Tíminn - 08.07.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 8. júlí 1992
Þess er skemmst að minnast er sovéskar svarthúfu- og öryggissveitir drápu fólk í Eystrasaltsríkjunum.
Leiðtogar helstu iðnríkja heims funda í Þýskalandi:
Vilja að Rússar kalli
herlið sitt í Eystrasalts-
löndunum heim strax!
Leiðtogar helstu iðnríkja heims hafa farið þess á leit við Rússa að
þeir dragi heri sína frá Eystrasaltslöndunum þremur hið bráðasta.
Rússar eru hvattir til þess að samþykkja ákveðnar dagsetningar, en
lið þeirra í löndunum þremur telur nálægt 130.000 hermenn.
Það er hægt að
hugsa sér glottandi
kött, en:
Glott án
kattar?
Aðdáendur rithöfundarins Lewis
Carroll telja sig nú hafa fundið fyrir-
mynd hans að hinum fræga Ches-
hire-ketti, sem svo margir þekkja úr
bókinni „Lfsa í Undralandi".
Félagar í aðdáendaklúbbi Lewis
Carroll gerðu þessa uppgötvun nú
um síðastliðna helgi í kirkju þar sem
faðir rithöfundarins var sóknar-
prestur. Kirkja þessi er í þorpinu
Croft, sem er norðarlega í Englandi.
Rétt þykir að benda ferðaglöðum ís-
lendingum á að líta þar inn, ef þeir
eiga leið um þetta hérað Englands.
I kirkjunni er gróflega hoggið eða
útskorið kattartrýni, sem glottir óg-
urlega. Kattarfésið stendur nærri
altari kirkjunnar og er talið frá lOdu
öld. Þegar horft er á það frá því sjón-
arhorni, sem ætla má að 10 ára
drengur hafi sem situr á kirkjubekk
frammi í kirkjuskipinu, sést ekkert
nema glottið eitt á andliti kattarins.
Lesendur Lísu í Undralandi muna
eflaust að hafa lesið um það þegar
Cheshire-kötturinn hvarf henni,
þannig að ekkert varð eftir nema
glottið eitt. Glottið hélst áfram
löngu eftir aö kötturinn var horfmn.
„Lísa var djúpt hugsi: Ég hef oft séð
kött sem ekki glottir, en ég hef aldr-
ei séð glott án kattar. Þetta er það
undarlegasta sem ég hef nokkurn-
tíma séð.“ —Reuter/Krás.
Drakkof
mikinn
vodka
Drukkinn rússneskur hermaður
gerði sér lítið fyrir og drap júgóslav-
neskan sendifulltrúa í farþegalest á
mánudag.
Itar-Tass-fréttastofan greindi frá
þessu í gær. Fréttastofan sagði að
hermaðurinn hefði verið drukkinn
og skotið fimm skotum úr vélbyssu
af stuttu færi að Júgóslavanum.
Sendiráð Júgóslavíu í Moskvu stað-
festi atburðinn og sagði að hann
heföi átt sér stað aöfaranótt þriðju-
dagsins, en sagði hins vegar ekki
hver eða hversu hátt settur sendi-
fulltrúinn hefði verið.
Hermaðurinn var hins vegar nafn-
greindur og sagður vera aðstoðarlið-
þjálfi að nafni Pechenov. Hann var á
leið heim til Moskvu frá suðurhér-
uðum Rússlands ásamt félögum sín-
um. Hermennirnir ferðuðust með
lest, sem fer á milli Belgrad og
Moskvu.
—Reuter/Krás.
í yfirlýsingu sem barst frá Þjóðverj-
um, en þeir hýsa ráðstefnu sjö
helstu iðnríkja heims, og birt er í
umboði þessara ríkja, segir að efna-
hagsvandræði Rússa réttlæti ekki að
þeir haldi herjum sínum á erlendri
grundu gegn vilja þeirra ríkja sem
hlut eiga að máli.
