Tíminn - 08.07.1992, Page 12
AUGLVSINGASÍMAR: 680001 & 686300
r
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oðruvísi bílasala r
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
LU
HÖGG-
> . DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahluti
Hamarsböföa 1 - s. 67-6744
P
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1992
OECD segir of mikinn halla á ríkisbúskapnum til þess að unnt sé að lækka skatta eða auka ríkisútgjöld:
Hagræðing í veiðum gæti aukið
atvinnuleysi og byggðaröskun
„Hallinn á rfldsbúskapnum er nú meirí en svo að hægt sé að
grípa til skattalækkana eða aukinna ríkisútgjalda til að auka
eftirspum í hagkerfinu. Lánsfjárþörf hins opinbera, sem á
síðasta ári var rúmlega 10% af landsframleiðslu, hefur farið
mjög vaxandi. Þessa aukningu má að mestu rekja til húsnæð-
iskerfisins.“ Þetta segir m.a. í lokakafla nýrrar skýrslu OECD
um íslensk efnahagsmál.
„Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs,
sem OECD álítur mikilvægustu
ríkisfjármálastærðina, jókst í upp-
sveiflunni fram til 1988 og er nú
um 2-3% af landsframleiðslunni.
Þetta er óþægilega hátt hlutfall og
þarf að lækka á næstu árum.“
Þessi nýja skýrsla verður varla til
þess að vekja mönnum mikla
bjartsýni. Efnahagshorfur til
skamms tíma mótist öðru fremur
af væntanlegum fiskafla og þróun
fiskverðs. „Horfur í þessum efn-
um eru ekki uppörvandi,“ segir
OECD. Því til viðbótar líklegum
takmörkunum á þorskafla næstu
árin virðist sennilegra að fiskverð
muni lækka á næstu árum heldur
en hækka. Sömuleiðis sé nú
ósennilegt að álframkvæmdir
hefjist nægilega snemma til þess
að mikilla áhrifa gæti á íslenskt
efnahagslíf næstu tvö árin.
Hófsamir kjarasamn-
ingar forsenda
„Bjarta hliðin á íslenskum efna-
hagsmálum að undanförnu er hin
mikla lækkun verðbólgunnar." En
festa í efnahagsstjórn og hófsamir
kjarasamningar eru forsenda þess
að hægt verði að tryggja áfram-
haldandi stöðugleika. í þessu
sambandi er mikilvægt að ríkis-
stjórnin láti ekki undan kröfum
um aukin útgjöld, því það gæti
teflt ríkisfjármálum í tvísýnu.
Áframhaldandi gengisfesta getur
orðið sú kjölfesta árangursríkrar
peningastefnu sem mjög hafi
skort á undanförnum árum.
Aukið atvinnuleysi
og byggðaröskun
Nauðsynlegt er, að mati OECD,
að hrinda í framkvæmd ýmsum
umbótum í hagkerfinu sem skilað
gætu ávinningi á næstu árum.
Kvótakerfið þurfi líklega að
treysta þannig að betri stjórn ná-
ist á heildarafla. Þetta mun vafa-
laust þýða minni tekjur í sjávarút-
vegi í bráð, en skila sér síðar í
bættu ástandi fiskstofna og aukn-
um tekjum. Hagræðing í veiðum
gæti leitt til verulegs sparnaðar og
tekjuauka fyrir þjóðarbúið. „Til
skamms tíma gæti þetta leitt til
aukins atvinnuleysis og byggða-
röskunar, en sveigjanleiki íslenska
vinnumarkaðarins gefur tilefni til
að ætla að þessi aðlögunarvandi sé
leysanlegur."
Einkavæðing hús-
næðislánakerfísins
Frekari umbætur á sviði fjármála
telur OECD að hefðu örvandi áhrif
á framleiðni hagkerfisins. Einka-
væðing fjárfestingalánasjóðanna
mundu hvetja til aukinnar hag-
ræðingar á ráðstöfun fjárfesting-
arfjár. Einkavæðing húsnæðis-
lánakerfisins gæfi einkaaðilum
einnig kost á meiri fjölbreytni á
fjármagnsmarkaðinum. OECD
líst líka vel á að loka fyrir aðgang
ríkissjóðs að lánsfé úr Seðlabanka.
„Betur má ef duga
skal
Umbætur í hagstjórn í því skyni
að minnka verðbólgu og halda
halla ríkissjóðs í skefjum hafa, að
mati OECD, skapað margs konar
tækifæri. Sérstaklega hafi aukið
frelsi á fjármagnsmarkaði, lækk-
andi verðbólga og stöðugt gengi
rutt brautina í átt að nánari efna-
hagslegri samvinnu við Evrópu.
