Tíminn - 02.10.1992, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 2. október 1992
Menntamálaráðherra vill byggja undir kennslumið-
stöð við Kennaraháskólann en þangað til:
Kennslumiðstöð
á sama stað und-
ir stjóm KHÍ
Nylega sagði formaður Kennarafélags
Reykjavíkur að hugmyndir mennta-
milaráðherra um að ffytja Kennslu-
miðstöð námsgagnastofnunar í Kenn-
araháskólan væru óraunhæfar þó ddd
væri nema vegna þess að þar sé ekkert
húsnæði til staðar. ,JÞað eru engar
fréttir fyrir mig, ég vissi af því mæta-
veL Ég þarf ekki formann Kennarafé-
lags Reykjavíkur til að segja mér það.
Það er rétt að það er ekkert húnsæði
til í dag en það er ekkert sem segir að
það sé ekki hægt að færa Kennslumið-
stöð undir stjóm Kennaraháskólans
nú þegar,“ segir Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra.
Hann segir að það sé ekki beinn pen-
ingalegur spamaður af þessum flutn-
ingi heldur segi þeir sem komið hafi að
málinu að kennslumiðstöð sé betur
fyrirkomið undir stjóm Kennarahá-
skólans. Hann bætir við að það þurfi
auðvitað samkomulag við Námsgagna-
stofnun ef kennslumiðstöð eigi að vera
þar áfram þangað til að komið er hús-
næði á lóð Kennaraháskólans. Ólafúr
segir að Kennaraháskólinn sé engan
veginn fúllbyggður og það séu áætlan-
ir um áfiamhaldandi byggingar á lóð
skólans. .d’að er alveg ljóst að þær
þurfa að rísa fyrr eða síðar,“ segir Ólaf-
ur.
,J>að sem ég sagði á hátíðarfúndi í til-
efni hundrað ára afmælis kennara-
menntunar á íslandi var einfoldlega
það að eitt af því sem sérstaklega hefúr
verið rætt í sambandi við endurskoðun
á starfsemi Námsgagnastofnunar er að
flytja kennslumiðstöðina til Kennara-
háskóla íslands," segir Ólafúr.
„Um þetta hefúr orðið eitthvað fiaðra-
fok. Ég hef í framhaldi af þessu óskað
eftir umsögn stjómar Námsgagna-
stofiiunar um breytingu á reglugerð
vegna þessa. Þá hef ég óskað eftir að til-
nefndir verði fúlltrúar bæði frá Kenn-
araháskólanum og námsgagnastjóm
með menntamálaráðuneytinu til þess
að ræða þennan flutning, þ.e^LS. að
kennslumiðstöðin verði feerð undir
stjóm Kennaraháskólans og verði á
sínum tíma flutt þangað," segir Ólalúr.
Ólafúr segist hafo orðið var við tregðu
frá stjóm Námsgagnastofnunar. „Er
það ekki bara þetta venjulega að menn
vilja halda utan um það sem þeir hafo
en ekki missa neitt,“ sagði Ólafúr að
lokum. HÞ
»Rita gengur menntaveglnn", heitir leikrit eftir Willy Russel sem frumsýnt verður á litla sviði
Þjóðleikhússins í kvöld. Leikritið er þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni en þessarí uppfærslu leikstýrír María
Krístjánsdóttir. Aöalleikararnir sem hér sjást eru Arnar Jónsson, sem leikur kennarann, og Tinna
Gunnlaugsdóttir, sem leikur Ritu.
Hjá VR eru 410 á atvinnuleysisskrá:
Hafa ekki verið
fleiri á öldinni
f 100 ára sögu Verslunarmannafélags Reykjavíkur hafa aldrei verið
fleiri á atvinnuleysiskrá hjá félaginu en um þessar mundir, eða 410
manns. Á síðustu tveimur vikum hefur þeim fjölgað um 40 eða um
10%.
Á fúndi stjómar og trúnaðarmanna-
ráðs VR í fyrrakvöld var ákveðið að
boða ekki til yfirvinnubanns að sinni
vegna sunnudagsopnunar verslana í
Kringlunni. Pétur Maack, varafor-
maður félagsins, segir að á meðan orð
séu til alls fyrst, verði reyndur sá
möguleiki að fora hina fríðsömu leið,
enda hafi bæði kaupmenn og VSÍ lýst
yfir vilja til viðræðna við félagið.
í samþykkt fúndarins í fyrrakvöld
Afkoma vestfirskra byggða:
Vá fyrir dyrum
Stjórn Alþýðusambands Vestfjarða telur að vá sé fyrir dyrum
með afkomu vestflrskra byggða, sem stappar nærri byggðarösk-
un, ef 60-70 þúsund tonna niðurskurður á þorskveiðiheimild-
um, verði ekki bættur með einhveijum öðrum efnahagslegum
úrlausnum en með kvaðalausum fjárstyrkjum til útgerða.
f samþykkt stjómar A.S.V. er lý*t
eftír tlliögum byggöastofnunar og
ráðstöfunum sljómvalda til að
leysa úr vanda flskvinnshifólks,
frystihúsanna og byggðaríaganna
sem sifja cftir með gífurlegan
íjárhagsvanda f kjölfar niður-
skurðar á þorskveiðiheimildum.
Þá mótmælir stjóm sambands-
ins harðlega öllum tUlögum sem
miða að því að auka vaxtabyrðar á
cfnalítiö fólk f verkamannabú-
staðakerflnu. „Slíkt er á skjön við
Öll fyrirheit í kjarasamníngum
sfðustu ára um jöfnuð í þjóðfélag-
inu.“ Að sama skapí telur stjóm
Alþýðusambands Vestfjaröa það
einnig vera brot á samkomulagi
verkafólks og stjómvalda ef breyt-
ingar á iögum um virðísaukaskatt
veldur hækkun á verði matvöru,
hltakostnaðl og öðrum brýnum
lífsnauösynjum.
