Tíminn - 08.07.1992, Qupperneq 2
2 Tíminn
Miövikudagur 8. júli 1992
Nýja Essóstööin á Sauöárkróki.
Nýtt Essóhús byggt
á Sauðárkróki
Frá fréttarítara Tfmans i Sauðárkróki,
Guttormi Óskarssyni.
Olíufélagið hf., Essó, hefur um
fjölda ára rekið bensín- og olíuversl-
un á Sauðárkróki undir nafninu
Ábær. í Ábæ hefur einnig verið
greiðasala og önnur verslun. Rekstr-
arstjóri er Guðlaug Gunnarsdóttir.
Nú var húsnæðið orðið allt of lítið
fyrir vaxandi og umfangsmikla starf-
semi. Forvígismenn Olíufélagsins
hf. ákváðu þá að reisa nýtt og full-
komið verslunar- og þjónustuhús.
Þessi nýi Ábær var opnaður laugar-
daginn 27. júní sl. að viðstöddu fjöl-
menni, sem kom til að sjá og skoða
þetta glæsilega hús. Geir Magnús-
son framkvæmdastjóri ávarpaði
samkomugesti og sagði m.a. að
bygging hússins hefði tekið níu
mánuði og allar áætlanir staðist
prýðilega, (nema þá veðrið nú á opn-
unardaginn, en þá stóð jónsmessu-
hretið illræmda enn). Geir Magnús-
son lauk miklu lofsorði á smíði og
frágang byggingarinnar af hálfu
verktakanna, hér væri greinilega
fullkomin fagvinna á öllu, sagði
Geir. Hann afhenti síðan Guðlaugu
Gunnarsdóttur lykla hússins. Vil-
hjálmur Jónsson, fýrrverandi fram-
kvæmdastjóri, gekk þá fram og
klippti á borðann og fyrsti bíllinn
var afgreiddur með bensín. Gestum
var boðið upp á léttar veitingar og
karlakórinn Heimir söng nokkur
lög.
Það er mál manna að þessi nýi
Ábær sé ein glæsilegasta Essobygg-
ing á landinu. Guðlaug Gunnars-
dóttir telur að mun auðveldara verði
að veita viðskiptavinum fyrirtækis-
ins góða og örugga þjónustu í þessu
ágæta húsi.
Húsið er tæpir 500 ferm. að með-
töldu aðstöðuhúsi. Veitingasalurinn
tekur um 50 manns í sæti.
-BS
Rottur í rússneskum togara:
FARMURINN
í RANNSÓKN
Rottur reyndust vera innanborðs í
rússnesku skipi sem sigldi inn í
Reykjavíkurhöfn mánudaginn 29.
júní sl., þrátt fyrir að hafa vottorð
um að vera meindýrafrítt. Flutti
togarinn með sér frosinn fisk til
landsins og sigldi svo aftur á föstu-
daginn.
Þórður Friðgeirsson hjá Ríkis-
mati sjávarafurða segir fiskinn enn
ekki hafa verið tollafgreiddan, en
búið sé að taka sýni úr honum og
senda til Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins. Von er á niðurstöðum
þeirra rannsókna á föstudaginn.
„Leiða má líkur að því að ekki
verði leyft að vinna hann til útflutn-
ings,“ segir Þórður. „Þetta er ein-
staklega óheppilegt tilfelli og ein-
stakt í sinni röð.“
Jón Sigurðarson, forstjóri Fiskaf-
urða hf., sem er kaupandi fisksins,
segir stærstan hluta hans verða
fluttan til útlanda.
—GKG.
Þrettán börn drukknuðu hér á landi á 9. áratugnum:
Drengir 5-10 ára
eru í mestri hættu
Drukknanir barna yngri en 15 ár
1981 - 1990
fjöldl barna
10----------------
0-4 6-9 10-14
aldur
stúlkur KMl drenglr
Þetta línurit sýnir aldur og kyn þeirra 13 barna sem drukknuöu á
árunum 1981-1990. Kemur m.a. fram aö meira en helmingur þeirra
(8) var drengir á aldrinum 5-9 ára, sem bendir til þess aö þeir séu í
sérstakri lífshættu í nánd við ár, vötn, sjó og sundlaugar.
Eitt til þrjú böra drukknuðu nærri
því á hverju ári á síðasta áratug, eða
þrettán samtals á árunum 1981-
1990. Þessi slys urðu í ám, sjó,
sundlaugum, lækjum og tjöraum.
Drengir á aldrinum 5-10 ára virðast
þaraa í sérstakri hættu, Jjví að rúm-
lega helmingur baraanna sem
drukknuðu á þessum árum voru 5-
10 ára drengir.
Drengjunum virðist líka margfalt
hættara en stúlkunum. Af þessum
þrettán börnum voru 10 drengir og
3 stúlkur. Um 30% þessara slysa
urðu á Reykjavíkursvæðinu en 70%
utan þess. Þetta kom fram í könnun
sem gerð var af Herdísi Storgaard
verkefnisstjóra „Vörn fyrir börn“ á
vegum Slysavarnafélags íslands.
Hún telur niðurstöður könnunar-
innar benda til þess að yngstu börn-
in séu í mestri hættu við sundlaug-
ar, heita potta, grunna polla og læki
nálægt heimilum sínum. Eftir 5 ára
aldur virðast börnin hins vegar í
meiri hættu af að drukkna í ám, sjó
og vötnum.
