Tíminn - 15.07.1992, Síða 12

Tíminn - 15.07.1992, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Áskriftarsími Tímans er 686300 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 ððruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 Laxí sleppt í Andakílsá Laxi hefur veriö sleppt í 5 km langt svæði í Andakflsá ofan virkj- unar, og verður sala veiðileyfa hafin upp úr næstu helgi. ,Ætli við sleppum ekki um 40-50 stykkjum, svona til að byrja með,“ segir Rúnar Ragnarsson, sem stend- ur fyrir framkvæmdunum, en hugs- anlegt er að veiðileyfasalan verði angi af hlutafélaginu Hafnarlaxi. Verð veiðileyfanna hefur enn ekki verið ákveðið, en líklegt er að það geti orðið um 7-8000 kr., eða þrisvar sinnum ódýrara en veiðileyfin í neðri ánni. „Veiðin gæti skapað atvinnu fyrir bændur í sambandi við eftirlit og ferðamannaþjónustu," segir Rúnar. „Það hefur m.a. komið til tals að smíðuð verði veiðihús, sem hægt yrði að nýta yfir veturinn líka.“ Laxinn kemur frá Hafnarlaxi og er úr borgfirskum stofni. Þeir stærstu, sem sleppt hefur verið, eru allt upp í 18-20 punda. Mikill áhugi er á veiðileyfunum og hafa nú þegar fjölmargar eftirspurn- ir borist um þau. „Það er komin reynsla á svona flutninga í Norðlingafljóti í Borgar- firði, sem hafa lofað mjög góðu,“ segir Rúnar. —GKG. Fiskvinnslan á Bíldudal: Lýsir yfir gjaldþroti Ákveðið var á stjómarfundi Fisk- vinnslunnar á Bfldudal í gær að óska eftir að fyrirtældð yrði teklð til gjaldþrotaskipta. „Samhliða þessu tekur Útgerð- arfélag Bflddælinga fiystihúsið tímabundið á leigu og byrjar þar vinnslu,“ segir Jakob Kristinsson framkvæmdastjóri. „Hver fram- tíðin verður síðan, er alveg óráð- ið.“ Forráðamenn fyrirtækisins mæta hjá héraðsdómara Vest- fjarða kl. 13:00 í dag, þar sem gengið verður frá formsatriðum. —GKG. HOGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum Tíminn MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ1992 Fyrirhuguö kirkjubygging á opna svæöinu og svæðið eins og þaö er nú. Safnaðarnefnd Digranessóknar: Kirkjubyggingin ekki á friðlýstu svæði Töluverðar deilur hafa verið í Digranessókn í Kópavogi um fyrir- hugaða kirkjubyggingu á Víghóli. Víghólasamtökin hafa mótmælt byggingunni með þeim rökum að um náttúruspjöll væri að ræða og skerðingu á útsýni frá einum helsta útsýnisstað Kópavogs. Rútan sem brann í Kömbunum í lok júnl. Þann bruna á nú aö fara aö rannsaka. Sóknarnefnd Digranessóknar efndi í gær til blaðamannafundar þar sem þessum ásökunum var svarað og fýr- irhuguð kirkjubygging kynnt. Digranessöfnuður er með stærstu söfnuðum landsins og hefur haft af- not af Kópavogskirkju síðan söfnuð- urinn var stofnaður árið 1971. Síðastliðin 15 ár hefur verið rætt um kirkjubyggingu í sókninni. Jón- as Frímannsson, ritari sóknarnefnd- arinnar, segir að í einu og öllu hafi verið farið að lögum um undirbún- ing málsins. Auðvitað megi deila um hvar kirkja eigi að rísa, en í lögun- um stendur að sveitarfélög skuli út- Tvær langferðabifreiðar brenna með stuttu millibili: NÝ REGLUGERÐ UM BÚN- AÐ LANGFERÐABIFREIÐA í dómsmálaráðuneytinu er nú ver- ið að leggja síðustu hönd á nýja reglugerð um búnað langferðabif- reiða, sem verður viðameiri en sú sem nú er í gildi. Þar verður m.a. krafist öflugri eldvama og er það vel, því í sumar hafa tvær langferða- bifreiðar bmnnið með stuttu milli- bili í Kömbunum. Sú fyrri brann til kaldra kola á uppleið í lok júní, en sú síðari var á niðurleið á sunnu- daginn var og brann aðeins vélar- hlífin. í