Tíminn - 28.07.1992, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 28. júlí 1992
Tíminn 3
Umsögn Islenskrar verslunar um breyt-
inguá lögum um tolla og vörugjald
vegna EES-samnings:
Vörugjaldió
stríðir gegn
markmiðum
EES-samnings
„Samtökin vara alvarlega við
áformum um toilheimtu í formi
vörugjalda og telja í raun að frum-
varpið stríði í grundvallaratriðum
gegn markmiðum um fijálst og
hindrunarlaust vöruflæði innan
EB/EES. Þá er mikil hætta á því að
álagning vörugjalda með þessum
hætti muni gera vöruverð hér á
landi ósamkeppnishæft og muni
stuðla að flutningi verslunar frá ís-
landi til annarra landa þar sem
vörugjöld eru ekki lögð á.
Við teljum því að leita verði ann-
arra leiða og bendum á fækkun und-
anþága frá virðisaukaskatti til að
mæta tekjuöflun frumvarpsins að
upphæð 2.405 milljónir."
Þetta segir í niðurstöðu samtak-
anna íslensk verslun í umsögn um
lagafrumvarp um breytingu á tolla-
lögum og lögum um vörugjald, sem
fram er komið vegna samningsins
um EES, sem á að tryggja að álagn-
ing gjalda á vörur frá ríkjum EES
verði í samræmi við ákvæði samn-
ingsins um hindrunarlaus viðskipti
milli landanna. Að íslenskri verslun
standa Félag ísl. stórkaupmanna,
Kaupmannasamtökin og Bflgreina-
sambandið. Samtökin hafa hitt og
þetta við frumvarpið að athuga og
umsögnin hlýtur að veikja vonir
þeirra, sem voru famir að hlakka til
þess að EES-samningur mundi færa
okkur stórum lægra vöruverð. Auk
þess sem stefnt sé að víðtækari inn-
heimtu vörugjalda en þekkst haft
hingað til, sé gert ráð fyrir víðtækari
innheimtu verðjöfnunartolla á inn-
flutt matvæli.
Samtökin lýsa sig afar ósátt við
stóraukna töku vörugjalds. Sam-
kvæmt frumvarpinu fjölgi gjald-
flokkum úr tveim og upp í sex. Og
gjaldhlutfallið verði frá 7,5% upp í
37,5%. í dag sé það annað hvort
11,25% eða 31,25%. Samtökin telja
að svo umfangsmikil innheimta
vörugjalds, eins og frumvarpið gerir
ráð fyrir, stríði gegn markmiðum
samningsins (sbr. 3. og 10 gr.) um
bann við álagningu tolla og annarra
gjalda sem hafa samsvarandi áhrif.
Líta verði á fyrirhugaða innheimtu
vörugjalda sem ígildi tolla.
Jöfnunartollamir mundu lfka
valda hækkun á matvömverði að
mati íslenskrar verslunar. Með
frumvarpinu sé gert ráð fyrir víð-
tækari heimild til álagningar verð-
jöfnunartolla á matvæli. Þessir toll-
ar séu bæði flóknir og torveldi tollaf-
greiðslu.
Lækkun ytri tolla í 7,5% segir ís-
lensk verslun of lítið og mælir með
að þeir verði ekki yfir 5%. Auk þess
sem háir ytri tollar komi f veg fyrir
hagkvæm viðskipti við lönd utan
EES, séu settar enn frekari skorður
á innflutning matvæla frá löndum
utan svæðisins með reglum um um-
búðamerkingar.
Skuldbindingu samningsaðila,
samkvæmt bókun 10, um að ein-
falda tolleftirlit og vömflutninga
telja samtökin aftur á móti fram-
faraspor. Samkvæmt bókuninni eiga
samningsaðilar að taka upp slembi-
athugun við vömskoðun til lands-
ins.
- HEI
Páll Líndal
ráðuneytis-
stjori
Páll Lfndal, ráðuneytisstjóri um-
hverfisráðuneytisins, varð bráð-
kvaddur að heimili sínu sl. laugar-
dagsmorgun.
Páll fæddist 9. des. 1924 í Reykja-
vík. Hann varð stúdent frá MR og
cand. jur. frá HÍ 1949, héraðsdóms-
lögmaður í júlí 1951 og hæstaréttar-
lögmaður í des. 1961.
Páll Líndal starfaði hjá Reykjavík-
urborg frá 1951 til 1977, lengst af
sem borgarlögmaður, og gegndi jafn-
framt fjölda trunaðarstarfa tengdum
borgarmálum, bridsmálum og sveit-
arstjómarmálum bæði á innlendum
og erlendum vettvangi. Þannig var
hann um árabil formaður Sambands
ísl. sveitarfélaga. Hann var einnig af-
kastamikill rithöfundur og sérlega
fróður um sögu Reykjavíkur og gerði
henni skil í mörgum bóka sinna.
Páll Líndal starfaði að því að undir-
búa stofnun umhverfisráðuneytisins
og stjómaði því frá stofnun þess 23.
febrúar 1990 til dauðadags. Páll hafði
latinri
Páll Líndal.
beðist lausnar frá störfum fyrir ald-
urs sakir frá og með 1. ágúst nk.
—sá
F.v. Hallfríður Ólafsdóttir, Guðríður St. Sigurðardóttir, Ármann Helgason og Þórunn Guðmundsdóttir.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Þriðjudagstónleikar
í kvöld verða haldnir þríðjudags-
tónleikar í Listasafni Siguijóns 01-
afssonar og hefjast þeir klukkan
20.30.
Fram koma þau Ármann Helga-
son klarinettuleikari, Guðríður St.
Sigurðardóttir píanóleikari, Hall-
fríður Ólafsdóttir flautuleikari og
Þómnn Guðmundsdóttir söng-
kona.
Flutt verða verk eftir Maurice Ra-
vel, Aaron Copland, Pierre Paubon,
Louis Spohr, Jacques Ibert og Frank
Martin.
Tónleikamir standa í um það bil
eina klukkustund og í efri sal safns-
ins er jafnframt sýning á æskuverk-
um Sigurjóns Ólafssonar. -BS
sem s\*r í gegnj
í fullum 9an9
14kaupstaður
2. hæð ímjódd A1IKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VIÐ SUND