í yfirlýsingunni, sem Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýskalands, las,
segir: „Það er ótækt að þessi vanda-
mál skuli verða til þess að gengiö er
þvert á alþjóðalög, sem kveða á um
að herlið megi aldrei dvelja á er-
lendri grund nema með samþykki
viðkomandi ríkis."
Kinkel bætti við að mjög mikilvægt
væri að komist væri strax að niður-
stöðu í þeim samningaviðræðum,
sem nú fara fram um brottflutning
herliðsins.
Tálið er nokkuð ljóst að þetta mál
verði aftur á dagskrá á Ráðstefnu um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE), sem hefst á fimmtudaginn í
Helsinki. Eystrasaltsþjóðirnar þrjár
og Rússar munu sækja þá ráðstefnu.
Futltrúar sex þeirra þjóöa sem nú
eiga fulltrúa á ráðstefnu helstu iðn-
ríkja heims — Bandaríkin, Kanada,
Frakkland, Bretland og Ítalía —
munu einnig sitja RÖSE- ráðstefn-
una. Af helstu iðnríkjum eru það að-
eins Japanir, sem ekki eiga aðild að
RÖSE.
Eystrasaltslöndin þrjú, Eistland,
Lettland og Litháen, hafa krafist
þess að 130.000 rússneskir her-
menn, sem tilheyrðu herafla (yrr-
um Sovétríkjanna og halda til í
þessum löndum, hafi sig á brott.
Þess er krafist að brottflutningur
hersins hefjist umsvifalaust og hon-
um verði lokið ekki síðar en í lok
næsta árs.
Rússar segja á hinn bóginn að þeir
hafi ekki í nein hús að venda. Þá
vanti húsnæði fyrir herinn og pen-
inga til þess að koma sér upp búð-
um. Þeir vilja fá lengri frest eða allt
til ársins 1998. Eystrasaltsríkin þrjú
segja aftur á móti að vera rússneska
herliðsins sé ógnun við sjálfstæði
þeirra og geti orsakað óróa í þess-
um löndum.
Eystrasaltsríkin óttast að ef óvin-
veitt stjórnvöld setjast að völdum í
Moskvu, þá muni þau nota sér veru
hersins í þessum löndum og reyna
að seilast þar til áhrifa enn á ný.
Eins og kunnugt er, fengu ríkin
þrjú sjálfstæði sitt nýlega eftir að
hafa verið undir járnhæl Sovét-
manna í 41 ár.
Embættismenn í Eystrasaltslönd-
unum hafa kvartað mjög undan því
að hafa ekki neinn aðgang að her-
stöðvum þeim sem staðsettar eru á
landi þeirra. Þá fái þeir engar upp-
lýsingar um athafnir eða ferðir
rússneska hersins. Loks segjast þeir
óttast mjög að gömlum sovéskum
hersveitum, sem staðsettar voru í
Þýskalandi og Póllandi, hafi verið
komið fyrir í löndum þeirra.
Bandaríkjamenn hafa reynt að
miðla málum milli ráðamanna í
Moskvu annars vegar og Eystra-
saltsríkjanna hins vegar. Banda-
rískir þingmenn hafa þó beitt Bush
forseta þrýstingi og reynt að fá
hann til þess að veita Rússum ekki
fyrirhugaða efnahagsaðstoð nema
með því skilyrði að Rússar dragi
herlið sitt frá Eystrasaltsríkjunum.
í yfirlýsingu iðnríkjanna var einn-
ig vikið að þremur öðrum deilu-
málum og átökum innan Sovétríkj-
anna gömlu og hvatt til friðsam-
legra lausna.
Armenar og Azerar voru hvattir til
þess að hætta bardögum í Nag-
orno- Karabakh og leysa deilur sín-
ar með friðsömum hætti. Þess var
m.a. farið á leit við þá að þeir hvor-
ir um sig drægju heim herlið sitt á
svæðinu og leystu gísla úr haldi.