Og slíkur samruni ætti að fela í
sér efnahagslegan ávinning þegar
fram í sækir. Enn nánara samstarf
í anda samningsins um EES
krefjist hins vegar frekari umbóta
í sömu átt og hrint hafi verið í
framkvæmd að undanförnu.
„í almennum orðum má segja að
sú stefna sem varðað hefur veg-
inn í átt til efnahagslegs stöðug-
leika og markaðsbúskapar muni
leiða af sér styrkara og fjölbreytt-
ara efnahagslíf með auknum
möguleikum fyrir íslendinga til
að takast á við verkefni framtíðar-
innar.“
- HEI
Viðbrögð í utanríkismálanefnd Alþingis:
Eykon vill fara
varlega í EES
Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður
utanríkismálanefndar Alþingis, lýsti
því yfir í gær að hann væri enn
þeirrar skoðunar aö fara þurfi var-
lega í EES málinu. Hann benti á að
sá vafi sem uppi væri meðal sér-
fróðra manna um það hvort samn-
ingurinn stangist á við stjórnar-
skrána gæfi sérstakt tilefni til að
gagna frekar skemur en lengra í
þessu máli.
Sama viðhorf er uppi meðal full-
trúa stjórnarandstöðunnar í utan-
ríkismálanefnd, en nefndinni var í
gær kynnt niðurstaða fjórmenn-
inganefndarinnar sem utanríkisráð-
herra skipaði í vor til að kveða upp
úr um málið. Stjórnarandstæðingar
hafa bent á sjónarmið þeirra dr.
Guðmundar Alfreðssonar og Ragn-
ars Aðalsteinssonar sem kallaðir
voru fyrir utanríkismálanefnd í gær.
Þeir komust báðir að annarri niður-
stöðu en fjórmenningarnir og hefur
afstöðu Guðmundar verið gerð ítar-
leg skil hér í blaðinu áður.
Kjaradómur:
Vill drífa málið af
Jón Finnson, formaður Kjaradóms, segir að stefnt sé að því að
ná niðurstöðu í málinu sem fyrst. Þetta er annar fundur Kjara-
dóms eftir að bráðabirgðalög voru sett um breytingar á lögum
dómsins og honum gert að endurskoða niðurstöðu sína um laun
æðstu embættismanna rfldsins.
Fyrsti fundur Kjaradóms eftir
bráðabirgðalög var á mánudags-
Flugslysið
við Heklu
Nafn piltsins sem fórst í flugslysinu
við Heklu aðfaranótt laugardags var
Sigurður Bernharð Hauksson. Hann
var fæddur árið 1972. —GKG.
kvöld. Fundinn sátu fjórir dóms-
manna, hinn fimmti Brynjólfur
Sigurðsson prófessor var norður
á Sléttu við smíði sumarbústað-
ar. Erfitt hefur reynst að ná sam-
bandi við hann, en skilaboð lágu
fyrir hann í gær að fundur yrði í
dag. Jón Finnsson segir tæpast
að vænta að gengið verði endan-
lega frá málinu fyrr en allir séu
mættir á fund. „En auðvitað
stefnum við að því að ná sem
lengst í þessu og sem fyrst.“
-BS
Hin nýju vatnssalerni í Hvítárnesi.
Þjónusta við ferðamenn bætt:
Tímamynd Alfreð
Vatnssalerni á Kili
Vatnssalernum hefur verið komið
fyrir í Hvítámesi á Kili spölkom
frá sæluhúsinu en þama hefur að-
eins verið kamar fram til þessa.
„Húsinu með vatnssalernunum
var komið þarna fýrir í fyrra en það
vannst ekki tími til að tengja vatnið
því sumarið er stutt en nú er því
lokið," segir Þórunn Þórðardóttir,
starfsmaður Ferðafélags íslands.
Sjálfboðaliðar lögðu vatnslagnirn-
ar um síðustu helgi. Vatnið er tekið
úr Svartá sem rennur í Hvítárvatn
og næst góður halli svo vatnið
rennur greiðlega.
„Við erum mjög ánægð með þessa
framkvæmd og húsið er mjög
snyrtilegt í umhverfinu," segir Þór-
unn. „Ferðafélagið vinnur núna að
því að koma alls staðar upp vatns-
salernum við sín sæluhús því um-
ferðin hefur aukist svo mikið síð-
ustu ár að það gengur ekki að hafa
kamra."
Vatnssalernum hefur t.d. verið
komið fýrir uppi á Hverárvöllum, í
Landmannalaugum, Nýjadal og
Þórsmörk. Nú er verið að huga að
því að setja upp vatnssalerni við
Álftavatn en ekki hefur verið fært
þangað enn. Ferðafélagið leggur
gistigjöldin í framkvæmdirnar.
„Það er krafa tímans að hafa vatns-
salerni, kamrarnir heyra fortíðinni
til,“ segir Þórunn að lokum.
—GKG.