Tíminn - 08.07.1992, Síða 3
Miövikudagur 8. júlt 1992
Tíminn 3
Markaðsdagur í Gömlu höfninni
úrskurðaraðili um skatta
Hafnardagur verður haldinn í
Gömlu höfninni í tilefni 75 ára af-
mælis Reykjavíkurhafnar.
Fjölbreytt hátíðahöld verða um alla
Gömlu höfnina þennan dag. Má þar
nefna dorgkeppni, smábátaleigu,
hljómleika og bátasýningu.
Fiskmarkaðstorg verður á hafnar-
bakkanum íyrir framan Hafnarhúsið
þar sem fjöldi torgkaupmanna býður
upp á fiskmeti af mörgum gerðum.
Reynt verður að fá sem flesta söluað-
ila með og geta þeir, sem áhuga hafa
á að vera með, haft samband við
Kolaportið sem fyrst.
Boðið verður upp á margskonar
fiskrétti til neyslu á staðnum, en
leitast verður eftir að hafa eitthvað á
boðstólum, sem fólk er ekki vant að
hafa á matborðinu hjá sér dagsdag-
lega.
Allt hafnarsvæðið verður skreytt
með fánum og munum tengdum
fiskvinnslu, svo sem trönum, tunn-
um og köðlum. Markmiðið er að
skapa líflegt og skemmtilegt mark-
aðssvæði, sem höfðar til allra aldurs-
hópa og tengir fortíðina og sögu
Reykjavíkurhafnar við nútímann.
—GKG.
Lög um yfirskattancfnd tóku gildi mÖnnum, sem fjármálaráðhem hlutastarfi eru Jónatan Þór-
1. júH sL Samkvæmt lögum Jþess- hefur skipað. Fjórir eru í fullu mundsson lagaprófessor og Sig-
um er yfirskattanefnd æðsti úr- starfi og tveir í hlutastarfi. f fullu urgeir Bóasson löggiltur endur-
skurðaraðili á stjómsýslustigi um starfi eru: Ólafur ólafsson lög- skoðandi.
ágreiningsmál um ákvörðun fræöingur, sem jafnframt er for- Störf þessi voru auglýst í júní s.l.
skatta og gjalda til ríkis og sveitar- maður nefndarinnan Gylfi Knud- og umsóknarfrestur rann út 29.
félaga skv. lögum þar um. Með sen lögfræðingur og varaformað- júní. Þrettán manns sóttu um að-
lögunum var ríldsskattanefnd ur, Gunnar Rafn Einarsson lög- alstarf í nefndinni og tíu um
lögðniður. giltur endurskoðandi, og Jónína hlutastarf.
Yfirskattanefnd er skipuð sex B. Jónsdóttir lögfræðingur. í -BS
Nýr forstöðumaður
Framkvæmdadeildar
Innkaupastofnunar
ríkisins ráðinn:
Steindór Guðmundsson bygginga-
verkfræðingur hefur verið ráðinn í
starf forstöðumanns Framkvæmda-
deildar Innkaupastofnunar ríkisins
af Fjármálaráðuneytinu. Starfið var
auglýst í júní sl. og rann umsóknar-
fresturinn út 30. júní. Alls sóttu 35
manns um starfið.
Steindór er 45 ára og kvæntur
Bjarndísi Harðardóttur snyrtifræð-
ingi. Hann lauk prófi í byggingaverk-
fræði árið 1974 og hefur að námi
loknu starfað hjá Borgarverkfræð-
ingi í Reykjavík, Landsvirkjun, ístaki
h.f., og E. Pihl & Sön A.S. í Dan-
mörku. Síðan 1983 hefur hann verið
annar aðaleigandi og framkvæmda-
stjóri Verkfræðistofu Stanleys Páls-
sonar h.f. —GKG.
Á 500g smjörstykkj
Álw 275tr. ► Nú
Síðasta tækifærið
Vrú sparar
sumar
Ulenskt srnpr
Útför Þorvarðar Árnasonar, sem lést
1. júlí s.l., verður gerð frá Kópavogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Þorvarður varð 71 árs, en hann
fæddist á Hánefsstöðum 17. nóv.
1920. Störf og æviferill Þorvarðar eru
rakin í minningargreinum á bls. 8.
Eftirlifandi kona ÞorvarðarÁmason-
ar er Gyða Karlsdóttir.