næstu viku fer fram rannsókn á vegum Bifreiðaskoðunar íslands á þeirri fyrri. „Við ætlum að beina sjónum okkar að því hvort þetta er eitthvað, sem við verðum að athuga betur í skoð- unarferlinu og þá með tilliti til þess hvort það verði að gera aðrar kröfur til hlífa eða efnis í gólfum," segir Birgir Hákonarson hjá Bifreiðaeftir- litinu. Ekkert hefúr verið haft samband við Bifreiðaeftirlitið út af bifreiðinni sem kviknaði í á sunnudaginn. „Það er sagt að eldurinn í fyrri bfln- um hafi komið upp út af álagi, en ég á nú bágt með að trúa því að svo hafi verið með þá sem var á leiðinni nið- ur,“ segir Birgir. „Rannsóknin, sem fram fer í næstu viku, gæti leitt í Ijós einhver atriði sem við skoðum í raun og vem ekki neitt, t.d. hvað varðar þau efni sem em í innrétting- unum og hvernig leiðslurnar eru varðar." —GKG. vega lóð undir kirkju safnaðar og þar gengið út frá þeirri meginreglu að hver söfnuður hafi sína kirkju. Ýmsir staðir hafl verið nefndir undir kirkju í sókninni, sumir í jaðri sókn- arinnar og aðrir þar sem nú er hin nýja Hjallasókn, sem var stofnuð ár- ið 1987. Þá em aðrir staðir horfnir undir umferðarmannvirki. Einnig hefur verið orðað að byggja eina kirkju fyrir Hjalla- og Digranessókn, en sá möguleiki er nú út úr mynd- inni, þar sem Hjallasókn er byrjuð að byggja sína eigin kirkju. Jónas bendir á að með því að byggja kirkju á fyrirhuguðu svæði sé verið að stuðia að náttúmvernd og að því að þetta svæði verði opið áfram. Opna svæðið er alls um 17 þús. fermetrar, en fyrirhuguð kirkjubygging aðeins 700 fermetrar eða aðeins 4% af svæðinu. Sóknarnefndin segir það ekki rétt að til standi að byggja kirkjuna á friðlýstu svæði, enda hafi Náttúm- verndarráð ekkert við bygginguna að athuga. Benjamín Magnússon arkitekt, sem teiknað hefur kirkj- una, segir að fyrstu uppdrættir sýni háhýsi á svæðinu. Samkvæmt nýju aðalskipulagi er fyrirhuguð kirkjubygging utan frið- lýsts svæðis. Víghóllinn sjálfur sé friðlýst náttúruvætti, en hins vegar sé svæði í kringum hann friðlýst með þeim formerkjum að bæjar- stjórn hyggst leggja þar göngustíga og gróðursetja plöntur. Kirkjubygg- ingin sjálf standi hins vegar utan þess svæðis, nema að kirkjuport komi inn á þetta svæði ásamt göngustígum til og frá kirkju. Við hönnun hafi verið tekið tillit til þess að útsýni raskist sem minnst. Safnaðarnefndin er tilbúin að hefja framkvæmdir um Ieið og tilskilin leyfi hafi borist frá skipulagsstjórn. Áætlaður byggingarkostnaður, að meðtöldu orgeli og öllum frágangi, er um 200 milljónir og áætlaður byggingartími um eitt og hálft ár. Fé til byggingarinnar er til. Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri Kópavogsbæjar, segir að engar at- hugasemdir hafi borist vegna fyrir- hugaðs skipulags, en frestur til þess rennur út í dag. Safnaðarfundi í Digranessókn hef- ur verið frestað til hausts með leyfi dómprófasts, en ekki er enn ljóst hvort fyrirhuguð kirkjubygging verður hafin fyrir þann tíma. -BS Slökkviliöið kallað að Propiaugarstöðum: olli óhug Slökkviliðiö í Reykjavík var kallað að Droplaugarstöðum í gær. Borið hafðl á brunalykt upp úr ruslalúgu og hélt starfsfólk að eldur væri íaus í ruslinu. Eng- inn eldur fannst þó, og brá slökkviliöið þá á það ráð að sprauta eilitlu vatnl niður stokk- inn. Ekki varð vart við neina brunalykt eftir það. Talið er að sígarettu hafi verið fleygt niður um lúguna, hafi hún fest á leiðinni og valdið lyktinni. —GKG.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.