í yfirlýsingunni segir að helstu
iðnríki heims muni ekki undir
neinum kringumstæðum viður-
kenna breytingu á yfirráðum yfir
landi, sem orðið hefur vegna hern-
aðaríhlutunar og valdbeitingar.
Loks segir í yfirlýsingu sjö helstu
iðnríkja heims að ríkin sjö hafi
þungar áhyggju af bardögum í
Moldavíu á milli stjórnvalda og
þjóðrækinna Slava á Dnéstr-svæð-
inu og einnig bardögum í Suður-
Ossetíu. Hvatt er til að allir hlutað-
eigandi aðilar leggist á eitt til þess
að koma í veg fyrir að hernaður og
dráp breiðist út. —Reuter/Krás.
Krefjast 25 miljóna í skaðabætur
Tæplega tveir tugir selveiðimanna
hafa nú höfðað mál á hendur sænska
ríkissjónvarpinu. Ástæðan er sýning
og dreiíing sænska sjónvarpsins á
mynd kvikmyndagerðarmannsins
Odds Lindberg um selveiðar Norð-
manna við Jan Mayen.
Þykir selveiðimönnunum að sér veg-
ið í myndinni og þar farið ranglega
með staðreyndir. Þeir halda því fram
að um hreina fölsun sé að ræða í
nokkrum tilfellum.
Selveiðimennimir, sem krefjast 25
miljóna króna í skaðabætur af sænska
sjónvarpinu, standa einnig í málaferl-
um við norska fjölmiðla. Alis nema
skaðabótakröfúr þeirra um 200
miljónum ísl. króna.
Sjónvarpsmynd Odds Lindberg um
norsku selveiðamar var sýnd í sænska
sjónvarpinu árið 1989 og olli hún
miklu fjaðrafoki. í henni var látið að
því liggja að norskar selveiðar væm
mikil villimennska og leiddi það til
mikilla mótmæla gegn veiðunum.
Þannig gagnrýndi Karl XVI Gústaf
Svíakonungur meðal annarra norska
forsætisráðherrann Gro Harlem
Bmndtland vegna máls þessa. í um-
mælum, sem hann lét sér um munn
fara, efaðist hann um hæfni Bmndt-
lands til þess að stýra málefnum
norsku þjóðarinnar, fyrst henni hefði
ekki tekist betur til við að vemda sel-
ina og raun bar vitni.
Vegna þessara ummæla Svíakonungs
krefjast norskir selveiðimenn nú op-
inberrar afsökunar. Þeir segja að Karl
XVI Gústaf hafi með þessum orðum
svert mannorð norskra selveiðimanna
og átt þátt í að leggja heila atvinnu-
grein í Noregi í rúst.
Hvort sem Svíakonungur ber fram
afsökunarbeiðni eður ei, þá er næsta
víst að selveiðimennimir muni vinna
skaðabótamál sitt á hendur norskum
dagblöðum og norsku sjónvarpi, sem
birt hafa myndir og greinargerðir
Odds Lindberg um selveiðamar.
Dagblaðinu TVomsö hefur þegar ver-
ið gert að greiða rúmar þrjár miljónir
króna í skaðabætur, og hefur sá dóm-
ur þegar verið staðfestur af hæstarétti.
Það er hins vegar óljósara hvemig
málareksturinn muni ganga gegn
sænska sjónvarpinu. Það stafar af mis-
munandi lagaákvæðum í Noregi og
Svíþjóð. Ljóst þykir að sænska sjón-
varpið muni reyna að þæfa málið þar
til lög EB um frelsi fjölmiðla og mála-
rekstur á hendur þeim hafa verið sam-
þykkt.