-grh
segir meðal annars að kaupmenn not-
færi sér erfitt atvinnuástand með því
að þvinga starfsmenn sína bæði leynt
og ljóst til að vinna á sunnudögum.
Pétur Maack segir að mýmörg dæmi
séu til um þetta, því miður.
Þá samþykkti fúndurinn að skora á
kaupmenn að virða gildandi lög og
kjarasamninga, en félagið telur að þeir
hafi einhliða brotið gildandi samninga
við verslunarmenn með sunnudags-
opnun verslana. Jafnframt sé sunnu-
dagsopnun í mótsögn við fyrri yfirlýs-
ingar vinnuveitenda að ekki sé svig-
rúm til launahækkana. Nær væri fyrir
þá að hækka grunnlaun sinna starfs-
manna en undanferið hefúr stór hluti
mánaðarlauna verslunarfólks verið yf-
irvinnukaup, sem óhjákvæmilega hef-
ur aukið kostnaðinn við að selja vör-
una. -grii
Loðskinn á Sauðárkróki á
í rekstrarerfiðleikum:
Getur ekki
rettum tima
Loðsldnn hf. á Sauðárkróki á í
miklum rekstrarerfiðleikum.
Fyrirtækið gat ekki greitt laun á
réttum tíma um þessi mánaöa-
mót Að sögn Birgis Bjamason-
ar, framkvæmdastjóra Loð-
skinns, er vonast til að það mái
leysist í dag, en viðræður standa
yfir við viðskiptabanka fyrirtæk-
isins, sem er Búnaðarbankinn,
og aðra iánardrottna.
Loðskinn hefur lengi átt í tals-
vert miklum rekstrarerfiðlelk-
um. Ástæðan er gamali og þung-
ur skuldabaggi sem fyrirtækinu
hefur gengið Ula að létta. Birgir
sagði að skuldir Loðsldnns hafi
ekki aukist síðustu tvö ár en
ekki haft tekist að standa í skil-
um með eldri ián.
Birgir sagðl ekki fyrirhugað að
segja starfsfólki Loðskinns upp
störfum. HI þess þurfi ekká að
koma ef þær viðræður sem nú
standa yfir sfeHi jákvæðri niður-
stöðu fyrir fyrirtækið. -EÓ
Menntamálaráðherra um sölu Skólavörubúðarinnar:
Engin ákvörðun tekin ennþá
„Það hefur enginn ákvörðun verið tekin um sölu á Skólavörubúð-
inni,“ segir Ólafur. Hann segir að í sambandi við endurskoðun á
starfsemi Námsgagnastofnunar hafí verið rætt um sölu Skólavöru-
búðarinnar en engin ákvörðun hafi verið tekin um það.
,Ég hef m.a. feert það fram að sá niður-
skurður sem ég verð að framkvæma
hefur áhrif á starf Námsgagnastofhun-
ar. Það er ein leið til þess að það hafi
minni áhrif að selja Skólavörubúðina.
Það er að vísu nokkuð sem gefúr tekjur
bara einu sinni. Ég hef aldrei látið að
því liggja að það sé einhver framtíðar-
rekstrarspamaður af því að selja búð-
ina,“ segir Ólafúr.
Hann bætir við að hún hafi ekki verið
neinn baggi og hún hafi samkvæmt
bókhaldi Námsgagnastofnunar skilað
hagnaði en segist ekki sjá þær forsend-
ur sem eiga að kalla á ríkisrekstur
Skólavörubúðarinnar.
,Ég veit að það er ýmislegt sérhæft þar
en pöntunarþjónusta í dag er öll önnur
en hún var þegar Skólavörubúðin var
sett á laggimar," sagði Ólafur.
íslandsbanki styrkir starfsmenn sína í að hætta reykingum:
Utibúið í Garðabæ
er orðið reyklaust
í gær var reyklaus dagur í íslandsbanka en undanfama mánuði hef-
ur staðið yflr sameiginlegt átak stjórnar íslandsbanka, Glitnis, VÍB
og Starfsmannafélags íslandsbanka sem nefnist Reyklaus íslands-
banki árið 2000. Ellefu útibú og aðrir vinnustaðir bankans eru þeg-
ar orðnir reyklausir. Sá stærsti þessara staða er útibú íslandsbanka
í Garðabæ og veitti Tryggvi Pálsson bankastjóri starfsfólki þar sér-
staka viðurkenningu í gær.
Átakið hófst í byrjun þessa árs og var
þá gerð viðamikil könnun meðal
starfsfólksins sem leiddi í ljós að yf-
irgnæfondi meirihluti þess var fylgj-
andi því að vinnustaðir væru reyk-
lausir. í tengslum við átakið hafa
læknamir Grimur Sæmundsen og
Kjartan Magnússon heimsótt flesta
vinnustaði bankans, kynnt niður-
stöður könnunarinnar, skaðsemi
óbeinna reykinga auk þess að svara
fyrirspumum. Þá er verið að undir-
búa námskeið fyrir þá starfsmenn og
maka þeirra sem vilja hætta að
reykja. íslandsbanki mun endur-
greiða þátttakendum helming nám-
skeiðsgjaldsins ljúki þeir námskeið-
inu. Þá verður starfsfólkinu endur-
greiddur hinn helmingur gjaldsins,
verði þeir enn reyklausir á vinnu-
stað að tveimur mánuðum liðnum
frá námskeiðslokum.
Kjartan Magnússon læknir útskýrir fyrir starfsfólki fslandsbanka
óhollustu óbeinna reykinga.