagsað- stoð Félagsmálastofnunar miðast við. Eftir upplýsingar þar um hafi kannski ýmsir annað hvort hætt við að sækja um fjárhagsaðstoð, ellegar ekki talið sig þurfa á slíkri aðstoð að halda. Annan part af skýringunni telur Gunnar hugsanlega geta falist í auknu starfsmannahaldi við mót- töku fjárhagsumsókna. Þ.e. að með betri og vandaðri vinnubrögðum takist í vaxandi mæli að finna önnur úrræði en fjárhagsaðstoð. Lækkun á upphæð meðalstyrks sé a.m.k. vafa- laust til komin vegna vandaðri vinnubragða. Sveinn Ragnarsson, félagsmála- stjóri Reykjavíkurborgar, segist heldur ekki hafa fundið skýringu á færri umsóknum og lægri styrkjum. Fyrir hálfu öðru ári eða svo hafi út- tekt verið gerð á þróun fjárhagsað- stoðar síðustu tíu ár. Þar hafi komið í Ijós talsvert mikil fylgni milli Qölda skjólstæðinga og fjárhagsaðstoð til þeirra annars vegar og hins vegar ástandsins í þjóðfélaginu, þ.e.- at- vinnuástands og kaupmáttar Iauna. Þegar farið hafi saman lélegt at- vinnuástand og lélegur kaupmáttur, hafi jafnan fleiri fengið aöstoð og einnig hærri upphæðir. Nú komi þessi fylgni hins vegar ekki fram, raunar þvert á móti. Fækkun umsókna á fyrstu fimm mánuðum þessa árs, miðað við sama tímabil í fyrra, hafi jafnvel verið ívið meiri heldur en hún var þá. „Þetta þyrfti því satt að segja ítar- lega skoðun. Því þetta er ekki í takt við fyrri reynslu hjá okkur,“ segir Sveinn. - HEI hins vegar miklu meira, eða frá 177 þús.kr. á mánuði í menntastofnun upp í 303 þús.kr. mánaðartekjur hjá háífopinberri/um stofnun/um í fyrra. í Fréttabréfinu er m.a. bent á að þar sem verðbólga var 8% milli þessara ára, hafi rauntekjur lækkað verulega. Sömuleiðis er kvartað yfir lélegri þátttöku í þessum árlegu launakönnunum. Svör bárust aðeins frá 270 af nærri 1.200 íslenskum verkfræðingum, sem allir fengu send könnunargögnin. Greinarhöf- undur segir mikilvægi kjarakönnun- arinnar ótvírætt og það muni vaxa á næstu árum, þegar vinnustaða- samningar verði staðreynd. Gildi könnunarinnar stóraukist við að sem flestir taki þátt í henni. Fréttabréfið birtir m.a. svonefnda viðmiðunarlaunatöflu, sem byggð er á árlegri kjarakönnun. Til viðmiðun- arlauna teljast allar greiðslur fyrir það sem telst til dagvinnutíma, en ekki yfirvinnulaun né endurgreiðsl- ur útlagðs kostnaðar. Samkvæmt töflunni eru viðmiðunarlaun þeirra, sem útskrifúðust í fyrra, nú um 129 þús.kr. á mánuði, útskrifaðra 1986 um 170 þús.kr., útskrifaðra 1981 um 195 þús.kr. og útskrifaðra fyrir átján árum um 228 þús.kr. á mánuði fyrir dagvinnutímann. - HEI iiliSSs H—IU ■■ Örlygur Kristfinnsson í minjasafninu fyrir framan merki þau, sem notuö voru til að aögreina síldartunnurnar. Tímamynd: gkg. Siglufjörður um verslunarmannahelgina: SÍLDIN Á SIGLÓ Síldarævintýrið verður endurtek- ið næstu verslunarmannahelgi á Siglufirði. Það var fyrst haldið fyrir ári síðan og þótti takast vel. Meðal annars voru þar sýnd þau vinnubrögð, sem notuð voru við vinnslu síldarinnar, og verður svo einnig gert nú. Minjasafnið verður opið fyrir gesti, en tvö og hálft ár er nú liðið síðan Félag áhugamanna um minjasafn var stofnað. Félagið stendur fyrir minjasafninu, sem nú er aðeins í bráðabirgðahús- næði að Suðurgötu 46. Þar er hægt að berja augum ýmsa gripi sem tengjast síldarárunum. Að sögn Örlygs Kristfinnssonar, formanns félagsins, eru þar þó að- eins litlu munimir. Þeir stærri bíða þess að safnið flytjist í Roalds- bragga, sem stundum er nefndur ísfirðingabraggi. Húsið er norskt að uppruna og byggt um 1907. Það er reist á staumm fram í sjó í tengslum við bryggju. Þar var söltunarstöð í eigu Roaldsfeðga. Bragginn var friðaður árið 1978, í því skyni að hýsa safn, og hófst endursmíði hans árið 1990. „Safninu hafa borist styrkir jafnt frá fyrirtækjum sem einstakling- um og nú er Siglufjarðarbær smám saman að koma inn í dæm- ið,“ segir Örlygur. Hið raunvemlega síldarævintýri hófst árið 1903, þegar Norðmenn hófu veiðar og vinnslu síldar. Því lauk svo um 1960. En þó að síldin sé á bak og burt, er þessi tími enn- þá lifandi í huga eldri Siglfirð- inga. Nú geta þeir yngri fengið að finna keiminn af þeim ámm, þeg- ar fólk í þúsundatali sótti til Siglufjarðar til að komast í síld- ina, sem hjálpaði íslensku þjóðfé- lagi til framfara og velmegunar. —GKG. FER MIÐSKOLINNI MIÐBÆJARSKÓLANN? Nú er í skoðun hjá Skólamálaráði Reykjavíkur húsnæðismál nýjasta einkaskólans, Miðskólans. Að sögn Áma Sigfússonar, formanns ráðsins, hefur verið litið til gamla Miðbæjar- skólans sem framtíðarhúsnæði Mið- skólans. Fleiri byggingar em þó til skoðunar og endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. Ámi Sigfússon segir að stuðningur Borgarinnar við Miðskólann verði fyrst og fremst fólgin í húsnæði, einka- skólar hafi ekki verið styrktir að neinu marki á annan veg. Tjamarskóli fékk á sínum tíma úthlutað húsnæði og hið sama mun gilda fyrir Miðskólann, þeg- ar hann fer af stað. Gamli Miðbæjar- skólinn hefur verið lítið notaður um hríð og er nokkuð illa farinn. Ef skóla- hald á að hefjast þar næsta haust, þarf að gera eitthvað fyrir hann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.