SVFÍ vill af þessu tilefni benda
foreldrum ungra barna á það að
börn undir fimm ára aldri skynji
ekki þær hættur sem stafað geta af
vatni. Þau geti drukknað í aðeins
nokkurra sentimetra djúpu vatni.
Foreldrar þurfi því að hafa sérstakar
gætur á ungum börnum sínum í ná-
vist heitra potta, smátjarna, sund-
lauga, gosbrunna og polla.
Börn yfir fimm ára aldri eru held-
ur ekki alltaf meðvituð um hætturn-
ar í umhverfinu. Þau eru orðin hug-
rakkari en þau litlu og fara því
lengra frá heimilum sínum yfir
sumartímann. Ákveðin hætta felst
m.a. í því að þau eru oft úti mjög
seint á kvöldin. Þau séu þá orðin
mjög þreytt, sem auki á slysahættur.
„Látið bömin ykkar aldrei vera
eftirlitslaus við vötn, ár og sjó.
Mikilvægt er í bátsferðum að allir
séu klæddir í bjargvesti af réttri
stærð," segir í tilkynningu frá SVFÍ.
Að gefnu tilefni bendir SVFÍ jafn-
framt á að ný ákvæði í byggingar-
reglugerð varðandi frágang við
sundlaugar og heita potta öðluðust
gildi 1. júlí sl. Þessar nýju reglur
þurfa allir að kynna sér sem ætla að
útbúa eða byggja sundlaugar, heita
potta eða laugar, enda hér eftir skylt
að sækja um leyfi byggingarnefndar
til slfkra framkvæmda.
Meðal reglugerðarákvæða er það
að heitir pottar við íbúðarhús eða
sumarbústaði skulu útbúnir læsan-
legu loki. Við frágang á tjörnum á
húslóðum skal þess gætt að þær séu
ekki dýpri en 20 cm. Sundlaugar eða
sá hluti lóðar sem þær eru á skulu
girt með a.m.k. 90 sm hárri girð-
ingu, sem lítil börn geta ekki opnað.
-HEI
Framlag íslendinga til norrænnar barnamyndasyrpu:
Tökum lokið á Seppa
Tökum er nú loklð á mynd- fslenska innleggið í norrænu KvikmyndatÖkur fóru fram í
inni Seppi sem Kvikmyndafé- barnamyndasyrpuna „En hist- Reykjavík og stóðu yfir í tvær
lagið Útí hött - inní mynd er að orie for de sma“ og verður hún vikur. Aðalhlutvcrkiö er í
framleiða fyrir Ríkissjónvarp- sýnd á öllum Norðurlöndum. „höndum“ lítils hunds sem
ið. Myndin er ætiuð yngstu hefur verið sérstaklega þjálfað-
Seppi er byggð á smásögunni áhorfendunum og segir frá ur fyrir hlutveridð. 11 aðrir
„Seppi leitar að mömmu" eftlr hundinum Seppa sem týnir leikarar koma við sögu en Ieik-
Guðmund Þórarinsson og mömmu sinni og ævlntýnim sljóri er Ásthildur Kjartans-
Björn Ragnarsson. Sagan var sem hann lendir í við leit að dóttir.
valin úr hópi umsækjenda sem henni. —GKG.
Orðabók Háskólans:
5.600 blaðsíður EES-samnings
hafa nú verið þýddar á íslensku
Starfshópur hjá Orðabók Háskól-
ans tók í maí 1990 það verkefni að
sér fyrir utanríkisráðuneytið að
þýða plögg varðandi EES-samn-
inga, alls um 10 þúsund blaðsíður.
Milli tíu og tuttugu manns hafa
starfað við verkefnið síðan. Nú hafa
verið þýddar um 5600 blaðsíður af
þessum 10 þúsund.
Aldís Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri hjá Orðabók Háskólans, hefur
haft umsjón með verkinu þetta árið.
Hún segir að nú hafi allar bókanir,
yfirlýsingar og viðaukar verið þýdd-
ir, aíls um 1000 blaðsíður. Auk þess
um 4600 blaðsíður af svokölluðum
geröum, sem vísa í viðaukana. Gerð-
ir þessar eru um 1400 talsins alls
um 9000 blaðsíður. Þar er um að
ræða tvídálka síður úr Stjórnartíð-
indum Evrópubandalagsins sem eru
um 25 þúsund A4 síður, þannig að
geysilegt verk er að fara í gegnum
þær allar. í EES samningnum er
meginmál, en öll framkvæmd samn-
ingsins er háð þessum gerðum, sem
eru í raun hinir eiginlegu lagatextar
sem segja til um framkvæmdina á
þeim atriðum sem samið er um.
.Ákjósanlegasta staðan hefði ver-
ið,“ segir Aldís, „að þessu verki lyki í
megindráttum um næstu áramót,
en við höfum verið svo miklu fálið-
aðri en hinar þjóðirnar, þ.e. Finnar,
Norðmenn og Svíar sem eru með
þetta verk á sama tíma og við og þeir
eru með margfaldan liðsauka á við
okkur. Það á í raun að vera búið að
þýða þetta um næstu áramót, en við
verðum að fá einhverja undanþágu
og vonumst til að klára þetta ein-
hvern tímann á næsta ári.“
Gerðirnar eru í fyrsta lagi reglu-
gerðir sem öðlast beint lagagildi
þegar samningurinn verður löggilt-
ur hér á landi. Annars vegar eru til-
skipanir sem eru annars konar gerð-
ir, en þær eru bindandi um mark-
mið sem íslensk lög verða síðan
samin í kringum. —BS