Málið snýst um hvort hægt er að láta
dreifingaríyrirtæki, sem í þessu tilfelli
er sænska sjónvarpið, svara til saka í
öðm landi þar sem efni frá því hefur
verið sýnL Óljóst er hvemig hinn
sameiginlegi evrópski lagabókstafúr
um tjáningarfrelsi mun endanlega líta
út, og svo mun einnig vera um mörg
önnur málefni EB.
-IVS, Svíþjóð
SARAJEVO
Bardagar blossuðu upp í Bo-
sníu- Herzegóvínu í gær. Her-
sveitir hliðhollar Serbum börð-
ust grimmilega við sveitir mús-
lima og Króata í norðurhéruð-
um Brcko og Derventa.
Serbarnir nálguðust óðfluga
landamærabæ í Króatíu, eftir
því sem fréttir í útvarpi Króata
sögðu. Skipst var á skotum
víðar i Bosníu, m.a. í höfðu-
borginni Sarajevo.
MÚNCHEN
(yfirlýsingu frá leiðtogum
helstu iðnrikja heims segir að
S.Þ. muni hugsanlega þurfa
að beita valdi til þess að koma
hjálpargögnum til Bosníu-
Herzegóvínu. Þá voru stríð-
andi aðilar einnig varaðir við
þvf gera nokkuð það sem gæti
skaðað starfsmenn hjálpar-
sveita S.Þ.
MOSKVA
Talsmenn Kommúnistaflokks-
ins í Sovétríkjunum gömlu
sögðu í gær að sú aðgerð nú-
verandi leiðtoga Rússlands,
Borísar Jeltsín, að banna starf-
semi á vegum flokksins myndi
leiða til einræðis í dulargervi
lýðræðis.
KISHINYOV, Moldavíu
Þingið í Moldavíu hét á fimm
stjórnir annarra ríkja að senda
friðargæslusveitir til landsins til
þess að stöðva mætti grimmi-
lega bardaga milli stjórnar-
hersins í Moldóvu og rúss-
neskra aðskilnaðarsinna.
PARÍS
Franskir vörubifreiðastjórar
höfðu að engu samkomulag
við stjórnvöld, sem gert var
síðastliðna nótt. Þeir gáfu lög-
reglu langt nef og settu upp
nýja vegatálma jafnskjótt og
þeim var rutt úr vegi af lög-
reglu. Mótmæli bílstjóranna
hafa nú staðið í níu daga og
eru farin að hafa áhrif á efna-
hagslíf í Frakklandi.
LONDON
Bretar hafa lagt fram nýjar
áætlanir um varnir landsins,
sem miöast fremur við stað-
bundnar varnir en að stórfelld
ógn geti dunið yfir Vestur-Evr-
ópu. Þeir gera þó ráð fyrir að
geta sent herlið til átakasvæða
víðsvegar um heiminn. Þessar
áætlanir koma í kjölfar vaxandi
þíðu í heimsmálum og þess að
kalda stríðinu er talið lokið.
JÓHANNESARBORG
Viðskiptajöfrar hafa sagt Nel-
son Mandela, leiðtoga Afríska
þjóðarráðsins, að frekari óeirð-
ir og vandræði á sviði stjórn-
mála gætu skaðað efnahag
Suður-Afríku varanlega, enda
hafi viðskiptaþvinganir á landið
þegar haft skaðleg áhrif.
BAGDAD
Vopnasérfræðingar á vegum
S.Þ. stóðu vakt þriðja daginn í
röð fyrir framan landbúnaðar-
ráðuneytið í Baghdad. Ekki
bólaði neitt á því að (rakar ætl-
uðu að láta undan kröfu S.Þ.
og hleypa þeim inn fyrir.
KÓLOMBÓ, Sri Lanka
Hersveitir stjórnarinnar á Sri
Lanka drápu 30 skæruliða
Tamíla í norðurhéruðum lands-
ins, lögðu undir sig einar búðir
skæruliða en eyðilögðu aðrar,
segir í fréttum frá varnarmála-
ráðuneyti landsins.