Tíminn - 08.07.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.07.1992, Blaðsíða 9
Tíminn 9 Miðvikudagur 8. júlí 1992 DAGBOK . Þann 6. júní 1992 voru gefin saman í hjónaband í Áskirkju af séra Áma Bergi Sigur- bjömssyni, Kristín Ármannsdóttir °g Birgir Ómarsson. Heimili þeirra er að Engi- hjalla 13, Kópavogi. Ljósm. Sigr. Bachmann BLAÐBERA VANTAR í Fella- og Seljahverfi og á Seltjarnarnesi Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 18. maí er skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. Framsóknarflokkurínn. Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 1992 Drætti I Sumartiappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til 10. júli n.k. Vel- unnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til að greiða heimsenda giróseðla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-624480. Framsóknarflokkurínn Framsóknarkonur Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir hópferð á Kvennaþingið á Egils- stöðum 20.-23. ágúst n.k. Vinsamlegast látið skrá ykkur strax hjá Jafnréttisráði, simi 91-27420, og á skrifstofu Framsóknarflokksins, simi 91-624480. Framkvæmdastjóm L.F.K. Sumarferð framsóknarmanna Farið verður Kjöl að Blönduvirkjun laugardaginn 8. ágúst. Nánar auglýst slðar. Fulltrúaráðið. Tommy Steele, sem söng „Water, Water Everywhere" hér um árið, er enn í fullu fjöri, svona oftast nær. Nú staulast hann þó um á hækjum eftir mótorhjólaslys á sviði I London. Tommy Steele við hækjur eftir mótor- hjóla- slys á sviði Tommy Steele, sem söng sig inn í hjörtu íslendinga fyrir um hálf- um fjórða áratug með laginu „Water, Water Everywhere", hefur verið langltfur í skemmtanabrans- anum og oftast nær í fullu fjöri. Að undanförnu hefur hann gert það gott í sýningunni á „Some Like It Hot“ í West End í London, eða allt þar til hann slasaðist í mótorhjólaslysi á leiksviðinu. Síð- an hefur hann orðið að hafa hægt um sig og staulast ekki um nema á hækjum. Slysið varð í lok sýningarinnar, svo að áhorfendur gerðu sér ekki grein fyrir hversu slæma byltu stjarnan fékk. Hann varð að dvelj- ast nóttina á sjúkrahúsi þar sem gert var að meiðslum á baki og mjöðmum. En í skemmtanaiðnaðinum er eins dauði annars brauð, eins og annars staðar, og forföll Tommys hafa gefið staðgengli hans í sýn- ingunni, Stephen Mea, tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Allt er þegar þrennt er: Paul Simon giftir sig í þriðja sinn „Frankie Boy" ennþá ungur Frank Sinatra er enn í fullu fjöri og syngur við hvern sinn fingur. Hann er nú orðinn sjötíu og sex ára, en langt frá því sestur í helg- an stein. Hann hélt sex tónleika í röð í Albert Hall í London fyrir skemmstu og seldist upp á þá alla. Hér sést hann koma á Heathrow- flugvöll með Barböru konu sinni. Bandaríski söngvarinn og laga- höfundurinn Paul Simon hefur nú látið verða af því að giftast vinkonu sinni til margra ára, söngkonunni Edie Brickell frá Texas. Athöfnin fór fram í leyni á heimili Pauls í Monthauk, rétt utan við New York. Söngvarinn Paul Simon er nú giftur helmingi yngri konu og hyggur á barneign. Eiginkonan, sú þriðja í röðinni, er ekki nema 25 ára, en Paul Simon fimmtugur. Þau eru sögð hyggja á barneign hið snarasta, en fyrir á Paul soninn Harper úr fyrsta hjónabandinu með Peggy Harper. Þau skildu 1975 og síðar giftist hann leikkonunni Carrie Fisher. Þau skildu eftir tveggja ára hjónaband 1985 og hún fjall- aði um það í skáldsögu sinni „Surrender the Pink“. Nú hyggur sem sagt söngvarinn gott til glóðarinnar, og þykist sjálfsagt hafa komist að því að allt er þegar þrennt er.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.